Dagur - 29.07.1937, Side 3

Dagur - 29.07.1937, Side 3
37. tbl. DA6UR 155 Samvinnuiélög — Samvinnnþekking Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför konunnar minnar, móður okkar og tengda- móður, Hólmfríöar Arnadóitur frá Hvassafelli. Júlíus Gunnlaugsson, böru og tengdabörn. I. Um meir er 50 ára skeið hafa Eyfirðingar unnið að því að móta og exla samvinnufélagsskapinn í héraðinu. Saga þessarar baráttu hefir orðið saga aukinnar velmeg- unar og framfara á flestum svið- um á meðal fólksins í landinu yf- irleitt. Af rótum hins litla Pöntun- arfélags, sem stofnað var á Grund árið 1886, hefur vaxið upp hið öfl- uga Kaupfélag Eyfirðinga, sem nú er orðið prýði Akureyrarbæjar og einn aðalmáttarstólpi nærliggjandi sveita. Á þessu tímabili hafa orðið meiri og stórstígari framfarir hér á landi, en nokkru öðru tímabili sögunnar. Þjóðin hefir verið önn- um kafin við að byggja upp nýjar atvinnugreinar. Verkefnin hafa alls staðar blasað við, þar sem landið mátti heita aðeins hálfnum- ið. Ekki aðeins hér í Eyjafirði hafa samvinnumenn háð baráttu á þessu tímabili. Kaupfélögin, sem risu upp um land allt, voru einnig afleiðing þessa nýja tíma og breytta viðhorfs. Nýjar stefnur, ný verkefni og nýjar lausnir á göml- um verkefnum, — allt skeði þetta ef til vill fljótar en svo, að allir fengju áttað sig á því, og þeim af- leiðingum, sem það myndi hafa. Sú framfaraalda, sem reis með tækni og vélamenningu 20. aldar- innar, hitti hér fyrir samvinnu- stefnuna í bernsku og lítt á veg komna. Þjóðin, sem áður hafði átt við hina sárustu fátækt að búa, eignaðist á skömmum tíma ný framleiðslutæki og ný verðmæti. Fjármagnið í landinu jókst stór- kostlega og öllu fleygði fram til þess, er við eigum nú að búa við. Eðlilega mótaðist samvinnufé- lagsskapurinn mikið af þessu á- standi. Og afleiðingin varð óhjá- kvæmilega sú, að íslenzka sam- vinnuhreyfingin hefir náð því þroskastigi, sem hún nú stendur á, á dálítið annan hátt en sumar ná- grannaþjóðir okkar. Á hálfrar ald- ar skeiði höfum við íslendingar náð hKitfallslega nærri því eins hárri félagatölu eins og Englend- ingar hafa í nærfellt heila öld. Þeir kappkostuðu allt frá byrj- un að útbreiða þekkingu á sam- vinnuhugsjóninni. — Tiltölulega snemma á þroskatímabili ensku samvinnuhreyfingarinnar stofnuðu félögin samband með sér, til þess að annast útbreiðslu og fræðslu- starfsemi í stórum stíl, jafnframt því, sem félögin sjálf tóku slíka fræðslustarfsemi að sér heima á félagssvæðinu. Öll ógrynni af bók- um, blöðum og tímaritum hafa verið gefin út, fyrirlestrar fluttir, námskeið haldin, námshringum kömið af stað og fleiru, er verða mætti til þess, að menn íhuguðu, hvert raunverulega er takmark slíks félagsskapar, og til þess að hver einstakur félagsmaður væri sér þess meðvitandi, að hann væri ekki í félaginu eingöngu til þess að hirða ógóðann. Þetta hefir auð- vitað haft stórkostleg áhrif. Enskir samvinnumenn eru mjög vel menntaðir um samvinnumál og vakandi og áhugasamir um fram- gang samvinnusteinunnar í sinu iandi og annarstaðar. Þegar við, íslenzkir samvinnu- menn, lítum til baka yfir liðin 50 ár, þá gleðjumst við yfir því sem gert hefir verið, en við verðum ó- hjákvæmilega að horfast í augu við þann sannleika, að fjöldi með- lima kaupfélaga landsins er lítt fróður um samvinnuhugsjónina, og að mörgu leyti áhugasnauðari um félagsmál, heldur en sam- vinnumenn erlendra þjóða. Einnig verðum við að gera okkur grein fyrir því, að æska landsins á, sem stendur, lítinn kost þess að kynn- ast samvinnusteínunni almennt, og að lítið eða ekkert er gert til þess að vinna hugi unga fólksins í þessu efni. Þetta er ekki sagt til lasts íslenzkum samvinnumönn- um, eða íorráðamönnum félag- anna, heldur er þetta afleiðing þess ástands, sem áður er lýst. Fé- lögin, í eins hröðum vexti og þau voru, gátu ekki sinnt hvoru tveggja, að stýra hagsmunamálum félaganna heilum í höfn, og annast fræðslustarfsemi eins vel og skyldi. Nú er það auðvitað mál, að það er undir skilningi og þekkingu félagsmannanna á starfseminni komið, hvort félögin eiga farsæl- lega að geta unnið að samvinnu- málum landsins og hagsmunamál- um neytenda. Félagar, sem kann- ske þegar mest á ríður snúa baki við félagsskapnum, eru ekki sá grundvöllur, sem allt á að hvíla á. Sá grundvöllur eru menn, sem skilja og vita hvert takmarkið er, og eru jafnframt áhugasamir og láta til sín taka um félagsmálin. Þeir menn, sem nú skipa kaup- félög landsins, verða að gera sér það ljóst, að æska landsins, sem við á að taka, er eðlilega lítið upp- lýst um samvinnumál. Verði allt látið reka á reiðanum um þetta efni, er ekki að efa að samvinn- unni í landinu er stór hætta búin, og starfi þeirra manna, er hófu merkið fyrir meir en 50 árum. Þáttur samvinnúnnar í íslenzku athafna- og menningarlífi hefir ennþá ekki verið færður í letur. En merki þess, sem gert hefir ver- ið, biasa við auganu hvarvetna, og í hugum margra góðra íslendinga mun samvinnuhugsjónin skipa eí'sta bekk. Og öllum þeim, sem staðið hafa í baráttunni, hlýtur að vera það ljóst, hve stórkostlega þýðingu það hefir, að sá tími, sem íramundan er, sé undirbúinn, með því að gera æskumenn landsins að heilhuga samvinnumönnum. Við eigum að vísu ágætan sam- vinnuskóla, gott blað og marga á- gæta menn, sem um fram allt óska meiri og betri árangurs í framtíð- inni, heldur en hingað til. En þetta er ekki nóg. Slíkum árangri verð- ur ekki náð fyrir atbeina fáeinna manna aðeins. Vakningaraldan þarf aj vera sterk og ná til allra félagsmanna, vinna hug þeirra og vekja hjá þeim áhuga á starfinu. Áhugaleysi er oft afleiðing þekk- ingarleysis. Til þess að menn séu færir um að skapa sér heilbrigða skoðun, þurfa þeir að skilja og hafa þekkingu á þeim stefnum, er um er að ræða. Og það er einmitt þetta, sem skapar áhuga á meðal félagsmanna, og hefir orðið þess valdandi, hve heilsteyptar og vel skipulagðar samvinnuhreyfingar sumra nágrannaþjóða okkar eru. Menn skilja þá aðeins til hlítar, að öll starfsemin er til hagsbóta og menningarauka fyrir þá. Einmitt þetta er veigamikið at- riði. Og þessvegna hafa samvinnu- menn víðast um heim kappkostað að láta fræsðslustarfsemina og aðra starfsemi félaganna fylgjast að. Þannig verður félagsskapurinn öruggastur og farsælastur. II. Á hvern hátt eiga íslenzkir sam- vinnumenn þá að taka þessu máli, og hvernig eiga eyfirzkir sam- vinnumenn, sem byggt hafa upp mesta kaupfélag landsins, að tryggja framtíð þessa félags og varðveita og ávaxta þann skerf, er þeir hafa lagt til samvinnumál- anna? Daglega bætist í meðlimahóp kaupfélaganna, án þess að nokkur vissa sé fyrir því, að þeir séu færir um að gerast góðir félagar í sam- vinnufélagi, eða reiðubúnir til þess að leggja nokkuð á sig til efl- ingar félagsskapnum. Styrkur kaupfélaganna hefir verið sá, að náin tengsl hafa verið milli félags- manna og félags. Þeir þekktu fé- lög sín út í æsar, áður fyrr. Með auknum vexti félaganna hafa þessi tengsl eðlilega að meira eða minna leyti verið slitin. Félögin hafa ósjálfrátt fjarlægzt félags- mennina. án þess að nokkuð hafi komið í staðinn. Nýir félagsmenn verða því nú varla varir við hin nánu kynni og þau áhrif, sem þau höiðu á sambúð félags og félags- manna. Einmitt þetta sama fyrir- br!gði hefir gerzt á meðal annarra þjóða í þróunarsögu samvinnu- stefnunnar. Englendingar og Svíar t. d. hafa til fulls skilið þá hættu, scm stafar af því, að nýir félags- menn kynnu að vera ófróðir um samvinnumal. Og reynslu þessara þjóða eigum við hér að hagnýta okkur, þegar svipað ástand hefir skapazt hér. III. Eitt af því, sem virðist þjá ungu kynslóðina nú, er tregða til þess að láta til sín taka um framfara- og menningarmál. Ekki svo að skilja að æskan sé andvíg þessum málum, heldur að hún sé ekki vakandi til starfa á opinberum vettvangi. Þeir, sem muna blóma- tímabil ungmennafélagsskaparins, hafa án efa orðið varir við þau umskipti, er orðið hafa í þessu efni. Upplausn og glundroði, er orðið hefir í æskumannafélagsskap landsins á seinni árum, hefir ekki gefið tækifæri til þess að örva fé- lagskenndir eða glæða félagsá- huga. Ungmennafélögin voru góð- ur skóli fyrir þá kynslóð, sem nú er af léttasta skeiði, en sá félags- skapur er nú því miður aðeins brot þess, sem fyrr var. Æskan í dag hefir ekki verið þesss megnug að fylla það skarð, sem skapaðist í íslenzkum félagsmálum eftir hrörnun ungmennafélaganna. Hér er nauðsyn þess að hefjast handa, og engum stendur það ‘nær en samvinnumönnum landsins, er vilja vinna saman að aukinni menningu og velmegun þjóðarinn- ar, og um leið fullvissa sig um að sá arfur, er þeir hafa búið eftir- komendum sínum, verði vel og dyggilega ávaxtaður. Eyfirzkir samvinnumenn hafa hér tækifæri til þess að gerast brautryðjendur. Kaupfélag Eyfírð- inga hefir á undanförnum árum hvað eftir annað sýnt það ljóslega, að það skildi sitt menningarlega hlutverk, og enginn efast um, að félagið myndi af alefli styrkja fé- lagslega starfsemi með svipuðu sniði og samvinnufélög erlendra þjóða gangast fyrir. En ekkert verður gert og enginn árangur mun fást, ef félagsmennirnir ekki sýna skilning og áhuga. Áhuga- leysi er öruggara banamein hverj- um félagsskap en nokkur fjand- skapur andstæðinganna. IV. Á meðal nágrannaþjóða okkar er útbreiðslu- og fræðslustarfsemi samvinnufélaganna mjög vel skipulögð og rekin. Með starfsemi námshringa, ungherjafélaga og allsherjarhringa innan samvinnu- félaganna sjálfra, hefir tekizt að skapa það andrúmsloft á meðal meðlimanna yfirleitt, að hér er ekki álitið um neinn hégóma að ræða, heldur mikilsvert starf, öll- um til heilla. Erlendar samvinnubókmenntir eru auðvitað mjög fjölskrúðugar, samanborið við okkar, og hafa þær stórum auðveldað starfið, en eng- inn skyldi ætla, að þær hafi orðið til í einni svipan. Slíkar bók- menntir skapast smámsaman um leið og þjóðirnar eignast fleiri og fróðari samvinnumenn. Við hér verðum að hefja þessa baráttu með tvær hendur tómar að þessu leyti, en við getum verið þess viss, að við náum aldrei öðrum þjóðum

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.