Dagur - 25.05.1939, Blaðsíða 1

Dagur - 25.05.1939, Blaðsíða 1
AFGREIÐSLAN DAGUR kemur ít á hverjum fimmtudsgi Kostar kr. 6.00 áig. Gjaldk. Árni Jóhannsson 1 Kaupfél. Eyfirðinga. Gjaldd. fyrir 1. júlí. er hjá Jóni Þ. Þór, Norðurgötu 3. Tal- simi 112. Uppsögn, bundin við áramót, sé komin til afgreiðslu- manns fyrir 1. des. XXII. árg. í Akureyri 25. maí 1939. 21. tbl. Stjórn Sambands ungra FramsóknarBaona tieldur MM á Akureyri í sumar. Ákveðið hefir verið að halda að- alftind stjórnar Sambands ungra Framsóknarmanna á Akureyri dagana 11.—17. júní næstkom- andi. Um þær mundir í fyrra var sambandið stofnað að Laugar- vatni. Aðalstjóm Sambandsins er skipuð 5 mönnum úr Reykjavík, en auk þess eiga sæti á aðalfund- inum einn fulltrúi úr hverju lög- sagnarumdæmi, þar sem starfandi eru samtök ungra Framsóknar- manna. Voru þessir fulltrúar, 23 að tölu, kosnir í fyrra á stofnþing- inu á Laugarvatni. Jafnframt er ráðgert, að þeim forystumönnum og áhugamönnum úr hópi ungra Framsóknarmanna, sem þess óska, verði veitt aðstaða til fundarsetu og hafi þeir þar málfrelsi og til- lögurétt. Má fastlega gera ráð fyr- ir, að ungir Framsóknarmenn úr nærliggjandi héruðum við Akur- eyri notfæri sér þetta, vegna hægrar aðstöðu um fundarsókn. Á aðalfundinum verða tekin til mnræðu og afgreiðslu mörg merkileg mál, bæði þjóðmál og þau málefni, er varða sambandið sjálft. Jónas Jónsson, formaður Fram- sóknarflokksins, og Eysteinn Jóns- son viðskiptamálaráð'herra, munu mæta á fundinum og flytja þar er- indi. Á því eina ári, sem S. U. F. hef- ir starfað, hefir það leyst merki- leg störf af höndum, og er bóka- útgáfustarf þess kunnast, auk þjóðmálanámskeiðsins í vetur. Um áramótin gaf það út fjórða bindi af ritgerðasafni Jónasar Jónsson- ar. Þó það rit væri gefið út í stóru upplagi, á 3. þús. eintök, er bókin nú þegar með öllu uppseld. Er nú í undirbúningi útgáfa næsta bind- is, sem hefir að innihaldi hinar nafntoguðu greinar frá ungmenna- félagsárum J. J., og mun það bindi væntanlegt í haust. Þá hefir S. U. F. og í hyggju að gefa út sögu Framsóknarflokksins, er J. J. hef- ir ritað. Verður sagan gefin út í heftum og kemur hið fyrsta ef til vill út þegar á næsta hausti. Hit aweital Beykja- víkur. Nýr skriður er kominn á hita- veitumál Reykjavíkur. Eins og fyr hefir verið getið, hefir danska firmað Höjgaard & Schultz gert Reykjavíkurbæ tilboð um fram- kvæmd verksins og boðist til að lána bæmun fé til framkvæmd- anna. Lánstilboð verkfræðingafirm- ans er að upphæð 6.8 milljón danskar krónur, og er þetta áætl- aður stofnkostnaður hitaveitunn- ar. Lán þetta á að endurgreiðast á skömmum tíma, eða á 8 fyrstu rekstursárum hitaveitunnar. Áætlað er að árleg greiðsla nemi rúmlega 1 milj. danskra króna og borgast þá lánið upp á tilsettum tíma. En á þessu 8 ára tímabili er áætlað að brúttótekjur hitaveitunnar nemi alls 8,7 milj. d. kr. og er þá reiknað með 'kola- verði 45 kr. d. fyrir tonn. Standist þessi áætlun, nægja því tekjur hitaveitunnar til greiðslu lánsins á 8 árum. Vextir af láninu eru minnst 4J/2% og mest 5%%. En auk vaxtanna á að greiða danska ríkinu 5% afföll af lánsupphæðinni, eða 340 þús- und krónur. Þegar hitaveitan er komin í allan Reykjavíkurbæ, er áætlað að árlegur kolaspamaður nemi 33.600 tonnum. Með kolaverði því, sem nú er, er talið láta nærri, að hitaveitan spari í erlendum gjald- eyri run 1.2 til 1.5 milj. kr. á ári. Gert er ráð fyrir að fram- kvæmdir hitaveitunnar hefjist þegar á þessu ári og að verkinu verði lokið í árslok 1940. Verktaki hefir 1. veðrétt í fyrir- tækinu með öllum réttindum til tryggingar árlegum greiðslrun, meðan lánið stendur. Ríkið skal ábyrgjast lánið og Landsbankinn árlegar yfirfærslur. Þó að lánstilboð þetta sé ekki eins hagkvæmt og æskilegt hefði verið, mun þó nokkurnveginn fullvíst að því verði tekið, og mun framkvæmd þessa mikla menn- ingarmáls vekja fögnuð, ekki að- eins höfuðstaðarbúa, heldur og allrar þjóðarinnar. Fermd vom í Akureyrarkirkju 92 börn síðastliðinn sunnudag. Snorri Sigfússon skólastjóri er farirrn utan í skólaerindtnn, Viðskiptamálaráðuneytið hefir nýlega tilkynnt að eftirtaldar vör- ur hefðu verið settar á „frílista“, þ. e. að ekki þurfi sérstök inn- flutningsleyfi fyrir þeim, þó að innflytjendur verði eftir sem áð- ur að tryggja sér gjaldeyri hjá bönkunum fyrir innflutningnum: Rúgur, rúgmjöl, hveiti, hveiti- mjöl, hafragrjón, hrísgrjón, banka- bygg, kol, salt, brennsluolíur, smurningsolíur, benzín, hessian, tómir pokar, prentaðar bækur, blöð og tímarit. Mun þetta nema hátt upp í þriðjung af öllum innflutningi til landsins. Þessar breytingar eru gerðar samkvæmt umtali milli stjóm- málaflokkanna í sambandi við þjóðstjórnarmyndunina. Er hér ekki um raunverulegar stórbreyt- ingar að ræða, þar sem á „frílist- anum“ em mestmegnis nauð- synjavörur, sem lítið hefir verið takmarkaður innflutningur á und- anfarin ár. Framsóknarflokkurinn hefir jafnan litið á innflutningshöftin sem nauðsynlega ráðstöfun vegna hins erfiða viðskiptaástands, sem ríkir og ríkt hefir, en að þeim bæri að létta af jafnóðum og ástæður leyfðu. Væri að sjálf- sögðu æskilegast að það ástand gæti skapast sem fyrst, að fleiri spor væri hægt að stíga í þá átt að létta innflutningshöftunum af með öllu. Akureyrarprestakall: Messur um hátíðarnar: Hvítasunnudag kl. 12 á hádegi: Lögmannshlíð (ferm- ing og altarisganga). — Annan hvítasunnudag: Akureyrarkirkju kl. 2 e. h. Ólafur Ólafsson, kristniboði, heldur eftirtaldar samkomur i Zíon: Fimtud. 25. maí, kl. 8%: Trúaðra samk. Föstud. 26. maí, kl. 8l/2: Alm. samkoma. Hvítasunnudag: Barnaguðsþjónusta kl. 10% f. h. Almenn samkoma kl. 4 e. h. Almenn samkoma kl. 8'/2 e. h. Annan hvitasunnudag: Almenn samkoma kl. 8% e. h. Miðv.d. 31. maí, kl. 8/2: Trúaðra samk. Föstud. 2. júní, kl. 8%: Almenn samk. Sunnudaginn 4. júní: Almenn samkoma kl. 4 e. h. Lokasamkoma kl. 8% e. h. Andlát Sigfúsar Einarssonar hefir vakið mikla eftirtekt meðal tónlistarmanna erlendis; svo þekktur var hann í heimi söng- listarinnar. í næsta blaði birtist væntanlega minningargrein um hið látna tón- skáld. Hfóndband. Á laugardaginn voru gefin saman í hjónaband í Reykjavík ungfrú Lovísa Frí- mannsdóttir frá Akureyri og Povl Thomsen bankamaður frá Kaup- mannahöfn. Brúðhjónin komu hingað með Dettifossi, en taka sér far með Dr. Alexandrine til Kaup- mannahafnar. Ferðafélag Akureyrar: 29. maí: Hringferðir í tveimur hópum. Ek- ið að Stóradal í Djúpadal. Gengið vestur Branda. Ekið að Gloppu í Öxnadal. Gengið austur Gloppuskarð. Mæt- ast þá hóparnir á fjallinu. Leið þessi liggur um eitt hið fegursta byggðalag landsins, um þröngan þverdal, yfir fjallgarð, þar sem víðsýni er mikið, og um dalinn, „þar sem háir hólar....“. Aukákosning á að fara fram í Austur-Skaftafellssýslu sunnud. 25. júní. Verður þá kosinn þing- maður í stað Þorbergs heitins Þor- leifssonar. Framboðsfrestur er til 4. júní. Dánardægur. Þann 18. þ. m. andaðist hér á sjúkrahúsinu ekkj- an Jóhanna Bjömsdóttir, Eyrar- landsveg 27. — Sama dag andaðist á sjúkrahúsinu María Jóhanns- dóttir, Spítalaveg 19, kona Sig- valda Þorsteinssonar sjómanns. Þann 14. þ. m. andaðist að heim- ili sínu, Engimýri í Öxnadal, Jón Jónsson fyrrum bóndi í Efsta- landskoti í sömu sveit. Á sunnudaginn andaðist að heimili sínu hér í bænum Sig- björn Bjömsson verkamaður, á áttræðisaldri. Síðastl. mánudag andaðist að heimili sínu hér í bæ Kristín Al- bertsdóttir, ekkja Hallgríms Hall- grímssonar útgerðarmanns. Pétur Gunnarsson, forseti Al- liance Francaise í Rvík kom hing- að með Drottningunni í gær. Mun hann halda hér fund og ræða um möguleika til stofnunar Alliance Francaise hér í bæ. Aflahrotœ var á Hornbanka nokkra daga um fyrri helgi. Þyrptust þá togararnir þangað á veiðar, þegar fiskisagan barzt. Síðan hefir verið þar reitingur.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.