Dagur


Dagur - 16.07.1936, Qupperneq 1

Dagur - 16.07.1936, Qupperneq 1
DAGUR kemur út á hverjum fimtu- degi. Kostar kr. 6.00 árg. Gjaldkeri: Árni Jóhanns- son í Kaupfél. Eyfirðinga. Gjalddagi fyrir 1. júlí. Afgreiðslan er hjá JÓNI Þ. ÞÓR, Norð- urgötu 3. Talsími 112. Upp- sögn, bundin við áramót, sé komin til afgreiðslumanns fyrir 1. des. ► • *-• •--• • • • • • • • «-• • • -» • •• •-• • - XIX. ár. Akureyri 16. júlí 1936. » # } 29. tbl. Findirnir íEyjafirði. Traustsyfirlýsingar til þingmanna Eyfirðinga, Fram- sóknarflokksins og rikisstfórnarinnar samþykktar meö áberandi meirihluta á 4 fundum. Stjórnarandstœd- ingar þora hvergi að bera fram vantraust, nema á einum fámennum klíkufundi. Siðast flýja þeir vegna hrœðslu. — Aazistaunginn i „\slendingi“ kvakar þakk- arorð til Garðars og Sigurðar ,,mosaskeggs“ og segir, að stjórnarandstöðunni aukist fylgi með Eyfirðingum. Flóttinn rekinn. 1 síðasta blaði var frá því skýrt, hvernig Garðar Þorsteinsson og fylgdarlið hans hefði flúið af hólmi á sínum eigin fundi í Saur- bæ fyrra sunnudag. Þar sem íhaldsblaðið hér í bæn- um hefir tekið sér fyrir hendur að skýra frá stjórnmálafundunum hér í Eyjafirði á þann hátt að snúa sannleikanum við, þá skulu hrak- farir Garðars gerðar enn að um- talsefni og flótti hans rekinn að verðugu. „tslendingur“ talar í óráði. Svo mjög hafa hrakfarir Garð- ars og sneypa stigið íhaldsmál- gagninu til höfuðs, að það veit ekki sitt rjúkandi ráð og bullar tóma vitleysu eins og fárveikur maður af hitasótt. Skal hér bent á nokkur atriði þessa óráðshjals rit- stjóra tsl. Blaðið segir, að fundirnir hafi leitt það í ljós, „að stjórnarand- stöðunni aukist fylgi með Eyfirð- ingum.“ „Öllum ber saman um, að stjórnarandstöðunni aukist mjög fylgi hér í sýslunni,“ segir blaðið. Hvaða staðreyndir liggja fyrir um þetta? Á leiðarþingi í Saurbæ er samþykkt traustsyfirlýsing með 33 atkvæðum gegn 2. Aðeins 1/17 hluti fundarmanna greiðir atkvæði gegn trausti, en 16/17 með. 1 óráðinu telur ritstjóri ísl. þetta sönnun þess, að stjórnarand- stöðunni aukist mjög fylgi með Eyfirðingum! Á fundi Garðars sjálfs að Hrafnagili er samskonar trausts- yfirlýsing samþykkt með 32 at- kvæðum gegn 12 og er þó fullyrt, að eitt þessara 12 atkvæða hafi verið stoliö (utankjördæmisat- kvæði). Hlutföllin eru 8 á móti 3. ÍJr framhluta Öngulsstaðahrepps, þar sem fylgi Framsóknar er rak- ið, gátu þó engir kjósendur sótt fundinn af sérstökum ástæðum. 1 óráðinu telur ritstjóri Isl. þessa atkvæðagreiðslu sönnun fyr- ir því, að stjórnarandstöðunni aukist mjög fylgi með Eyfirðing- um! A fundi Garðars 1 Glæsibæjar- hreppi, þar sem hann er sjálfur til staðar, til þess að hefja sókn á hendur Framsóknarflokknum og núverandi ríkisstjórn, en sem brátt snerist upp í máttlausa vörn fyrir hans eigin flokk, er trausts- yfirlýsing samþykkt með svipuðu atkvæðamagni með og móti og á Hrafnagilsfundinum. Þetta kom Garðari með öllu á óvart, því hann hafði talið sér vísan sigur á þessum slóðum, enda réði hann sér ekki fyrir reiði eftir að hafa fengið maklega og eftirminnilega hirtingu í ræðum Bernharðs Stef- ánssonar og eftir að hafa beðið þetta niðurlag í atkvæðagreiðsl- unni. 1 öllu þessu sér ritstjóri ísl. stóraukið fylgi við stjórnarand- stöðuna — í óráðinu. Loks er samþykkt traustsyfir- lýsing á leiðarþingi á Dalvík og hlutföllin í þeirri atkvæðagreiðslu rúmlega 5 gegn 1. Þar sér ritstjóri ísl. erin eina sönnun fyrir vaxandi fylgi við stjórnarandstöðuna og að sama skapi rýrnandi fylgi við Fram- sóknarflokkinn, þingmenn kjör- dæmisins og núverandi ríkis- stjórn. „íslendingur“ tekur refinn sér til fyrirmyndar. Mjög vekur það eftirtekt, að stjórnarandstæðingar skyldu hvergi þora að bera fram van- ítraust á fundunum, nema á fá- mennum klíkufundi íhaldsmanna á Dalvík, Þar vissu þeir, að þeim var það óhætt, og þá létu þeir það ekki undir höfuð ieggjast. Þetta atvik sýnir og sannar, að þeim f’é- lögum, Garðari og Sigurði, var það alltaf efst í huga að fá van- traust samþykkt, hvar sem þeir ihefðu séð færi á. En þeir vissu það, að færið gafst ekki, nema á þessum eina klíkufundi; alstaðar annarstaðar voru þeir annað tveggja vissir um eða hræddir um að lenda 1 minni hluta með van- trauststillögu. ísl. reynir að afsaka þenna ótta við að bera fram vantrauststillögu með því, að „Sjálfstæðismenn leggi enga áherzlu á slíkar tillög- ur á fundum hingað og þang- að(!)“ En hversvegna lögðu þeir þá áherzlu á að fá vantraust sam- þykkt á fámennasta fundinum, sem Garðar stofnaði til? Hvers- konar tepruskapur, var það af stjórnarandstæðingum að vilja ekki fá vantraust samþykkt á fjölmennari fundum og þar sem það óneitanlega hefði haft meira gildi, úr því að þeir höfðu nógan liðsafla til þess eftir því, sem í- haldsblaðinu á Akureyri segist frá? ísl. ber ekki við að reyna að skýra þetta, og það er ekki von, því hann er algerlega kominn i gapastokkinn með allt sitt fimbul- famb um þessi efni. Og í flumósa vandræðum sínum grípur blaðið til þess ráðs að taka refinn sér til fyrirmyndar. Þegar honum ekki tókst að ná í vínberin, kvaðst hann ekki kæra sig um þau, því þau væru súr. Þegar þeif Garðar og Sigurður þora ekki að láta bera fram vantraust á fundum í Eyja- fjarðarkjördæmi vegna fylgisleys- is, þá láta þeir „tslendmg“ segja: „Sannleikurinn er að Sjálfstæðis- menn leggja enga áherzlu á slíkar tillögur hingað og þangað.“ Eftir þessa makalausu yfirlýs- ingu íhaldsblaðsins um lystarleysi flokksmanna sinna á vantraust gegn ríkisstjórninni, ætti „Spegill- inn“ að taka til athugunar, hvort ekki væri viðeigandi að birta myndir af þessari þrenningu: Garðari Þorsteinssyni og ritstjóra íslendings með allt lystarleysið á vantraust — og refnum, sem þótt- ist vera lystarlaus á vinberin. „ Eign sljórnarandstœðinga“ ísl. minnist á leiðarþingið á Litla-Árskógssandi og fer um það svofelldum orðum: „Áttu stjórnarandstœðingar fundinn alveg.“ Síðar í sömu grein er þó rit- NÝJA-BÍÓ Fimmiudaginn 16. þ. m. kl. 9: Aðalhlutverkið leikur WILLY FORST af mikilli snild. Niðurselt verð. Sýnd í síðasta sinn. stjórinn sýnilega búinn að gleyma því, er hanh áður sagði, því þá skýrir hann frá því, að Bernharð hafi átt þar „þrjár sálir“. Þessi frásögn Isl. um „eign“ Bernharðs mun byggjast á því, að 3 fundarmenn hafi tekið til máls sem fylgismenn Framsóknar- flokksins og þar með hafi fylgið við Bernharð ekki náð lengra. En ef sami mælikvarði er lagður á fylgið við stjórnarandstæðinga, þá skal þess getið, að einn maður tal- aði á þinginu með málstað Stefáns í Fagraskógi, en enginn með mál- stað Sigurðar Kristjánssonar. Nið- urstaðan af þessum mælikvarða ísl. um fylg'i flokkanna á leiðar- þinginu á Litla-Árskógssandi verður því sú, að Bernharð Stef- ánsson „átti“ þar 3 sálir, Stefán 1 Fagraskógi eina, en Sigurður Kristjánsson eða íhaldið „átti“ þar enga sál. Það var því ekki við því að bú- ast, að Sig. Kristjánsson þyrði að bera fram vantraust þar. En því skvldu bændur vel taka eftii’, að Isí. telur þá af þeim, sem tilheyra íhaldsflokknum „eign“ flokksins, eins og menn tala im kýr eða kmdur sem eign sína. Lík- lega hefit Sigurður, sá er skriíaði mosagremina, skipað ritstjóra Isl. að orða þetta svo. Flótti Garðars af Saur- bœjarfundinum. „íslendingur11 vill auðsjáanlega leggja sig í framkróka með að 'dylja flótta Garðars Þorsteinsson- ar af Saurbæjarfundinum. En blaðinu ferst þetta fram úr lagi klaufalega. Það byrjar á því að viðurkenna að Framsóknarmönn- um hafi verið neitað um að fá að taka til máls, þegar það vitnaðist að bera ætti fram tillögur, og blaðið játar einnig að fundi hafi verið slitið í sama bili. Enginn (Framh. á 3. síðu).

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.