Dagur - 22.04.1936, Blaðsíða 4

Dagur - 22.04.1936, Blaðsíða 4
68 DAGUR 17. tbl. Játning Ólafs Thors, I ræðu þeirri, 'er ól. Th. flutti á Alþingi 24. marz sl. og getið var hér í blaðinu nýlega, lýsti hann af- stöðu sinni og fleiri íhaldsmanna til kosningarinnar í Vestur-Húnavatns- sýslu i meginatriðum á þessa leið: Fyrir síðustu kosningar var ég því mjög hlynntur og vann að því, að Hannes Jónsson yrði kosinn á þing í Vestur-Húnavatnssýslu. Eg sagði frambjóðanda okkar það beinlínis, að flokkurinn hefði ekki gert það, sem í hans valdi stóð, til að undir- búa kosningu hans. En fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, Jón Þorláksson, skrifaði bréf norður i Húnavatnssýslu, til að mæla með okkar manni. Eg vildi þá ekki ganga á móti honum. En ég tel, að kosning Hannesar hafi verið afleið- ing af áðurnefndri aðstöðu minni og nokkurra annara flokksmanna. Eg játa, að ég er ekki laus við sið- ferðilega ábyrgð á kosningu Hann- esar Jónssonar. Og hingað til hefi ég ekki séð eftir því, því að ég heíí haft miklar mætur á Hannesi. — Tilefni þessarar játningar Ó. Th. var það, að Hannes hafði hreytt ó- notum í Thor Thors. Kvað Ólafur í ræðulok, að Hannes myndi vafa- laust fá áminningu í »Bændaflokkn- um« fyrir vöntun á húsbóndaholl- ustu. Munu kunnugir fara nærri mn, að Ólafur Thors sagði þetta ekki út í bláinn. Mætur þær, er Ól. Th. kveðst hafa á Hannesi, komu ekki til sög- unnar, fyrr en Hannes hafði svikið Framsóknarflokkinn og gerzt flugu- maður íhaldsins. Áður hafði Ólafur megnustu fyrirlitningu á Hannesi. Jón Helgason biskup. Safnaðarfundar-erindi. Dregizt hefir, lengur en skyldi, að geta bæklings þessa, sem gefinn var út í Reykjavík seint á síðastl. ári. Eins og yfirskriftin ber með sér, er hér um að ræða safnaðarfundar- • erindi um kirkjumál dómkirkjusafn- aðarins í Reykjavík, þar sem bisk- upinn fyrst rekur sögu safnaðarins og kirkjumála hans og gerir grein fyrir þörf nýrrar kirkju, eða nýrri og fleiri kirkna. Síðan ræðir hann um kröfur safnaðarins í þessa átt, og réttmæti þeirra, og síðast um kostnaðarhliðina. Fyrir tveimur síðustu þingurn hef- ir legið umsókn dómkirkjusafnaðar- ins um skiptingu safnaðarins í sóknir og fjölgun presta í Reykja- vík. En ennþá hefir ekki beiðni þessari verið sinnt. Eins og kunnugt er, þá eru nú í dómkirkjusöfnuðin- um um eða yfir 25 þúsund manns, en kirkja aðeins ein, sem tekur um 900 manns í sæti, og prestar aðeins tveir. Hvaða starf þessir tveir prest- ar vinna má sjá á því, að árið 1934 voru í dómkirkjusöfnuðinum fluttar 166 guðsþjónustur, skírð 515 börn, fermd 328 ungmenni, gefin saman U. M, F. Framiíð sýnir sjónleikinn »Saklausi svallarinnoc í þinghúsi Hrafnagilshrepps laug- ardaginn 25. og sunnudaginn 26. þ. m. Leikurínn hefst kl. 9.30 e. h., bæði kvöldin. — DANS á eftir. Góð músík. Leikstjórnin. með hýði nýkomin. Nýlenduvörudeild. 180 hjón og greftraðir 212 dánir, auk allra annara starfa, sem prest- skap fylgja. Má því hverjum manni vera skiljanlegt, að þetta mikla starf er ofætlun tveimur mönnum. En ekki lítur út fyrir, að Alþingi skiljist það enn. Til fróðleiks er gott að líta til þess, að í lok 14. aldar voru 4 kirkjur á því svæði, sern dómkirkju- sóknin nær nú ein yfir, og frá siða- skiptum og fram undir lok 18. ald- ar voru þar þrjár sóknarkirkjur. Og árið 1845 var með konungsbréfi á- kveðið að stækka dómkirkjuna svo, að hún tæki tvo þriðjunga alls safn- aðarins. Við það hefir setið síðan. Nú tekur hún einn tuttugasta og sjötta og út lítur fyrir, að við það verði að sitja fyrst um sinn, því að í frumvarpi launamálanefndar, sem legið hefir fyrir síðasta Alþingi og hinu sitjandi, er ekki gert ráð fyrlr prestafjölgun í Reykjavík. Verði prestum ekki fjölgað, fjölgar kirkj- um væntanlega ekki heldur. Vafa- laust halda þó Reykvíkingar áfram baráttu sinni í þessu máli. Mál þetta er eftirtektarvert fyrir okkur Akureyringa, vegna þess, að við stöndum mjög í sömu sporum í kirkjumálum, eins og Reykvíkingar. Ríkið á báðar kirkjurnar hér og þar, og þær verða ekki afhentar söfnuð- unum og byggðar upp, nema eftir sérstökum lögum, sem ekki eru til, og erfiðlega gengur að fá samþykkt. Hér er um að ræða tvo stærstu söfnuði landsins, sem með öllu eru útilokaðir frá eigin kirkjum sínum, þó þeir vilji sækja þær. Akureyrar- kirkja tekur einn tíunda hluta nú- verandi safnaðarmanná, og safnað- arstarfið er þá og þegar að verða ofætlun einum manni. En framtíð kirkjumáianna á Akureyri er alveg undir því komin, hver verða afdrif kirkjumáls dómkirkjusafnaðarins. Þessvegna er fróðlegt að fylgjast með því máli. F. J. R. Frá Happdrættinu: Þessi númer voru dregin út í 2. fl. 11. þ. m. í Akureyrar- umboði: Nr. 17874 kr. 10.000.00, nr. 10626 kr. 2000.00. — Eftirfarandi nú- mer hlutu 100 kr. vinning: Nr. 5942, 7143, 8977, 9962, 9239, 12057, 13173, 13917, 13923, 14799, 16599, 18472, 21736, 22099, 23583 og 24902. — Þetta birt án ábyrgðar. Endurnýjun hefst 24. þessa mánaðar. r eru komnar. Vitjið pantana sem allra fyrst. Kaupiélag Eyfirðinga. KjölhiiOin. Bollan minn höndutn tek íg tveim iunguna gómsætt kaffið vætir. Einn sopinn býður öðrum heim :f f þvi er Freyju kaffibætir. Hjónaband. Nýlega voru gefin saman í hjónaband ungfrú Elín Stefánsdóttii', Lvammi í Höfðahverfi, og Þórður Jak- obsson, Árbakka í sömu sveit. Séra Friðrik Rafnar framkvæmdi hjónavígsl- una. Ritstjóri: Ingimar Eydal. Prentsmiðja Odds Bjömssonar.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.