Dagur - 28.01.1937, Qupperneq 4
16
DAGUR
4. tbl.
TILKYNNING.
f*ar sem margir skattgreiðendur í Akureyrarkaupstað hafa enn
ekki gefið skattanefnd lögboðna skýrslu um eignir sínar og tekjur
siðastliðið ár, vekur nefndin sérstaka athygli á því, að framtals-
frestur er útrunninn þann 31. þ. m.
Þó mun skattanefnd taka að fullu til greina þær skýrslur, sem
berast fyrir 7. febrúar n. k., en þeim, sem þá ekki hafa talið fram,
verður áætlaður skattur.
Akureyri, 28. jan. 1937.
Skattanefnd Akureyrar.
Atvinnuleysisskráning.
Hin lögboðna atvinnuleysisskráning fyrir Akureyrarkaupstað — hin
fyrsta á þessu ári — fer fram á Vinnumiðlunarskrifstofu bæjarins, í
Lundargötu 5, dagana 2., 3, og 4. Febrúar n. k. kl. 1—7 e. h.
Allir atvinnulausir menn og konur í bænum eiga að mæta til skrán-
ingar, og gefa skyrslu um tekjur sínar sl. ársfjórðung.
Bæjarstjóirinn á Akureyri 25. Jan. 1937.
Steinn Steinsen.
Skjaldsveinar Bakkusar.
(Niðurlag.)
Hefir nokkur íhugað, hversu
geigvænlegt það tjón er, sem
drykkjuskapurinn bakar oft heim-
ilislífi þjóðarinnar? Við skulum
horfa á einn þáttinn af þessum
sorglega leik, sem gerist innan vé-
banda heimilisins, þar sem aðal-
persónan, heimilisfaðirinn, er
drykkjumaður. Er hann hefir lok-
ið vinnu að kvöldi, eítir að hafa
borið hita og þunga dagsins, ber
hugurinn og fæturnir hann að
gömlum vana ósjálfrátt til veit-
ingahússins eða knæpunnar, með
fé það, sem honum er goldið fyrir
vinnu sína. Þar finnst honum
staðurinn álitlegastur til að ávaxta
það. Vinnulaunin eru frá náttúr-
unnar hendi ætluð manninum til
kaupa á lífsnauðsynjum handa sér
og fjölskyldu sinni, en hann kaup-
ir fyrir þá áfengi, og á þann hátt
lamar líkama sinn og vinnuþrek
og er að fyrirbyggja að hann geti
séð fjölskyldu sinni farborða. Svo
þegar hann kemur heim, bætir
hann gráu ofan á svart með fram-
komu sinni. Hann lúber bæði kon-
una og börnin, sem oft hafa beðið
soltin og klæðlítil heima, hendir
til ýmsum húsmunum, tvinnar
'blótsyrðin, froðufellir af bræði og
leikur þann leik, sem vitskertum
manní helzt hæfði. Hver verða
svo leikslokin? Fjölskyldan leysist
upp og framfærslusveit hvers að-
ila verður að taka við honum.
Þetta eru vextirnir af peningum
þeim, sem maðurinn lagði inn hjá
eiganda veitingahússins. Leiksvið-
ið, sem þessi þáttur gerist á, er
allt málað með hinum svarta 15t
sorgarinnar. Það virðist í fljótu
bragði sem örlögin hafi spunnið
mönnum þessum of veikan þráð,
en svo er ekki. Þeir hafa með súiu
persónulega ósjálfstæði gert líf
sitt og annarra að bláþræði.
Nú er hafinn harðvítugur hild-
arleikur með þjóð vorri. Það er ó-
sættanleg orrusta móti Baklcusi,
sem krefst úrslita. í henni tekur
þátt ein hin hraustasta og djarf-
asta hersveit þjóðarinnar, sem hún
hefir á að skipa í þessum efnum,
hin unga og uppvaxandi kynslóð.
Sú hersveit hefir á þroskaskeiði
sínu búið sig undir að veita við-
nám, er hinar illu og skaðlegu
nautnfr ætla að gera atlögur að
henni. Hún hefir einnig tamið sér
að vera reiðubúin að grípa til
vopna, er herlúðrar skyldunnar
kalla hana til þess.
Við skulum hlaupa yfir 10—20
þrep í stiga tímans og sjá hvað
Gauta
er bestur. 2 — 3 HK. vélar
aðeins 340 krónur. Vélar og
varastykki frá verksmiðj-
unni hér á staðnum.
Gunnar Guðlaug'sson.
Síml 257.
Jörilin
Hraunshöfði
í Öxnadalshreppi er laus til
kaups og ábúðar í næstu
fardögum.
Skjaldastööum 21. jan. 1937.
Jón Jóns§on.
Auglýsing.
Síðastliðið haust, voru mér
dregnar þrjár kindur með
mínu marki, sem er: Gagn-
bitað hægra, biti framan
vinstra. Pað er svartkollótt
ær með svartkollótia gimbur
og goltóttur lambhrútur.
Þessar kindur á ég ekki. Eig-
andi snúi sér til undirritaðs,
sem gefur nánari upplýsingar.
Skógum i Öxarfirði 8. jan. 1937.
Sigurður Gunnarsson
3 — 4 hesta, í góðu lagi, selst
fyrir 150 kr. eða í skiftum
fyrir minni vél. — Árni
Jóhannsson Kea vísar á.
Odýr trjáviðnr:
Plánkar, tré, stoðir og fleira
hentugt í hlöður og penings-
hús (skipaviður). Ennfremur
krossviður, Galv. slétt járn,
ýmsar þykktir, selst nú þegar.
Gunnar GuÖlaugsson.
Síml 257.
blasir þá við. Bakkus stendur af-
vopnaður frammi fyrir þjóðinní
með skorpna skó á fótum sér og
má sig hvergi úr stað hræra. Til
þess að þetta, sem nú er aðeins
draumsýn, geti orðið veruleiki,
verður þráður samtakanna að
binda hendi við hönd.
Hermann A. Kristjánsson,
Hvassafelli,
PPOf h inniheldur hreina
1 JuilIiH sápu og súrefni. Vér
ábyrgjumst, að klór eða skaðleg
klórsambönd eru ekki notuð í
PERLV-þvottaduft.
\
prpi h þvær vel og fer vel
1 með þvott og hendur
vegna þess, að aðalefnið er bezta
tegund af þvottasápu, sem verk-
smiðjan sjálf framleiðir úr fyrsta
flokks olíum. —
Ársfimdnr Mjólkursamlags
K. E. A verður haldinn í samkomuhúsinu »SkjaIdborg« á Ak-
ureyri, föstudagins 5. febrúar n.k. og hefst kl. 1 eftir hádegi.
Dagskrá samkvæmt reglugerð Mjólkursamlagsins.
Akureyri 27. janúar 1937.
FÉLAGSSTJÓRNIN.
Djóðjörðin Vaglir
á Pelamörk er laus til ábúðar í næstu fardögum. — Umsóknir
sendist til hreppstjóra Glæsibæjarhrepps fyrir febrúarlok.
Benedikt Guðjónsson.
Ritstjóri; Ingimar Bydai, Prentsmiðja Odds BjÖrnssonar.