Dagur - 20.05.1937, Síða 4
94
DAGUR
23. tbl.
1
Landhelgisgæzlan.
Óheilindi Sjálfstæðisflokksins við smá-
bátaútveginn.
Eitt af aðalmálum Framsóknar-
flokksins hefir verið aukin land-
helgisgæzla. í stjórnartíð Jónasar
Jónssonar eignaðist þjóðin „Ægi“,
bezta varðskipið, og honum
stjórnaði duglegasti yfirmaður við
landhelgisgæzluna. Og þegar Jón-
as Jónsson flutti frumvarp sitt um
að koma í veg fyrir að loftskeyti
væru notuð til njósnarstarfsemi
fyrir landhelgisbrjóta, er alkunna
hvernig íhaldið snerist við því.
Það taldi frumvarpið ekki aðeins
óþarft, heldur væri það til
skammar að gruna nokkra Islend-
inga um slíka landráðastarfsemi.
En hvað er nú komið á daginn?
Ekki aðeins háttsettir flokksmenn
í Sjálfstæðisflokknum, heldur
einnig þingmenn flokksins, full-
trúar sjómanna, hafa orðið að játa
á sig þetta glæpsamlega athæfi.
Hér skal aðeins drepið á tvenn
ummæli úr umræðum á Alþingi
um eftirlit með lofskeytanotkun
veiðiskipa og heilindi þessara
manna.
Jóhann Jósefsson sagði: „Það
þarf mikla oftrú á gagnsemi
njósnarstarfseminnar, ef nokkrum
dettur í hug að nokkur heilvita
útgerðarmaður fari að eyða tíma
í það, að njósna um hvar „Óð-
inn“, „Þór“, „Fylla“ og ,Ægir, eru
þá og þá stundina. Ég held að
enginn útgerðarmaður fari að
eyða tíma sínum í svo árangurs-
litið starf og ógöfugt. Ég hefi að
minnsta kosti ekki slíka trú á
gildi njósna.“ (Alþt. 1929, C 1836).
Þannig mæltist þingmanni
Vestmannaeyja. En síðan hefir
það ótrúlega skeð. Formaður
Sjálfstæðisfélagsins í kjördæmi
Jóhanns Jþsefssonar, Georg Gísla-
son að nafni, hefir verið dæmdur
fyrir njósnir um varðskipin. Und-
ir handarjaðri þingmannsins hefir
verið unnið að því að eyðileggja
smábátamiðin fyrir sjómönnun-
um, sem kusu hann á þing.
Jón Auðunn Jónsson sagði í
þingræðu: „Hann (J. J.) hélt í
upphafi, að loftskeytin væri mikið
notuð í óleyfilegum tilgangi, en ég
er sannfærður um, að hann hefir
nú fengið þær upplýsingar í þessu
máli, að hann veit, að þetta er
ekki rétt. Ég veit að flest eða öll
íslenzk skip eru nú hætt að fara í
landhelgina.“ (Alþt. 1932, C-deild)
Nú nýskeð er það komið í ljós,
að um sama leyti og J. A. J. talaði
svona á Alþingi, sendi hann sjálf-
ur dulskeyti um ferðir varðskip-
anna. Hann hefir orðið að játa
fyrir lögreglunni, að hann hafi
látið togara vita um ferðir varð-
skipanna, svo þeir gætu notfært
sér fiskimiðin við Vestfirði, þar
sem lífsbjörg sjómannanna, sem
kusu hann á þing, var falin. Slík
eru heilindi þessara manna við
alþýðuna. En nú hefir J. A. J.
bognað fyrir hinum þunga al-
menningsdómi í þessu máli, svo
ékki hefir þptt fært að sen<Ja
hann í framboð aftur í kjördæmi
sínu. Enda er það vitanlegt, að
mkill hluti kjósenda hans hefir
lífsbjörg sína af fiskiveiðum inn-
an landhelgislínu, og eru ákveðn-
ir andstæðingar þeirra óhappa-
manna, sem vilja láta togarana
eyðileggja smábátamiðin.
Sjálfstæðisflokkurinn þykist
vilja hlynna að sjávarútveginum.
En öll framkoma þingmanna
flokksins bendir ótvírætt í þá átt,
að þeir hafi að vísu nokkurn á-
huga fyrir rekstri hinna stóru
togarafélaga, svo máttarstoðir
flokksins fái hærri rekstursafgang
í góðu árunum. En lengra nái á-
huginn ekki. Þeir vilja ekki að-
eins koma í veg fyrir, að smá-
bátamiðin séu tryggð gegn eyði-
leggingu togaranna, heldur bein-
linis vinna að því að eyðileggja
þau. Þetta sýnir gleggra en nokk-
uð annað inn í hugarfar þessara
manna, þar sem steinblind eigin-
girni situr að völdum, en fórna á
hagsmunum almennings á altari
hennar.
Af þessu ætti öllum að vera
ljóst, að sjómenn, sem stunda
veiðar á smærri bátum með
ströndum landsins, geta ekki
treyst Sjálfstæðisflokknum til að
verja fiskimið sín. Og annað það,
að óheilindi Sjálfstæðismanna eru
svo mikil, að orð þeirra og gjörðir
eru í organdi ósamræmi hvað við
annað. Skyldu þeir ekki oftar
mæla af óheilindum?
Nú hafa gerzt þau tíðindi að
„Bændaflokkurinn“ hefir verið
leigður af íhaldinu til þess að
hjálpa því við kosningarnar, og
hefir hann þá um leið tekið á sig
meðábyrgð á landhelgisnjósnun-
um, fjársukkinu í Kveldúlfi o. fl.
Ekki er nú hægt að segja að
sómatilfinning þess flokks sé á
háu stigi.
En þrátt fyrir það hefir „svarta
fylkingin11 enga möguleika til að
sigra við þessar kosningar. Fortíð
flokkanna hræðir.
Mönnunum, sem tala eitt og
gjöra annað, á sjálfu Alþingi,
treystir enginn réttsýnn maður.
Kirkjan. Messað n. k. sunnudag i Ak-
ureyrarkirkju, ki. 2 e. h.
Zíon. Næstkomandi sunnud. ki. 10%:
Sunnudagaskóli. öll börn velkomin. Kl.
8%: Almenn samkoma. Allir velkomnir.
Kantötukór Akureyrar heldur konsert
i Nýja Bíó, fimmtudagskvöld 20. þ. m.,
kl. 9 e. h. Aðgöngumiðar seldir í Nýja
Bíó frá kl. 3—6 konsertdaginn og við
innganginn.
Frambjóðendur á Akureyri við næstu
Alþingiskosningar verða þessir:
Fyrir Framsóknarfl. Árni Jóhannsson,
gjaldkeri.
Fvrir Alþýðuf 1.: Jón Baldvinsson.
Fyrir Sjálfstæðisfl.: Sig. Ein. Hlíðar.
Fyrir kommúnista: Steingr. Aðalsteinss.
Sundnámskeið
heldur U. M. F. »Framtíð€ við sundlaug sma að Hrafnagili frá 31. maí til
19. júní n.k., að báðum dögum meðtöidum. Sundkennari er Hreiðar Eiríksson.
Kennslan kostar kr. 7,50 fyrir utanfélagsmenn og kr. 5,00 fyrir félagsmenn.
í kennslugjaldinu felst aðgangur að sundiauginni um helgar í sumar. Umsókn-
ir sendist E. G. Brynjólfssyni, Kristnesi, Hreiðari Eiríkssyni s.st. eða Baidri
Halidórssyni, Hvammi.
Sundlaugin verður opin til afnota fyrir almenning frá 20. júní til 15. sept.
n. k. sem hér segir:
Á laugardagskvöldum ki. 8—10 og á sunnudögum frá kl. 9 f. h. til kl. 9
e. h. Aðgangur kostar kr. 0,50 fyrir manninn. Einnig fást aðgöngukort yfir
alian tímann, sem kosta kr. 3,00,
Félagsstjórnln.
Keyrslutaxti vörubifreifla.
Vegna breytingar á fyrirkomulagi við vinnu í bænum, höfum
vér undirritaðir vörubílaeigendur ákveðið neðanskráðan taxta.
Minnsta gjald sé kr. 1.00 og taki ekki lengri tíma en 15 mfn.
Tímavinna í almennri vinnu . . . . . Kr. 4,50 á kl.st.
— viö kol í bíng.................— 5,00 c —
Eftirvinna og sunnudagavinna greiðist kr. 0.50 hærra pr. kl.st.
ÁKVÆÐISVINNA.
Möl og sandur um eyrina...........kr. 0,30 pr. tunnu
— — á ytri brekku .... — 0,35 — —
— - — á syðri brekku .... — 0,40 — —
— - — á syöri brekku sunnan M.A. — 0.50 — —
Útflutningur á kolum um bæinn ... — 3,00 — tonn,
Öll keyrsla innan viö 100,oo krónur (miðað viö tímakaup) framkvæmist
í tfmavinnu.
Smátúrar verða að staðgreiðast.
Taxtinn gengur f gildi 15. maf þ, á. og gildir þar til öðruvísi verður tilkynnt
Akureyri 12. maf 1937.
Bifreiðast. Bifröst. Nýja Bílastöðin. Bifreiðastöð Akur-
eyrar. Bifreiðastöð Georgs Jónssonar og aðrir vöru-
bílaeigendur utan stöðva.
Draumur.
(Framh. af 1. síðu). •
hest, stóran vexti, og bar hann ó-
tal böggla, stóra og smáa. Var á-
letrun á flestum bögglunum. Ekki
gat ég lesið nema sumar. Á einum
stóð: „Fjármálastjórn Reykjavík-
ur“, á öðrum: „Eftirgjafir til
Kveldúlfs“, á þeim þriðja: „Gróði
heildsalanna“. Aftan í taglið á
þeim glámótta var hnýttur asni
einn fremur lítill. Bar hann- tvo
stóra sekki, sinn á hvorri hlið. Á
annan sekkinn var letrað: „Land-
helgisbrot“, en á hinn: Fjármála-
stjórn Kveldúlfs“. Sýndist mér
asninn alveg vera að sligast undir
byrðunum. Á eftir þessari lest
rölti svart tryppi og hneggjaði á
þýzku.
Ég vék mér að vini mínum og
spurði hann, því Ólafur hefði svo
þunga bagga á asnanum. Svaraði
hann því, að byrðarnar hefðu ver-
ið of þungar á þann glámótta, því
hefði Ólafur fengið lánaðan asn-
ann, en af því hann væri lánsgrip-
ur, fengist hann lítið um, þó hann
hefði fullmikið að bera.
Drauma-Jói.
Konungur Islands og Danmerkur átti
25 ára ríkisstjórnarafmæli á laugardag-
inn v^r. Var þessa minnzt með miklum
hátíðahöldum í Danmörku og nokkuð
hér á Islandi.
Ritstjóri: ingimar Eydal.
Prentverk Odds Björnssonar.
Takið eflir!
Á vinuustofu minni, Hafnarstræti
103 B, skaffa eg með stuttum
fyrirvara hurðir, glugga og alls-
konar húsgöng, einnig viðgerð á
gömlum hlutum tek eg að mér að
vélvinna.
Líkkistur ávalt fyrirliggjandi.
Eyþór H. lómasson,
trésmíðameistari. Sími 357 heima.
Uny, nfborjn kfr
til sölu nú þegar.
Upplýsingar hjá Kea.
Mótorlijól
nýviðgert í góðu standi
til sölu.
Björn Guðnason,
Brekkugötu 41.
Kaupum flöskur
Vi flöskur á 0,15 aura
>/z - - 0,12 -
Veitt móttaka frá kl. 1—7 e. m.
í Smjörlíkisgerðinni.
Karlakór Akureyrar efnir til ókeypis
samsöngs i Samkomuhúsi bæjarins nk.
sunnudag kl. 4 e. h.
Dansleik heldur Taflfélag Hrafnagils-
hrepps, laugardaginn 22. þ. m., að þing-
húsi hreppsins. Hefst kl. 9% e. h.