Dagur - 11.07.1935, Blaðsíða 1
D AG UR
íemur út á hverjum fimtu-
degi. Kostar kr. 6.00 árg.
Gjaldkeri: Ámi Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júll.
Afgreiðslan
er hjá JÖNI Þ. ÞÖR.
Norðurgötu 3. Talsími 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðsfumanns fyrir l.des.
XVIII. ár
-m
■1
Akureyri 11, júlí 1935.
28. tbl.
Þar sem íhaldið ræður. Stórstúku-
Áslandið i VesSinaiinaeyjuni. þ Í D Q Í O
Laust fyrir miðjan júní birtist
í Lögbirtingablaðinu auglýsing
frá bæjarfógetanum í Vestmanna-
eyjum, þar sem hann neyðist til
sökum margra ára vanskila að
framkvæma lögtak á eignum
Vestmannaeyjabæjar og auglýsa
þær til uppboðs.
Rúmri viku síðar sltrifar Jóh.
Gunnar ólafsson bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum greín, sem birt-
ist í Morgunblaðinu, og skýrir
þar frá, að bærinn hafi greitt
skuldina, sem var tilefni auglýs-
ingarinnar, og hafi hún því vei'ið
kölluð aftur.
Jafnframt lætur bæjárstjórinn
svo sem hagur bæjarins sé í mikl-
um blóma og að engin gi’eiðslu-
vandræði séu þar á fei'ð.
En svo kynlega bregður þó við
að tveimur til þremur dögum síð-
ar neyðist bæjarfógetinn í Eyjun-
um til, vegna kröfu frá Veðdeild
Landsbankans, að auglýsa til sölu
á nauðungaruppboði allar eignir
Vestmannaeyjabæjar og auk þess
ALLAR TEKJUR BÆJARINS.
Hinn 27. f. m. birtast um þetta
í Lögbirtingablaðinu svohljóðandi
auglýsíngar frá bæjai'fógeta:
UPPBOÐ.
Eftir kröfu Veðdeildar Lands-
bankans verða eignir og tekjur
Vestmannaeyjasýslu (nú kaup-
staðar), með ábyrgð sýslunefnd-
ar sem slíkrar, seldar á nauð-
ungaruppboði, sem byrjar hér
á skrifstofunni fimmtudaginn
26 sept þ. á., kl. 14, til greiðslu
á höfuðstóli kr. 6592.40+472-
05.96 +100867.44 +150793.53
og 15341 82, auk vaxta og
kostnaðar, samkvæmt 5 skulda-
bréfum útg. 20. ág. 1914, 2.
okt. 1914, 16. okt. 1915 og
9. sept. 1920.
Skjöl þau, sem varða söluna,
veiða til sýnis hér á skrifstof-
unhi vikuna næsta á undan
uppboðinu.
Bæjarfógetaskrifstofan í Vestmannaeyj-
um, 25. júní 1935.
Kr. Linnet.
UPPBOÐ.
Eftir kröfu Veðdeildar Lands-
bankans verða húseignirnar
Sjúkrahús og barnaskólahús
kaupstaðarins með öllu tilheyr-
andi, þar með lóðanéttindum,
seld á nauðungaruppboði, sem
byrjar hér á skrifstofunni
fimmtudaginn 26. sept. þ. á,
kl. 13, til greiðslu á höfuðstóli
kr. 9954,00+35995.10 og 28-
700.59, auk vaxta og kostnað-
ar samkvæmt skuldabréfum útg.
29. marz 1928, 8. marz 1929
og 19. maí 1930.
Skjöl þau, sem varða söluna,
verða til sýnis hér á skrifstof-
unni vikuna næstu á undan
uppboðinu.
Bæjarfógetaskrifstofan í Vestmannaeyjum
25. júní 1935.
Kr. Linnet.
Þai'f nú ekki framar vitnanna
við. Ekki aðeins eignir, heldur og
tekjur kaupstaðarins eru auglýst-
ar til sölu á nauðungaruppboði I
þessu hreiðri íhaldsms, Vest-
mannaeyjum.
Kemur nú Eyjaskeggjum í koll
aö hafa falið þeim flokki forust-
una, sem reyndur er að afglöpum
og ábyi'gðai'leysi í fjárstjórn,
bæði fyrir sjálfan sig og það op-
inbera.
r
a
Eins og kunnugt er hefir Stein-
grímur Steinþórsson iátið af
stjórn bændaskólans á Hólum,
þai” sem honum hefir verið veitt
búnaðai’málastjói’astaðan.
I hans stað hefir Kristján
Karlsson ráöunautu)- Búnaðar-
sambands Suðurlands verið skip-
aður skólastjóri á Hólurn frá 1.
þ. m. að telja. Kristján er enn
ungur maður. Hann stundaði
fyrst nárn á Laugum og síðan á
Hvanneyrí. Að því loknu fór
hann utan og lauk prófi við iand-
búnaðarháskólann í Kaupmanna-
höfn. Eftir heimkomuna varð
hann ráðunautur Búnaðarsam-
bands Suðurlands og bústjóri í
Gunnaxsholti og hefir reynzt á-
gætur við þau störf.
Hann er ættaður frá Veisu í
JMjóskadai og er systursonur Sig-
urðar fyrrv. búnaðarmálastjóra.
Þeir, sem til Kristjáns þekkja,
hyggja gott til skólastjórnar
hans,
sem háð var hér á Akureyri í ár,
stóð frá 27. f. m. til 2. þ. m., að
báðurn dögurn meðtöldum. 53 full-
trúaf voru mættir. Samkvæmt
skýrslum embættismanna voru 1.
febr. 1935 í landinu starfandi 46
undirstúkur með 2412 félögum og
■ 41 unglingastúkur með 3349 fé-
lögum, þar af í undix'stúkum 879.
Reglufélagar alls U882.
Mikill áhugi var ríkjandi á
þinginu rneðal fulltrúa og félaga
um Reglúmál. Lauk þinginu með
hinurn mesta sarnhug og ein-
dx-ægni.
Sunnudaginn 30. júní fóru
Stórstúkufulltrúar í Vaglaskóg.
Þriðjudaginn 2. júlí skoðuðu þeir
listigarðinn og iðnsýninguna.
Embættismenn voru kosnir sem
hér segir:
Stói*templar: Friðrik Á. Brekk-
an, rithöfundur.
Stórkanzlari: Jón Bergsveins-
son, framkvæmdastjóri, Rvík.
Stórvaratemplar: Guðrún Ein-
arsdóttir, fi*ú, Hafnarfirði.
Stórritari: Jóhann Ögmundur
Oddsson, Rvík.
Stórgjaldkeri: Sigurður Jóns-
son, skólastjóri, Rvík.
Fyrrum stórtemplar: Sigfús
Sigurhjartarson, kennari, Rvík.
Stórkapelán: Gísli Sigurgeirs-
son, Hafnarfirði.
Stórgæzlumaður unglingastarfs:
Steindór Björnsson, efnisv., Rvík.
Stórgæzlum. löggjafarstarfs:
Felix Guðmundss., verkstj., Rvík.
Stórfræðslustjóri: Einar Björns-
son, Rvík.
Stórfregnritari: Helgi Helga-
son, verzlunarstjóri, Rvík.
Mælt var með Brynleifi Tobi-
assyni menntaskólakennara á Ak-
ureyri í einu hljóði sem umboðs-
manni Alþjóða-HátempIars.
Margar tillögur voru afgreidd-
Nýja-Bíé
Föstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöld kl. 9
Barkskipið
„Margrét"
Dönsk tal og hljómmynd í 10 páltum.
Aðalhlutverkin leika:
Karin Nellemose,
Lau Lauritzen jun.,
Ib Schönberg
0. fl. þekktir danskir leikarar.
Pfýöilega skemmtileg sjömannasaga.
ar á þinginu, einkum um út-
breiðslu Reglunnar, bindindis-
fræðslu og varðandi löggjöf um
áfengismál.
I sambandi við þingíð var hald-
inn fundur á Hástúkustigi.
í þinglok var haldið samsæti í
Templarhúsinu »Skjaldborg«, og
tóku um 80 Templarar þátt í því.
Var það fjörugt og hið ánægju-
legasta í alla staði.
Á þessu þingi kaus Stórstúkan
tvo heiðursfélaga, þá br. Kristjcm
Pálsson á Hjalteyi’i og br. Þárar-
inn Jónsson í Reykjavík. Er það
fágætur heiður, en verðskuldaður
í alla staði, þessum ágætismönn-
um til handa.
Næsta Stórstúkuþing verður
haldið í Reykjavík 1936. — Elzta
stúkan á Suðurlandi, »Verðandi«
nr. 9, varð fimmtíu ára gömul
3. þ. m. Lifa tveir af stofnendum
hennar enn í Templarliðinu, þeir
Sveinn Jónsson, trésmíðameistari
í Reykjavík, og Gísli Lárusson í
Vestmannaeyjum, báðir heiðurs-
félagar Stórstúkunnar.
Af núlifandi Templurum á Ak-
ureyri, er aðeins einn heiðursfélagi
Stórstúkunnar: Bjarni Hjaltalín,
fiskimatsmaður.
Innflutningshöftin og íhaldið.
Morgunblaðið hefir að undan-
förnu verið að belgja sig út yfir
því, að gjaldeyris- og innflutn-
ingsnefndin beiti hlutdrægni f
innflutningsleyfum sínum á þann
hátt, að hún hlynni að kaupfélög-
um á kostnað kaupmanna. Tekur
blaðið sem dæmi þessarar hlut-
drægni úthlutun innflutningsleyfa
til Kaupfélags Reykjavíkur og
telur, áð það félag hafi fengið að
flytja inn óhóflega mikið af vefn-
aðarvöru á þessu ári. Jafnframt
heldur blaðið því fram, að önnur
kaupfélög fái innflutningsleyfi
eftir villd, bæði á vefnaðarvöru
og öðru.
Formaður gjaldeyris- og inn-
flutningsnefndar, Skúli Guð-
mundsson, hefir í Nýja dagblað-
inu svarað þessari ádeilu íhalds-
blaðsins og sýnt fram á með töl-