Dagur - 30.12.1937, Side 3
62. tbl.
D A G U R
253
/
lýsing þeirra hefði verið samþykkt
þó fyr hefði komið fram á fund-
ínum, og þá „sennilega11 með fleiri
atkvæðmn, þá getur Á. S. ekkert
fullyrt um það, og því síður, að
hann geti fært nokkur rök fyrir
því nú.
Að lokum 'segir Ásk. S. frá því,
að „tilraun" hafi verið gerð af
sveitunga Ljósvetnings til að fá
yfirlýsingu okkar flutta á fundi
Reykdæla. Ekki veit eg um þetta,
en þykir það fremur ótrúlegt.
Væri réttast fyrir Á. S. að nefna
nafn mannsins en vera ekki með
dylgjur.
Hér að framan hefi eg dregið
fram nokkur atriði í grein Á. S.
og svarað þeim. Af athugxm um
þetta mál kemur í ljós, að Á. S.
tekur til meðferðar í grein sinni
aðeins aukaatriði málsins, en
gengur fram hjá því, sem er aðal-
atriðið, og lýsir því meira að segja
yfir að hann „ætli ekki að svara“
því eða „mótmæla“.
Slík er þá frammistaðan!
„Ljósvetningur“ lýsti því yfir í
Degi 19. ágúst s.l., að hann gerði
ekki kröfu til þess, að Reykdælir
svöruðu spiuningum þeim, er
hann leiddi þar fram í sambandi
við bréf Arnórs, og var það gert
af hreinni hlífðarsemi. En nú hef-
ir Áskell Sigurjónsson skapað sér
þá aðstöðu í umræddu máli, að
hann verður að svara spurningum
Ljósvetnings, eða að gefast upp
ella. Aðstaðan er slæm. En að
hanga í aukaatriðum einum sam-
an hefir viðlíka þýðingu fyrir Á.
S., eins og þegar hvolpur hangir í
pilsfaldi.
15 nóvember 1937.
Baldvin Baldvinsson.
Gisli Svcinsson og
Sjálistæðisflokkuónn.
Það vakti ekki litla undrun,
þegar Ríkisútvarpið flutti þá
fregn, að Sjálfstæðisflokkurinn
hefði valið Ólaf Thors í Sáttmála-
nefndina svokölluðu, í stað Magn-
úsar Guðmundssonar.
„Dagur“ hefir enga löngun til
þess að eiga hlutdeild í, á hvern
hátt Sjálfstæðisflokkurinn „skiftir
sól og regni“ milli flokkshöfðingja
sinna, en í þetta sinn varðar al-
þjóð hvernig var valið. Dansk-
íslenzku sáttmálanefndina skipa
fjórir íslendingar, sem stendur,
formenn Framsóknar- og Jafnað-
armanna, þeir Jónas Jónsson og
Jón Baldvinsson, af hendi Sjálf-
stæðisflokksins Magnús Jónsson
og svo hinn nýkosni, í stað Magn-
úsar sáL Guðmimdssonár.
Þó Sjálfstæðismenn hafi líklega,
að venju, verið af veikum mætti
að apa eftir hinum flokkunum
með því að velja formann sinn í
nefndina, var það ÓVERJANDI,
úr því svo hittist nú einu sinni á,
að þeir áttu í sínum flokki mann,
þar sem Gísli Sveinsson var, sem
að allra landsmanna dómi og af
öllum flokkum, hefði verið vel
þeginn í nefndina, þegar athuguð
eru afskifti hans alla æfi, — frá
unga aldri og allt til þessa dags —
af öllu því sem snertir sambúð
íslendinga og Dana. — Auk þess
er enginn íslendinganna í nefnd-
inni nú lögfræðingur, og á það
hefði Sjálfstæðisflokkurinn enn-
fremur mátt líta.
Það sýnir sig stöðugt, er máli
skiftir og þegar meiri hluti Sjálf-
stæðisflokksins er einráður —
hvert Kvöldúlfskan stefnir.
B æ k u r.
(Framh. af 1. síðu).
Skýrsla Menntaskólans í Reykja-
vík, skólaárið 1936—1937.
í upphafi skólaársins voru skráð-
ir í skólann 221 nemandi, og skipi-
ust þeir þannig milli deilda, að í
gagnfræðadeild voru 80, máladeild
78 og í stærðfræðideild 63. Á
skólaárinu dvaldist rektor erlend-
is um tveggja mánaða skeið. Var
Bogi Ólafsson yfirkennari settur
rektor þann tíma. 51 stúdent út-
skrifuðust, 27 úr máladeild og 24
úr stærðfræðideild.
íslands mikli arfur — Icelands
Oreat Inheritance. —
Margar og misjafnar eru þær
bækurnar, sem útlendingar hafa
skrifað um ísland, og ekki hafa
þær allar hlaðið lofi á landið né
þjóðina; stundum bregður þó út
af þessari venju, en hvergi minn-
ist eg að hafa séð á einum stað
saman komna þvílíka lofgerð, sem
i riti einu á ensku, er nefnist:
Icelands Great Inheritance. Bókin
kom út í London s.l. vor, og er
prentuð á kostnað höfundarins, en
hann heitir Adam Rutherford og
er án efa mjög menntaður maður,
en virðist vera eindreginn
Occultist eða dulspekingur. Hann
byrjar bókina með því að fullyrða
að. íslendingar séu ein hin sann-
menntaðasta þjóð heimsins, og
því til sönnunar nefnir hann nokk-
ur skipulagsatriði, stjórnarfarsleg,
kirkjuleg og menningarleg, og tel-
ur að þau beri vott um, að guðleg
forsjón — Divine Providence —
hafi fyrirhugað landið og þjóðina
til að framkvæma sérstakt ætlun-
arverk. Þá finnur hann líkingu
milli íslendinga og minnstu ætt-
kvíslar ísraels, þ. e. Benjamíns
œttkvíslarinnar, og er skoðun
hans sú, að íslendingar séu komnir
út af þeirri ættkvísl; telur Ruther-
ford að mikill hluti þeirra Benja-
minita, er bjuggu í Jerúsalem —
áður en borgin var lögð í eyði —
hafi sloppið þaðan, flutzt til Litlu-
Asíu, hafst þar við um hríð, eða
fram á þriðju öd, en 267 e. K. hafi
íbúðarhú§ til sölu.
Efri hæð syðri helmings íbúðarhússins nr. 15 við
Norðurgötu, ásamt hluta af skúr á baklóðinni, er
til sölu og laus til íbúðar 14. maí n.k. — Til
mála getur komið að seldur verði allur suður helm.
hússins (efri og neðri hæð). — Upplýsingar gefur
Vilhlálmur Þór.
Tilkynning.
Samkvæmt gildandi lögum um tekju- og eignaskatt ber að
skila framtalsskýrslum til skattanefnda fyrir lok JANÚAR-
MÁNAÐAR ár hvert.
Skattanefnd Akureyrar verður því til viðtals á skrifstofu bæjar-
stjóra alla virka daga í Janúar næstkomandi frá kl. 8,30—9,30
síðdegis, og geta framteljendur á þeim tíma fengið aðstoð við
útfyllingu framtalseyðublaðanna hjá henni.
Framteljendur, sem aðstoðar beiðast, verða að hafa með sér
nákvæma sundurliðun á eignum sínum og skuldum, lista yfir tekj-
ur sínar á árinu 1937 og yfir gjöld þau, sem koma til frádrátt-
ar tekjunum, svo sem vexti af skuldum, skatta af fasteignum og
opinber gjöld.
Peim, sem framtalsskyldir eru og eigi fá framtalseyðublöð send
heim til sín, ber að vitja þeirra á skrifstofu bæjarstjóra. Einnig
ber vinnuveitendum í bænum að vitja þangað eyðublaða undir
kaupgjaldsskýrslur.
Akureyri, 28. des. 1937.
Skattanefnd Akureyrar.
ÞAKKARÁVARP.
Hjartans þakkir til allra þeirra, sem á
cinn eða annan hátt hafa glatt mig með
gjöfum og heimsóknum nú fyrir jólin, er
eg varð fyrir því óhappi að handleggs-
brotna. — Sérstaklega vil eg þó þakka
skólastjóra barnaskólans, kennurum og
bekkjarsystrum m'mum, og ekki sízt frk.
Sigríði Skaftadóttur.
Guð gefi ykkur öllum hamingjuríkt
nýtt ár.
Akureyri 29. des. 1937.
Svava J. Þorsteinsd. og foreldrar.
Alladans og biennn Iieldur
íþróllalélagið „Þór“ á leik-
velli sinum að forfallalausu
mlðvlkudagskv. 5. Jan. n. k.
Eggert St, Melstad hefir nú um ára-
mótin gegnt slökkviliðsstjórastarfi fyrir
Akureyrarbæ i samfleytt 20 ár og mun
vera næstelztur launaðra starfsmanna
bæjarins.
Áramótasamkomur í Zíon. Gamalárs-
kvöld, 31. des. kl. 11: Miðnætur sam-
koma. Nýjársdag, 1. jan. kl. 8,30 e. h.:
Almenn samkoma. Sunnudaginn, 2. jan.
kl. 8,30 e. h.: Almenn samkoma.
Barnastúkurnar »Sakleysið« og »Sam-
úð« halda sameiginlega jólatrésskemmt-
un fyrir meðlimi sína í Samkomuhúsinu
sunnudaginn 2. janúar kl. 5 e. h. Félag-
ar stúknanna eru beðnir að vitja að-
göngumiða sinna í stúkustofuna í Skjald-
borg sama dag, kl. 10—12 f. h. Þeir
kosta ekkert, en þeir, sem eiga ógreidd
ársfjórðungsgjöld, greiði þau um leið.
Það skal tekið fram að aðgöngumiðana
verður að sækja á hinum tiltekna tima.
Gotar farið herskildi um Litlu-
Asíu og flutt þaðan mikið af
kristnum föngum, er svo hafi
ílengst í Dónárdalnum og búið þar
saman við þá kvísl Gota, er nefnd-
ir voru Dacians og er tímar liðu
og blöndun Gota og Benjamins
ættkvíslarinnar hafi verið orðin
mikil, hafi Benjaminitar einnig
verið nefndir Dacians. Þaðan hafi
þeir flutzt til Norðurlanda og orð-
ið forfeður Víkinganna. Máli
þessu til stuðnings vitnar höf. í
nokkra sagnaritara: Josephus,
Evsibius og Dudo, en aðal sönnun-
argögn sín — og greinar tekur
hann úr ritningunni, eru sumar
þeirra alllangt sótt og torskilin, —
en samkvæmt skilningi Ruther-
ford’s benda þau öll til íslands og
þess sérstaka hlutverks, sem því
sé ætlað meðal þjóðanna. Vitan-
lega verður enginn dómur lagður
á bók þessa né skoðanir höf., ann-
ai en sá, að allt er þar mælt af
aðdáun og velvild í garð lands og
þjóðar og hvergi hallað réttu máli
né skilningi á þeim hlutum, sem
frá er sagt og snerta nútímasögu
íslendinga.
F. H. B.
Stúlka
óskast í vist hálfan daginn. —
Upplýsingar í
Oddagötu 5 (uppi).
Kantötukór Alcureyrar. Söngæfing í
Skjadborg Mánud. 3. jan. n.k. kl. 8,30.
Afar áríðandi að aliir mæti. Bassinn
beðinn að mæta kl. 8.
I
/