Dagur - 15.04.1937, Qupperneq 1
DAGUR
kemur út á hverjum fimtu-
degi. Kostar kr. 6.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
Afgreiðslan
er hjá JÓNI Þ. ÞÓR, Norð-
urgötu 3. Talsími 112. Upp-
sögn, bundin við áramót, sé
komin til afgreiðslumanns
fyrir 1. des.
Akureyri 15. apríl 1937.
15. tbl.
Hallgrímskirkja - Matthíasarkirkja
Fyrir nokkrum árum hófu
nokkrir áhugamenn almenna fjár-
söfnun til að byggja veglega
kirkju í Saurbæ á Hvalfjarðar-
strönd, er vera skyldi minnisvarði
hins ódauðlega sálmaskálds Hall-
gríms Péturssonar. Fjársöfnunin
hefir gengið svo vel, að kirkja
þessi mun bráðlega rísa frá grunni.
í ráði er að ný kirkja verði reist
á Akureyri mjög bráðlega. Þeir, er
bezt til þekkja, telja nokkurnveg-
inn öruggt að mál þetta komizt til
framkvæmda í nánustu framtíð.
Akureyrarkirkja hefir verið úr-
skurðuð sjálfseignarstofnun, og
samkvæmt því mun hún verða af-
hent söfnuðinum innan skamms til
allra umráða.
Það er talið, ef kirkjujarðasjóð-
ur stendur skil á því sem honum
ber, þá muni kirkjan geta að
mestu byggt sig upp sjálf, þegar
um húsabygginguna eina er að
ræða. En þar við bætist að sjálf-
sögðu allmikill aukakostnaður.
Líklegt er að bálstofu til lík-
brennslu verði komið upp í sam-
bandi við kirkjubygginguna.
En í sambandi við byggingu
Hallgrímskirkju í Saurbæ og
byggingu nýrrar kirkju á Akur-
eyri vaknar ein spurning.
Matthías Jochumsson var, sam-
fara því að vera þjóðskáld, svo
andríkt trúar- og sálmaskáld, að
hann má hiklaust setja á bekk
með Hallgrími Péturssyni, þó að
ólíkir séu þeir í sálmakveðskap
sínum sem eðlilegt er, þar sem
annar var 17. aldar, hinn 19. aldar
maður.
Matthías er því mikið nær okk-
ur, sem nú lifum, í tíma og hugs-
un en Hallgrímur.
Matthías var um skeið þjónandi
prestur á Akureyri og hér ól hann
síðari hluta aldurs síns.
Væri nú ekki maklegt og vel
við eigandi að hin nýja Akureyr-
arkirkja væri gerð að minningar-
kirkju síra Matthíasar Jochums-
sonar, hliðstætt því sem nýja.
kirkjan í Saurbæ er helguð minn-
ingu síra Hallgríms Péturssonar?
Kirkjan yrði þá kennd við nafn
hins ástsæla og andríka þjóðskálds
og sálmaskálds. Hún hlyti nafnið
Matthíasarkirkja.
Að vísu hefir Matthíasi verið
ætlaður annar minnisvarði hér á
Akureyri, sem er fyrirhuguð bók-
hlöðubygging. Á engan hátt skal
sú hugmynd löstuð. En er ekki
bókhlöðubygging, sem jafnframt
væri hæfilegur minnisvarði þjóð-
skáldsins, fjarlægur framtíðar-
draumur, sem enginn veit hvenær
eða hvernig verður að veruleika?
Um það skal reyndar ekkert full-
yrt. En hvað sem um það er,' verð-
ur því vart neitað, að vegleg
kirkja væri veglegt minnismerki
Samkvæmt álitsgjörð og tillög-
um verkfræðinga hefir bæjar-
stjórn Akureyrar tekið þá ákvörð-
un í rafveitumálinu, að Laxá verði
tekin til virkjunar, en ekki Goða-
foss, sem upphaflega var ætlað. Er
ætlunin að virkja fyrst 2000 hest-
öfl og bæta síðan öðrum 2000 við,
þegar þörf krefur. Virkjunin er á-
ætluð um IV2 millj. kr.
Síðastl. sunnudag efndi rafveitu-
stjórn Akureyrar til almenns
borgarafundar um mál þetta.
Sóttu fund þenna um 400 manns.
Til máls tóku Steinsen bæjarstjóri,
Sig. Eggerz sýslumaður, Þorsteinn
Þorsteinsson bæjarfulltrúi og Sig.
Ein. Hlíðar dýralæknir. Voru þeir
allir sammála um aðalatriði máls-
ins. Snerust ræður þeirra mjög um
þörf á ríkisábyrgð vegna lántöku
til framkvæmdar verkinu. Skýrði
Sig. Eggerz m. a. frá því, að hann
hefði haldið fund í Reykjavík með
Sjálfstæðisflokksþingmönnum um
nauðsyn þessa máls. Hefði hann
fengið svo góðar undirtektir, að
hann hefði ekki haft frið að tala
fyrir brennandi áhuga þingmann-
anna og hrópum, jafnvel þeirra
allra gætnustu (þ. e. íhaldssöm-
ustu), um að þetta og þetta væri
alveg sjálfsagt (fyrir kosningarn-
ar)! Til enn frekari fullvissu hafði
þó Sig. Eggerz snúið sér til for-
manns flokksins eftir heimkom-
una og spurzt fyrir um, hvort það
væri nú alveg áreiðanlegt að
flokkur hans stæði við loforð sín
um stuðning við þetta mál. Hafði
Olafur Thors svarað með sím-
skgyti,. er bæjarfógeti las upp, og
var það þess efnis, að þingflokkur-
inn ætlaði ekki að svíkja loforð
sín um þetta efni (nú fyrir kosn-
ingarnar).
yfir æðsta presti þjóðarinnar í ríki
andans og skáldskaparins, því það
var síra Matthías. Hann var ó-
þreytandi að boða þjóð sinni trú
á mátt kærleikans í altilverunni
og sigur hins góða að lokum.
Hugmyndinni um Matthíasar-
kirkju á Akureyri er hér með
varpað fram.
Vilja menn athuga hana og ef
til vill láta eitthvað til sín heyra
um hana?
Fyrir hönd rafveitustjórnar var
lögð fram svohljóðandi tillaga:
„Með því að telja má víst að
hagstætt lán til virkjunar Laxár-
fossa fáist ekki án ríkisábyrgðar,
og með því að undirbúningi máls-
ins er svo langt komið, að hægt er
nú þess vegna að byrja á virkjun-
inni, ef fé væri fyrir hendi, þá
skorar almennur borgarafundur á
Akureyri á Alþingi að veita ríkis-
ábyrgð fyrir 1.500.000 króna láni
til virkjunarinnar nú þegar, áður
en þingi verður slitið.“
Tillagan var samþykkt í einu
hljóði, með 400 atkvœðum.
Segi menn nú, að Akureyrar-
búar geti aldrei verið sammála.
ítialdsdilkur jarmar.
Nýtt blað hljóp af stokkunum
hér í bænum í gær, er nefnir sig
„Bændablað“ og segist vera gefið
út af Bændaflokksfélagi Eyja-
fjarðar. í útgáfustjórn blaðsins
eru Jón Rögnvaldsson, Fífilgerði,
Eiður Guðmundsson, Þúfnavöllum
og Svafar Guðmundsson (bæjar-
radikal!). Stefán á Varðgjá fylgir
blaðinu úr hlaði, Gísli Brynjólfs-
son frá Rvík er sagður ritstjóri,
en ekki finnst nafn hans í blað-
inu. Ábyrgðarmaður er Stefán í
Fagraskógi.
Kirkjan. Messað nk. sunnudag i Gler-
árþorpi kl. 12 á hádegi og á Akureyri
kl. 2 e. h.
Zíon. Næstkomandi sunnud. kl. 10%:
Sunnudagaskóli. Öll börn velkomin. KI.
8%: Almenn samkoma. Allir velkomnir.
NÆTURVÖRÐUR er í Akureyrar
Apóteki þessa viku. (Prá n. k. mánud.
er næturvörður í Stjömu Apóteki.)
Svarfdælingamót verður haldið i Sam-
komuhúsinu síðasta vetrardag kl. 9 e. h.
Fimmtudagskvöld kl. 9:
1936.
Niðurselt verð. í síðasta sinn.
Föstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöld kl. 9:
Endur-
fæðing.
Tal- og hljómmynd, tekin
eftir hinni heimsfrægu sögu
»Opstandelse«, eftir skáldjöf-
urinn rússneska Leo Tolstoy.
Aðalhlutverkin leika:
Rússneska leikkonan
Anna Sten
Og
Frederich March.
12—15 þúsund krónur.
Meiri hluti bæjarstjórnar, með
Jón Sveinsson í fararbroddi,
hindraði, fyrir nálægt mánuði síð-
an, útgröftinn á lóðinni undir fyr-
irhugaða mjólkurvinnslustöð Kea.
Atvinna hefjr engin verið í bæn-
um allan þennan tíma sem liðinn
er síðan ú-tgröfturinn átti að hefj-
ast, og verkamenn hafa gengið at-
vinnulausir í stað þess að þeir
hefðu nú verið búnir að vinna fyr-
ir 12—15 þúsund krónum. Dálag-
legur skildingur, en Jón Sveinsson
telur þetta kannske smámuni.
Akureyringar eiga Jóni margt
að þakka og verkamennirnir alveg
sérstaklega þetta síðasta dreng-
skaparbragð hans, að lofa þeim að
hvíla sig og vera lausum við þess-
ar tekjur.
Hvenær verður það fullþakkað?
V erkamaður.
ísland, skip Sameinaða félagsins,
strandaði i fyrramorgun á skeri í Forth-
firði. Þoka var á. Farþegum öllum var
bjargað í land og taka þeir sér far með
Brúarfossi til Reykjavíkur, er liingað til
lands ætluðu. Síðast er fréttist sat skipið
fast á skerinu, kominn leki að lestar-
rúminu og óvíst talið að það næðist út.
Prédikun í Aðventkirkjunni nk. sunnu-
dag kl. 8.30 e. h. Allir velkomnir.
Útvarp Leikfélags Akureyrar, sem á-
kveðið var að færi franl næstk. laugar-
dagskvöld, fellur niður vegna veikinda.
Ný rafvirkjun fyrir Akureyri
og nærsveitir.
Laxá valin til virkjunar. Borgarafundur um málið.