Dagur - 10.01.1935, Blaðsíða 3

Dagur - 10.01.1935, Blaðsíða 3
2. tbl. DAGUR 7 sinnar síldar, ákvæði um jafnað- arverð á síld sömu gæða, um- boðslaun til að standast kostnað við sölu og- öll þau atriði önnur, er hann telur þurfa. 10. gr. — Brjóti löggiltur út- flytjandi ákvæði laga þessara eða reglugerða, sem settar eru sam- kvæmt þeim, getur síldarútvegs- nefnd svift hann löggildingu og kært hann til fjársekta. 11. gr. — Nú telur ríkisstjórn- in og síldai'útvegsnefnd, með til- liti til markaðslanda og innan- landsástands, að betur muni not- ast útflutningsmöguleikar með því að taka upp einkasölu á síld, og getur ríkisstjórnin þá, með samþykki síldarútvegsnefndar, ef félag síldarframleiðenda, sem uppfyllir ákvæði 3. málsgr. 4. gr., æskir þess, veitt því um ákveðinn tíma einkarétt til að selja og flytja síld til útlanda, enda séu þá framkvæmdastjórar tveir, og tilnefni síldarútvegsnefnd annan þeirra. Sé , slíkur félagsskapur síldar- framleiðenda ekki til eða síldar- útvegsnefnd mæli eigi með því, að honum sé veittur slíkur einka- réttur, getur ríkisstjórnin falið síldarútvegsnefnd einkasölu á síld til útlanda, enda komi sam- þykki nefndarinnar til. Ræður þá síldarútvegsnefnd tvo fram- kvæmdarstjóra til þess að annast síldarsöluna og gerir aðrar þær ráðstafanir, sem nauðsyn krefur. Skal með reglugerð, er atvinnu- málaráðherra gefur út, ákveða í'yrirkomulag einkasölunnar, Verk- svið framkvæmdarstjórnar og annað það, er leiðir af ákvæðum þessarar greinar. Sé síldarútvegsnefnd falin einkasala á síld, telst kostnaður við störf hennar með rekstrar- kostnaði einkasölunnai'. 12. gr. — Brot gegn lögum þessum og reglugerðum, settum samkvæmt þeim, skulu sæta með- ferð almennra lögreglumála og varða sektum, allt að 200000 kr. nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum. 13. gr. — Lög þessi öðlast þeg- ar gildi. ■■■■■■■«■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Dánairdxgur. Hinn 7. þ. ra. andaðist að heimili sínu, Hlöðum í Glæsibæjar- hreppi, Halldór Stefánsson bóndi þar, kominn lítið yfir fertugt. Banamein hans var berklaveiki. — Halldór heit- inn var hinn ágætasti drengur á alla lund, prýði sinnar stéttar og hvers manns hugljúfi. Hefir því orðið hér- aðsbrestur við fráfall hans. Þó er hí- býlabresturinn vitanlega sárastur. Hann lætur eftir sig ekkju, tvö börn þeirra ung og gamlan föður sinn, Ste- fán Stefánsson, áður bónda á Hlöðum, sem nú er kominn yfir áttrætt og situr eftir í sárum. Þá er og nýlega. látin húsfrú Guð- laug Sigríður Þórðardóttir, kona Páls Jónssonar á Staðarhóli við Akureyri, en móðir Gunnars Pálssonar söngvara, frú Sigurjónu konu Jóhanns Frímanns kennara, frú Lovísu konu Kristins Þorsteinssonar deildarstjóra, og þeirra systkina. Frú Guðlaug var framúrskai'- andi dugnaðar- og sæmdarkona. SlÖfl SÍ03SÍ3 pÍBfiS. Beejarstjórnarkosn. á ísafirði. Þingið sat samtals í 83 daga og voru alls haldnir 165 þing- fundir, þar af 67 í neðri deild, 69 í efri deild og 29 í sameinuðu þingi. Þingið hafði alls 185 mál til meðferðar, þar af 145 frum- vörp, 38 þingsályktunartillögur, 1 fyrirspurn og auk þess 1 til- laga frá meiri hluta kjörbréfa- nefndar út af kosningunni í Skagafirði. 79 lög voru afgreidd frá þing- inu, þar af 33 stjórnarfrumvörp og 46 þingmannafrumvörp; 22, þingsályktunartillögur voru sam- þykktar. 4 stjórnarfrumvörp og 54 þingmannafrumvörp urðu ekki útrædd. 2 þingmannafrumvörp voru felld og 6 vísað frá með rök- ■ studdri dagskrá. 2 þingsályktun- artillögum var vísað til stjórnar- innar og 14 urðu ekki útræddar. í þingslitaræðu forseta samein- aðs þings, Jóns Baldvinssonar, fórust honum meðal annars orð á þessa leið: »Þingið hefir að þessu sinni af- greitt mörg stói'vægileg mál, og vil ég þar tilnefna löggjöf við- víkjandi skipulagi á sölu land- búnaðarafurða innanlands og um sölu sjávarafurða erlendis, sem hvoi-ttvegja eru hin þýðingar- mestu mál, er ráða þarf fram úr. Og þótt skiptar séu skqðanir um einstök málsatriði, þá geta sjálfsagt allir sameinast um þá ósk, að þessi löggjöf svo og önn- ur störf Alþingis megi verða til gagns og nytsemdar þjóð vorri, og eins um þá ósk, að oss takist að sigrast á þeim ískyggilegu örðugleikum, sem nú ógna at- vinnuvegum landsmanna«. Nýtt tímarit. Skákblað er merkilegt ,í blaða- útgáfu íslenzku þjóðarinnar. Um allmörg undanfarin ár hefir þessi fagra íþrótt, skáklistin, ekki átt sér neinn reglulegan boðbera hér á landi. — Þeir sem hafa vilj- að útvega sér einhvern fróðleik um skákina, hafa mátt gera sér það að góðu, að sækja allt slíkt út fyrir landsteinana, á ýmsra þjóða máli. Að vísu má geta þess, að blað um þetta efni var gefið út hér nokkurn tíma, eða á með- an áhugi skákmannanna var mestur, en svo dofnaði hann, og blað þeirra hætti að koma út. Síð- an liðu nokkur ár, og lítið orð fór af skáklistinni á íslandi, eins og á meðan ekkert skákblað var til. Á því sviði var kyrrstaða. Þessari íþrótt hnignaði á ís- landi, á meðan hún dafnaði hröð- um skrefum á meðal annara þjóða. En sem betur fór, lá skák- listin ekki lengi i í dauðadái hér. Nýjir áhugamenn komu frarn. Má vel vera, að heimsókn heims- meistarans í skák, dr. Aljechins, hingað, fyrir nokkrum árum síð- an, hafi haft sín áhrif. Eða þá heimsóknir erlendra skákkappa hvor til annam, og skákþingin, þar sem keppt var um meistara- Kommnnistar skreppa saman. Kosning bæjarstjórnar á fsa- firði fór fram 5. þ. m. samkvæmt nýjum lögum. úrslitin urðu þessi: Alþýðufl. hlaut 669 atkv. Sjálfstæðisfl. hlaut 503 — Kommúnistafl. hlaut 93 — í bæjarstjórn ísafjarðar eru 9 fulltrúar. Alþýðufl. kom þannig að 5 fulltrúum, Sjálfstæðisflokk-. urinn 4, en kommúnistar komu engum að, og ekki nálægt því. Er því Alþýðuflokkurinn í meirihluta í bæjarstjórninni. í fyrra féllu .bæjarstjórnar- kosningar þar í kaupstaðnum þahnig, að Alþýðufl. fékk 4 full- trúa, Sjálfstæðisfl. 4 og kommún- istar einn. Ætluðu þá kommún- istar að rifna af monti og stór- mennsku yfir þessum stórkost- lega sigri, en afturförin, er í ljós kom við þessar nýafstöðnu bæj- arstjórnarkosningar, er í fullu samræmi við ástandið í flokknum í heild sinni. tignir. En það mun hafa vakið erlendar þjóðir, betur en nokkuð annað, til íhugunar á skákinni. Það er þessvegna ekki ólíklegt, að þetta sama hafi. haft áhrif á íslendinga. Áhugi þeirra fór að smáleysast úr fjötrum, og síðast liðin ár hafa þeir iðkað íþrótt þessa af kappi, og sent nokkra sína beztu skákmenn til annara landa, á kappmót þar. Þá vantaði aðeins sitt eigið málgagn. Áhuginn var nú til en efni lítil. Þrátt fyrir það hafa þeir viljað sýna, að íslendingar þyrftu ekki að vera eftirbátar annara þjóða á þessu sviði. Nýtt skákblað hóf göngu sína, í nóv. sl. og þar með hafa íslendingar fengið þá ósk sína uppfyllta að eignast aftur skákblað á móður- . máli sínu. Þetta nýja skákblað er 16 síður í Eimreiðarbroti, og er því ætlað að koma út 6 sinnum á ári. Verð árgangsins er kr. 4.25. — Ritstjórarnir eru 4, Jón Guð- mundsson og Björn Fr. Björns- son Reykjavík og Björn Halldórs- son, lögfræðingur og Haukur Snorrason, skrifstofumaður hjá K. E. A., báðir hér á Akureyri. Er því sýnilegt, að ekki skortir ritstjóra. Og allt eru þetta ungir og efnilegir menn, fullir af áhuga fyrir málefninu, og ágætir skák- menn að auki. — Björn Halldórs- son, lögfr. sendir ávarpið, sem er stutt en mjög laglega ritað. Er það, fyrst og fremst hvatning til íslendinga, að efla þessa góðu í- þrott, sem hann telur að við séum fyllilega samkeppnisfærir í við aðrar þjóðir, þegar tillit er tekið til þess, hve okkar þjóð er fátæk og fámenn. Þá kemur skákfræði; vörn dr. Tarrasch gegn drottn- ingarbragði, síðan fréttir frá norræna skákþinginu sem háð var í Kaupmannahöfn, 18.—25. ágúst sl. og mættir voru 74 fulltrúar frá öllum Norðurlöndum, og þar á meðal 5 frá íslandi. Þá koma tefldar skákir frá þinginu, eftir ýmsa, sem þátt tóku í keppninni, og er hvorttveggja í senn, á- nægjulegt og fróðlegt að athuga þær. Ekki síður er fróðlegt að ýfirfara skák heimsmeistarans dr. Aljechins á móti hollenzka meistaranum, dr. Euwe, frá skák- þinginu í Zúrich 1934, en þá skák vann dr. Euwe. Síðan annáll, sem skýrir skemtilega frá helztu skák- viðburðum á þessu ári, skákdæmi eftir Hannes Hafstein, Hauk Snorrason og Helga Sveinsson, og að síðustu nokkur orði til kaup- enda. Þegar efnisyfirlit blaðsins er athugað, sézt, að þar kennir margra grasa. Má fyrst og fremst nefna allar skákirnar, annálinn og- fl. og. fl. Allt er blaðið hið myndarlegasta, og bæði pappír og prentun i góðu meðallagi. Er vonandi , að það mætti eiga langa og merkilega sögu að baki, er tímar liðu. Ég trúi ekki öðru en því, að íslendingar vilji vinna að því, að skákin eignist sinn þroskaferil hér, sem annarstaðar. En það gera þeir bezt með því að kaupa, lesa og útbreiða Skákblað- ið. 27. des. 1934. Ámi Bjarmvr frá Höfðahverfi. Afmælisfagnaður. U. M. F. Svarfdæla hélt hátíð- legt 25 ára afmæli sitt 30. des. s. 1. og bauð til ýmsum gestum, bæði úr sveitinni og utan hennar, stofnendum og vinum. Fór afmæl- isfagnaðurinn fram með rausn og prýði í hinu ágæta húsi félagsins á Dalvík. Deginum áður fylgdu ungmenna- félagar fastri venju, að sýna sjón- leik í sambandi við aðalfund og hefir sú venja haldizt í félaginu frá stofnun þess. Nú sýndu þeir »Æfintýri á gönguför«, að ýmsu leyti mjög vel. Einkum var það eftirtektarvert, hve útbúnaður allur var glæsilegur og smekkleg- ur, miðað við erfiða aðstöðu í litlu þorpi. En það verður skilj- anlegra þegar þess er gætt, að þarna hafa þeir glímt við þetta viðfangsefni í 25 ár og fómað því miklum tíma, og einn þeirra félaga, Steingr. Þorsteinsson, unnið það til að dvelja í Kbh. ár- langt eða meir, til þess að fá til- sögn í listmálaraiðn og hafði hann málað leiktjöldin af mikilli smekkvísi, og er vafalaust efn-is- maður á því sviði. Á liðnum 25 árum hefir U. M. F. Svarfdæla unnið menningu Svarfdæla mikið gagn og sýna verkin merkin. Og þó ekkert lægi eftir það annað en sundskálinn og hið ágæta samkomuhús þess á Dalvík og trjáreiturinn, niætti

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.