Dagur - 17.10.1935, Blaðsíða 4
180
DAGUR
42. tbl.
-#-# • ## #•# #-# -#-
AKUREYRARBÆR.
DRÁTTARVEXTIR.
Dráttarvextir falla á síðari hluta útsvara í Akureyrarkaupstað ef eigi er greitt
fyrir 1. nóvember næstkomandi.
Vextirnir eru 1% á mánuði og reiknast frá 1. september síðastliðnum.
Akureyri, 16. október 1935.
BÆJ ARG J ALDKEHI.
SKölafólK!
Höfum nú mikið úrval af allskonar ritföngum, t. d.:
Rissblokkir
Umslög 50 st.
Glósubækur
Ritblý
á kr. 0,20
- - 0,50
0,10
- - 0,05
Vasabækur
Stílabækur
Blekbyttur
Strokleður
á kr. 0,10
. _ 0,10—0,25
- - 0,20
- — 0,10
Lindarpenna, mikið úrval, Skrúfblýantar, mikið úrval,
og laus blý, Teikniblakkir og teikniblý, Vatnsliti, Tusk,
Lakk, Stimpilpúða, Þerriblaðapressur, Lím, Penna,
Pennasköft o. m. m. fl. ...........
Kaupfél. Eyfirðinga.
Járn- og glervörudeildin.
I
Alfa-Laval
skilvindurnar eru ætíð þær beztu og
sterkustu, sem fáanlegar eru. --------
Nýjasta gerðin er með algerlega sjálf-
virkri smurningu, og skálar og skil-
karl úr ryðfríu efni. —...
Samb. ísl. samvinnufél
Dettifoss.
Ferð til orkumesta
ft'oss Nocðurlands.
Fyrir velvild og hjálp ýmsra
góðra vina hér á Akureyri auðn-
aðist mér að fá að sjá hinn þjóð-
fræga Dettifoss 9. þ. m.
Herra Gunnar Eiríksson hafði
færzt undan því að ég færi með
hans bíl, sem fór héðan s. 1.
þriðjudag til Grimsstaða á Fjöll-
um, ég mundi ekki þola ferðina.
Þetta afsvar kostaði mig dálítil
útlát, en breytti ekki þvi átormi
mínu að sjá fossinn, meðan timi
og tækifæri leyfðu, og sem sagt
fékk ég s. 1. þriðjudag vanalegan
fólksflutningsbil hjá B. S. O. til
ferðarinnar með Gísla Sigurjóns-
syni, sem bílstjóra, og Guðmundi
Jónssyni félaga hans.
Eftir talsverðan undirbúning
komumst við þrír af stað litlu
eftir hádegi og eftir stanzlausa
ferð, yfir Vaðlaheiði, Ljósavatns-
skarð, Skjálfandafljótsheiði og
fram hjá stórbýlinu Laxamýri,
komum við til Húsavíkur laust
fyrir 4 síðdegis, þaðan stýrðum
við sem leið liggur yfir Reykja-
heiði, austur um Kelduhverfi og
náðum bænum Lindarbrekku kl.
7.30 um kvöldið, þar fengum við
ágætan beina og gistum þar um
nótfina. Næsta morgun fórum
við á fætur kl. 6, og eftir stund-
arhressingu keyrðum við þaðan,
sem leið liggur austur yfir brúna
á Jökulsá og síðan eftir veginum
suður með ánni framhjá bænum
Austara-Land, og um 25 — 30 km.
lengra framhjá Hafursstöðum,
þar til afleggjari beygist til vest-
urs af fólksveginum inn að hin-
um þráða Dettifoss. Hérumbil
hálfri stundu eftir dagmál kom-
um við að fossinum, og um leið
lituðumst við tim kring eftir
sjónarhæð til að sjá hinn dásam-
aða foss í sinni kyrrlátu tign, en
árangurslaust; fossinn fellur nefni-
lega ofan í geysidjúpt gljúfur og
þar brotna hans hamslausu öld-
ur á grásvörtum hraunklettum
beggja vegna, en upp af þeim
rýkur eimur, sem hálfþekur foss-
inn. Frh.
Frlmann B. flrngrímsson.
Skólwr bxjarins. Meimtaskólinn,
Gagnfræðaskóli Akureyrar og Iðnaðar-
mannaskólinn voru allir settir 15. þ. ni.
— Aftur á móti er setningu barna-
skólans frestað fyrst um sinn að ráð-
stöfun skólanefndar. Stendur sú frest-
un í sambandi við ný mænusóttartilfelli
hér í bænum.
Hjónabönd: Síðastliðið laugardags-
kvöld voru gefin saman í hjónaband
hér í bæ ungfrú Jenny Hansen frá
Vester Villing per Randers,, Danmörku,
og Ingvi Jónsson, verkamaður; ungfrú
Dagmar Sveinsdóttir Sigurjónssonar og
Jón Árnason vélstjóri; ungfrú Ástríður
Guðmundsdóttir frá Súgandafirði og
Álex Stave, bifreiðaviðgerðarmaður.
Ennfremur voru síðastliðinn laugar-
dag gefin saman í hjónaband af séra
Stefáni á Völlum í Svarfaðardal ung-
frú Þorbjörg Jónsdóttir, Sægrund á
Dalvík og Garðar Guðnason, matsveinn
frá Svalbarðseyri.
Hanstþing Umdæmisstúkimnar nr. 5
verður* haldið á Akureyri 19. og 20.
okt. n. k. Á sunnudaginn kl. 1 e. h.
verða teknar til umræðu tillögur frá
nefndum: Klukkan 4 s. d. verður flutt
erindi. Þess er vænzt að templarar
fjölmenni á þingið á sunnudaginn.
Ungm.st. Akurlilja nr. 2 heldur fund
í Skjaldborg sunnudaginn 20. okt. n. k.
kl. 8% s. d.
Dáncm-dægur. Þann 15. þ. m. andað-
ist Einar Hansson fyrrum bóndi að
Guðrúnarstöðum í Eyjafirði rúmlega
hálfníræður að aldri. Dvaldi hann hin
síðari ár á vegum dóttur sinnar og'
tengdasonar, búandi hjóna á Guðrún-
arstöðum. Eitt af börnum hans er Hans
cand. phil., kennari á Isafirði.
Einar sál. var prýðilega- greindur
maður og góður hagyrðingur, en fór
dult með þá gáfu.
Þann 8. þ. m. andaðist hér í bænum
Jón Stefánsson, faðir Finnboga póst-
þjóns og þeirra systkina, 68 ára gam-
all. —
Erindi um lífið í Reykjavík. Steindór
Sigurðsson rithöf., sem staddur er hér
í bænum, mun á næstunni flytja hér
erindi um þetta efni. — Er nokkur
hluti þess samanburður á Reykjavík í
dag og Reykjavík 1888, samkvæmt lýs-
ingu Gests heitins Pálssonar í hinum
fræga fyrirlestri sínum. — Síðari hluti
erindisins er svo skopmynd af nútíma-
lífinu og mun þar kenna margra
grasa, svo vænta má að hér sé um
nokkuð nýstárlega skemmtun að ræða.
Maður bíður bana af bílslýsi. Hinn
9. þ. m. varð 74 ára gamall maður,
Brynjólfur Magnússon frá Fífuhvammi,
fyrir bifreið, er kom úr Keflavík og
var á leið til Reykjavíkur; fékk hann
mikinn áverka á höfuðið og andaðist
síðdegis þennan sama dag.
Freyr, septemberblaðið, er kominn út.
Flytur eftirfarandi greinar: Garð-
yrkjufélagið 50 ára, Búnaðarfélags-
skapurinn á íslandi 100 ára, Félag nor-
rænna búvísindamanna, Réttir, eftir
Pál Zophoníasson, Dýralækningabálkur
og Mjólk og heilsa.
Ddnska þingið var rofið í byrjun
þessa mánaðar út af ágreiningi um
landbúnaðarlöggjöf og efnt til nýrra
kosninga, er fram eiga að fara 22. okt.
næstk. Stendur kosningabaráttan nú
sem hæst.
Lýðveldi afnumið. Hinn 10. þ. m.
skeði sá stjórnmálaatburður, að lýð-
veldið í Grikklandi leið undir lok. Her-
foringjum í Aþenu tókst að steypa
stjórninni. Leiðtogi konungssinna, Kon-
dylis að nafni, myndaði þegar í stað
nýja stjórn og hefir honum verið falið
af hinu nýja ráðuneyti að gegna rík-
isstjórnarstörfum, þar til Georg kon-
ungur er kominn til Grikklands. A-
kvarðanir þessar verða bornar undir
þjóðaratkvæði til staðfestingar 3. nóv.
næstkomandi.
Björgvin Schrami, hinn ágæti og vel-
þekkti knattspymumdður frá Reykja-
vík, er staddur hér í bænum. Er hann
í erindum fyrir heildverzlun Magnúsar
Kjarans.
Hjálpræðisherinn. Föstudag kl. 8;
Dorkas. Laugardag kl. 6: Drengjasam-
koma. Sunnudag kl. 1014 : Samkoma.
Sunnudagaskóli kl. 2 og 6. Kl. 8%:
Hjálpræðissamkoma.
MESSAÐ í Akureyrarkirkju kl. 2 e.
h. næstk. sunnudag'.
Haustkappskákir eru nýlega byrjaðar
í Skákfélagi Akureyrar. Er keppt um
3 verðlaunapeninga, sem nokkrir á-
hugamenn þessarar íþróttar hér í bæ
hafagefið í þessu skyni. Kappskákirnar
fara fram á veitingahúsinu Skjaldborg.
Knattspyrnukappleikur fór fram
á sunnudaginn var milli Knattspyrnu-
félags Akureyrar og »Þórs«. Úrslit
urðu þau, að K. A. vann með 3 mörkum
gegn 1. — Er þar með Knattspymu-
móti Norðlendinga í ár lokið, með sigri
Iínattspymufélags Akureyrax,
Vetrarstúlku
vantar mig nú þegar.
Samúel Krisibjarnarson
raívirki.
/ðnaðarmannafélag Akureyrar heldur
fyrsta fund sinn á þessum vetri á
sunnudaginn kl. 4. Verða þar rædd at-
vinnumál bæjarins auk ýmsra félags-
mála.
Ritstjóri: Ingimar Eydal.
Prentsmiðja Odds Björnssonar.