Dagur - 28.12.1935, Blaðsíða 1

Dagur - 28.12.1935, Blaðsíða 1
D AGUR líemur út á hverjum fimtu- degi. Kostar kr. 6.00 árg. Gjaldkeri: Árni Jóhanns- son í Kaupfél. Eyfirðinga. Gjalddagi fyrir 1. júlí. Afgreiðslan er hjá JÖNI Þ. ÞóR. Norðurgötu3. Talsími 112. Uppsögn, bundin við ára- mót, sé konrdn til af- greiðslumanns fyrir 1. des. XVIII . ár. | Akureyri 28. desember 1935 52. tbi. Benzínskaltur og bílsljóraverklall. Undir þinglokin samþykkti AI- þingi að hækka benzínskattinn úr 4 aurum í 8 aura á lítra. Á að verja því fé, er inn kemur við þessa hækkun, og sem áætlað er að verði 250 þús. kr., til endurbóta á fjöl- förnustu þjóðvegum og til lagning- ar nýrra vega. Við þetta vinnst tvennt: Bætt samgönguskilyrði á landi og aukin atvinna. Erlendis er litið svo á, að bíl- arnir eigi að kosta viðhald veg- anna, því eins og kunnugt er, slitna vcgirnir mest af bílaumferðinni. Þess vegna er benzínskatturinn hár erlendis, eða eins og hér segir í eft- irtöldum löndum, samkvæmt upp- frá vegamálastjóra: 11,27 aurar lýsingum Noregur Sviþjóð Danmörk England Sviss Belgía Þýzkaland Frakkland Italía 11,68 13 16.43 25,18 29,51 35.43 47,20 49,28 Við samanburð kemur í ljós, að i hverju þessara landa er benzín- skatturinn hærri en hér; þar sem hann er hæstur, meira en sex sinn- um hærri, og að meðaltali meira en þrefaldur við það, sem hann er hér eftir hækkunina. Sést af þessu, að Alþingi hefir stillt mjög í hóf um hækkun skattsins samanborið við það, sem annarstaðar gerist. Þrátt fyrir þetta hafa bílstjóra- félögin í Reykjavík og Hafnarfirði verið lokkuð út í verkfall vegna hækkunarinnar á benzínskattinum. Talið er að »sjálfstæðismenn« standi að baki verkfallinu, og njóta þeir dyggilegrar aðstoðar kommún- ista, sem þeir siga fram í þessu máli. Hyggjast óvinir Mjólkursam- sölunnar geta eyðilegt hana á þenna hátt, með því að koma í veg fyrir flutninga á mjólkinni til Reykjavik- ur, en engar líkur eru taldar fyrir því, að þetta fagra (!) áform takist, því önnur flutningatæki eru notuð í stað hinna makráðu bíla. Tilraun var gerð í þá átt að koma á samúðarverkfalli hér á Akureyri, en það mistókst með öllu. Alþýðusambandið er andstætt verkfallinu. Abessiníudeilan. Laval, forsætisráðherra Frakka, og sir Samuel Hoare, utanríkis- málaráðherra Breta, komu sér fyrir skömmu saman um lausn Abessiníu- deilunnar. Voru tillögur þeirra af- hentar Abessiníukeisara, Mussolini og Þjóðabandalaginu. Tillögur þessar vöktu undrun um allan heim. Samkvæmt þeim .átti ítalía að fá til yfirráðu mestan hluta hinna herteknu svæða í Abessiníu og auk þess víðtæk réttindi til at- vinnurekstrar í öðrum hlutum lands- ins. Til endurgjalds átti Abessinía að fá mjóa landræmu til sjávar og aðgang að hafnarbæ þar. Tillögur þessar vöktu mikla gremju, ekki aðeins í Englandi og um allan hinn brezka heim, heldur og víða annarstaðar og jafnvel í Frakklandi sjálfu. Var litið svo á, að brezki utanríkismálaráðherrann hefði látið Laval leiða sig í gildru, en hann hefir alltaf verið tregur til refsiaðgerða gegn ítalíu. Þingmenn úr stuðningsflokki brezku stjórnarinnar risu öndverðir gegn tillögunum og töldu, að þær köstuðu skugga á heiður brezkra stjórnmálainanna. Varð mótstaðan svo hörð, að sir. Samuel Hoare haf- ir hrökklast frá völdum og við þeim tekið Anthony Eden til mikillar hrellingar itölum. Abessiníukeisari var ineð öllu frá- hverfur tillögunum, og engin von er talin um, að Þjóðabandalagið vilji fallast á þær. Samhliða berast fregnir um fram- rás Abessiníumanna á vígstöðvun- um. Leiðréttiny. í greininni »Sá yðar, sem syndlaus er«, o. s. frv., hafa í 1. dálki, síðu 210, fallið nokkur orð úr handritinu. Þar sen’i rætt er um héraðs- fund á Ljósavatni, átti að standa (let- urbreyttu orðin höfðu fallið úr í prent- un): »Eg var staddur á þessum fundi og gerði fyrirspurn til yðar um það, hvort þér fiyttuð tillöguna vegna þess,- að þðr telduð óvenjulega þörf á presti á Laugaskóla. Svöruðuð þér þvl játandi, og að þér telduð Laugaskóla útiloka sig meira frá kirkjunni en aðra skólat. Til Sisfúsar Jónssonar Ási 11. des. 1935. Aldursjöíur okkar sveitar! Ég vil þig í ljóði hylla. Aðeins sex þig árin vantsr öldina svo megir fylla. Glaður og hress á gamalsaldri, glapin ei sýn að neinu ráði, gengur staflaus stigu bratta, stendur beinn, sem ösp á láði. Þu í huga enn ert ungur, yrkir meira að segja stundum, fylgist með í flestum greinum, fegurð metur enn hjá sprundum. Veit ég þó, að ógnir ýmsar aefi-götu varðað hafa. En þú hefir ekki látið Iffið lama þig eða binda klafa. Hvaðan hefir þér kraftur komið og kæti, er fram í elli skarta? Það hefir veitt þér lundin létta, lifandi von og trúað hjarta. *** Láttu tindra enn um árabil æskuleiftur björt í þínu geði. Ég held, að elli engin væri til, ef allir hrepptu trú og von og gleði. S v e i t u n g i. □ Kún 50361GS - Frl.*. Alkv.*. •»Scv)nvinnam 6. hefti, (nóvember) þ. á., er nýkomin. Efni: Þjóðleikhúsið eft- ir Jónas Jónsson, Einar Árnason alþm. (60 ára), Jón Árnason framkvæmdastj. (50 ára), Baldvin Baldvinsson bóndi (65 ára), Hallur Kristjánsson bóndi (60 ára). Ráðdeildarmenn, saga eftir NÝJA’BÍÓ ■■■ g I Laugardags- og sunnudagskvöld ■ kl. 9: .Continental' Tal- og hljómmynd í 10 þáttum. Aðalhlutverkin leika og dansa: Fred Aslaire og Ginger Rogers, frægasta danspar heimsins. Flestir sem sáu dansmyndina »Carioca« munu fagna þessari mynd, sem sýnir nýjasta dansinn »Continental« og sem ennfremur er afar fyndin og fjörug gaman- mynd, Pétur Georg, Aldarminning tveggja merkismanná, Kaupfélag Stykkishólms, e. Stefán Jónsson, Samvinnustarfiö innanlands, e. Ragnar Ólafsson, Fram- haldsdeild Samvinnuskólans, Heimilið — Kvenfólkið — Börnin (Sænska »Smjörgæsin«), e, Auði Jónasdóttur. Frá fæðingarbæ Shakespeares, e. Svölu. Innanlands og utan (byrjun á gi-ein um verzlunarstefnur), e. Jónas Þorbergsson o.- fl. o. fl. — Auk þess prýða ritið fjöldi mynda. Samvinnan kostar aðeins kr. 2.50 árg. og kemur út mánaðarlega, 16 síður í hvert skipti. Er hún því ódýrari en nokkurt annað tímarit, sem gefið er út hér á landi. Geysir. Söngæfing á morgun, sunnu- daginn 29. desember, í Skjaldborg kl. 5% e. h. v Vep vörukönnunar verða sölubúðir okkar á Akureyri lokaðar sem hér segir: Kjölbúdin frá 1.—3. jan. að báömn dögum meötöldum. Malvörubúöin — 1.—5. — — — — — Aðrar búðir —- 1.-10. — — — — — Vegna reikningsskila byrja útlán ekki fyrr en 23, janúar, Kaupfélag Eyfirðinga.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.