Dagur - 07.05.1937, Side 4
78 DAGUR [ 19. tbl.
Hjartans þakkir vottum við
öllum þeim, sem sýndu okkur
samúð og hluttekningu við and-
lát og jarðarför Halldórs heitins
frá Tréstöðum.
Faðir og systkini.
Sanngiarn miðflokkur..
(Framh. af 1. síðu).
sterkastur á löggjafarþingi þjóðar-
innar. Hvorki þjóðnýtingarstefna
sósíalista eða fasismi og yfir-
drottnunartilhneiging íhaldsins
geta tryggt frið og farsæld í okkar
fámenna landi.
Þess vegna er það velferðar- og
metnaðarmál allra frjálslyndra
manna, að Framsóknarflokkurinn
haldi sömu miðflokkaafstöðu eftir
þessar kosningar, og hann hefir
haft, en íhaldið nái ekki meiri-
hluta á Alþingi. Að því munu allir
samvinnumenn styðja.
Hinn 7. jan. sl. andaðist að
heimili sínu, Halldórsstöðum í
Kinn, frú Guðrún Sigurðardóttir.
Hún var fædd að Þúfu í Fnjóska-
dal 12. apríl 1875. Á unga aldri
fluttist hún þaðan með foreldrum
sínum, Sigurði Sigurðssyni og
Helgu Sigurðardóttur, að Drafla-
stöðum í sömu sveit. Dvaldi frú
Guðrún á Draflastöðum þar til
veturinn 1895—’96 að hún gekk
inn í kvennaskóla á Akureyri. Við
brottför úr skólanum vorið 1896
mun hún hafa hlotið hæsta eink-
unn bæði í bóklegum fræðum og
handavinnu, enda var hún greind
kona og athugul um marga hluti,
í bezta lagi.
Vorið 1896 fluttist frú Guðrún
að Halldórsstöðum og gekk að
eiga eftirlifandi eiginmann sinn,
Kristján Sigurðsson, er enn býr
þar. Þegar hún tók við búsforráð-
um var hún aðeins 21 árs að aldri.
En þó hún væri eigi eldri kona,
komu þegar í ljós ýmsir þeir kost-
ir, er jafnan prýða góða húsmóð-
ur. Varð þó heimili þeirra hjóna,
þegar í byrjun, nokkuð umsvifa-
mikið og gestkvæmt hefir verið
þar ætíð. En hin unga húsfreyja
sýndi það að hún gat fullnægt
skyldum heimilisins með nær-
gætni og stjórnsemi í öllum störf-
um inn á við og sýnt snyrti-
mennsku og myndarskap í öllum
útlátum og framkomu gagnvart
hinum mörgu gestum, er að garði
báru. Og svo fór að lokum að
Halldórsstaðaheimili varð í tölu
hinna myndarlegustu heimila í
sveitum, jafnframt því sem það
varð öruggur griðastaður „gestum
og' gangandi", þar sem séð var fyr-
ir uppfylling á nauðsynlegum
þörfum komumannsins, ekki ein-
göngu með myndarlega framreidd-
um matföngum, heldur og með
hlýleik í allri aðbúð, glaðlegu við-
móti og frjálsmannlegum og ó-
þvinguðum umræðum, svo hver
fékk notið sín eins og hann væri
„heima“. Það var þessi fjölbreyttni
gestrisniíinsr, sem eihkenndi HalJ-
dórsstaðaheimilið, eins og öll önn-
ur heimili þar sem íslenzk gest-
risni á heima. Þó nægileg mat-
föng séu á borð borin, verður það
aldrei nema hálfur hlutur ís-
lenzkrar gestrisni, ef vantar glað-
værðina, hlýjuna og frjálslyndið í
framkomu og mælt mál. — Þó
segja megi að frú Guðrún hafi eigi
ein byggt upp heimili þeirra hjóna
og komið þeim svip á það, sem nú
er,' þá er það vitanlegt, að enginn
getur eignast gott og ánægjulegt
heimili, nema þvi aðeins að konan
— húsfreyjan, sé þar virkur þátt-
takandi. Þar þarf sameinaða og'
samstillta krafta, huga og handa,
beggja húsbænda, til að eignast
slíkt heimili, hvar sem er. Það
þarf ráðdeild, manndómur og festa
að sitja í öndvegi og ráða ráðum
sínum til starfs og framkvæmda.
En þegar svo er, er sigurinn oftast.
vís. Og gleði sú, er jafnan fylgir
hverjum unnum sigri, verður sam-
eign beggja, og er hvöt til nýrra
átaka — og sigra, unz tilteknu
marki er náð. Slíkt lán féll þeim í
skaut, frú Guðrúnu og manni
hennar. —
Frú Guðrún var bókhneigð í
bezta lagi og las mikið, þegar tóm-
stundir gáfust. — Eigi líkuðu
henni allar bókmenntir sumra
okkar yngri rithöfunda, þótti of-
mikið gert að því af þeirra hálfu,
að draga fram skuggahliðar mann-
lífsins, beiskju þess, yfirsjónir og
brot. Hún áleit þjóðinni hollara að
ia að ,heyra meira frá bjartari
hliðum lífsins, um sigur lífsins yfir
örðugleikum ok baráttu hinna fá-
tæku og hrjáðu. Henni fannst það
svo sjálfsagt að hið góða í manns-
sálinni fengi að sigra hið spillta
og illa. Þessi skoðun hennar stóð í
beinu sambandi við trú hennar,
því frú Guðrún var einlæg trú-
kona. Hún trúði á sannleikann í
hverju máli, réttlætið og kærleik-
ann. Og hún trúði á lífið sjálft, ó-
endanlegt og ævarandi líf. Trú
hennar var hiklaus, hrein og á-
kveðin. í ljósi þeirrar trúar hlaut
hún styrk í þrautum sínum, í sorg
og — gleði. Og það sem mestu
skipti var, að hún breytti eftir
sinni trú, — sýndi trúna í verkun-
um, meira en almennt gerist. Eitt
af því, sem einkenndi hana í öllu
hennar starfi, allri hennar fram-
komu og breytni, og sem vafalaust
hefir staðið í sambandi við henn-
ar ákveðnu trúarstefnu, var, að
láta æfinlega eitthvað gott af sér
leiða. Hún vildi ætíð bæta úr neyð
hins fátæka. Hún vildi hlúa að
öllu því, er henni fannst veikt og
lasburða, hún vildi verma hið
kalda og hugga þá, sem hryggðin
slær. Hún var ætíð reiðubúin að
taka svari hinna undirokuðu og
þeirra, er henni fundust verða fyr-
ir hörðum og ómildum dómum.
(Framh.).
Oanslelk heldur íþróttafélagið Þór
í Samkomuhúsi bæjarins laugard. 8. þ,m„
kl. io e. h.
Hljómsveitin af Hótel Akureyri spilar.
I. O. O. F. 110578*/2
Zfon. Almenn samkoma næstkomandi
aunnudag kl. 8 30 e. h. Allir valkomnifi
SKRAR
yfir gjaldendur tekju- og eignaskatts í Akureyrarkaupstað árið
1937 og yfir gjaldendur til Lífeyrissjóðs, samkvæmt lögum um
alþýðutryggingar, liggja frammi — almenningi til sýnis — á
skrifstofu bæjarfógeta dagana 7. til 20. þ. m., að báðum dög-
um meðtöldum.
Kærum út af skránni skal skilað á skrifstofu bæjarstjóra
innan loka framlagningarfrestsins.
Akureyri 4. maí 1937.
SKATTANEFNDIN.
Opinbert uppboð
verður haldið að Hrafnagili, þriðjudaginn 18. maí næstkomandi og
hefst á hádegi. Verða þar seldir ýmsir búsmunir og, ef viðunandi
boð fást, 2 — 3 kýr, 1 dráttarhestur og ef til vill nokkuð af sauðfé.
Söluskilmálar verða birtir á uppboðsstaðnum.
Hrafnagil, 5. maí 1937.
Hólmgeir Þorsteinsson.
Rafsuðuvélar,
3 tegundir, nýkomnar.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Járn- og glervörudeild.
Guðsþjónustur i Grundarþingapresta-
kalli: Grund á hvitasunnudag kl. 12 á
hád. (ferming). Kaupangi, annan í hvíta-
sunnu kl. 12 á hád. Munkaþverá, sunnu-
daginn 23. maí, kl. 1 e. h. (Safnaðar-
fundur).
Halldóra Bjarnadóttir, sem er á förum
vestur um haf til ársvistar þar, biður
>^Dag« að skila kærri kveðju til vina og
kunningja hér norðanlands. Halldóra fer
að nokkru leyti á vegum Þjóðræknisfé-
lagsins og kvenfélaga vestan hafs og
hefur íslenzka heimilisiðnaðarsýningu
meðferðis.
Ársritið »H1 ín« kemur ekki út í haust
vegna fjarvern ritstjórans.
Hjónaband. Ungfrú Margarete Bahr
og Frank Híiter sápugerðarforstjóri.
Hundrað ár voru fyrir skömmu liðin,
síðan rússneska skáldið Aleksander Pusj-
kin fæddist. Var þessa minnzt viða um
lönd. Á öðrum stað hér í blaðinu birtist
smákvæði eftir skáldið, þýtt af mag.
Geir Jónassyni.
Dánardægur. Þann 22. apríl sl. andað-
ist hér á Sjúkrahúsinu Jóhann Christen-
sen, fyrrv. kaupmaður, 74 ára gamall.
Var hann danskur maður, en koin hingað
að Höepfnersverzlun 16 ára gamall, varð
síðan verzlunarstjóri þeirrar verzlunar
og kaupmaður urn skeið. Ungur gekk
hann að eiga eftirlifandi ekkju sína, Ni-
coline f. Jensen hóteleiganda hér í bæ.
Christensen sál. var ætíð vinsæll og vel
látinn maður og samdi sig vel að siðum
og háttum islendinga.
Halldór Halldórsson, unglingspiltur frá
Tréstöðum, drukknaði við Oddeyrartanga
í fyrri viku. Talið er líklegt að hann
hafi fengið aðsvif og dottið í sjóinn út
Öryggju á Tanga.num,
LjósiHyndastoían
í Qránufélagfsgötu 21
er opin alla daga frá
kl. 11 f.h. til kl. 6 e.h.
Niðursell verð í maí og júní.
Guðrún Funch-Rasmussen.
Saumastofa
fyrir kjóla, kápur og dragtir
tekur til starfa um næstu
helgi í Gránufélagsg. 21, Ak.
Guðrún Funch-Rasmussen.
Húsnæði óskast.
3 herbergi og eldhús
nú þegar eða 14. maí.
Upplýsingar á
Hótel Akurcyri.
•
yFáheyrt slys vildi til í Reykjavík um
fyrri helgi. Bíll var keyrður fram af
bryggjuhaus í sjóinn. I bílnum voru
þrír menn, bifreiðarstjórinn, Gunnlaugur
Bjarnason að nafni, og tveir lögreglu-
þjónar. Hét annar þeirra Geir Sigurðs-
son en hinn Ármann. Tveir þeirra,
Gunnlaugur og Geir, drukknuðu, en Ár-
manni var bjargað með naumindum.
Um orsök slyssins er ókunnugt.
Ritstjóri: Ingimar Eydal.
Prentverk Odds Björnssonar.