Dagur - 19.12.1935, Page 5
51 tbl.
DAGUE
217
•-• • • • • • • «• • • • • • • •-• • •« • • .
t*að tilkynnist hér með vinum
og vandamönnum, að jarðarför
mannsins mins elskulega, Eiðs
Árnasonar, Svalbarðseyri, sem
andaðist síðastliðna sunnudags-
nótt, er ákveðin laugardaginn 21.
þ. m. kl. 1 e. h. frá Svalbarðs-
kirkju.
Svalbarðseyri 17. des. 1035,
Birna Guðnadóttir.
Mandarínur
á ÍO aura stykkið
fást í
Nýlenduvörudeild.
vinnunámskeiðs þess, er halda á
hér í bænum í vetur að tilhlutun
Fjórðungsþingsins«. —
Rf'iknmgar fj óró wngs þvtigsins
fyrir árin 1933—1934 og sömu-
leiðis fjárhagsáætlun fyrir árin
1935—1936 samþ.
Dráttwbraut á Dalvík: Fram-
iagt erindi frá Fiskifélagsdeild
Dalvíkur, þar sem farið er fram
á að þingið mæli með málaleitun
deildarinnar um fjárstyrk frá
Fiskifélaginu til dráttarbrautar á
Dalvík.
Samþykkt með öllum greiddum
atkvæðum.
Styrkur til fulltrúa. Þá var
samþykkt að heimila stjórn fjórð-
ungsþingsins að styrkja þá full-
trúa, sem erfiðast eiga með þing-
sókn, að einhverju leyti.
Næsti þingstaður var ákveðinn
Akureyri.
S tj ómarkosning:
Forseti:
Guöm. Pétm-sson með 8 atkv.
Varaforseti:
Jón Kristjánsson með 6 atkv.
Ritari:
Hreinn Pálsson með 5 atkv.
Vararitari:
Stefán Jónasson með 5 atkv.
Gjaldkeri:
Jóhannes Jónasson með 8 atkv.
Varagjaldkeri:
Helgi Pálsson með 7 atkv.
Endurskoðendur:
Páll Einarsson.
Ari Hallgrímsson.
Vestmenn.
Útvarpserindi um landnám
íslendinga í Vesturheimi.
Þorsteinn Þ. Þorsteinsson.
Reykjavík. 1935.
1 erindum þessum eru rakin til-
drög Vesturheiinsferða. Fyrst sagt
frá útflutningi Mormóna, frá Vest-
mannaeyjum, Landeyjum og Suður-
Iandi, en það eru fyrstu vesturfar-
ar, er við þessa sögu koma og þeir
fluttu vestur 1855 og settust að í
Spanish Fork í Utah.
Þá koma Brazilíuferðir tíl sög-
unnar, og þeir, sem tóku þátt í
þeim. Þær ferðir hófust 1863 og
stóðu til 1870, en þó var það fátt,
er til Brazilíu fluttist.
Árið 1870 hefst hinn mikli út-
flutningur frá Islandi til Norður-
Ameríku og stendur yfir fram yfir
síðustu aldamót.
Enginn veit með vissu hversu
margir fluttu vestur á þessum ár-
um og eru ágizkanir manna mjög
á reiki í því efni. Árið 1884 áætlar
Frimann B. Arngrímsson tölu Is-
lendinga í Vesturheimi 5000. — Ar-
ið 1888 áætlar Jón Ólafsson þá 8—
9 þúsund, en í grein sinni urn þetta
efni, sem birt var í Tímariti Þjóð-
ræknisfélagsins 1932, kemst síra
Rögnvaidur Pétursson að þeirri
uiðurstöðu, að á árunum 1872—
1892 flytji rúm 10 þúsund íslend-
ingar vestur. En á öllu útflutnings-
tímabilinu frá 1872—1931 felst
honum til að vestur hafi flutt tutt-
"ugu þúsund og fiinm hundruð ís-
lendingar.
Með líkri fjölgun og á íslandi, á
söinu árum, gerir síra Rögnvaldur
ráð fyrir, að rúmar 37 þúsundir Is-
lendinga búi nú í Canada og
Bandaríkjunum. Aðrir gizka á hærri
tölu og nokkrir á miklu lægri tölu.
Þessar áætlanir eru gripnar úr
ritinu Vestmenn, til þess að gefa
mönnum hugmynd um hvað sá, eða
þeir færasf í fang, er rita vilja land-
námssögu Vestur-íslendinga frá
fyrstu árum og niður til dagsins í
dag.
Þetta á ekki að vera neinn rit-
dómur um bók Þorsteins Þ. Þor-
steinssonar, heldur vildi ég geta
bókar þessarar og vekja athygli á
því, að hér er mikið efni saman
komið um landnám íslendinga i
Ameríku. En ósjálfrátt spyr maður
eins og skáldið:
»Hver tæmir allt það timburrek
af tímans Stórasjó?«
En bók Þorsteins er mjög virð-
ingarverð tilraun i þá átt.
Þeim, er síðar kunna að rita um
þetta efni, mun verða auðveldari
eftirleikurinn.
Æskilegt hefði verið að höf. hefði
séð sér fært að láta nafnaskrá
fylgja bókinni. Ennfremur hefði ég
kosið, að hann hefði lýst ítarlegar
hversdagsstörfum og búnaðarhátt-
um Vestur-íslendinga.
Eg hefði síður saknað atriða, er
snertu safnaðamyndun og trúar-
bragðakrit,envísteiga þau mál sína
sögu, en ég hygg að það sé að
verða dauð saga, sem lítíð gagn og
enn minna gaman er upp að rifja.
Gott væri ef bókin yrði til þess
að draga saman hugi þeirra, sem á
Jslandi búa og bræðra þeirra og
systra vestan hafs. Öllum, sem
nokkuð þekkja til manna og mál-
efna hjá Austur- og Vestur-íslend-
'ingum, hlýtur að renna til rifja
samstarfsleysið þeirra á milli.
Að stofna til samvinnu milli
heimaþjóðarinnar og Vestur-lslend-
inga, sem byggð væri á samúð og
skilningi beggja aðila, væri hið
þarfasta verk.
Austur-íslendingar hljóta að játa,
' að landið er enn ekki hálfunnið.
Allt bendir til, að þeir fái ekki —
er stundir ltða — að búa að land-
rými þessu óáreittir, þegar stöðugt
þrengist meðal allra þjóða úti um
víða veröld. Sennílegt er að fjöldi
Vestur-lslendinga vildi flytjast
heim, ef nokkuð væri fyrir því máli
beitzt, og ákjósanlegri innflytjendur
yrði ekkl hægt að fá. F. H. Berg.
Fengum nú með „Dettifoss"
Gardínuiau
Flónel
Hvií léreft
Mislii silkiléreft
Purkur, hvitar og mislitar.
Kaupfélag Eyfirðinga
Vefnaðarvörudeildin.
Saltaður upsi
til skepnufóðurs og manneldis verður seldur næstu
daga i kornvörupakkhúsinu. Verð kr. 5.50 50 kg. pakki.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Aletruð
bollapör
í miklu úrvali
Kaupfélag Eyfirðinga
jdrn- og glervörudeild.
Höfum nú fengið afíur
Æðar dún
Kaupf. Eyfirðinga
járn- og glervörudeild.
að panta
i jólamat-
inn fyrlr
helgina.
Kjötbi K E ð.
Sku^jj!a-8veinu verður leikinn f
síðasta smn á sunnudaginn milli jóla og
nýjárs með lækkuðu verði. Sýning leiks-
ins á sunnudaginn fórst fyrir vegna 6-
veðar*,
Gleð jið
börnin
og gefið þeitn góðar bækur:
Um sumarkvold
Við Alftavatn
Báðar eftir yngsta og vin-
sælasta rithöfund landsins,
dlat Jótl. Sigutðsson, sem nú
er nýlega orðinn 17 ára.
V illidýrasögur
handa böcnum
eftir magister írna Friðtiksson.
Anna í Grænuhlíð
' I.—III. bindi.
Pað er eins og yndæll draum-
ur, að lesa sögurnar ura
Önnu í Grænuhlíð. Skemmti-
legri og hollari unglinga-
bækur eru ekki tii. —
Gefid börnum yðar þess-
ar bœkur í jólaajöf!
íslenskir leirmunir
ættu að vera öllum íslendingum
kærkomin jólagjöf.
Komiö og skodid aður en
þér kaupið annað.
Kaupfélag Eyfirdinga
járn- og glervörudeild
fæst til kaups og ábúð-
ar í n. k. fardögum.
Semja má við
Sigfns E. Axfjörð.
Zion. Sunnud. 22 .des: Barnasamkoma
kl. io f. h. Almenn samkoma kl. 8,3o,
Jóhannes Sigurðsson predikar. Allir velk,