Dagur - 19.12.1935, Blaðsíða 1

Dagur - 19.12.1935, Blaðsíða 1
D AGUR íeniur út á hverjum fimtu- degi. Kostar kr. 6.00 árg. Gjaldkeri: Arni Jóhanns- son í Knupfél. Eyfirðinga. Gjalddagi fyrir 1. júlí. Afgreiðslan er hjá JÓNI Þ. ÞÓR. Norðurgötu 3. Taisími 112. Uppsögn, bundin við ára- mót, sé komin til af- greiðslumanns fyrir 1. des XVIII. ár ■í Akureyri 19. desember 1935 51 tb! o «3- & •«* Mannskaðai’ og íjár- tjón af ofviðri. Siðastl. laugardag skall á aftaka norðanveður nreð fannkomu yfir allt Norður- og Vesturland og hélzt aila næstu nótt og fram á sunnudag. Olii veður þetta stórfelldum mann- skaða og fjártjóni víða um land og umhverfis landið. Skal hér getið um hið helzta, sem frétt er af i þessum efnum. ■Áður en óveðrið skall yfir, fóru feðgar tveir frá Látrum á Látra- strönd, Steingrímur Hallgrímsson og Hallur sonur hans, á vélbát inn að Grímsnesi, tii að sækja kind, og gekk bæði lending þar og burtför ágætlega. En er feðgar komu að Látrum, var brimið orðið svo mikið, að ólendandi var. Á sunnudags- morguninn fann bóndinn í Miðvík bátinn utan á Knararnesi, sem er skammt utan við Garðsvík á Svai- barðsströnd, og var Steingrímur ör- endur í bátnum með áverka á höfði. Hafði bátnum sýnilega verið lent þarna og líkið lagt til. Á mánudag var hafin leit að Halli af 15 mönn- um af Svalbarðsströnd og á þriðju- daginn fór skip héðan af Akureyrl með fjðlda manna, sem Ieituðu hans, en allt reyndist árangurslaust. Alitið er, að Hall hafi hrakið í sjó- inn. Kindin, sem Láfrafeðgar höfðu meðferðis, fannst í fyrradag lifandi skammt frá Miðvík. Þenna saina óveðursdag fór fólks- bifreiðin A 6 með nokkra farþega áleiðis til Svalbarðseyrar frá Akur- eyri. Hrepptu þeir svo vont veður, að þeir settust að á Varðgjá. Kl. rúmlega 6 um kvöldið lögðu tveir bílfarþeganna, þeir Eiður Arnason, Svalbarðseyri og Þorsteinn Sigur- björnsson, Fagrabæ, af stað gang- andi heim til sín. Veðrið var ógur- legt, og villtust þeir mjög. Eiður var ekki vel búinn og gafst upp, enda mun hann hafa orðið veikur. Andaðist liann í höndum Þorsteins, en hann komst loks snemma nætur heim að Grund við Svalbarðseyrf og sagði frá tíðindum. Brugðu menn þá við að leita líks Eiðs og fundu skjótt, enda var það þar skannnt frá. — Eiður lætur eftir sig konu og sex börn, og fæddist það yngsta tveim dögum eftir dauða hans. Óveðursdaginn var báturinn Sviði frá Bolungarvík á leið til Aðalvíkur og missti út einn mann og varð honum ekki bjargað, Hann hét Magnús Guðmundsson og var úr Reykjavík. í Vestinannaeyjum fauk bátur með tveim mönnum í um koll þar á höfninni, og drukknaði annar þeirra. Hann hét Guðmundur Guð- mundsson. Vélbáturinn Kjartan ólafsson frá Akranesi fór í veiðiferð sl. föstudag og hefir ekki komið fram eða fund- izt þrátt fyrir mikla leit. A bátnum voru 4 inenn. Frá Ljárskógum kemur sú sím- fregn, að Valgeir Björnsson, Ytra- Felli á Fellsströnd, og fóstursynir hans tveir hafi á laugardaginn far- ið út í eyju að sækja fé. Báturinn fannst mannlaus. Frá Stykkishólmi kemur önnur simfregn, sem hermir, að bátur hafi farizt þar skammt frá með tveim mönnum. Þá er enn símfregn um, að bát- ur hafi farizt af Barðaströnd ineð tveim mönnum. Hétu þeir Stefán Jónsson frá Arnólfsnesi og Jakob Jakobsson frá Hamri. Tveir bátar frá Sauðárkrók, Ald- an og Njörður, fórust báðir á Skagafirði. Fórust þar 7 menn Nöfn þeirra voru: Sigurjón Péturs- son, Sveinn Þorvaldsson, Margeir Benediktsson, Bjarni Sigurðsson, Björn Guðmundssn, Ásgrímur Sig- urðsson og Magnús Hálfdánarson. Á Grænumýrartungu í Hrútafirði hné Björn Þórðarson niður örendur við fjárhúsvegg eftir að hafa lengi dags strítt við að koma fé í hús. — Hann var ekkjumaður og átti 4 börn uppkomin. Helgi Guðmundsson frá Fagra- nesi i Skagafirði varð úti á niilli Sauðárkróks og heimilis síns. Auk þeirra mannskaða, sem héi er getið og vitað er um, hefir ó- veður þetta ollið öðru tjóni víðsveg- ar. Vitað er meðal annars um þetta: Fjárskaðar urðu í Húnavatnssýslu, Dalasýslu og Þingeyjarsýslu. — Við Vestmannaeyjar sökk vélbátur- inn Ófeigur og ennfremur trillubát- ur. — Á Húsavík rak tvo báta í land og brotnuðu báðir í spón. — Mjólkurflutningabátur Höfðhverf- ’inga lá í Nollsvík, rak í land og brotnaði í spón. — Á Möðruvöllum i Hörgárdal fuku á annað hundrað hestar af heyi, eign Davíðs bónda Eggertssonar, auk annara minni skemmda, er þar grðu- KIRK.JAN: Measað I Akureyvarkirkju kl. 2 e. h. næstk. sunnudag'. — JÓLA- MESSUR: Aðfangadagskvöld kl. 6 e. h. Akureyri. Jóladag kl. 11 f. h. Akur- eyri; sama dag kl. 2 e. h. Lögmanns- hiíð; sama dag kl. 6 e. h. Akureyri, barnagTiðsþjónusta. 2. jóladag: Akur- pyri kl. 2 e. h. Brynjar Eydal var meðal farþega hingað á Dettifossi nú í vikunni. Ea- hann heim kominn eftir 5% árs dvöl í Kanada.. Geysir. Söngsefing í kvöld á venju- legum stað og tíma. NÝJA-BÍÓ sýnir fimmtudaginn 19. þ.m. kl. 9. fiog a sjiiKfi Aðalhlutverkm leika Ralpb Bellamy. Fay Wray. Notið tækifærið til að sjá þessa ágætu mynd. „íslendingur" rennir niður illmælunijUm K. E. A. og iramkvæmda- stjóra þess. i síðasta tölubl. »íslendings« gat að líta svolátandi yfirlýsingu: »Landskjálftaféð og K. E. A. I grein með þessari fyrirsögn í 27. tbl. ísl., 5. júlí s. 1., voru um- mæli, sem ef til vill hefði mátt skilja svo, að K. E. A. eða kaupfé- lagsstjóra Vilhjálmi Þór, væri brugðið um óráðvendni í sambandi við meðferð samskotafjár til endur- byggingar á landskjálftasvæðinu. Ot af þessu vill blaðið hér með lýsa því yfir, að engin slik aðdrótt- un átti að felast í nefndri grein, enda hefir blaðið — að fengnum ýmsum upplýsingum, sem þá voru ekki fyrir hendi — enga ástæðu tii að gruna K. E. A. eða forstjóra þess um neina óráðvendni í sam- bandi við meðferð landskjálftafjár- ins eða viðskifti félagsins ut af því máli«. Með þessari yfirlýsingu hefir Isl. rennt niður rógi og dylgjum um K. E. A. og framkvæmdastjóra þess í þessu máli. Slíkt ofaníát íhalds- blaðsins á fyrst og freinst rót sína að rekja til hræðslunnar við það, að rógurinn og dylgjurnar myndu óhjákvæmilega hafa í för með sér peningaleg útlát úr pyngju blaðs- ins. Með þessari yfirlýsingu Isl. er jafnframt kveðin niður illkvittni og rógur blaðs nazistadeildar ílialds- ins gegn K. E. A. og framkvæmda- stjóra þess í máli þessu. Er það vel farið, að slíkt saurblað verði sér til háðungar á þenna hátt. Gu5sþjónustur í Gnmdarþingapresta- kalli: Möðruvöllum á jóladag kl. 12 á hádegi; Saurbæ á jóladag kl. 3 e. h.; Hólum á annau kl. 12 á hádegi; Grund á Gamlaársdag kl. 3 e. h.; Kaupangi á nýjársdag kl. 12 á hádegi; Munkaþverá sunnud. 5. jan. kl. 12 á hádegi. Hjónaband. Föstudaginn 13. des. sl. voru gefin saman í hjónaband í Kaup- mannahöfn ungfrú Ingveidur Fjeldsted Hjartardóttir útgerðarmanns hér í bæ og kaupmaður Haraid Dan Christensen. Laugordaginn 28. des. n. k. heldur kvenfélagið »Iðunn« í Hrafnagilshreppi samkomu í þinghúsi hreppsins og hefst hún kl. 9 e. h. Til skemmtunar verður: Jón Norðfjörð syngur gamanvisur. Ef til vill erindi. Dans. Ágóðinn rennur I sjúkrasjóð félagsins. ölvaðir menn fá ekki inngöngu. Hjónabönd: Síðastl. laugardag og sunnudag voru gefin saman í hjóna bönd af sóknarprestinum á Akureyri: Ungfrú Gyða Jónsdóttir, Akureyri og Jóhannes Björnsson, Nolli við Laufás. — Ungfrú Björg Hallgrímsdóttir og Bjarni Rósantsson múrarameistari, bæði til heimilis á Akureyri. — Ung- frú Steinunn Guðjónsdóttir og Jón Sig- urðsson á Akureyvi. — í fyrradag voru ennfremur gefin saman ungfrú Guðríð- ur Brynjólfsdóttir og Steindór Helga son, til heimilis á Siglufirði. Hjúskupur: Föstudaginn 22. nóv. s.l. voru gefin saman í hjónaband af sókn- arprestinum í Grundarþingum ungfrú Gunnhildur Kristinsdóttir í Samkomu- gerði og Daníel Sveinbjarnarson frá Saurbie.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.