Dagur - 25.11.1937, Blaðsíða 4
232
DAGTJR
56. tbl.
ii’F
FUNDD
FUF
Félag ungra Fram§óknarmanna heldur fund
í Skjaldborg, sunnudaginn 28 nóvember, kl. 1,30 e. h.
D A O S K R Á :
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Vetrarstarfsemi félagsins.
3. Bæjarstjórnarkosningarnar.
4. Ýms mál.
S T J Ó R M I N.
Bókin, §em allir þurla að lesa:
»Det Moderne M octi dess Koooeration«
eftir sænska rithöfundinn Thorsien Odlie.
Pessa prýðilegu bók þurfa aliir að eignast. Tilvalin til jólagjafa.
Fœst hjá bókaverzl. Pont. Thorlacius og á skrijsto/u K.E.A.
frá stríðinu þá hefðu borist jafn
ört og nú. Hvað kom það héraðs-
stjóranum í Hupeh við að stjómin
í Peking átti í ófriði við Japani!
Og hvað snertir það fólk hér, —
fólk sem ekki átti snefil af því,
sem í öðrum löndum var kallað
ættjarðarást og þjóðarmetnaður.
Kína var heil heimsálfa, en
sundurliðuð í um eða yfir tuttugu
héröð, sem hvort um sig nutu
mikils sjálfræðis, áttu í deilum og
háðu blóðug stríð, en voru laus-
lega sameinuð ípersónu keisarans
i Peking. Það var mikið í húfi
þegar sú taug hrökk í sundur
1910. Við, sem komum hingað til
landsins 10 árum síðar, urðum
sjónarvottar þess stjórnarfarslega
óskapnaðar sem hér ríkti á því
tímabili og þangað til að Nanking-
stjórnin komst til valda 1927.
Sun Yat-sun skorti skipulags-
gáfu. Hann var óhagsýnn eins og
títt er um mikla hugsjónamenn,
— en þjóðin hefir þó engan þarf-
ari mann átt. Kínverjar eru yfir-
leitt efnishyggjumenn en hug-
sjónasnauðir. Sun dó á hentugum
tíma og fékk ekki tafið það að
honum hæfari menn kæmu áform-
um hans í framkvæmd.
Þær breytingar, sem orðið hafa
í landinu síðasta áratug, eru al-
veg ótrúlega miklar. Flestar stór-
kostlega til batnaðar.
Boðskapur Sun Yat-sun varð að
honum látnum trúarjátning
menntamanna og æskunnar í
landinu. Þess eru ekki dæmi í 4
þúsund ára sögu Kínaveldis, að
þjóðin hafi verið sameinuð undir
eina stjórn á þann hátt sem hún
nú er. Við henni blasir mikil
framtíð undir forystu þeirra
manna, sem nú hefir tekizt að
sameina hana alla að einu verki:
verndun arfleifðar hennar og end-
urnýjungar.
Japönum mæta nú ekki á víg-
vellinum herirnir, sem gamla
Pekingstjórnin hafði á mála. Held-
ur eru það eldheitir föðurlands-
vinir, sem nú halda vörð um
sjálfstæði þjóðarinnar, uppaldir
Verzl. Kristjáns SigurÖssonar
Aknreyri.
Tekur einlægt:
Gærur
Hert kálfsskinn
Hert sauðskinn
Vorull og haustull
Útlendar vörur fyrirliggj a ndi
Barnarúm
til tölu með tækifærisveröi
Upplýsingar hjá
Kr. S Sigurðssyni
Brekkugötu 5 B.
við ágengni Japana til óslökkvan-
legs haturs til þeirra.
Það er ekki aðeins brot úr kín-
verska hernum, sem nú leggur til
orustu við Japani, í trássi land-
stjórnarinnar, eins og 1932, heldur
ríkisherinn allur, studdur af þjóð-
inni sjálfri og í fullu umboði
hennar.
Stríðið skellur á eins og stór-
viðri, alltaf í óhentugum tíma þó
mikið sé um viðbúnað, og óvænt,
þrátt fyrir allar ófriðarspár. Svo
fjandsamlegt er það lífinu og ó-
velkomið, en óumflýjanlegt þó
eins og dauðinn og dómurinn.
Það vissu allir, sem eitthvað
þekktu til viðskipta Japana og
Kínverja síðari árin, að til ófriðar
myndi koma, fyrr eða síðar. Viss-
asti forboði þess var stríðið í
Shanghai 1932, sem Japanir unnu
— í bili. Þá buðu þeim byrginn
nokkrir herforingjar aðeins, í for-
boði stjórnarinnar í Nanking og
án hennar stuðnings. Chiang Kai-
shik og þeir menn aðrir, sem mest
mega sín í landinu, vildu umbera
ágengni Japana í lengstu lög, svo
timx ynnist til að undirbúa sig
undir þá úrslitabaráttu, sem nú
héiir borið að miklu fyrr en æski-
legt þótti.
Kxnverjar eru auðmýkingum
vanir, og þeir voru við því búnir,
að Japanir yrðu ekki frekjuminni
eftir 1932.
(Frh.).
Ólafur Ólafsson.
Umferðareglur
íyrir biireiðar um Ráðhústorg, Strandgötu, Brelckugötu, Skipagötu og Hafu
arstræti (Bótina)
A. Bifreiðar, sem koma norðan Brekkugötu aki niðui með Ráðhústorgi
að norðan,
B. Biíreiðar, sem koma neðan Strandgötu, aki upp með Bílatorgi
aö sunnan.
C. Bifreiðar, sem ætla niður Strandgötu, aki norðan við Bílatorg.
Ð. Bílar aki aðeins suður Skipagötu,
E. Bílar aki aðeins norður Hafnarstræti í Bótinnt.
Kort er sýnir hvar ekið skuli samkvæmt ofan sögðu er í auglýsingar-
kassa embættisins og á öllum bifreiðastöðvum.
Lögreglustjórinn á Akureyri.
Akureyri 18. nóvember 1937,
Sig. Eggerz.
Eg notaði líka raksápu
frá
Ef gott viðbit, þá
Gulabandið.
Ljosakrónur og lampar
eru ti! í tjölbrevtlu úrvaíj.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Járn- og glervörudeild.
Sundgarpurinn verður ieikinn i siðasta Ritstjóri: Ingimar Eydal.
sinn á sunnudaginn kl. 8% í Samkhmu- —-------------------------------------
húsi bsajarins. Prentverk Odds Björnasonar.