Dagur - 24.02.1938, Side 1

Dagur - 24.02.1938, Side 1
D AGUR keimu' út á hverjum fimtu- degi. Kostar kr. 6.00 árg. Gjaldkeri: Árni Jóhanns- son í Kaupfél. Eyfirðinga. tijalddagi fyrir 1. júlí. XXI. árg 4Þ- ♦ » -O- árg- \ Afgreiðslan er hjá JÓNl Þ. ÞÓR, Norð- urgötu 3. Talsími 112. Upp- sögn, bundin við áramót, sé komin til afgreiðslumanns fyrir 1. des. Akureyri 24. febrúar 1938. 11. tbl. „Frjálsir iiieiiii i frjálsu landi.M „Orð, orð, Jón Sveinsson lögfræðingur, sem var efstur af þeim, er féllu við bæjarstjómarkosninguna 30. f. m., hefir skrifað alllangt mál í „ís- lending“ um kosningaundirbún- inginn, úrslit kosninganna og fall sitt. Eggjar hann flokksmenn sína ákaft til að standa fast saman um að vemda frjálst framtak og at- hafnafrelsi einstaklinganna og fylkja sér þétt um hið gamla víg- orð íhaldsins: „Frjálsir menn í frjálsu landi“. Vígorð íhaldsins lætur vel í eyr- um. Það hljómar fallega á vörum Jóns Sveinssonar og annara í- haldsmanna. En svo er það ekki meira. Gjallandahreimurinn er eini kostur þess. Vígorð íhaldsins er með öðrum orðum ekki annað en innantóm orð. Það er sem hljómandi málmur eða hvellandi bjalla. Hljómurinn deyr út, bjölluómurinn hverfur út í geim- inn og skilur ekkert eftir. Þetta hafa íhaldsmenn margoft sannað, og Jón Sveinsson einna eftirminni- legast í fymefndri íslendingsgrein sinni. Hvemig vill hann, að frjálst framtak og athafnafrelsi einstakra manna sé verndað? Hvernig vill hann, að frjálsir menn fái sem bezt notið sín í frjálsu landi? Það er nú kunnugt orðið, og var jafnvel vitað áður en bæjarstjórn- arkosningin hér á Akureyri fór fram, að margir sjálfstæðismenn vom afar óánægðir yfir manna- röðun á kosningalista Sjálfstæðis- flokksins. Þessir óánægðu flokks- menn Jóns Sveinssonar töldu sig ekki geta greitt atkvæði með list- anum óbreyttum. Þeir tóku því það iáð að nota sér það frelsi, sem þeim er gefið að lögum, sem eink- um var í því fólgið að strika nafn Jóns Sveinssonar út. Hinir óá- nægðu flokksmenn J. Sv. tóku sár það vald að ráða sjálfir einstakl- ingsframtaki sínu og athafnafrelsi, sem þeir höfðu fullt leyfi til sam- kvæmt lögum. Þeir vildu í þetta skifti fá að vera frjálsir menn 1 frjálsu landi, og það án gæsalappa. Hvemig snýst svo J. Sv. við því, að hinir óánægðu notuöu lög- verndaö frelsi sitt til þess að iniiiiiifóin.1** strika nafn hans út á listanum? Hann segir, að þeir hafi framið ,,svívirðingu“, „skemmdarstarf- semi“, „stigamennsku“ og „laun- morð“. Hann segir, að þeir séu „lítiisigldir fávitar“, „samvizku- lausir flokksníðingar“, „fíokks- svikarar“ og „nátttröll“. Það getur alls ekki orkað tvi- mælis; að þetta frelsishjal J. Sv. er ekkert annað en varafleipur, glamuryðri, sem ekkert er á bak við. Strax og nokkrir flokksmenn J. Sv. neyta athafnafrelsis síns við kjörborðið á þann veg, er honum þykir vera sér til persónulegra óþæginda, þá er honum öllum lok- ið. Auðvitað er þetta í fullu sam- ræmi við algengan mannlegan breiskleika, sem J. Sv. er langt frá að vera yfir hafinn. En úr pví svo er, því er þá maðurinn að gera sig gleiðan með fimbulfambi Sðoufélag Skagfifðiuga. Stofnað hefir verið Sögufélag Skagfirðinga. Ætlun þess er að láta skrifa sögu Skagfirðinga og gefa hana út. Helzt er í ráði, að sagan komi út smám saman í þáttum. Verður vandað til samningar rits- ins eftir föngum. — Fjár til út- gáfu og ritlauna er aflað, að minnsta kosti fyrst um sinn, með tillögum félagsmanna. Deild í Sögufélagi Skagfirðinga hefir verið stofnuð í Reykjavík. Sýsumaður Skagfirðinga og fleiri héraðsmenn hafa beðið mig að gangast fyrir stofnun deildar í félaginu hér í bænum. Hefi eg lofað að beita mér fyrir málinu, og leyfi mér hér með að skora á alla Skagfirðinga í Akur- eyrarbæ, þá sem styðja vilja þessa viðleitni, að koma á fund næsta sunnudag, 27. febr., kl. 4 e. h., í bæjarstjórnarsalnum í Samkomu- húsinu, til þess þar og þá að stofna Akureyrardeild í Sögufé- lagi Skagfirðinga, samþykkja lög deildarinnar og kjósa stjóm. Akureyri, 23. febr. 1938. Brynleifur Tobiasson. um athafnafrelsi og frjálsa menn í frjálsu landi? Kosningalögin heimila mönnum tilfærslur og útstrikanir við kjör- borðið. Þau ákvæði eru sett af löggjafanum, til þess að veita kjósendum sem víðtækast frelsi við kosningar. Það er því í raun og veru ekkert við því að segja, þó að kjósandi noti sér þessa laga- heimild, ef honum sýnist svo. Hitt er rétt, að kjósendum innan Sjálf- stæðisflokksins hefir fundizt að þeir þurfa sérstaklega mikið á þessari heimild að halda gagnvart efsta manninum á lista flokksins. Bendir það til þess, að þeir, sem réðu listanum, hafi ekki verið nægilega kunnugir hugum manna í Sjálfstæðisflokknum. Að öðru leyti ætlar Dagur ekki að blanda sér í heimiliserjurnar innan Sjálfstæðisflokksins. Kirk}umál. Andlega menningu hverrar þjóðar má mikið marka af því, hversu vel er þar hlúð að kirkju og skóla. Svo er og um hverja sveit cg hvern bæ. Það er raunar ekki að undra þótt oss íslendinga vanti margt. Fámenn og fátæk þjóð k jalnan örðugt uppdráttar. Og muna meg- um við fimmtugir og eldri það, að þessi öld hefir þó leyst mörg vand- ræðin og hrundið mörgu lengra fram en oss dreymdi um. Yfir því má vissulega gleðjast. Og hitt jafnframt staðhæfa, að langt er enn í land. Svo er einnig og ekki sízt í mál- efnmn kirkju og skóla. Þar vantar vissulega margt og á þessi öld þar mörg verkefni óleyst. En eg efa ekki að henni muni lánast að hrinda mörgu fram, þjóð vorri til heilla og blessunar, og koma þá vissulega kirkju- og skólamálin þar í fremstu röð. Og þó vitanlegt sé, að ekki er hægt að framkvæma allt í einu, þá er þó nauðsynlegt að halda vakandi þeim nauðsynja- málum, sem hrinda þarf fram til úrlausna smátt og smátt. Margt vantar oss Akureyringa í þessum efnum. Oss vantar íþrótta- hús, viðbót við barnaskólann eða annan nýjan, hús fyrir gagnfræða- og húsmæðraskóla, sjúkrahús o. fl. En ekki sízt vantar oss nýja kirkju. Gamla kirkjan inn í fjör- unni er allsendis óviðunandi orðin og ósamboðin vorri öld. Þessvegna þarf ný kirkja að rísa af grunni sem allra fyrst. Hún hefir líka þá Fimmtudagskvöldið kl. 9: Romeo Og Julia. Niðursett verð. Sýnd í síðasta sinn. sérstöðu meðal þessara mála, að hún á nokkurt fé og fær lögboð- inn skatt af hverjum þeim, er tel- ur sig til hinnar virðulegu, and- legu stofnunar. Og það munu all- flestir bæjarbúar gera. En líklega gerum vér oss oft og tíðum tæp- ast nægilega ljóst, hve mikið þjóð vor á kirkjunni að þakka. Oss hættir svo oft til að líta fyrst og fremst á það, er henni hefir miður tekist, en gleymum því, að hún hefir þó jafnan verið hin mikla andlega líftaug í þjóðlífi voru, og mannað þjóð vora meir en nokkur önnur stofmm, þrátt fyrh mistökin. Það á því að vera oss heilög ræktarskylda, að hlúa að henni og hún mun þá eihnig vissulega gjalda framtíðinni þá skuld. Því kröfur nútímans eru þær og eiga að vera þær, að kirkj- an vinni af alefli að því, að krist- indómurinn nái tökum á þjóðfé- laginu og einstaklingunum, og að hún verði þjóð vorri þannig sú fóstra, er leiðir hana til siðferði- legs þroska og háleitra hugsjóna. Nú hafa konur í bænum tekið saman höndiun til þess að hrinda kirkjumálinu fram. Fer vel á því. Konur hafa á undanförnum árum, víða um land, unnið stórvirki í fé- lags- og menningarmálum þjóðar- innar með samtökum sínum, ekki til framdráttar neinum pólitískum flokki, heldur þjóðinni allri. Má þar nefna, sem dæmi: Landsspí- talann, slysavarnirnar og kirkju- málin. í sumar kom eg í tvö þorp á Vesturlandi. í þeim báðum voru nýbyggðar fallegar kirkjur, skuld- lausar, og höfðu konur haft þar alla forgöngu, ásamt sóknarnefnd- um. Og víðar hefir svipað gerzt. Þessvegna eru það gleðitíðindi, að konur hér hafa hafist handa. Og þess er að vænta að allir taki sam- an höndum til þess að styðja þær að veglegu starfi, svo fögur khkja rísi hér innan skamms, við hæfi vorra tíma, og glæði trúarlíf og andlega menningu bæjarbúa á komandi tíð. Sn, S,

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.