Dagur - 07.05.1937, Síða 1
DAGUR
kemur út á hverjum fimtu-
degi. Kostar kr. 6.00 árg.
Gjaldkeri: Ámi Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
Afgreiðslan
er hjá JÓNI Þ. ÞÓR, Norð-
urgötu 3. Talsími 112. Upp-
sögn, bundin við áramót, sé
komin til afgreiðslumanns
fyrir 1. des.
XX. árg.
Akureyri 7. maí 1937.
J 19. tbl.
Sann^jarn miHffoklkiir
á að ráða á
Hvemig heíði Kveldúlfsmálinu lyklað,
ef Framsóknarflokkurinn
hefði ekki miðlað málum?
Það er almennt viðurkennt, að
aðalviðfangsefni 20. aldarinnar í
stjómarfarslegu tilliti sé skipting
arðsins. Með verksmiðjunum hefir
komið fram auðkúgun og fjár-
dráttur verksmiðjuhöldanna
Þeirra draumur er að geta lifað ó-
hófslífi á kostnað hins vinnandi
fjölda. Alstaðar eru það þessir
stóriðjuhöldar, sem skipa innstu
sæti hjá íhaldsflokkunum. Hér á
landi þekkjast þessir menn bezt
frá stórútgerðinni.
En lítum svo til hins vinnandi
fjölda, sem skipar sér í andstæða
fylkingu við íhaldsöflin og stórat-
vinnurekendurna. Hans hlutskipti
er að þræla í þjónustu fárra auð-
kýfinga. Verksmiðjulýður stór-
borganna er oft menningarsnauð-
ur, og þegar hann rís upp gegn
ranglætinu, sem hann er beittur,
sér hann ekki nema aðeins eitt ráð
til úrbóta: Ráð byltinga og ger-
breytinga. „Alræði öreiganna“
verður lausnarorðið, sem þeir
hyggjast að lækna með heiminn.
Óp þessa fjölda berast til fjar-
lægra landa og eru þýdd á ótal
tungumál, einnig þar sem þetta
lausnarorð á illa við um staðhætti
alla.
Þegar þessum ólíku fylkingum
lendir saman í Hjaðningavígum,
fara mörg menningarverðmæti
forgörðum. Barizt er svo, unz yfir
lýkur, og á eftir ræður í löndun-
um einræði í mynd Fasisma og
Kommúnisma. — Þannig gengur
til í öllum þeim löndum, sem ekki
eiga sanngjarna miðflokka, er
miðla málum, og bera klæði á
vopn öfgaflokkanna. Þessir mið-
flokkar eru verðir lýðræðisskipu-
lagsins í öllum löndum.
Saga undanfarinna 10 ára hér á
landi sannar okkur þetta. Við höf-
um verið svo gæfusamir, íslend-
ingar, að eiga frjálslyndan og ör-
uggan miðflokk, — Framsóknar-
flokkinn. — Hann hefir verið það
lóðið á metaskálunum, sem ráðið
hefir úrslitum. Þess vegna hefir
tekizt að halda öfgunum í skefj-
um, bæði til hægri og vinstri.
Framsóknarflokkurinn er flokk-
ui bænda landsins og annarra
smáframleiðenda, sem hvorki eiga
fyllilega samleið með atvinnurek-
endum stórrekstursins eða verka-
mönnum. Það eru samvinnumenn
lundsins, sem hafa borið gæfu til
að miðla hér málum og vernda
lýðræðisskipulagið. — Bezta ráðið
til að vernda friðinn í landinu, af-
komu þjóðarinnar og lýðræðið, er
að gera Framsóknarflokkinn sem
sterkastan á löggjafarþingi þjóðar-
innar.
Á síðasta Alþingi kom fyrir eitt
mál, sem sýndi glöggt nauðsyn
þess að hafa víðsýnan miðflokk í
þinginu. Það var Kveldúlfsmálið.
Alþýðuflokkurinn, sem farið hefir
með stjórn landsins undanfarin 3
ár með Framsóknarflokknum, var
farinn að óttast kommúnistana.
Hinir róttæku og ábyrgðarlausu
menn í flokknum náðu yfirráðun-
um, og hugðust í einni svipan að
að geta þjóðnýtt mikið af togara-
flotanum með því að fara ofurlitl-
ar krókaleiðir. Þeir vildu taka
fram fyrir hendur bankanna, og
láta Alþingi gera ráðstafanir til að
gera upp stærsta útgerðarfélag
landsins, h.f. Kveldúlf. Þó að
Kveldúlfur sé skuldugasta stórat-
vinnufyrirtæki í landinu, tókst þó
Thorsbræðrum að sannfæra alla
aðalmenn íhaldsins í þinginu um
það, að hann ætti ekki aðeins að
starfa áfram, heldur ætti Lands-
bankinn að gefa honum eftir
geysilega fjárupphæð. Og svo
smekklegt var íhaldið, að láta Ólaf
Thors sjálfan mæla fjársukki
Kveldúlfs bót í þinginu.
Þannig stóðu öfgarnar hvor á
móti annari, þegar Framsóknar-
flokkurinn greip inn í málið.
Sósíalistar höfðu reiknað skakkt.
Þeir héldu, að annaðhvort yrðu
Framsóknarmenn að ganga inn á
uppgjör Kveldúlfs og þjóðnýtingu
togaranna á eftir, eða taka á sig
ábyrgð á fjársukkinu í Kveldúlfi
eins og íhaldið. En Framsóknar-
menn gerðu hvorugt. Þeir völdu
skynsömustu leiðina, og sýndu
með því, að þeir víkfa ekki fet út
Alþingi.
frá sinni stefnu, og eru, sem mið-
flokkur, bezt til þess fallnir að
ráða fram úr hinum þýðingar-
\iestu vandamálum.
Framsóknarflokkurinn þröngv-
aði Kveldúlfsmönnum til að veð-
setja Landsbankanum eignir fyrir
1 milljón króna, sem þeir höfðu
dregið út úr fyrirtækinu. Þeir
settu þeim það skilyrði, að fækka
framkvæmdastjórum úr 5 niður í
2, og þeir kröfðust þess, að Kveld-
úlfur yrði settur undir eftirlit
tveggja manna, sem Landsbankinn
útnefndi, og ættu þeir aðgang að
öllum skjölum félagsins og bók-
um.
Hvervetna um land hefir stefna
Framsóknarflokksins mælzt vel
fyrir meðal hinna gætnari og
hyggnari manna. Og betur en
nokkru sinni áður hafa menn
sannfærzt um það, að með því er
málefnum landsins bezt borgið, að
Framsóknarflokkurinn sé sem
(Frh. á 4. síðu).
Jvar má eg leysa
Síðan fregnir um hina algeru
sameiningu „Bændaflokksins“ við
íhaldið tóku að heyrast, hefir rifj-
ast einkennilega ljóst upp fyrir
mér sögn nokkur um bónda á
Þremi í Eyjafirði og son hans.
Sonurinn hafði svo mikið föður-
ríki, að hann var eigi sjálfráður
að því hvar hann gengi örna
sinna, heldur varð hann að spyrja
föður sinn nákvæmlega um það í
hvert skipti.
Það má áreiðanlega leita lengi
að þeirri dæmisögu, sem betur
mundi eiga við um 'samband
„Bænda“-flokksins við íhaldið, en
þessi sögn um feðgana á Þremi.
„Bænda“-flokkurinn á upphaf sitt
og alla tilveru íhaldinu að þakka,
enda hefir það komið skírt í ljós
undanfarið, að íhaldsforkólfarnir
þykjast hvert bein eiga í mann-
greyjum þeim, sem nefna sig þó
bænda-„vini“. Og nú dregur senn
að þeirri úrslitastund um þetta
efni, þegar faðirinn ættleiðir son-
inn „löglega11, og uppvíst verður
að íhaldið og „Bænda“-flokkurinn
hafa sameiginlegt framboð þing-
NÝJA BÍÓ «—
Föstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöld kl. 9:
„Víking-
urinnM.
Amerísk stórmynd í 12 þátt-
um, tekiu eftir hinni heims-
frægu skáldsögu CAPTAIN
blood eftir Rafael Sabatine.
Aðalhlutverkin leika:
Errol Flynn og
Olivia de Havilland.
Mikilfengleiki og æfintýra-
blær hinnar frægu sögu nýtur
sín fullkomlega i myndinni,
sem er talinn einhver stærsti
sigur fyrir ameríska kvik-
myndali§t. — »Víkingurinn«
er læknirinn Peter Blood,
sem seldur er þrælasölu til
Austurlanda, en tekst að flýja
og gerist síðan frægasti sjó-
ræningi síns tíma. — Peter
Blood er leikinn af enska
leikaranum ElTOl Flynn, sem
hefir hlotið heimsfrægð fyrir
glæsilegan leik i þessu hlutv.
Börn yngri en 14 ára fá ekki aðgang.
biixnr, íaðir éb?“
mannaefna í kjördæmum landsins
við í hönd farandi kosningar.
Ef einhver skyldi hafa trúað því
hingað til að „Bænda“-flokkurinn
væri verðugur einhvers trausts í
samvinnu- og menningarmálum,
þá er nú kominn tími til fyrir
þann sama að láta af þeirri sann-
færingu' sinni. Lítill flokkur sem,
eins og „Bænda“-flokkurinn nú,
festir ættartengsl við íhald sér
sterkara, þarf engrar miskunnar
eða frelsis að vænta á því heimili.
Hann er sonurinn. Og hann mun
alltaf þurfa að spyrja: Hvar má ég
leysa buxurnar, faðir minn? En
þegar leyfis þarf að spyrja jafnvel
í þeim efnum, hversu mun þá fara
í stærri málunum?
Kjósendur góðir! Munið það við
kjörborðið 20. júní n. k., að það
hefir jafnan verið stefna íhaldsins
að hindra hvert gott málefni, hefta
viðreisnina í landinu, eigi sízt með
því að þrengja kosti samvinnufé-
laganna. Samkvæmt þeirri stefnu
sinni mun það starfa, ef það kemst
til valda, og — láta „Bænda"-
flokkinn hjálpa sér til þess, S.