Dagur - 15.09.1938, Page 2
162
D A G U R
40. tbl.
» • • -•-• • ••^•<
(safold setur nytt met í
Á fyrstu síðu: »Framsókn hefir foringja
Alþýðuflokksins algerlega á sínu valdi«.
Á annari síðu: »í skjóli valdaaðstöðu sinnar og
takmarkalausrar yfirdrotnunar yfir Framsóknar-
flokknum knúðu sósíalistar fram hækkun á
tímakaupk
Lesendur íhaldsblaðanna hafa
margoft veitt því eftirtekt, hversu
riturum þeirra er gjarnt til að
krydda ritsmíðar sínar með hin-
um herfilegustu mótsögnum. Hef-
ir þetta meðal annars komið fram
í skrifum þeirra um samstarf
Framsóknar- og Alþýðuflokksins.
í því efni hefir ísafold, sem eink-
um er ætluð bændum til lesturs,
haft það hlutverk með höndum,
að fræða lesendur sína á því, að
sósíalistar kúguðu foringja Fram-
sóknarflokksins til alls konar
hermdarverka. Samkvæmt því átti
Alþýðuflokkurinn einn öllu að
ráða, en Framsóknarmenn að vera
þrælar þeirra. Aftur á móti hefir
íhaldsblaðið Vísir, sem ætlaður er
verkalýðnum í Reykjavík til lest-
urs, haldið því mjög á lofti, að
foringjar Alþýðuflokksins fengju
engu að ráða vegna ofsa og yfir-
gangs Framsóknarforingjanna,
sem hugsuðu ekki um annað en
skara eld að kökum bænda, en
skeyttu ekkert um velfarnað
verkalýðsins.
Á þenna hátt hafa íhaldsblöðin
hagað vinnubrögðum sínum og
skipt með sér verkum í þeirri við-
leitni sinni að bera róg á milli
þessara tveggja stétta, verka-
manna og bænda. Vinnubrögðin
eru ekki beinlínis skynsamleg, þar
sem menn hlutu að veita því eft-
irtekt, að annað blaðið reif jafnan
niður það, sem hitt hélt fram.
Árangurinn hefir líka orðið sá, að
enginn skynbær og gætinn maður
trúir þessum málgögnum.
En þó kastar fyrst tólfunum,
þegar mótsagnirnar í einu og
sama blaðinu ríða hvor annari á
slig. En þetta hefir hent vikuút-
gáfu Mbl., ísafold, mánudaginn 5.
þ. m.
Á forsíðu blaðsins hefst grein
undir fyrirsögninni: „Flvað er í
vændum?“ Fjallar hún um sam-
starf Framsóknar- og Alþýðu-
flokksins. í þessari forsíðugrein
stendur meðal annars:
„Framsókn hefir foringja Al-
þýðuflokksins algerlega á sínu
valdi. (Leturbr. Dags). Hún þarf
ekki annað en minna þá á hin
mörgu íeitu embætti, sem þeir
hafa fengið í sambúðinni við
Framsókn. Og Framsókn er klók.
Hún geymir nokkur feit embætti
— bankastjórastöðurnar við Út-
vegsbankann o. fl. — til þess að
hafa enn b^tri tök á hinum gráð-
ugu og þurftarfreku foringjum
Alþýðuflokksins“.
Nú flettir lesandi ísafoldar við
blaðinu og lítur yi'ir aðra síðu.
Þar birtist eitt hinna alkunnu
„Reykjavíkurbréfa“. Þar er m. a.
enn verið að ræða um samstart
Framsóknarílokksins og Alþýðu-
flokksins. Þar er samstarfinu lýst
á þessa leið:
„í skjóli valdaaðstöðu sinnar og
takmtirkalausrar yfirdrotnunar yf-
4. júlí s.l. sendi verkakvennafé-
lagið „Eining“ 11 fátæk og veikluð
börn, á aldrinum 6—12 ára, í 8
vikna sumardvöl að Laufahlíð í
Reykjahverfi, auk þess sendi
kvenfélagið „Hlíf“ þangað 4 börn.
Laufahlíð er nýbýli í Brekkna-
kotslandi. Búa þar Þórður Jóns-
son barnakennari og Guðrún syst-
ir hans frá Brekknakoti. Hafa þau
bygt þarna myndarlegt stein-
steypuhús, sem er hitað upp með
hveravatni og matur allur gufu-
soðinn og brauð bökuð með hita
frá hitaveitu frá hverum. Á staðn-
um er yfirbygð heit sundlaug' ög í
sambandi við hana gufubaðstoía,
sem ungmennafélagið hefir með
höndum.
Börnin 15 voru undir hand-
leiðslu Jónasar Jónssonar leik-
fimi- og sundkennara. Voru þau
látin synda á hverjum degi og
iðka aðrar líkamsæfingar við
þeirra hæfi. Auk þess voru þau að
leikjum og ýmiskonar sjálfráðu
starfi. T. d. fóru þau á grasafjall
og komu heim með allmiklar
birgðir af hinum hollu íslensku
fjallagrösum. Er óhætt að fullyrða
að börnin lærðu að skilja og meta
tign og dásemdir hins víðfeðma,
gjöfula ríkis náttúrunnar eins og
það birtist í hinni íslensku sveit-
arkyrð. Alstaðar var nýjungar að
sjá fyrir börnin, sem komu af
mölinni og fjörunni, þar sem heil-
brigð líísskilyrði eru meira og
minna takmörkuð og skortir jafn-
vel alveg, í bænum, þar sem æsk-
an sogar í sig göturykið og kola-
reykinn og leikvangurinn er i
sorpinu í fjörunni og á Tanganum
og við kolahaugana í miðbænum.
Heimilið í Laufahlíð er hið
myndarlegasta. Við fyrstu sýn
mætir manni alúð og prúðmenska,
sem heillar jjann, sem að garði
ir Framsóknarflokknum (leturbr.
Dags) knúðu sósíalistar fram
hækkun á tímakaupi með verk-
föllum og á annan veg“.
Hver maður sér, að fullyrðingin
á fyrstu síðu er riðin niður með
gagnstæðri fullyrðingu á annari
síðu. Á fyrstu síðu er samstarfinu
lýst þannig, að Framsókn sé svo
klók, að hún hafi full tök á for-
ingjum sósíalista og hafi þá al-
gerlega á sínu valdi. Á annari síðu
er staðhæft, að yfirdrottnun sósí-
alista yfir Framsóknarflokknum sé
takmarkalaus og að þeir knýi
flokkinn gegn vilja sínum inn á
brautir sósíalista.
ísafold er því orðin sjálfri sér
sundurþykk um samstarf Fram-
sóknarflokksins og Alþýðuflokks-
ins. Fyrsta og önnur síðan eiga í
stríði hvor við aðra. Blaðið hefir
sett nýtt met í mótsögnum, óheil-
indum og ósannsögli.
ber og vekur hjá honum traust og
öryggi en það er einmitt það; sem
börnin þarfnast, er þau verða að
yfirgefa foreldrahúsin. En enda
þótt mörgu sé ábótavant heima
hjá mömmu og pabba, og jafnvel
þó skortur sé á frumstæðustu lífs-
nauðsynjum, þráir barnið þó altaf
helst að dvelja hjá þeim. En börn-
in 15 í Laufahlíð nutu hinnar
fullkomnustu líkamlegrar og and-
legrar umhyggju hins ágæta
heimilis. Fæðið var ágætt og við
þeirra hæfi. Meðal annars var
fært frá til þess að börnin hefðu
næga, góða mjólk, skyr og smjör.
Enda litu þau afarvel út og voru á
alla lund hin hressustu, þegar þau
voru sótt austur 29. ágúst s.l. Og
umræðuefni þeirra á leiðinni
heim var harla ólíkt því, sem tíðk-
ast meðal barnanna, sem neyðast
til að leika sér í óhreinum bænum.
Þetta er í fyrsta sinn sem svona
stór barnahópur hefir verið í
sumardvöl á þessu heimili. Við
konurnar í „Einingu11, sem höfum
Fimmtudagskvöld kl. 9:
Sprengblægileg gamanmynd
í 10 þáttum.
Aðalhlutverkin leika:
Thor Modéen og
Calle Hageman.
starfað að þessu máli, teljum okk-
ur skylt að skýra opinberlega frá
þessu og hvetja enn fleiri til þess
að vinna að því að margfalt fleiri
börn eigi kost á því að njóta
samskonar aðbúnaðar á sumrin
eins og börnin 15 í Laufahlíð. En
til þess þarf mikið átak, sameig-
inlegt átak fjöldans.
Dvalarkostnaður barnanna var
kr. 1.75 á dag fyrir hvert barn,
auk sundlaugar- og baðstofugjalds
(sem rennur til ungmennafélags-
ins), en það var kr. 1.50 á barn
fyrir allan tímann. Ferðakostnað-
ur fram og til baka var samtals
kr. 88.00 og alls var því kostnað-
urinn við dvöl hinna 11 barna, sem
„Eining“ sá um, kr. 1201.75.
Greiddi „Eining“ þetta alt for-
eldrum barnanna að kostnaðar-
lausu. Þess er skylt að geta að
Soffía Sófoníasdóttir garðyrkju-
kona, færði félaginu til styrktar
þessari starfsemi 100 krónur i
sumar, sem var ágóði af blóma-
sölu sem hún hafði með höndum
s.l. haust. Ennfremur að fjárhags-
nefnd og bæjarstjórn samþyktu
góðfúslega að verða við beiðni fé-
lagsins um 300.00 kr. styrk úr
bæjarsjóði til styrktar þessari
starfsemi „Einingar".
Er þess að vænta að skilningur
bæjarbúa á því að hér er um
merkilegt menningarskref að
ræða, glæðist svo mjög á næstunni
að kleift verði að senda sem allra
flest börn framvegis til sumar-
dvalar í sveit. Þetta starf er eng-
an veginn eingöngu bundið við
félagskonur í „Einingu“ eða
„Hlíf“. Allir eiga að leggja fram
•mniwmHWHff
Silklnœrfot
Silkisokkar
Slæður
Silkivasaklntar
F|ölbreylt úrval.
Kaupfélag Eyfirðinga
Vefnaðarvörudeild.
Eftirtektarverð menninoarstarlsemi.