Dagur - 22.12.1938, Síða 2
224
D K ö n R
54. tbl.
Fólkið kaupir
fólagfafir i
Kaupfélagi Eyfirðinga
Vefnaðarvörudeild
Skiðakeppni.
daglega. Hann les ekki mikið, og
eftir honum er haft: „Þegar
menn hafa náð vissum aldri, vill
lestur leiða heilann burtu frá
stærðfræðilegum viðfangsefnum.
Með því að lesa mikið og láta
heilann hafa lítið að starfa, getur
maðm- hæglega orðið latur rann-
sóknari“,
Einstein ber enga virðingu fyrir
kurteisisvenjum. Það kom meðal
annars í ljós, þegar Swarthmore
College hélt stórveizlu honum til
virðingar. Það var farið fram á,
að hann héldi ræðu. Einstein stóð
upp og sagði: „Herrar mínir og
frúr. Mér þykir miður, að eg hefi
ekkert til að segja yður“. — Síðan
settist hann. Litlu síðar stóð hann
upp aftur og bætti við: „Ef eg fœ
nokkuð til að segja yður, skal eg
koma til yðar aftur“. Missiri
seinna símaði hann til háskóla-
félagsins: „Nú hefi eg nokkuð á
samvizkunni”. Stofnað var til
miðdegisveizlu á ný, og Einstein
hélt tölu.
Nýlega spm'ði hefðarfrú Ein-
stein, hvort hann væri sannfærð-
ur um, að afstæðiskenning hans
væri rétt. Hann svaraði: „Það
hygg eg, en það verður fyrst sann-
að sumarið 1981, þegar eg er
dauður“.
Hvað gerist þá? spyr frúin.
„Jú, sjáið þér, kæra frú. Ef
kenning mín er rétt, munu Þjóð-
verjar í minningargreinum um
mig kalla mig Þjóðverja og
Frakkar kalla mig Gyðing, en ef
kenningin er röng, munu Þjóð-
verjar nefna mig Gyðing, en
Frakkar munu kalla mig Þjóð-
verja“.
(Pýtt).
Bending til J. S. K.
í grein, sem birtist í „íslendingi“
16. þ. m., tekur J. S. Kvaran skó-
verksmiðjueigandi það fram, að
það sé langt frá því að hann telji
það eftir sér að standa niðri á
bryggju og athuga vöruinnflutn-
ing til þeirra samvinnufyrirtækja,
sem hér eru starfandi, og út frá
þessum bryggjuathugunum hans
er svo skrifuð heil löng langloka
um misbeitingu valdhafanna á
innflutningi véla og annara vara
til landsins. Það eru þó sérstak-
lega 2 smávélar, sem Skinnaverk-
smiðjan Iðunn hefir fengið í nóv-
ember s. 1., sem hafa raskað svo
mjög jafnvægi sálarinnar og or-
sakað að fyrrnefnd grein hefir
verið skrifuð.
Þar sem það kemur mjög greini-
lega fram í nefndri grein, að
Kvaran telur ekki eftir sér að
standa niðri á bryggju og athuga
innflutning til samvinnufyrirtækj-
anna hér, þá skal honum bent á
að vera á verði þegar fyrstu skip
sigla héðan í janúarmánuði n. k.
og athuga, hvort Skinnaverksmiðj-
an Iðunn ekki sendir út úr land-
inu 2 skógerðarvélar, og ef sú til-
gáta reynist rétt, væri æskilegt að
hann gæfi þá lesendum „íslend-
ings“ um það aðra skýrslu,
X.
Bækur.
Nokkrar nýjar bækur hafa blað-
inu verið sendar til umgetningar
að undanfömu. Skal þeirra hér
getið í stuttu máli.
Bjöm flugmaður, þýdd saga úr
norsku. Bókin er fremur skemmti-
leg, einkum við hæfi drengja. Það
er líf og fjör í frásögninni, og hafi
hún nokkur áhrif á ungdóminn,
ættu þau að verða fremur bætandi
en spillandi. Sagan er hentug til
jólagjafa handa drengjum.
Vaka, tímai'it um þjóðfélags- og
menningarmál. Er þetta 1. hefti
ritsins, sem gefið er út af „Vöku-
mönnum“. Fer það myndarlega af
stað og er vandað að frágangi.
Flytur það ritgerðir um margvís-
leg efni eftir þjóðkunna menn,
sem tilheyra ýmsum stjórnmála-
flokkum, einnig nokkuð af kveð-
skap, þýdda sögu o. fl.
Vaka er óháð einstökum stjórn-
málaflokkum. Ritstjóri er Valdi-
mar Jóhannsson.
Dvöl, 3. h. 1938. Efnið er marg-
breytt að vanda. í þessu hefti eru
6 þýddar sögur eftir úrvalshöf-
unda, frumsamdar ritgerðir eftir
Pál Þorleifsson, Hannes J. Magn-
ússon, Bjartmar Guðmxmdsson,
Guðmund Davíðsson og Kristján
frá Garðsstöðum. Ennfremur
kvæði, þýdd og frumsamin og fl.
smávegis.
Bjöm á Reyðarfelli, einyrkja-
saga í ljóðum, eftir Jón Magnús-
son. Höf. er þjóðkunnur sem skáld.
Hafa komið út eftir hann þrjár
kvæðabækur, Bláskógar 1925,
Hjarðir 1929 og Flúðir 1935. Þessi
síðasta bók hans er 140 bls. Eru
það kvæðaflokkar um söguhetj-
una, Bjöm á Reyðarfelli, og hefir
höf. reist þessum stórbrotna en
mæðusama einyrkja óbrotgjaman
minnisvarða með þessum ljóðum.
Inni á milli eru þættir úr sögu
Björns í óbundnu máli til skýr-
ingar kvæðunum.
Viðar, ársrit íslenzkra héraðs-
skóla, III. árg. Þetta er hið prýði-
legasta rit að efni og frágangi og
myndum skreytt. Á kápunni er
þrílit mynd af héraðsskólanum á
Laugum í Reykjadal. í ritið skrifa
einkum kennarar héraðsskólanna
og fleiri skólamenn. Er útgáfa
ritsins héraðsskólunum til sóma.
Ritstjóri er Þóroddur Guðmunds-
son, en bókin er prentuð í Prent-
verki Odds Björnssonar.
Kári litli og Lappi heitir ný
barnabók, sem barnablaðið „Æsk-
an“ hefir gefið út, eftir Stefán
Júlíusson kennara í Hafnarfirði.
Bókin er snotur og myndum
prýdd.
ÖLDUNGUR.
Vorsins þrá er vikin frá,
vonir háar falla.
Haustið stráir hrími á
hærugráan skalla.
5.-D.
Menntaskólanemendui’ kepptu í
skíðaíþrótt fyrra sunnudag. Fyrst
fór fram 2000 m. brekkuskrið.
Skíðamennimir renndu sér af
stað úr Hlíðarfjalli með einnar
mínútu millibili í C- og B-flokki,
en með hálfrar mínútu millibili í
A-flokki. Skriðið endaði í miðjum
Torfdal, en þar var eitt og sama
mark fyrir allar brautir, sem
keppt var á, bæði í „slalom“ og
brekkuskriði. Úrslit í brekkuskrið-
inu urðu þessi:
1. Magnús Árnason.
2. Hörður Ólafsson.
3. Bjöm Þorbjörnsson.
Aðeins ein verðlavm. voru veitt í
þessari grein.
Þá var keppt í „slalom“, í A- og
B-flokki. Braútir beggja voru
jafnlangar, en braut B var nokkru
léttari með því að í henni var ekki
stuttur „vertikale" sem A-flokks-
menn urðu að smeygja sér í
gegnum. En „vertikale" er með
þyngstu raunum í „slalom“, —■
bein röð af rauðum og bláum
flöggum og verður skíðamaðurinn
að renna sér allsstaðar milli sam-
litra flagga.
Þrenn verðlaun voru veitt í
hvorum flokki og hlutu þau
þessir:
A-fl.:
1. verðl. Þórður Gunnarsson.
2. verðl, Magnús Árnason.
3. verðl. Björn Þorbjamarson.
B-fl.:
1. verðl. Hörður Bj ömsson.
2. verðl. Eggert Kristjánsson.
3. verðl. E. Þ. Guðjóhnsen.
Veður var stillt og bjart með 6°
frosti. Skíðafæri var hið ákjósan-
legasta, 10 cm. þykk mjöll ofan á
jafnföllnum eldri Snjó. Fjöldi fólks
var samankominn til þess að horfa
á skíðakappana. Kaffi var selt í
Útgarði og var þar gleðskapur
mikill.
Undanfarið hafa nepaendur æft
á hverju kvöldi frá kl. 8—10. Hef-
ir þeim verið skipt í flokka eftir
kunnáttu og leikni, og hverjum
flokki kennt það, sem við hans
hæfi er, enda hafa engin meiðsli
orðið, þó æft hafi verið hér niðri í
bæmun annað slagið, en vitanlega
er mikið snjóléttara hér neðra
heldur en uppi við skíðaskálann.
KIRKJAN: Messur um jólin:
Aðíangadagskvöld kl. 6, Akureyri
Jóladag kl. 11 f. h., Akureyri.
Sama dag kl. 2 e. h., Lögmannshl.
2. jóladag kl. 2 e. h„ Akureyri
(barnaguðsþj ónusta i.
Zíon: Almenn samkoma báða
jóladagana kl. 8y2 e. h. Al'lir vel-
komnir. Enginn sunnudagaskóli n.
k. sxmnudag.
Brynja nr. 99. Fundur miðviku-
daginn 28. des. á venjulegum stað
og tíma. Inntaka. Erindi. Nýr höf.
Allir félagar á áramótafund.
Bœjarstjórn Akureyrar hélt
fund í fyrradag. Aðeins eitt mál
var á dagskrá: Fjárhagsáætlun
bæjarins fyrir árið 1939, síðari
umræða. Umræður urðu langar og
var fundi ekki lokið fyrr en
nokkru eftir miðnætti. Við þessa
síðari umræðu hækkuðu niður-
stöðutölur gjalda og tekna um kr.
7400.00 og munaði þar mestu
gjaldamegin 5 þús. kr. fjárframlag
til samskólabyggingar fyrir Gagn-
fræðaskóla Akureyrar og Iðnaðar-
mannaskólann. Niðurjöfnun út-
svara eftir efnum og ástæðum fór
upp í 446860 kr. og er það mikið
hærri upphæð en nokkru sinni
fyrr. Niðurstöðutölur gjalda- og
tekjumegin eru 972310 kr„ eða
hátt upp í eina miljón kr.
U. M. F. Ársól skemmtir að
Munkaþverá 2. jóladag. — Hluta-
velta. Dans. Lýður spilar. Veiting-
ar fást á stsðnnm.