Dagur - 29.12.1938, Qupperneq 3
55. tbl.
DAGUR
229
NÝJA-BtÓ
Nýjársdag kl. 5 og 9:
Rosalie.
Amerísk söng- og dansmynd
í 10 þáttum.
Aðalhlutverkin leika:
Hin heimsfræga dansmær
Eleanor Powell
og hinn glæsilegi söngvari
Nelson Edsíy.
i
Skemmtileg og létt söngmynd
með ljölda stórfenglegra
danssýninga. Nelson Eddy
mun ölium ógleymanlegur
úr söngmyndunum »Rose
Marie* og »Vordraumur«. —
Eleanor Powell er ein fræg-
asta stepp dansmær sem
Ameríkumenn eiga og ágæt
leikkona.
Nýjársdag kl. 3:
Sigurvegarinn frá
Hampton Roads.
Ljósmyndastofan
í Gránuíélagsgötu 21
er opin frá kl. 10—6.
HVERGI ÓDÝRAR.
Quðr. Funch-Rasmussen.
Áramótamessur ■■ Gamlárskvöld
kl. 6, Akureyri. — Nýjársdag kl. 2,
Akureyri. Sama dag kl. 5, Glerár-
þorpi.
Kantötukór Akur'eyrar heldur
sína fyrstu æfingu á árinu, þriðju-
daginn 3. jan., kl. 8,30 síðd. í
Skjaldborg. Allir meðlimir óskast
mættir.
Dánardœgur. Aðfaranótt 26. þ.
m. andaðist hér á sjúkrahúsinu
Jón J. Jónatansson járnsmiður, til
heimilis í Glerárgötu 3 hér í bæn-
um. Jón heitinn var bilaður á
heilsu hin síðustu ár og lá síðast
þunga legu. Hann var 64 ára að
aldri, var kvæntur Þórunni Frið-
jónsdóttur frá Sandi, sem dáin er
fyrir allmörgum árum, og hafði
dvalið hér í bæ um 40 ára skeið
og stundað iðn sína. Jón sál. var
ætíð glaðlyndur maður og geð-
prúður, vinsæll og vel metinn af
öllum, er einhver kynni höfðu af
honum. Hann var Þingeyingur að
ætt og uppruna.
Frumsýning leiksins „Fróðá“,
eftir Jóhann Frímann, var í
Reykjavík 2. jóladag við mikla að-
sókn. Áhorfendur tóku leiknum á-
gætlega og voru leikendur þrisvar
klappaðir fram að leikslokum.
Slys vildi til vestur í Skagafirði
á 2. í jólum. Unglingspiltur féll
niður af vörubifreiðarpalli og
hlaut samstundis bana.
frá Úlfsbæ í Bárðardal.
(Fáein minningarorð frá æsku-
vini).
„Hverfi góðvinur sýn undir lík-
kistulín, þá finnst leitandi syrgj-
endum eitthvað til hjartnanna
kalla“.
Vigfús andaðist 27. ágúst sl.
Jarðarför hans fór fram að Ljósa-
vatni 7. september.
Hann var fæddur á Úlfsbæ 21.
sept. 1869 og dvaldist þar svo að
segja alla æfi. Með andláti Vig-
fúsar er fallinn í valinn vandaður
maður til orða og athafna, greið-
vikinn, gestrisinn og uppbyggileg-
ur bóndi sinnar sveitai’. Skóla-
menntun hlaut Vigfús enga i
æsku, enda örðugra þá um skóla-
göngu en nú. Þá voru flestir ó-
skiptir við heimilisstörfin og
máttu ekki þaðan missast.
Á þessum árum var Úlfsbæjar-
heimilið stórt og umfangsmikið.
Fénaðarferð feikna erfið og um-
fangsmikil. Eg var sem léttadreng-
ur iðulega með Vigfúsi heitnum
við fjárgeymslu, b'æði utan húss
og innan, og ýms störf önnur. Eg
minnist þess, hve barngóður hann
var og nærgætinn, og hve gott lag
hann hafði á því að gera verkin
aðgengileg og auðveld og vekja
keppni hjá hugsunarlitlum, leik-
gefnum krökkum. Trúmennska
hans og skyldurækni í smáu og
stóru kom alstaðar fram og var til
eftirbreytni. Fjármaður var hann
ágætur og fór vel með allar
skepnur. Hann innrætti bömum
kærleika til dýranna. Hann sagði
mér margar fallegar sögur um
dýrin,
Vigfús var ekki neinn sérstakur
brautryðjandi eða stórbrotamað-
ur og um hann stóð aldrei mikill
styrr í lífinu. Til þess var hann of
yfirlætislaus, óáleitinn og fáskipt-
inn um málefni, sem ekki snertu
hann beinlínis. Hann hafði líka í
mörg ár gengið með þann lasleika,
sem olli honum oft mikilla þrauta
og dró mjög úr lífsfjöri hans og
athöfnum.
Nú ertu horfinn, fomi vinur.
Eg sakna þín. Eg man, hve góður
þú varst mér sem umkomulitlum
dreng.
Vigfús var af góðu bárðdælsku
fólki kominn í báðar ættir. For-
eldrar hans bjuggu á Úlfsbæ í
mörg ár við hina mestu rausn.
Faðir hans, Kristján Jónsson,
Vigfússonar, sem búið höfðu á
Úlfsbæ hver fram af öðrum, var
hinn mesti dugnaðar- og kjark-
maður. Móðir Vigfúsar var Elín
Jónsdóttir, Sigurðssonar frá Lund-
arbrekku, hin mesta myndar- og
gæðakona. Meðal systkina Elínar
voru: Sigríður, móðir Hermanns
Jónassonar fyrrum skólastjóra;
Aðalbjörg, móðir Ingjaldar i
Gai’ðshomi og Jóns bónda Jóns-
sonar frá Mýri (Jón fluttist til
Ameríku laust eftir aldamótin
með börn sín. Aðeins ein dóttir
hans varð eftir heima, Aðalbjörg,
húsfreyja á Mýri); Ingibjörg, móð-
ir Sigurgeirs Tómassonar bónda á
Stafni og Jóels bónda á Arndísar-
stöðum; Davíð á Heiði, móðm’afi
Guðmundar Vilhjálmssonar fyrr-
um kaupfélagsstjóra á Þórshöfn
og Árna læknis á Vopnafirði. Sig-
urður, fyrrum bóndi í Hriflu, fað-
ir Elínar skáldkonu, sem dó i
fyrra. Þessi Lundarbrekkusystkini
voru fleiri.
Vigfús heitinn giftist laust eftir
aldamótin Hólmfríði Sigurðardótt-
ur, Eiríkssonar og konu hans, Her-
borgar Jónsdóttur — hinni mestu
dugnaðar- og rausnarkonu, sem
lifir mann sinn og veitir nú for-
stöðu veitingahúsinu á Fosshóli
Á Úlfsbæ stunduðu þau Vigfús
með S. Lúther, syni þeirra hjóna.
og Hólmfríður búskap yfir 30 ár
og farnaðist vel. Á lífi eru 3 synir
þeirra: Sigurður Lúther, bóndi á
Fosshóli, ógiftur. Jón bóndi á Úlfs-
bæ, giftur Guðrúnu Sigurbjarnar-
dóttur, þingeyskri að ætt. Krist-
ján, bílstjóri í Rvík, giftur Unni
Þorsteinsdóttur, ættaðri úr Dala-
sýslu.
Jarðaríarardagur Vigfúsar sál.
var heiðskír og fagux eins og æfi-
dagur hans hafði verið. Ásamt
söngflokknum þrumaði Goðafoss
kveðjuljóð til síns látna vinar.
1. nóvember 1938.
E. T.
Kvenfélagið Hlíf heldur áramóta-
dansleik í Skjaldborg á Gamlárs-
kvöld kl. 10.30. Allur ágóði rennur
til sumardvalar barna í sveit.
Nýlátinn er í Reykjavík Lúðvík
Sigurjónsson frá Laxamýri, bróðir
Jóhanns skálds og þeirra systkina.
Lúðvík var mörgum Akureyring-
um að góðu kunnur, síðan hann
dvaldi hér í bænum fyrir allmörg-
um árum.
Bamastúkurnar Sakleysið og
Samúð halda jólatrésskemmtun
fyrir meðlimi sína mánudaginn 2.
jan. kl. 5 síðdegis. Félagar vitji
aðgöngumiða sinna í Skjaldborg
kl. 10—12 f. h. sama dag, og er
mjög áríðandi að allir sæki þá á
þessum tíma, því aðgöngumiðar
verða ekki afhentir við inngang-
inn.
Vegna þrengsla geta aðeins með-
limir bamastúknanna fengið að-
gang.
Stúlka
óskast i vist, n ú
þegar, vegna foríalla
annarar.
María Ragnar§.
POLYfOlO myndastolaa
er opin virka daga kl. 9 — 12
og 1—7, sunnudaga kl 2—4.
U
érðbréfSbankim
Q ^cjsturstr. 5 sími 5652.0pi6 kl.11-12oc|4
kaupir kreppulánasjóðs-
bréf, veðdeildarbréf og
hlutabréf í Eimskipafé-
lagi íslands h. f. —
Annast allskonar verð-
bréfaviðskifti.
Maður drukknar. Gamall maður
á Siglufirði, Páll Björnsson að
nafni, hvarf frá heimili sínu á
Þorláksdagsmorgun. Var hafin leit
að honum og fannst hann drukkn-
aður við bryggju þar á staðnum.
I. O. O. F. = 12012309 =
Eldsbjarmi og leiftur sáust x
Mývatnssveit úr suðurátt skömmu
fyrir jólin. Var talið víst að hér
væri um eldgos að ræða í Dyngju-
fjöllum, sennilega í Öskju. Dynkir
heyrðust og frá Námaskarði og
jarðskjálfta varð vart alla leið
norður á Raufarhöfn. Bráðlega
féllu þó þessi fyrirbrigði niður og
einskis öskufalls varð vart. Hafi
því hér verið um eldgos að ræða
má um það segja, að oft verður
lítið úr því högginu, sem hátt er
reitt.
Hlutafélag er nýstofnað í
Réykjavík í því skyni að kaupa
nýtízku togara og gera hann út.
Hlutaféð er 125 þús. og má auka
það upp í 200 þús. án samþykkis
hluthafafundar. Hlutir hafa þegar
verið keyptir fyrir 100 þús. kr. í
félaginu eru bæði verkamenn og
sjómenn og ýmsir fleiri.
A jóladaginn var hér 11 stiga
hiti. Um sömu mundir voru frost-
hörkur og hríðarveður víða um
Evrópu.
flrauðarðmiðum
fyrir yfirstandandi ár verður að skila fyrir 20.
janúar næstk. á skrifstofur verksmiðja vorra,
Hafnarstræti 91, annars fyrirgera félagsmenn rétti
til arðs af viðskiptunum við Brauðgerð vora
þó að arði sé úthlutað.
Kaupfélag Eyfirðinga.