Dagur - 25.05.1939, Side 2
84
D A G U R
21. tbl.
Sjávarútvegurinn.
Þorskafii togaranna
minni en nokkru
sinni áður.
Vonirnar um bœrilega
afkomu beinast nú
að sildveiðunum.
Sjávarútvegurinn greinist í tvo
aðalþætti, eins og 'hann er nú rek-
inn hér við land: Þorskveiðar og
síldveiði.
Eins og kunnugt er, hefir þorsk-
aflinn brugðist xnjög hin síðustu
ár, axík þess sem markaðshrun
hefir átt sér stað á þeirri útflutn-
ingsvöru á Spáni.
Samfara -þessum erfiðleikum
hefir verið gert mikið átak í síld-
veiðunum, sem bætt hefir nokkuð
upp þann fjárhagslega skaða, sem
hlotizt 'hefir af þorskaflaleysinu
og markaðshruninu.
Stj órnarandstæð ingar hafa á
undanfömum árum kennt vald-
höfimum um alla erfiðleika sjá-
varútvegsins eins og allt annað,
sem ekki hefir farið að óskum
manna.
Nú eru fyrverandi stjómarand-
stæðingar komnir í stjórnarað-
stöðu. Áðm sýndu þeir mátt sinn
í orði. Nú gefst þeim færi á að
sýna mátt sinn í verki. Aldrei hef-
ir verið meiri þörf fyrir það en
nú.
Ástandið með þorskveiðar tog-
aranna hefir aldrei verið jafn
aumt og nú. Afli þeirra eftir ný-
afstaðna vertíð minni en nokkm
sinni áður.
Fiskurinn er horfinn af hinum
venjulegu togaraslóðum. Fram
undir þessa tíma 'hefir verið litið
á Selvogsgrunn sem ömgga gull-
kistu, er ekki gæti brugðizt frem-
ur en gamalræktað tún hætti að
gefa af sér töðu. Á þessum einum
af beztu fiskimiðum heimsins, sem
kölluð hafa ' verið og það með
réttu, fæst nú varla uggi úr sjó.
Þegar aflinn brást svo átakan-
lega á hinum venjulegu fiskimið-
um í vetur, sendi ríkisstjómin
með stuðningi fiskimálanefndar 3
togara í fiskileit; leituðu þeir um-
hverfis landið og til Grænlands,
en því miður bar þetta engan ár-
angur. Lítur út fyrir að hvergi sé
togfiskur hér við land, hvað sem
því veldur. Þrátt fyrir þetta telja
fiskifræðingar og glöggskyggnir
menn á þessa hluti enga ástæðu
til að örvænta um þessi efni fyrir
framtíðina, fiskurinn komi von
bráðar aftur eins og jafnan áður,
þegar aflaleysistímar hafi þrengt
að kosti landsmanna.
Ofan á aflaleysið bætist svo það,
að sölumöguleikar á Spáni sýnast
alveg útilokaðir, þar sem landið
og þjóðin, sem það byggir, er flak-
andi í sárum eftir hina hræðilegu
styrjöld, er þar hefir geisað um
nærfellt 3 ár. Hafa sendimenn
verið gerðir út héðan til Spánar í
fisksöluerindum, en sú för engan
árangur borið. Aftur á móti hefir
tekizt að selja nokkurn slatta af
þessa árs framleiðslu saltfisks til
Ítalíu.
Þegar á allt þetta er litið eru
horfurnar um saltfiskveiðar og
sölu hinar ískyggilegustu nú sem
stendur. Þessi höfuðútflutnings-
vara þjóðarinnar er að mestu
gengin okkur úr greipum um
stundarsakir að minnsta kosti.
Hefði slík blóðtaka á þjóðarbú-
skapnum verið vituð fyrir nokkr-
um árum, myndu flestir eða allir
hafa verið þess fullvissir, að hún
riði þjóðinni að fullu. Vegna ötull-
ar bjargráðastarfsemi á öðrum
sviðum hefir þó raunin orðið önn-
ur og mun enn svo verða.
Enn hafa menn þá bjargföstu
trú, að síldin í sumar bjargi öllu
og bæti úr þeirri neyð, sem afla-
leysið á togurunum á síðustu ver-
tíð hlýtur að valda.
Útlit er fyrir, að þátttakan í
síldveiðunum í sumar verði meiri
en nokkru sinni fyrr. Talið er, að
vegna gengisbreytingarinnar fari
mörg skip á síldveiðar sem ella
hefðu að líkindum legið við land-
festar, þar á meðal flestir togar-
amir.
Talið er og, að verð á síld til
söltunar hækki nokkru meira en
gengisbreytingunni nemur, og
verð á bræðslusíld hækkar að
verulegum mim. Stjóm síldar-
verksmiðja ríkisins hefir gert þá
tillögu til atvinnumálaráðherra,
að verð á bræðslusíldinni í sumar
verði kr. 6.70 á mál. Er þetta verð
með því hæsta, sem verið hefir. í
fyrra var verðið kr. 4.50 á mál.
Árið 1937 var það 8 kr., en tap var
á verksmiðjunum það ár. Árið
1936 var verðið kr. 5.30 á mál.
Geta má þess, að þetta verð, kr.
6.70, er fasta verðið, sem greitt er,
ef síldin er keypt. Hinsvegar hafa
útgerðarmenn heimiid til samkv.
lögunum um rekstur síldarverk-
smiðjanna að taka hið svonefnda
vinnsluverð fyrir síldina. Verður
þeim iþá greitt 85% af áætlunar-
verðinu við afhendingu, en end-
anlegt verð síðar, þegar reksturs-
reikningar ársins liggja fyrir upp-
gerðir.
Enga fyrirframsamninga um
sölu matjessíldar frá þessu sumri
mun Síldarútvegsnefnd enn hafa
gert. En gert hefir nefndin út tvo
menn, þá Jóhann Jósefsson og Er-
lend Þorsteinsson, til utanfarar, til
þess að annast sölu matjessíldar.
Fara þeir til Póllands og Þýzka-
lands.
Aftur á móti hafa einstakir
saltendur gert talsverða fyrir-
framsamninga um sölu á saltsíld
og kryddsíld. Útlitið um síldar-
söluna í Svíþjóð er sízt talið verra
en verið hefir. í Mið-Evrópu er
allt í óvissu, vegna ófriðarblik-
unnar, sem þar er sífellt á lofti.
Frá Ameríku hafa enn ekki bor-
izt fregnir um markaðsútlit, en
Vilhjélm.yir Þgv mtrn vinna að sölu
vestra fyrir Síldarútvegsnefndina
eins og imdanfarin ár.
Mikill og margþættur undirbún-
ingur er þegar hafinn fyrir síld-
veiðarnar. Ýmsir búast við, að
síldin komi snemma að þessu
sinni, þar sem mikil áta sé þegar
komin í sjóinn.
Ríkisstjórn, Síldarútvegsnefnd
og stjórn síldarverksmiðjanna
hafa hrundið af stað ýmsum ráð-
stöfunum, til þess að greiða fyrir
veiðinni. Þannig var sú ákvörðun
tekin, að varðbáturinn Óðinn færi
til Norðurlands í þessum mánuði
í síldarleit og áturannsóknir.
Þá er og í ráði að fá flugvélina
T F Örn í síldarleit um tveggja
mánaða tíma, meðan á síldveiðum
stendur. Er gert ráð fyrir að
kostnaðurinn við för varðbátsins
og síldarleit flugvélarinnar verði
alls um 35 þús. kr., og er ætlazt til
að ríkissjóður, síldarútvegsnefnd,
ríkisverksmiðjumar og einkaverk-
smiðjur greiði þann kostnað að
jöfnum hlutum.
Þá er ætlazt til, að síldarverk-
smiðjur ríkisins verði tilbúnar til
þess að taka á móti síld í bræðslu
10.—15. júní.
Af öllu þessu er það ljóst að
hátt er reitt til höggs gagnvart
síldveiðunum í sumar og er von-
andi að árangurinn verði eftir því.
Veitir sannarlega ekki af úrbót-
um á hinum fádæma rýra afla
togaranna á síðustu vertíð.
Að lokum skal þess getið, að þó
afli togaranna að þessu sinni væri
enn rýrari en áður, þá er samt
heildaraflinn dálítið ríflegri en
hann var í fyrra. Munurinn er ná-
lægt 4 þús. smálestum.
NÝJA-BfÓ
Fimmtudagskvöld kl. 9:
íl
I
Afar fjörug og skemmtileg
mynd.
Aðalhlutverkin leika:
Joan Blondell
Og
Melwyn Douglas.
Niðursett verðl
Sýnd í siðasta sinn. I
I. O. 0. F. 1215269
Ljósmyndastofan
í Gránufélagsgötu 21
er opin frá kl. 10—6.
HVERGI ÓDÝRAR.
Guðr. Funch-Rasmussen.
Samkomur haldnar
í Verslunarmannahúsinu
Hvífa§nnnudag kl. 5
Efni:
Ný er tungan, nýtt er málið
Annan í Qvífasunnu
kl. 6,30
Velkomnir.
Karldkór Akureyrar syngur í
Nýja Bíó kl. 5 á hvítasunnudag.
Skemmtisamkoma verður að
Saurbæ kl. 8V2 annan hvítasunnu-
dag. Aðgangur 1 kr. Ágóðinn
rennur í ferðasjóð fullnaðarprófs-
barna í Saurbæjarhreppi.
Vil selja
Ianggrind og kerru.
Bförn Sigmundss.
K. E. A.
Prjónagarnið komið.
Hannyrðaverzlun
Ragnheiðar O. Björnsson.
■iwmwiHWHwmu
sRúmleppi |
g* ýmsat geiðit l«j
S við allra bæfiSS
Kaupfélag Eyfirðinga
Vefnaðarvörudeildin