Dagur - 22.01.1938, Qupperneq 3
4. tbl.
D A G U R
15
Aðalfundur
Akureyrardeildar KEA
Á siðastliðnu áiri hafa gengið í deildina
169 menn, og eru þeir nú alis 867.
Aðalfundur Akureyrardeildar K.E.A.
'var haldinn í Nýja Bíó mánudaginn
17. janúar. Deildarstjóri, Sigtryggur
Þorsteinsson, setti fundinn og nefndi
til fundarstjóra Árna Jóhannsson gjald-
kera, og nefndi hann til fundarskrifara
Kristján Sigurðsson kennara.
Meðal annars gerðist þetta á fund-
inum:
Kjörstjórn.
Fundarstjóri leitaði leyfis fundarins
til að mega skipa kjörstjórn vegna
kosninga fulltrúa á aðalfund K E. A.
Fundurinn veitti leyfið og samkvæmt
því skipaði fundarstjóri í kjörstjórn
þá dr. Kristinn Guðmundsson, Svein
Bjarman bókara og Harald Þorvalds-
son verkamann.
Skýrsla deildarstjóra.
Deildarstjóri flutti skýrslu um af-
komu deildarinnar á síðastliðnu ári.
Gat hann þess m.a., að á árinu hefðu
165 menn gengið í deildina og væru
nú deildarmenn alls 867.
Kosning í deildarstjórn.
Sú kosning fór þannig, að endur
kosnir voru Snorri Sigfússon skóla-
stjóri með 228 atkv. og Bogi Ágústs-
son ökumnður með 220 atkv. Magnús
Gíslason fékk 35 atkv. og Stefán
Árnason 32 atkv.
Kosning í félagsráð.
Kosinn var einn maður í félagsráð
í stað Snorra Sigfússonar, og var
hann endurkosinn með 224 atkv.
Porsteinn Þorsteinsson fékk 20 atkv.
Varamaður var kosinn Ólafur Magn
ússon sundkennari.
Skýrsla
frá félagsráðsfundi.
Vilhjálmur Þór gaf skýrslu frá ný-
lega afstöðnum félagsráðsfundi. Var
skýrslan aðallega um rekstur K. E. A.
á síðastliðnu ári. Taldi hann, að nið-
urstaða á reikningum ársins mundi
bera vott um betri útkomu en árið á
undan. Ennfremur ræddi hann um
iðnaðarstarfsemi K. E. A., er aukið
höfðu umsetningu sína á síðasta ári
frá árinu á undan, þrátt fyrir vinnu
stöðvunina i nóvember. í því sam-
bandi minntist framkvæmdastjórinn á
vinnudeiluna í nóvember og sérstak-
lega á vörubann það, er lagt var á
verzlun Kaupfélags Eyfirðinga, sem
bakað hafði félaginu fjárhagslegt tjón.
Önnur mál.
Undir þeim lið dagskrárinnar komu
fram nokkrar iillögur, er felldar voru
með miklum atkvæðamun. Þar á
meðal ein, er Þorsteinn Þorsteinsson
mælti mjög með, og fjallaði meðal
annars um það, að fundurinn mót-
mælti því, að stjórn félagsins hefði
vikið Steingrími Aðalsteinssyni úr fé-
laginu, og krafðist þess, að aðalfund-
ur K. E. A. veitti Steingrími að nýju
511 félagsréttindi. Tillagan var undir-
rituð af 18 mönnum.
Að umræðum loknum var tillagan
borin upp til atkvæða og felld með
120 atkv. gegn 18.
Kosning fulltrúa
á aðalfund.
Formaður kjörstjórnar, dr. Kristinn
Guðmundsson, lýsti kjörlistum, er
fram höfðu komið. Voru þeir 3,
merktir bókstöfunum A, B og C. Á
hverjum lista voru nöfn 42 manna,
Vér höldum inn í Samkomuhús,
fullir af eldmóði. Þröng við dyrn-
ar. Kerlingar með svitadropa á
enninu, púðurbletti á nefinu og
sannleiksást í hjartanu. Karlmenn
með brot í buxum og brotna sann-
færingu. Yfirleitt prýðis fallegar
manneskjur. Allir tala í einu og
ryðjast inn. Vér berumst með
straumnum inn að þröskuldi, en
þar stöðvar dyravörðurinn oss og
spyr með blíðlegu brosi, hvort vér
séum félagsbundnir. Vér höldum
nú það og segjumst vera í flokki
óháðra borgara. Hann muldrar
eitthvað í barm sinn um að þau
séu nú víst komin öll þrjú, en vér
skiljum ekki hvað hann á við og
strunzum fram hjá honum inn í
salinn. Vér fáum oss sæti á milli
tveggja fimbulkerlinga og erum
skorðaðir þar til fundarloka. Fólk
hópast inn, og brátt er kominn
fjöldinn allur, a. m. k. 150 manns.
fundarstjóri sezt í sæti sitt, og nú
hefjast ræðuhöldin.
Fyrstur tekur til máls Indriði
Helgason. Les hann upp ræðu um
rafveitumálið og les vel. Vill hann
láta selja rafmagnstæki með væg-
um afborgunum. Rukkarar bæjar-
ins innheimta verðið um leið og
ljósagjaldið. Skilst oss á honum,
að þetta muni verða gaman fyrir
rukkarana. Jafnframt þykjumst
vér finna, á bak við anda ræðunn-
ar, einhverja veika tihneigingu til
þess að láta í ljós þá skoðun, að
heppilegast myndi vera að kaupa
öll rafmagnstæki hjá Samúel.
Ræðan er góð og fær beztu und-
irektir,
Næst tekur til máls Jakob Karls-
son og talar um mjólkurlögin og
ýmsa annmarka þeirra. Talar
hann ekkert vel um þau og sýnist
oss þeir kaupmenn, sem hafa
dósamjólk á boðstólum, verða
mjög ánægjulegir á svipinn. Því
næst minnist hann á kýr, og kem-
eða jafnmargra og kjósa átti, og þar
að auki nöfn 6 varamanna á hverjum
lista, Auk þess er deildarstjóri sjálf-
kjörinn.
Var þá gengið til kosninga og
hlutu þessir kosningu:
A -1 i s t i :
1. Vilhjálmur Þór
2. Bogi Ágústsson
3. Böðvar Bjarkan
4. Ólafur Magnússon
5. Árni Jóhannsson
6. Garðar Sigurjónsson
7. Jakob Frímannsson
8. Þorleifur Þorleifsson
9. Ingimundur Árnason
10. Friðrik Rafnar
11. Jónas Þór
12. Pétur Tómasson
13. Þorsteinn M. Jónsson
14. Jónas Kristjánsson
15. Haraldur Þorvaldsson
16. Snorri Sigfússon
17. Jón Þórðárson
18. Kristinn Guðmundsson
19. Friðgeir H. Berg
20. Hallgrímur Jónsson
21. Páll Magnússon
ur þá einhver hlýja í röddina. Lít-
ur nú Jón Sveinsson blíðlega til
hans og þeir hvor til annars. Virð-
ist oss þetta og fleira bera vott
um eindrægni á fundinum. Segir
Jakob að fundur hafi verið hald-
inn af kúaeigendum til þess að
gæta hagsmuna þeirra. Skiljum
vér eigi glöggt, hvort hann á við
hagsmuni kúnna eða eigendanna.
En hvernig sem það er, skín mjög
í gegnum ræðu hans, að hann á-
lítur, að kýrnar séu yfirleitt sam-
mála eigendum sínum um mjólk-
urlögin. Talar hann á víð og dreif
um þetta og mælist vel. Er klapp-
að mikið að lokinni ræðunni, en
þó tökum vér eftir því, að margar
konur klappa ekki.
Nú tekur til máls Arnfinna
B-listino
er lisli framsBknarmanna.
Björnsdóttir. Kemur nú lyftingur
í konurnar beggja megin við oss.
Hefir hún mál sitt með frásögn
um stofnun hins ágæta kvenfé-
lags, sem ætli að verða útvörður
lýðræðis, frelsis og menningar hér
í bænum. Talar hún um sameigin-
leg áhugamál karla og kvenna, t.
d. bindindismál, sem félagið hafi
mjög á stefnuskrá sinni. Skilst oss
að einkum hafi meðstjórnendur
hennar á því mikinn áhuga. Sömu-
leiðis ræðir hún talsvert uppeldis-
mál og kemur víða við. Mælir hún
heldur á móti stofnun heimilis fyr-
ir vandræðabörn, menn eigi bara
alls ekki að eignast vandræða-
börn, það sé bezta ráðið. Gellur
nú við: „Heyr, heyr!“ Það eru
tveir piparsveinar fyrir aftan oss,
sem láta hrifningu sína í ljós á
þessu þjóðráði. Ræðir hún mörg
mál fleiri af mikilli skarpskyggni.
Er hún lýkur máli sínu, klappa
22. Ingóifur Hinriksson
23. Guðmundur Ólafsson
24. Jón Friðlaugsson
25. Marteinn Sigurðsson
26. Stefán Benjamínsson
27. Jóhannes Jónasson
28. Helgi Tryggvason.
B - 1 isti :
1. Magnús Gíalason
2. Stefán Árnason
3. Þorsteinn Þorsteinsson
4. Árni Þorgrímsson
5. Tryggvi Helgason
6. Guðmundur Snorrason
7. Sigvaldi Þorsteinsson
8. Ingólfur Á. Árnason
9. Stefán Guðjónsson
10. Bjarni M: Jónsson
11. Sigurjón Jóhannesson
C - 1 i s t i :
1. Steindór Steindórsson
2. Helgi Daníelsson
3. Erlingur Friðjónsson
Greidd voru alls 396 atkv. og hlaut
A-listinn 261, B-listinn 102 og C-
listinn 33 atkv.
allar konur mjög — og tveir karl-
menn, eftir því sem vér komumst
næst.
Næst tekur Jón Sveinsson til
máls, og stynja nú margir heiðar-
legir menn í nálægð vorri. Ræðir
hann bæjarmál og drepur á
margt. Telur hann sig ekki geta
lofað neinu fyrir þessar kosning-
ar, því að hann sé ekki búinn að
efna loforðin frá þeim síðustu, en
nú sé hann hálfpartinn að hugsa
um að fara að láta hendur standa
fram úr ermum. Prísar hann mjög
frelsi einstaklingsins til þess að
pota sér áfram, en telur það stór-
um skert, og geri ríkisvaldið
menn að þrælum sínum. Eigi
menn nú fullt í fangi með skatta
og álögur, og mjög erfitt sé orðið
að fá að hugsa nokkurn hlut um
sjálfan sig. Telur hann sig vera
samvinnumann og sjá margt gott
við þá stefnu, en harmar mjög, að
ekki skuli vera miklu hærri út-
svör á kaupfélögunum. Er góður
rómur gerður að þessari ræðu.
Næstur ræðumanna er Axel
Kristjánsson og talar um verzlun.
Telur hann allt ástand í þeim efn-
um hræðilegt. Einu sinni hafi
samvinnufélögin haft 11% af öll-
um innflutningi, en nú hafi þau
öll ósköp, og hljóti það að vera
öfug þróun. Séu menn nú sveltir
til þess að verzla við kaupfélögin.
Finnst oss ræðumaðurinn nokkuð
magur og beinaber,, og muni hann
vita hvað hann segi. Tekur Axel
margar tölur til sönnunar máli
sínu og kunnum vér ekki að nefna
þær. En öll var ræðan hin sköru-
legasta og fær mikið lófaklapp.
Síðastur talar Brynleifur To-
biasson. Ræðst hann af miklum
móði á kommúnista og sézt lítt
fyrir. Telur hann boðendur orðs-
ins vera ofsótta í Rússlandi og
drjúpi þar guðleysi af hverju
strái. Finnst oss hann vera sér
FDNDURINN.