Dagur - 05.09.1935, Side 1
DAGUR
semur út á hverjum fimtu-
degi. Kostar kr. 6.00 árg.
Gjaldkeri: Ámi Jóhanns-
son í Kaup/él. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
Afgreiðslan
er hjá JÖNI Þ. ÞÓR.
Norðurgötu 3. Talsími 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
XVIII. ár
T
Akarcyri 5. september 1935.
;
36 tbl.
Á öðrum stað hér í blaðinu
birtist grein eftir Ragnar Ólafs-
son lögfræðing í Reykjavík, þar
sem hann tekur til athugunar þá
kenningu ísl., að sjálfstæði þjóð-
arinnar sé í voða statt, af því að
S. i. S. hafi gerzt meðlimur enska
samvinnusambandsins. R. Ó. skýr-
ir þetta mál mjög greinilega og
með þeirri skýringu kemur það í
ijós, að þessi mikli ótti ísl. um
sjálfstæði þjóðarinnar, veðsetn-
ingu á jörðum og öðrum eignum
bænda(!) o. s. frv. stafar af
tuttugu og tveggja króna og
fimmtán cmra gjaldi, sem S. L S.
verður að greiða enska samband-
inu í eitt skipti fyrir öll. Þetta er
sú upphæð, er segja má að S. i.
S. setji í hættu — sem þó í raun
og veru er engin hætta — gegn
því að njóta betri kjara en ella.
Það fer að verða heldur óaðgengi-
legt fyrir blað kapitalista að
halda því fram, að þessar 22
krónur setji alla.þjóðina og þó
fyrst og fremst íslenzka sam-
vinnumenn í slíkan voða, sem
blaðið hefir áður lýst.
atiessiníudeiian.
ófriðarhorfur frá hendi Musso-
lini virðast stöðugt magnast eftir
því, sem lengra líður. Er ekki
annað sýnilegt af orðum hans og
athöfnum en að honum sé bláköld
alvara að virða ákvæði Þjóða-
bandalagssáttmálans að engu og
ráðast með offorsi á Abessiníu
hið bráðasta. Fari svo, er það
skylda Bandalagsins samkv. 16.
gr. sáttmálans að beita refsiá-
kvæðum þessarar greinar gegn 1-
tölum, sem meðal annars er í því
fólgið, að allar aðrar þjóðir
Bandalagsins slíti tafarlaust öll-
um verzlunar- og fjármálavið-
skiptum við Italíu.
Þjóðabandalagsráðið situr nú
fund í Genf, til þess að ræða og
taka ályktanir um þessi vanda-
mál. Hófst sá fundur síðdegis í
gær. Bíður allur heimurinn eftir
úrslitum þar. Mussolini hefir haft
hótanir í frammi, ef sú ákvörðun
yrði tekin að beita refsiákvæðun-
um gegn Itölum.
Mussolini hefir látið í ljósi, að
hann væri staðráðinn í að leggja
Abessiníu undir Italíu, hvað sem
hver segði, og koma þar á fót fas-
Það er auðvitað eðlilegt, að
hinar viðkvæmu »sjálfstæðis«-
taugar ísl. verði órólegar við þá
tilhugsun að verið sé að ofurselja
sjálfstæði þjóðarinnar í hendur
útlendu auðfélagi. En þegar búið
er að skýra það fyrir blaði kapí-
talista, að enska samvinnusam-
bandið er ekki auðfélag og að hér
er aðeins um 22 kr. áhættu að
ræða, þá ætti auðvaldsblaðinu að
verða hughægra og órólegar taug-
ar þess að komast í jafnvægi.
Nema svo sé að málæði ísl. um
þetta efni hafi verið gegn betri
vitund og aðeíns fram komið af
ákafri löngun blaðsins til að
þjóna rógburði gegn Samb. ísl.
samvinnufélaga og forstjóra þess.
Ef svo er, þá mun heilsufar
kaupmannablaðsíns fara æ versn-
andi.
Hilmar Stefáiisson, sem hefir stjórn-
að útibúi Landsbankans á Selfossi, hef-
ir verið skipaður aðalbankastjóri Bún-
aðarbankans.
Ritstjórn Nýja dagblaðsins. Sú breyt-
ing hefir orðið á ritstjóm N. dagbl., að
Gísli Guðmundsson er hættur því starfi,
en Sigfús Halldórs frá Höfnum gegnir
því einn framvegis.
istastjórn, til þess að manna
þjóðina. Hitt er þó vitanlegt, að
það eru gæði landsins, sem Mus-
solini ágirnist, fremur en Abes-
siníuþjóðin.
En nú fyrir fáum dögum hefir
gerzt atburður í Abessiníu, sem
getur ruglað stríðsáætlun Musso-
lini. Á föstudaginn var skrifaði
stjórn Abessiníu undir samning
við ensk-amerískt auðfélag, »The
African Exploration and Develop-
ment Corporation«, sem hefir að-
albækistöð sína í London, þar sem
félagi þessu er veitt sérleyfi til
þess að vinna málma og steinoh'u
í suðausturhéruðum landsins, og
er það einmitt það svæði, sem
ítalir munu sérstaklega sækjast
eftir. Fyrir þetta sérleyfi er tal-
ið, að félagið hafi greitt margar
millj. sterlingspunda. Líta ýmsir
svo á, að félag þetta hafi trygg-
ingu fyrir því, að stjörnir Bret-
lands og Bandaríkjanna muni
aldrei láta það viðgangast, að
gengið sé á hluta þess þar suður-
frá af ítölum. Að öðrum kosti
mundi það ek'ki Kafa lagt út í
samningagerð sem þessa.
Er það margra álit, að keisar-
inn í Abessiníu hafi með þessu
leikið illa á Mussolini,
Skemmtisamkoma verðui' í Samkomu-
húsinu föstudaginn 6. þ. m. (annað
'kvöld), kl. 9 e. h.
Þar syngur hin góðkunna söngkona,
ungfrú Jóhanna Jóhannsdóttir 9 lög
eftir útlenda og innlenda höfunda. Frú
Þorbjörg' Halldórs frá Höfnum aðstoð-
ar. Þá verður og' leikinn 4. þáttur úr
»Lénharði fógeta«, eftir E. H. Kvaran.
Leikur Agúst Kvaran Lénharð; mun
mörgum forvitni á að sjá hann í því
hlutverki. Jóhanna Jóhannsdóttir leik-
ur Guðnýju. Hefir hún fengið mikið
lof fyrir frammistöðu sína á leiksviði
í Reykjavík. T. d. lék hún annað að-
alhlutverkið í »Meyjarskemmunni«. Ey-
stein Brandsson leikur Skjöldur Hlíðar.
Auk þessara skemmtiatriða les. Sig.
Eggerz bæjarfógeti upp.
Hljóðfæraleikarar frá hótel Akur-
eyri leika á undan leiksýningunni lögin
úr »Lénharði fógeta«.
Má húast við ágætri kvöldskemmtun.
Nefndarkosning. Á fundi, sem hald-
inn var á sunnudaginn, þar sem mætt-
ir voru fulltrúar frá ýmsum félögum
hér í bænum, var kosin 7 manna nefnd
til undirbúnings félagsstofnunar til
reksturs nýrra iðngreina í bænum. Var
fundur þessi framhald af fundi, er Iðn-
aðarmannafélag Akureyrar hafði stofn-
að til áður, til þess að ræða um aÞ
vinnuleysið í bænum og bætur við því.
1 nefndina voru kosnir: Sveinbjörn
Jónsson byggingameistari, Sig. Ein.
Hlíðar dýralæknir, Ólafur Jónsson
framkvæmdastjórí, Árni Jóhannsson
verzlunarmaður, Erlingur Friðjónsson
framkvæmdastjóri, Stefán Árnason
verzlunarmaður, Steingrímur Aðal-
steinsson bæjarfulltrúi. Til vara.: Kon-
ráð Vilhjálmsson kennari og Gísli R.
Magnússon afgreiðslumaður.
Bjarni Bjömsson, hinn góðkunni
hláturvekjari, skemmti í Samkomuhús-
inu síðastl. laugardags- og sunnudags-
kvöld með gamanvísnasöng, upplestri og
eftirhermum. Hermdi hann meðal ann-
ars eftir 10 þekktum stjórnmálamönn-
um, og var sumt af því hreinasta list.
Einkum tekst honum snilldarvel að
líkja eftir Ólafi Thors. Meðferð Bjarna
á hlutverkum sínum var tekið með
dynjandi lófaklappi og' skellihlátrum,
sem vel hefði mátt stilla betur í hóf.
Eiga ýmsir eftir að læra að hlæja og'
skemmta sér, án þess að viðhafa trufl-
andi hávaða.
Blindravinafélag fslands. Stofnfund-
ur félagsdeildar fyrir Norðuriand verð-
ur haldinn í »Zion« á Akureyri, laug-
ardaginn 7. sept. kl. 5 e. h. Frummæl-
andi þar verður formaður Blindravina-
fél. Islands, Sig. P. Sívertsen, vígslu-
biskup. Allir, sem áhuga hafa á
blindramálum, eru velkomnir á fund-
inn.
—I NÝia-BÍÓ WMÍ
Föstudags-, laugardags-
og sunnudagskvöld kl. 9:
í U i Ö i i S [] y X i! III
(To mand frem for en Enke)
Sænsk tal- og söngva-
mynd í 10 þáttum.
Aðalhlutverkin leika:
Gðsta Ebman, Bengt
Djurberg, Gull-Ma$>
Norin og óperusöngvarinn
Martin öhman.
Þetta er saensk gamanmynd með
ýmsum af þekktustu leikurum Svía.
Er efni myndarinnar um afarflókin
skulda- og ástamái, sem Gösta
Ekman lendir í alveg óviljandi,
því það er húsbóndi bans, sem I
skuldar og þarf að ná sér í rikt
kvonfang. Eru atburðir þessir mjög I
gamansamir og leikur Ekmans afar I
góður. Hinn frægi hirðsöngvari
Martin 0hman Byngur í myndinni. I
Síldarsöltunin. Að kveldi þess 31. á-
gúst sl. var siidarBÖlfcun í öllu í landinu
sem hér segir:
Matjessíld
Saltsíld
Hreinsuð síld
Kryddsíld
7135 tunriuf
45558 —
25 —
18000 —
Hausskorin og magadregin 1569
Sykursöltuð 2976
Flött i 174
Alls 75437 tunnur
Belgíudrottning ferst við bilslys. Síð-
astl. fimmtudag voru konungshjónin í
Belgíu á ferð í bifreið meðfram Lu-
zernvatni í Sviss, og ók konungur bif-
reiðinni. Við bugðu á veginum fór bif-
reiðin út af honum á mikilii ferð og
rakstá grjóthrúgu og síðan á tré. Kast-
aðist drottningin út úr bílnum og dð
samstundis. Konung sakaði lítið. Stóð
hann þarna yfir líki konu sinnar ná-
fölur og' skjálfandi af harmi.
Ástríður drottning var frá Svíþjóð.
Hún var tæpra 30 ára. Hún hafði á-
unnið sér ást og virðingu belgisku
þjóðarinnar, og er þjóðin því harrni
lostin við hið sviplega fráfall hennar.
Dánardægur. Nýlátinn er hér á spít-
alanum Jón Jónasson ökumaður, oft
kenndur við Rifkelsstaði. Hann var
um sextugt ■ og lætur eftir sig ekkju og
4 tmg börn.
Elísabet Sigurða/rdóttir forstöðukona
matsölunnar »Heitt og kalt« í Rýík
drukknaði í Soginu um síðustu helgi.
Jóhann Ragúels kaupm, hér í bæ átti
sextugíafmæli 3. þ. m.