Dagur - 01.05.1935, Blaðsíða 2
72
DAGUR
18 tbl.
Jónas Jónsson og
ungmennafélögin.
Fyrir fimmtíu árum stóð vor-
gyðjan við vöggu nýfædda sveins-
ins í Hriflu og færði honum að
vöggugjöf hlývinda og hækkandi
sól með vissu um nýja þróun og
nýjan aflvaka alls sem lifir.
Margir hafa fyrr og síðar hlot-
ið slíkar vöggugjafir, enhve miklu
þær hafa áorkað til giftu og
gengis þeim er þáðu, er ekki á
mínu færi að dæma um, en með
sveininn frá Hriflu verður ekki
annað séð, en gjafirnar hafi ver-
ið góðar og þær beztu, sem hægt
var að gefa vormanni með vorhug
slíkum sem Jónas Jónsson er.
Skömmu eftir síðustu aldamót
kom allsterk félagsleg hreyfing
hér á landi meðal æskumanna
þjóðarinnar. Hreyfing þessa var
ungmennafélögin. Fyrirmyndin
var að vísu erlend, en færð í al-
íslenzkan búning, eins og ljóst
má vera, þegar þess er gætt, að
félagsskapur þessi var í raun og
veru fyrst og fremst þjóðernis-
hreyfing. í stefnuskránni var á-
kveðið að vinna að því að efla
og glæða allt það, sem þjóðlegt
væri, gott og gagnlegt og þá eink-
um og sérstaklega móðurmálið.
Jafnframt átti að vinna að
andlegum og líkamlegum þroska
cg framförum einstaklinganna.
Vormenn íslands hafa þeir ver-
ið nefndir, sem skipuðu sér undir
merki þessarar hreyfingar og
einn af þeim var Jónas Jónsson.
En hann varð fljótt annað og
meira en óbreyttur liðsmaður.
Honum var falin forustan. Vor-
mennirnir fundu og viðurkenndu,
að af þeim var hann mesti vor-
maðurinn og því kjöru þeir hann
formann landssambands ung-
mennafélaga íslands og fólu hon-
um ritstjórn blaðs, sem samband-
ið gaf út.
Á meðan Jónas gegndi þessum
störfum, var blómatíð félagsskap-
arins. Blaðið vann sér meira og
meira álit og orð og athafnir
fylgdust að. Félagarnir voru ó-
trauðir og forustan örugg.
Nú eru allmörg ár síðan Jónas
varð að láta af þessum störfum
fyrir ungmennafélögin. Stærri
viðfangsefni kölluðu hann. En
vordraumarnir gleymdust honum
ekki, og þegar tækifæri bauðst,
hafði hann þor og þrek til að láta
sumt af þeim rætast.
Fyrir forgöngu hans var æsku
landsins sköpuð aðstaða til meiri
andlegs og líkamlegs þroska.
Þjóðlegir alþýðuskólar voru reist-
ir, sniðnir eftir menntaþörf og
fjárhagsgetu alþýðunnar, með að-
stöðu til íþróttaiðkana, leikfimis-
húsum og sundlaugum, og auk
þess var veittur styrkur til fjöl-
margra sérstakra sundlauga.
Margt fleira mætti telja, en
»það þýðir ekki að þylja nöfnin
tóm, því þjóðin mun þau annar-
staðar finna«.
Og svo vil ég nota tækifærið á
þessu fimmtíu ára afmæli vor-
roannsins frá Hriflu, að færa
honum hugheilar þakkir gömlu
samherjanna, ungmennafélag-
anna, þakkir fyrir vel unnið starf
i þágu áhugamála vorra.
Á. Jóhannsson.
Jónas fónsson fimmtugur.
Framh. aí 1. síðu.
góður vinum sínum, en grimmur
óvinum. Satt er það, að hann tal-
ar aldrei undir rós um gerðir
andstæðinga sinna. Hann talar
hispurslaust um að »þýið sé þý«.
Það, sem kölluð er grimmd í fari
hans, er í raun og veru ekki ann-
að en það, að hann er með af-
brigðum markviss í deilum við
mótstöðumennina. Fyrir þetta
þola þeir hann alls ekki, og þeir
æstustu óska einskis framar, en
að hann mætti »bannfærast kirkj-
unum í og hengjast að hegning-
arlögum«. Það er gamla sagan
um hvöt blindra manna eða það
innræti þeirra að vilja grýta spá-
mennina.
Annars má hver sem vill lá
Jónasi Jónssyni það, þó að hann
neyti vopna sinna í jafnhatram-
legum árásum, sem hann hefir
orðið fyrir af hendi pólitískra ó-
vina. Þeir hafa hvað eftir annað
reynt að ræna hann æru og mann-
orði og gerðu jafnvel eitt sinn til-
raun i þá átt að gera hann að vit-
firringi í augum þjóðarinnar. Það
verður að teljast vafasöm dyggð
og hæpinn vottur um manndóm
að halda að sér höndum og hafast
ekki að, þegar svo níðingslega er
að farið. Það mun og sannast, að
J. J. bognar aldrei fyrir árásum
óvina sinna. Ef nokkuð megnaði
að beygja þenna sterka mann, þá
eru það svik eigin samherja við
sameiginlegan málstað hans og
þeirra og brotthlaup í óvinaliðið.
Þetta vita andstæðingar J. J. of-
ur vél, og þess vegna leggja þeir
sig alla fram um að leita eftir
meinakindum í flokki hans og
draga þær í sinn dilk, ef nokkrar
finnast.
Til gamans skal hér getið um
Iitinn atburð, sem fyrir kom ný-
lega og sýnir átakanlega vel
bardaga-aðferð Morgunblaðs-
manna gagnvart Jónasi Jónssyni.
f vetur var sent út vélritað
dreifibréf frá miðstjóm Fram-
sóknarflokksins, undirritað af
formanni flokksins, Jónasi Jóns-
syni. Bréfið fjallaði um ýms al-
varleg mál. En svo óheppilega
vildi til, að bréfið hafði ruglazt
svo mjög í vélritun, að það varð
óskiljanlegt á köflum. Áður en
tekið var eftir þessu, höfðu nokk-
ur eintök verið send út. Var þá
strax brugðiö við og vélritunin
leiðrétt.
Mbl. náði síðar í eitt þessara
rangt vélrituðu bréfa og hugðist
að færa sér mistök þessi í nyt
sér og flokki sínum til framdrátt-
ar, en til smánar J. J. og flokki
hans. Þess vegna birti Mbl. hið
rangt vélritaða bréf sem sýnis-
hoi*n þess, að J. J. væri ekki einu
sinni sendibréfsfær maður.
Nú er það á allra vitorði að
Mbl.-menn hafa verið og eru enn
á sífelldum hrakningi undan á-
deilugreinum J. J. á þá og flokk
þeirra. En þessir grunnfæru
menn hafa ekki gætt þess, að lítill
heiður er það fyrir þá að fara
hverja hrakförina eftir aðra fyr-
ir manni, sem þeir vilja telja les-
endum sínum trú um að ekki sé
sendibréfsfær.
Mbl.-menn nefna J. J. löngum
»Hriflon« og Framsóknarflokkinn
»Hriflulið«. Er þetta gert í háð-
ungarskyni við flokkinn og for-
ingja hans, að minna menn á það,
að J. J. hafi upphaflega verið
kotadrengur. Sýnir þetta vel fyr-
irlitningu þeirra »stóru« í íhalds-
flokknum á smábýlum sveitanna.
Sjálfum þykir Jónasi Jónssyni
frá Hriflu enginn skömm að því
að kenna sig við æskustöðvar sfn-
ar, þó smábýli sé, og það þykir
flokksmönnum hans ekki heldur.
Þess hefir áður verið getið, að
æfi Jónasar Jónssonar líktist
nokkuð æfintýri. Hann, karlsson-
urinn úr kotinu, hefir lagt undir
sig hálft landið. En lokaþáttur æf-
intýrisins er enn eftir. Allir sam-
herjar J. J. sameinast á fimm-
tugsafmæli hans í dag um þá ósk
honum til handa, að hann eigi
eftir að leggja undir sig allt land-
ið, að vísu ekki sjálfs hans vegna,
heldur vegna framfaramála þjóð-
arinnar.
tnoimar Eydal,
Skólapilfur.
i.
Fyrstu kynni mín af Jónasi
Jónssyni eru frá haustinu 1904.
Ég kom þá í Gagnfræðaskólann á
Akureyri, en Jónas hafði komið
þangað haustinu áður og var því
kominn í efri bekk, eins og við
kölluðum. (Þá voru aðeins tveir
bekkir í skólanum).
Fyrsta eða annan sunnudaginn,
sem skólinn stóð, var haldinn
nemendafundur, og var Jónas
málshefjandi; man ég fyrst eftir
honum við það tækifæri, og tölu-
vert man ég eftir ræðu hans enn
í dag. Ég hafði þá ekki oft heyrt
ræður fluttar og vantaði auðvit-
að allan þroska til gagnrýni, en
hrifinn varð ég af því, sem hann
sagði. Og nú, er ég rifja þetta
upp, finnst mér að ræða hans
hafi borið vott um miklu þrosk-
aðri hugsun, heldur eij hægt er að
búast við hjá 19 ára unglingi,
eins og Jónas var þá.
Þenna vetur, sem við Jónas
vorum saman í skóla, var hann
foringi okkar skólapilta í öllu
skólalífi; á málfundum okkar, í
bindindisfélagi, sem hann stofn-
aði, o. s. frv. Kom þá þegar í
Ijós, að hann hafði hæfileika til
— Kennari.
að vera foringi og ná valdi yfir
öðrum.
Skólablað Var gefið út, var
það skrifað og lesið upp á nem-
endafundum. Ekki man ég nú
neitt gjörla um einstakar greinar
þar, eða hverjir þær skrifuðu; ég
held líka, að þær hafi oftast ver-
ið nafnlausar. En það hygg ég,
að ef leitað væri í gömlum
»Skólapilti« (svo hét blaðið) frá
þeim vetri, þá mætti finna þar
ritsmíðar með öllum sömu aðal-
einkennum og öll þjóðin þekkir
nú í skrifum Jónasar.
Námsmaður var Jónas mikill,
að minnsta kosti á flestar fræði-
greinir, enda útskrifaðist hann
úr Gagnfræðaskólanum (vorið
1905) með ágætiseinkunn.
Vorið 1905 færðust nemendur
það stórræði í fang, að halda há-
tíðlegt 25 ára afmæli skólans og
standa sjálfir fyrir því að öllu
leyti. Var kosin nefnd skólapilta
til að undirbúa hátíðina og veita
henni forstöðu. Jónas var að
sjálfsögðu í þessari nefnd, og ég
hygg formaður hennar, eða að
minnsta kosti var hann aðalmað-
urinn, hvort sem hann bar for-
mannsnafnið eða ekki. Hátíð
þessi fór hið bezta fram, og var
■WHHWHHHWHWIW
Utgerðarmenr) §
sem hafa hugsað sér að kaupa síldarnet
hjá okkur fyrir næstu vertíð, þyrftu að
gefa okkur upp pantanir sínar fyrir 1. júní.
g* Kaupfólag Eyfirðinga
ÍlTMIIirtHMiilliHIMiig