Dagur - 15.04.1937, Page 3
15. tbl. DAGUR 59
Á að lækka krónuna t
Jarðarför móður okkar og tengdamóður, Maríu Jóhanns-
dóttur, sem andaðist 9. þ. m., hefst með húskveðju frá heimili
hinnar látnu, Aðalstræti 76, þriðjudaginn 20. þ. m. kl. 1 e. h.
Helga Frímannsdóttir. Ólafur Sölvason.
Elínborg Jónsdóttir. Siguröur Sölvason.
Jarðarför Þóru Sigtryggsdóttur, er andaðist 2. þ. m. á heim-
ili sinu, Spítalaveg 1, fer fram frá Akureyrarkirkju miðviku-
daginn 21. þ. m. og hefst kl. 1 e. h.
V andamcnn.
Jarðarför föður okkar, Sveinbjörns J. Sigfússonar, frá Bú-
landi, sem andaðist á sjúkrahúsinu á Akureyri 6. apríl, ferj
fram á Möðruvöllum í Hörgárdag, þriðjudaginn 20. april og
hefst kl. 1 eftir hádegi.
Jón Sveinbjörnsson. Sigurður Sveinbjörnsson.
Innilegt þakklæti votta ég öllum þeim, sem sýndu samúð og
hjálp við jarðarför mannsins míns, Laurids Emanuels Funch-
Rasmussens vélstjóra.
tiuðrún Fuiich-Rasmussen.
Fyrir skömmu var ég á fundi
með nokkrum bændum, þar sem
rædd voru ýms mál, sem nú eru
ofarlega á dagskrá hjá þjóðinni.
Eitt þeirra mála, sem þar var
rætt, var gengismálið. Menn voru
ekki á eitt sáttir í því máli og
sýndist sitt hverjum. Eg lagði ekk-
ert til þeirra mála þá, en þær um-
ræður, sem um það féllu, leiddu
til þess, að ég fór að íhuga það
dálítið nánar en ég hafði áður
gert, og þær íhuganir urðu þess
valdandi, að mig fór að langa til
að „leggja orð í belg“ um þetta
mál.
Ég geng þess ekki dulinn, að
þetta er flóknara og meira vanda-
mál en svo, að óbreyttir alþýðu-
menn geti kafað þar til botns og
dregið af því réttar ályktanir, þar
sem lærðir hagfræðingar deila
mjög um þýðingu þess, og hvaða
áhrif það hefir á viðskipta- og at-
vinnulíf þjóðarinnar. Þó finnst
mér rétt, að við bændur reynum
að gera okkur það eins ljóst og
auðið er, á hvern hátt gengislækk-
un hefir áhrif á efnalega afkomu
okkar. Ég mun því ekki ræða mál-
ið nema séð frá bæjardyrum bónd-
ans.
Mér finnst málið verða einna
ljósast með því að draga fram
dæmi af fjárhagsafkomu eins
bénda og sjá hvaða áhrif gengis-
lækkun hefir á efnahag hans.
Þessi bóndi hefir vörur til að
selja úr búi sínu fyrir 2000 kr.,
helmingur af því er mjólk, hitt
kjöt, ull og gærur.
Mjólkin er öll seld á innlendum
markaði og 30% af öðru innleggi
hans. Hann selur því út úr landinu
vörur fyrir 700 kr og á innlendum
markaði fyrir 1300 kr. Ef ég geri
nú ráð fyrir 20% gengislækkun,
þá hækka þær vörur sem því nem-
ur, sem á útlenda markaðinn fara,
en um sölu á innlenda markaðin-
um er aftur vafamál að sú verð-
hækkun verði jafn mikil, það er
mál sem um má deila, en reynslan
ein fær skorið úr. Ég ætla nú að
gera ráð fyrir, að verðhækkun af-
urða landbúnaðarins á innlenda
markaðinum og hækkun kaup-
gjalds haldist í hendur, og hvort
tveggja hækki um 10%.
Það eru að vísu ýmsir, sem
halda því fram, að kaupgjald sé
nú orðið svo hátt, að enginn sann-
girni sé í því, að gera kröfu um
hækkun þess, þó krónan falli. Ég
skal engan dóm á þá skoðun
leggja, en hitt er alveg víst, að
kaupkröfur verða gerðar og
reynslan hefir sýnt, að það er erf-
itt að spyrna á móti þeim kröfum.
Útkoman verður því þessi: Verð-
hækkun á vörum á útlendum
markaði kr. 700.00. 20% = 140 kr.
Verðhækkun á vörum seldum á
innlendum markaði kr. 1300 10%
= 130 kr. Öll verðhækkun á af-
urðum bóndans er því 270 kr.
Nú vil ég áætla, að útlend vara,
keypt í búð, sé 1000 kr., og það er
efalaust það lægsta, sem hugsan-
legt er að bóndinn komist af með,
ef gert er ráð fyrir kaupum á út-
lendum áburði. 20ýí hækkun á
þeirri upphæð er 200 kr. Kaup-
gjald ætla ég bóndanum að greiða
300 kr. 10% af því eru 30 kr. Það
niá telja víst, að allir skattar og
opinber gjöld hækki eitthvað, en
þó ætla ég alveg að sleppa því og
áætla bóndanum 200 kr. í öll opin-
ber gjöld. Þá á hann eftir af tekj-
um sínum 500 kr og væri það
hreinn gróði, ef hann skuldaði
ekkert. En nú er það svo um flesta
bændur, að þeir skulda — já, og
skulda mikið, flestir. Ástæður
þessa bónda hugsa ég mér þannig,
að hann eigi ábýlisjörð sína, en
skuldi í allt að 5000 kr. Ég hugsa,
eftir því, sem nú eru efnalegar á-
stæður bænda, að þessi bóndi væri
talinn sæmilega stæður, líklega
vel í meðallagi. Vexti af þessum
lánum áætla ég 61/2%. Það eref til
vill eitthvað hærri vextir en
bændur almennt greiða nú, en það
má telja alveg víst, að vextir
hækki eitthvað við gengislækkun,
þar sem lánsfé bankanna er að
mjög miklu leyti útlent fé, og
vaxtagreiðslur bankanna til út-
landa hljóta því að hækka að
krónutali. 6V2% vextir af 5000 kr.
eru 325 krónur. Þá á hann eftir af
tekjum sínum til greiðslu á skuld-
um 175 kr. Sú upphæð mundi við
gengislækkun raunverul. hækka
um 35 kr.
Dæmið lítur því þannig út:
Auknar tekjur vegna gengis-
lækkunar yrðu þessar:
20% af útfluttum vörum kr. 140
10% af vörum seldum á
innlendum markaði — 130
Aukning afb. á skuldum — 35
Samtals kr. 305
Hinsvegar vaxa útgjöld hans
þannig:
20% hækkun á útl. vörum kr. 200
Hækkun kaupgjalds — 30
Samtals kr. 230
Eftir þessu dæmi mundi bónd-
inn hagnast um 75 kr.
Nú er þetta dæmi þannig upp
sett, að meiri líkur benda til, að
hagnaður bóndans verði minni en
þetta, og þá sérstaklega þeirra, er
skulduðu meiri, og hefðu lítinn
afgang í skuldagreiðslur.
Eins misskilnings hef ég orðið
var í sambandi við þetta mál. Því
hefir sem sé verið haldið í'ram, að
einmitt vegna hins hækkandi
verðs á útlendri vöru, væri geng-
islækkun enn meir aðkallandi, til
að bæta úr því tjóni, er slíkar
verðsveiflur valda atvinnuvegun-
um.
Vitanlega bætir gengislækkun
ekkert úr því; erlenda varan yrði
auðvitað aðeins þeim mun dýrari.
Hitt er annað mál, að þar sem
slíkar verðsveiflur auka enn á
örðugleika atvinnuveganna, þá er
enn brýnni þörf fyrir gengislækk-
un, ef hún á einhvern hátt gæti
létt undir með framleiðslunni.
Mér dettur ekki í hug, að þess-
ar hugleiðingar mínar geti orkað
því, að hægt sé að slá því föstu, að
gengislækkun létti ekkert undir
Einar Árnason alþm. flytur frv.
til laga um breyting á lögum nr.
36, frá 27. júní 1921, um samvinnu-
félög.
Segir svo um breytingarnar í
greinargerð frv.:
Frumvarp þetta er lagt fram
samkvæmt ósk Sambands ís-
lenzkra samvinnufélaga.
Höfuðbreytingar þær, er frv.
gerir á samvinnulögunum, eru
þessar:
1. Samábyrgð allra félagsmanna
í samvinnufélögunum er afnumin
sem skilyrði fyrir því, að þau geti
orðið skrásett samkvæmt sam-
vinnulögunum. -
2. Skýrari ákvæði eru sett um
framlag í varasjóð og stofnsjóð og
um útborgun úr stofnsjóði. —
Sömuleiðis eru ný fyrirmæli sett
um afskriftir af eignum félags og
um ráðstöfun tekjuafgangs.
3. Ný ákvæði eru sett um sam-
einingu tveggja eða fleiri sam-
vinnufélaga í eitt félag.
4. Valdsvið skilanefndar við
uppgerð félags er skilgreint.
Um 1. lið: Sú breyting er gerð
frá samvinnulögunum 1921, að fé-
lögum samkvæmt 1. tölulið 2. gr.,
þ. e. kaupfélögum og pöntunarfé-
logum, er leyft að hafa, hvort
heldur þau vilja sameiginlega á-
byrgð félagsmanna á fjárreiðum
sínum eða takmarkaða ábyrgð. Á-
byrgð félagsmanna má þó aldrei
með framleiðslunni, en mér finnst
þær benda ótvírætt í þá átt, að það
sé að minnsta kosti mjög var-
liugavert fyrir okkur eyfirzka
bændur að gera mjög háværar
kröfur um gengislækkun.
vera lægri en 300 kr. auk stofn-
sjóðsinnstæðu hans, nema í félög-
um, sem aðeins selja gegn stað-
greiðslu. í þeim má takmarka á-
byrgðina við stofnsjóðsinnstæðu,
enda skal þá leggja helming af
tekjuafgangi þeim, sem félagsmað-
ur fær úthlutað umfram stofn-
sjóðstillag, sem greiða verður sam-
kvæmt væntanlegri 26. gr., við
stofnsj óðsinnstæðu hans, unz hún
nemur 300 kr.
Síðan samvinnulögin 1921 voru
samþykkt, hefir starfsemi sam-
vinnufélaga vaxið mikið og orðið
fjölþættari. Það er því erfiðara nú
en þá var fyrir félagsmenn í stór-
um samvinnufélögum, að fylgjast
með, hve miklu þeir bera ábyrgð
á. Jafnframt hefir reynslan sýnt,
að ekki er eins mikil trygging í
sameiginlegu ábyrgðinni eins og á-
litið var 1921. Trygging hennar
hefir sérstaklega minnkað við að
fjöldi fasteigna og mikið af lausa-
fé hefir verið veðsett bönkunum
og Kreppulánasjóði. Það virðist
því, eins og nú horfir við, vera
eins heppilegt, að kaupfélögum og
pöntunarfélögum sé leyft að hafa
takmarkaða ábyrgð eins og öðrum
s amvinnuf élögum.
Það mælir einnig með, að sam-
ábyrgðarákvæðinu sé breytt, að á
síðustu árum hafa í kaupstöðum
landsins verið stofnuð allmörg
kaupfélög og pöntunarfélög, sem
starfa á samvinnugrundvelli, en
hafa takmarkaða ábyrgð, og eru
því ekki skrásett eftir samvinnu-
Bóndi.
Breytingar á
samvinnulegunum.