Dagur - 12.03.1936, Síða 4
44
11. tbl
Pað er aðeins eill í-s-l-e-n-z-k-t
líftryggingarfélag
og það býður betri kjör en nokkuð annað
liftryggingarfélag starfandi hér á landi.
Liftryggingardeild
___________Sjóvátryggingarfélags íslands h. f
Skákþing íslendinga var sett í Rvík
7. þ. m. við óvenju mikla þátttöku. Frá
Skákfélagi Akureyrar taka þátt í þingi
þessu Gústaf A. Ágústsson, og Hauk~
ur Snorrason í fyrsta flokki og Júlíus
Bogason í öðrum flokki. Frá Skákfé-
lag'i Húsavíkurr Guðbjartur Vigfússon
og' Hermann Jónsson, báðir í fyrsta
flokki.
Aðalfundur
Sjúkrasamlags Akureyrar
verður haldinn í Skjaldborg
(kaffistofan) sunnudaginn 22.
marz n. k. og hefst kl. 4 e.h.
Dagskrá samkv. lögum samlagsins.
Stjórnin.
Til leigu
2 herbergh
eldhús og geymsla. R. v. á.
Jón Jónsson Gauti frá Ærlækjarseli
átti 75 ára afmæli 28. febr. sl. Hann
hefir jafnan látið samvinnumál mikið
til sín taka. Starfaði hann mikið við
Kaupfélag' Þingeyinga um skeið og'
síðar átti hann forg'öngu að því, að
Kaupfélag Norður-Þingeyinga var
stofnað árið 1894 og veitti því forstöðu
þangað til 1915. Jón dvelur nú í
Reykjavík hjá syni sínum.
Lárus Bjarnason skólastjóri við
gagnfræðaskólann í Flensborg í Hafn-
arfirði varð sextugur 1. þ. m. L. B.
hefir jafnan getið sér bezta orð sem
kennari.
Endanleg ákvöröun er nú tekin um
aftöku Hauptmanns. Aftakan fer fram
3. apríl næstk. ,1
Snori-i Sigfússon skólastjóri kom
heim úr Reykjavikurför um síðustu
helgi. í Reykjavk starfaði hann að und-
irbúningi breytinga á fræðslulögunum,
samkvæmt ósk fræðslumálastjóra og
kennslumálaráðherra. Verður frumvarp
um breytingar á lögum þessum lagt
fyrir þing það, er nú situi' á rökstólum.
Aðalfundur Kaupfélags Eyfirðinga
hefst hér á Akureyri næstkomandi
þriðjudag og' stendur yfir næstu daga
þar á eftir.
Tíðarfarið breytist lítið til batnaðar
norðan- og austanlands. Síðustu daga
virtist mundi bregða til sunnanáttar,
en ekki varð það að neinu gagni, og nú
ei' aftur norðanátt og kalsaveður. Gadd-
ur er mikill yfir allt hér um slóðir og
þó enn meiri austur undan. Óslitin inni-
staða búfjár síðan um eða fyrir vetur-
nætur víðast hvar. Á efri hluta Fljóts-
dalshéraðs er þó sagt svo að segja snjð-
laust í allan vetur og útbeit nýtist þar
yel, en þvi meira fannfergi á Úthéraði.
Tilboð
óskast i flutning á beitu frá
Akureyri til Litlaárskógs-
sands á komandi vertið
8.-9. tunnur á dag. —
Tilboðunum sé skilað til
Árna Jóh. Kea fyrir 17. þ.m.
Beitufélagsstfórnin.
Húslílsoln.
Nýlegt hús með öllum þæg-
indum á góðum stað við
Oddeyrargötu er til sölu nú
þegar og laust til ibúðar 14.
maí n.k. Góðir greiðsluskil-
málar. R. v. á.
Skiðasleðar
fást hjá
Sleinpr. G. Guðmundssyni.
Giiðsþjónustur í Grunda/rþingapresta-
kalli: Hólum, sunnud. 22. marz kl. 12
á hádegi. Saurbæ, sama dag, kl. 3 e. h.
»Frækornið«, yngri deild Kristniboðs-
félags kvenna á Akureyri, heldur út-
breiðslufund þriðjudaginn 17. marz kl.
8 Vi, í Zíon. Upplestui', söngur, hljóð-
færasláttur o. fl. Allar ungar stúlkur
hjartanlega velkomnar.
Hjálpræðisherinn. Sunnud. 15. marz
kl. 10% Helgunarsamk. Kl. 2 Sunnu-
dagaskóli, kl. 8% Hjálpræðissamkoma.
Strengjasveitin. Mánudag kl. 4 Heim-
ilasambandið. Þriðjudag kl. 8% Stór
norsk-dönsk Blómahátíð. 200 blóm.
Kaffi og pönnukökur. Strengjasveitin.
verður haldið í héraðsskólanum á Laugum, ef nægileg þátttaka
fæst, og hefst 27. apríl næstkomandi. Kennt verður: Sund,
leikfimi, útileikir, söngur og einn fyrirlestur á dag um ýmisleg
efni. Allur kostnaður 36 krónur. —
Umsóknir sendist fyrir 15, apríl til Ólafs Ólafssonar íþrótta-
kennara á Laugum.
Nemendur leggi sér til sængurfatnað.
Skólaráð Laugaskóla.
Uppboðsauglýsing.
Mánudaginn 16. marz n. k. fer fram að Litla-Árskógs-
sandi opinbert uppboð á tveimur snurpunótabátum,
síldartunnutrillu og fleiru tilheyrandi síldarútgerð. —
Söluskilmálar verða birtir á uppboðsstaðnum.
Rauðuvik, 19. febrúar 1936.
Valtýr Þorsteinsson.
Bollan minn höndum tek ég
tveim
tunguna gómsætt kaifið vætir.
Einn sopinn býður öðrum heim |
ef f því er Freyju kaffibætir.
T I L B O Ð
óskast i mjólkurflutning
úr Öngulstaðahreppi til
Mjólkursamlags K. E. A.,
tímabilið trá 1. mai 1936
til jafnlengdar næsta ár.
Tilboðum sé skilað til und-
irritaðs fyrir 1. april n.k.
ÞóruBtöðum, 11. marz 1936.
Helgi íjitefánsson.
Hausfið 1935
var mér dregip hvít lamb-
gimbnr með minu fjármarki,
blaðstýft fr. hægra, biti fr.
vinstra. Lamb þetta á ég
ekki. Réttur eigandi vitji
andvirðis þess til mín.
Qilsá Eyjafirðl 7. marz 1936.
Frimann Jóhannesson.
Ritstjóri: Ingimar Eydal. \
Prentsmiðja Odds Björnssonar.