Dagur - 21.11.1935, Blaðsíða 1
D AGUR
íemur út á hverjum fimtu-
degi. Kostar kr. 6.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupféi. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
Afgrefðslan
er hjá JÓNI Þ. ÞÓR.
NorðurgötuS. Talsími 112.
Uppsögn, bundin við ara-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
Akurcyri 21. nóvember 1935.
! 47. tbl.
Sextíu ára félagsskapur.
Hinn 17. nóv. s. 1. var hátíðleg-
ur haldinn víða um heim í tilefni
af 60 ára afmæli Guðspekifélags-
ins. Aðalhátíðahöldin fóru fram
á höfuðstöðvum félagsins eða í
Adyar á Indlandi.
Félagið var stofnað í New
York 17. nóv. 1875. Aðalstofnend-
ur þess voru H. P. Blavatsky,
rússnesk kona af tignum ættum
og afburða gáfuð, og H. S. Olcott,
ameriskur ofursti. Aðaltilgangur
þessarar félagsstofnunar var sá,
að vinna á móti hinni römu efn-
ishyggju og »dogmu«-trú, sem á
þeim tímum var ríkjandi. Stefnu-
markinu vildu stofnendur ná með
því að fá menn til að rannsaka
sjálfstætt þau dularöfl, er náttúr-
an og mannlífið hafa í sér fólgin,
og með því að vinna saman á
þeim grundvelli án tillits til lit-
arháttar eða trúarjátninga. Var
stefnuskrá félagsins þegar samin,
og gildir hún enn í dag í höfuð-
atriðum.
Stefnuskráin hljóðar svo:
1. Að móta kjarna úr allsherj-
arbræðralagi mannkynsins án til-
lits til kynstofna, trúarskoðana,
kynferðis, stétta eða hörundslitar.
2. Að hvetja menn til að leggja
stund á samanburð trúarbragða,
heimspeki og náttúnivísinda.
3. Að rannsaka óskilin (unex-
plained) náttúrulögmál og öfl
þau, er leynast með mönnum.
Eins og stefnuskráin ber með
sér, er Guðspekifélagið nokkurs-
konar vísindafélag, en alls ekki
trúfélag, enda hafa menn með
fjarskyldar trúarskoðanir á öli-
um tímum, síðan félagið var
stofnað, safnast undir merki þess.
Forseti félagsins varð H. S.
Olcott þegar í byrjun, og hélt
hann því embætti til dauðadags,
eða til ársins 1907. Var H. P.
Blavatsky hans önnur hönd og
ruddu þau félagsskapnum braut
víða um lönd með aðstoð margra
ágætra manna.
Þegar Olcott leið, tók hin heims-
kunna enska kona, Annie Besant
við forsetastörfum og hafði þau
á hendi til dánardægurs síns
1933. í hennar tíð óx félaginu ás-
megin og naut hún ekki eingöngu
virðingar meðal félagssystkina
sinna, heldur og meðal þúsunda
manna út í frá. Hún lét ekki þar
yið lenda að fylgja stefnuskrá fé-
lagsins út í æsar, heldur tók hún
ósleitilega þátt í sjálfstæðisbar-
áttu Indverja og hvers kyns ann-
ari starfsemi, er miðaði að vel-
ferð manna.
Aðalsamstarfsmaður hennar
var C. W. Leadbeater biskup, há-
menntaður maður og dulspeking-
ur mikill. Meðal annars var hann
afburða ungmennakennari, og
urðu margir til að senda börn sín
til hans, því enginn þekkti betur
en hann hina duldu hæfileika, er
í nemendum bjó, enginn vissi bet-
ur en hann í hvaða farveg var
heppilegast aö beina fræðslunni.
Leadbeater dó 1934.
Þessi fjögur stórmenni, H. P.
Blavatsky, H. S. Olcott, Annie
Besant og C. W. Leadbeater, hafa
með fórnfýsi sinni og framúr-
skarandi hæfileikum blásið lífs-
I
anda í féiagið, og mun minning
þeirra og starf um aldir blossa
sem bjartir vitar á andnesjum
mannlífsins.
Núverandi forseti félagsins er
enskur og heitir Georg Arundale.
Eftir 60 ára starf telur Guð-
spekifélagið um 40 þúsund með-
limi, er hafa deildir í 48 löndum.
Refsiaðgerðii' Banda*
lagsþjóðanna
gegn ítalíu komu til framkvæmda
18. þ. m. Taka 50 þjóðir þátt I
þeirn. Forystumenn þjóðabanda-
lagsins halda því fram, að refsi-
aðgerðirnar hljóti að hafa í för
með sér mikla lömun á stríös-
framkvæmdum ítala í Abessmíu
og- því meir, sem lengra liðim,
enaa er talið að þegar sé farið að
bera á matvælaskorfi á ítalíu og
hækkandi verðlagi.
Frá stríðinu sjálfu berast við
og viö fréttir um áframhaldandi
sigra ítala og smáþokast þeir inn
í landið, en verulegar stórorustur
hafa enn ekki orðið.
Eftirtekt vekur það, að yfirfor-
ingja ítalska hersins í Abessiníu
hefir verið vikið úr embætti og
leallaður heim. Þykir það benda
á, að stjórnin á ítalíu sé óþolin-
móð yfir því, hvað innrás hersins
gangi seint. En eftir er að vita,
hvort hér verður nokkur breyting
á, þó að nýr yfirhershöfðingi
komi til sögunnar.
Nýtt inænv s ót tnrtilfe 11 i hefir komið
fyrir hér í bænum. Er það barn Stein-
þ.órs Jóhannssonar kennara, sem fyrir
•*
því hefir orðið. Samkvæmt ákvörðun
lækna í bænum var Barnaskólanum
iokað í gær og tekur ekki tii starfa aft-
ur fyrr en eftir viku.
Ásgeir Ásgeirsson, fræðslumálastjóri,
dvelur nú í Vesturheimi og flytur fyr-
irlestra um ísland, ó vegum ýmissa fé-
iaga. í byrjun þessa mánaðar flutti
hann fyrirlestur í Columbia-háskóla í
New-York. Var troðfullt hús, og erind-
inu framúrskarandi vel tekið.
Zíon. Samkoma. á sunnudaginn kl.
8% e. h. Allir velkomnir.
• « « 9 -9 ® ♦
NÝJA-BÍÓ
Föstudags-, laugardags-
sunnudagskvöld kl. 9:
og
flst fluQkonunnar.
Hrífandi og efnisrík talmynd
eftir skáldsögu Gilbeif Frankau.
Aðalhlutverkið leikur:
Katharine Hepbnrn.
Drottning kvikmyndanna.
Myndin er sterk og voldug
lýsing á ástalífi ungrar flug-
konu.
Jóni Bunnarssyni
sag( upp itarfi.
Hinn 5. þ. m. gerðist sá at-
burður á fundi stjórnar síldar-
verksmiðju ríkisins, að fram-
kvæmdastjóra verksmið junnar,
Jóni Gunnarssyni verkfræðingi,
var sagt upp starfinu frá 1. marz
1936, en i hans stað ráðinn Gísli
Halldórsson verkfræðingur, þó
svo, að hann komist á full laun
(þúsund kr. á mánuði) frá næstu
áramótum og fái að njóta til-
sagnar Jóns í tvo mánuði.
Að þessari ráðstöfun stóðu þrír
úr stjórninni, þeir Sveinn Bene-
diktsson, Jón Sigurðsson og Páll
Þorbjarnarson. Þormóður Eyj-
ólfsson, formaður stjórnarinnar,
og Jón Þói’ðarson frá Laugabóll
voru 'þessu andvígir.
Það, sem Jóni Gunnarssyni var
til foráttu fundið af meiri hluta
verksmiðjustjórnarinnar, var, að
hann kynni ekki að umgangast
verkamenn og viðskiptavini og
skorti verzlunarþekkingu.
Síðan þetta, skeði, hefir mikill
meiri hluti starfsmanna verk-
smiðjanna á Siglufirði lýst óá-
Jiægju sinni yfir brottvikningu
Jóns Gunnarssonar. Ennfremur
hafa nokkrir viðskiptavinir, svo
sem Ingvar Guðjónsson, Vilhjálm-
ur Þór og Axel Kristjánsson gefið
yfirlýsingar, þar sem lokið er
lofsorði á dugnað, áhuga og lip-
urð framkvæmdastjórans.
Það sýnist því vægast sagt vera
eitthvað bogið við þessa ráðstöf-
un meiri hluta verksmiðjustjórn-
arinnar.
Sveinn Benedikísson er talinn
að hafa ráðið þessu. Fyrir fáum
árum kom hann við sögu á Siglu-
firði og það á þann hátt, að menn
höfðu naumast búizt við því, að
Alþýðuflokksmenn mynduðu sálu-
félag með honum eða færu vel í
vasa hans. Þessi hefir þó orðið
raunin.
/ tilefni af 100 ára a.fmæli þjóö-
íkáldsins Matthíasar Jochumssonar,
hefir póststjórnin gefið út 4 tegundir
hátíðafrímerkja, 35 aura, 7 aura, 5
aura og 3 aura. Öll eru frímerkin með
mynd séra Matthíasar.
Skiigga-Sveinn verður leikinn næstk.
laugardags- og sunnudagskvöid.
Þau þrjú kvöld, sem leikurinn hefir
verið sýndur, hefir alltaf verið hús-
fyllir.
Það hörmulega slys vildi til á ísa-
firði fyrir nokkrum dögum síðan, a6
barn datt ofan í pott með heitu vatni í,
og- brenndist svo mikið, að þaö andað-
ist samdægurs.
Steingrimur Matthíasson héraðslækn-
ir fór til útlanda með Bettifossi í síð-
ustu viku og verður fjarverandi 2—3
mánuði. I fjarveru hans gegnir Árni
iæknir Guðmundsson héraðs- og spítala-
læknisstörfum, með aðstoð Kristjáns
læknis Þorvarðarsonar.
□ 16iin 503511268 . Frl.*.
S. I. föstudagskvöld skýrði útvarpið
frá því, að síldveiðin á öllu landinu
væri orðin 123174 tn., en árið 1934 hafi
hún verið um áramót 216760 tn. Vant-
ar því 93586 tn. til þess, að sama síld-
armagn sé komið á land nú, og áyið
áður,