Dagur - 19.11.1936, Side 1
DAGUR
kemur út á hverjum fimtu-
degi. Kostar kr. 6.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
Afgreiðslan
er hjá JÓNI Þ. ÞÓR, Norð-
urgötu 3. Talsími 112. Upp-
sögn, bundin við áramót, sé
komin til afgreiðslumanns
fyrir 1. des.
XIX. ár.
Akureyri 19. nóvember 1936.
47
. tbl.
í!
II
!!
H
II
!!
!!
i
íi
■■
■■
I
Kains minni.
' í vestur viking
féll vaskur dfengur. Brast í lyftingu bogastrengur.
Bliknaði lilja, Óðins stafnbúi,
har vestan kylja Islands fulltrúi
helfregn um haust efldur orðsnilli
heim í horg og naust. átti þjóðhylli;
Féll fullhugi, hermir sönn saga
er fulla sjö tugi um sína daga
har merki Braga. afrek Eyfirðings,
Það er bókfœrð saga. einstaks hagyrðings. i ’
Vísur víðfleygar Flugu brag-broddar,.
verða blómsveigar beittir voru oddar.
látins á leiði, Laust hann ljóð-öxum>
meðan Ijúf í heiði lék að mál-söxum.
sól yfir Súlum Skaut skop-spjóti
signir á múlum skráveifu móti;
hjarn-skafla harða hló í hliðskjálfum
og hamra-garða. hirð í tveim álfum.
Oldnum og ungum Æfi hallaði,
eins leika á tungum Alfaðir kállaði
Ijóðmæli Káins, heim til hirðvistar
lifandi og dáins. — og hróðrar-listar
Garpar glaðleitir kjörskáld sitt, Káinn, —
gerast óðteitir og hann hvarf í bláinn;
þá stef og stökur hann er uppstiginn,
stytta þeim vökur. hann er ekki hniginn. Friðgeir H. Berg.
II
II
II
II
!!
i
i
!!
ií
■■
■■
i
II
!!
II
II
II
II
!!
Sunnudaginn 15. þ. m. andaðist konan mín elskuleg, Sigur-
björg Jónasdóttir.
Jarðarförin er ákveðin þannig: Þ/iðjudaginn 24. húskveðja á
heimili okkar, Spítalaveg 15 Akureyri, kl. 11 f. m. og flutt þann
dag að Munkaþverá, og svo jarðsungið þar fimmtudagiun 26.
s. m. kl. 12 á hádegi.
Spitalaveg 15 Akureyri, 17. nóvember 1936.
Júlíus Ólafsson.
Tilkynning.
Jarðarför Odds Lýðssonar,
Glerá, er ákveðin mánudaginn
23. nóv. og hefst með húskveðju
að heimili hans kl. 11 f. h. —
Jarðað verður í Akureyrarkirkju-
garði. Vandamenn.
Hér með tilkynnist vinum og
vandamönnum að Guðrún Jóns-
dóttir lézt að heimili sínu, Mikla-
garði í Eyjafirði, 12. þ. m. —
Jarðarförin er ákveðin að Munka-
þverá föstudaginn 27. þ. m. kl.
1 e. h.
flðstandendur.
Kristján N. Júlíus
— Káinn —
NÝJA-BÍÓi
I
vestur-íslenzka skáldið þjóðkunna
og góðkunna bæði austan hafs og
vestan, andaðist af hjartaslagi 24.
okt. síðastliðinn, 76 ára að aldri.
Skáldið Káinn var eins og kunn-
ugt er, Eyfirðingur að uppruna, en
fór ungur til Ameríku og ól þar
allan aldur sinn upp frá því.
Ein af stökum skáldsins hljóðar
svo:
\
Kœra foldin, kennd við snjó,
hvað ég feginn yrði,
mœtti holdið hvíla í ró
heima í Eyjafirði.
Hér í blaðinu er skáldsins mak-
lega minnzt í ljóði af manni, sem
var persónulega kunnugur Káin.
KIRKJAN. Messað á Akureyri n. k.
sunnudag kl. 2 e. h.
Z I 0 N: Surmudaginn 22. nóvember
kl. 10 f. h. sunnudagaskóli, öll börn vel-
komin. Kl. 814 e. h. almenn samkoma.
Allir velkomnir.
K. F. U. M. Fundur í Zíon á sunnu-
dag 22. þ. m. kl. 5%. — Fermingar-
drengir frá síðastl. vori sérstaklega
boðnir.
Dánarclægur. Þann 11. þ. m. andað-
ist að heimili sínu hér í bæ Emil Peter-
sen búfræðingur, 71 árs að aldri,
geindur maður og hagyrðingur.
Á sunnudaginn lézt að heimili sínu
hér í bæ húsfrú Sigurbjörg Jónasdótt-
ir, kona Júlíusar Ólafssonar fyrrum
bónda í Hólshúsum. Hún var tæplega
sjötug. Sigurbjörg sál. var glæsileg at-
orkukona-
□ Kún 593611248 = Fri/.
Freymóður Jóhannsson málari hafði
málverkasýningu í Charlottenborg í
Kaupmannahöfn í síðastl. októbermán-
uði. Sýndi hann þar mörg málverk eft-
ir sjálfan sig og' hlutu þau ágæta dóma.
Meðal annarra stórmenna borgarinnar,
sem heimsóttu málverkasýning'u Frey-
móðs, má nefna Stauning forsætisráð-
herra. Var mjög gestkvæmt á sýning-
arstaðnum, meðan hún stóð yfir, og
seldist talsvert af málverkunum.
Húsbruni. Nokkru fyrir hádegi á
fimmtudaginn var brauzt út eldur á
efstu hæð hússins nr. 3 við Brekku-
götu, sem er eig'n Sveins Bjarnasonar
framfærslufulltrúa. Brann öll efsta
hæðin innan úr járni og; neðri hæðirnar
skemmdust af vatni. Allir innanstokks-
munir á efstu hæð brunnu. Urðu sumir
leigjendanna fyrir tilfinnanlegu tjóni.
Hús og munir húseiganda voru vá-
tryg'gðir.
Fimmtudagskvöld kl. 9:
Ást og
prettir.
Bráðfjörug og skemmtileg
mjmd með
Joan Crawtord
Og
Frank Mor^an
í aðalhlutverkunum.
Pöstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöld kl. 9:
Vanessa.
Fögur og áhrifarík talmynd,
gerð eftir samnefndri skálds-
sögu enska skáldsins
Hugli Walpole’s
Aðalhlutverkin leika:
Helen Hayes,
Robert Montgomery,
Lewis Stone.
Mislingair eru víða hér um sveitir og
leggjast aliþungt á marga. Einkum eru
mikil brögð að þeim í Saurbæjarhreppi.
Lágu þar nýskeð, að sagt var, um 100
manns. Eitthvað af gömlum konum
hafði þá dáið úr þeim. Þessar konur
heyrði blaðið nefndar, er látizt höfðu:
Kristín Guðmundsdóttir, fyrrum hús-
freyja í Fjósakoti, Guðrún Jónsdóttir í
Miklagarði og Margrét Skúladóttir,
ekkja eftir Kristján Sigurðsson.
Dánardægur. 10. nóv. andaðist á
Hjalteyri Einar Sigvaldason fi-á Ný-
haga í Hörgárdal, 83 ára. 14. þ. m.
lézt Dómhildur Sigurðardóttir hús-
freyja í Hvammi í Möðruvallasókn, f.
12. ágúst 1857 í Holtseli í Eyjafirði.
Móðir Dómhildar var Ragnheiður syst-
ir Dómhildar konu Ólafs Briem um-
boðsmanns á Grund, faðir þeirra var
Þorsteinn Gíálason á Stokkahlöðum.
Þökkum innilega öllum þeim,
sem sýndu okkur samúð og hlut-
tekningu við fráfall og jarðarför
Rannveigar Jónsdóttur frá Hrísum.
Aðstaadendur.