Dagur - 28.09.1939, Qupperneq 1
DAGUR
kemur 'ií á hverjum
fimrntudJgi Kostnr
kr. 6.00 áig. Gj.ildk.
Arni JóhannssoB •
Kaupfél. Eyfirð*iga.
Gjaldd. fyrir 1. júli.
AFGREIÐSLAN
er hjá Jóni Þ. Þór,
Noróurgötu 3. Tal-
sími 112. Uppsögn,
bundin við áramót, sé
komin til afgreiðslu-
manns fyrir 1. des.
* *■-» e
► o * * • *
■ • *
XXII. árg. J
Akureyri 28. september 1939.
39. tbl.
- f «9 -Vð # —
Rannsóknar le i ðangur
Helga Valfýssonar.
Hún er t alin gíæsilegasta skip landsins.
Esja kom til Reylfcj,avíkur laust
íyrir hádegi s.l. föstutiag. Múgur
og margmenni fagnaiSi' hinu nýja
skipi Skipaútgerðar rík.isins. Er
íullyrt að ekki hafi orkað tvímæl-
is, að Esja væri glsesilegatsta skip
íslenzka skipastólsins. _____
Hún fékk ekki gjott sjóvjeður
hingað til lands, en xeyndist hið
ágætasta sjóskip.
í aðalatriðum er lýsiitig á skip-
inu á þessa leið:
Smíði skipsins allt er mjög
vandað. Með sérstökuni stálþilj-
um er skipinu deilt í írinm vatns-
þétt hólf og engin haeftta á að
skipið sökkva, þótt eitt þessara
hólfa fyllist af sjó. Brenrosluolíu
skipsins er komið fjfrir í háirylkj-
um og botnhylkjum. og rúma alls
180 smálestir. Hylki. fyrir neyzku-
vatn taka 38 smáleœtir. Bilið milli
ytra og innra byrpings er njptað
sem hleðsluhylki ásamt staifn-
hylkjum skipsinsH og rúma þau.
samtals 175 smále-stir af sjó.
Skipið er knúið af tveim
„diesel“-vélum og hefir hvor 1000
hestafla styrkleikja. Hraði þess er
mestur 15 mílur á klukkustund.
Auk þessa eru hjálparvélar, sem
framleiða' raforku fyrir aðalvél-
amar og ljósakerfi skipsins.
Vatnsþrýstikerfið er myndað af
tveim þrýstivatnshylkjum fyrir
kaldan sjó og heitt vatn og kalt.
Salemisdælur eru einnig fyrir
salemi skipsins. Til þæginda íyrir
farþega má með breytinginm á
vatnsmagni í háhylkjum og botn-
hylkjum, breyta jafnvægishiíut-
föllum skipsins og draga þannig úr
veltingi þess.
í skipinu eru klefar fyrir 160
farþega, flest tveggjte marnna
klefar. Á fyrsta farrými geta ver-
ið 88 farþegar, en á öðru farrýjni
72. Er mjög til farþfjgaxýmancna
vandað, loftræsting af nýjuíítu
gerð og allur útbúnaiður. að öðfcu
leyti í bezta lagi.
í eldhúsi skipsins má matreiða
handa 200 farþegum. 1
Á stjórnpalli eru íbújðir yfir-
manna, en vistarverui ■ Iháseta
undir bakkanum að frqrman.
Skipstjóri er hh|n. sami og 4
gömlu Esju, Asgeir Sigurðsson, og
skipshöfn að mestu hin sama.
Fyrir tæpum tveim árum gerði
Pálmi Loftsson, framkvæmda-
stjóri Skipaútgerðar ríkisins, til-
lögur til ríkisstjórnarinnar og Al-
þingis um að fá nýtt skip í stað
Esju. Á vetrarþinginu 1938 flutti
Jónas Jónsson þingsályktunartil-
lögu um heimild handa ríkis-
stjórninni að selja Esju og láta
byggja nýtt skip í hennar stað.
Var sú tillaga samþykkt. Litlu
síðar ákvað ríkisstjórnin að nota
heimildina og í maímánuði fór
Pálmi Loftsson utan þeirra erinda
að leita fyrir sér um smíði nýs
skips. Voru samningar um smíði
nýja skipsins undirskrifaðir í
október næsta haust. Eins og
kunnugt er var gamla Esja seld
kúr landi og er nú járnbrautarferja
í .Chile í Suður-Ameríku.
Nýja Esja verður undireins tek-
1 ín til strandferða. Á mánudags-
kvöldið lagði hún af stað frá
Rewkjavík aukaferð til Norður-
lantRs að vestan. Er þetta glæsi-
lega skip því væntanlegt hingað
alvegr á næstunni og mun ekki
síður íag.nað hér en á öðrum höfn-
um, þnr sem það kemur við.
Um mánaðamótin hefjast svo
reglulegar strandferðir Esju sam-
cvæmt áætlun.
Á styTj aldartímum er það venja,
að verð á skinnavörum stígurmjög
mikið. Þessi venja sýnist heldur
ekki æíla að bregðast nú. Sam-
band ísl. samvinnufélaga hefir
þegar byrjað að selja þessa árs
framleiðslu á gærum fyrir mjög
gott verð, og er allt útlit fyrir að
það fari hiækkandi fyrst um sinn.
Það getur því verið varasamt fyr-
ir sauðfjáreigendur að selja Pétri
og Páli gærur sínar fyrir fast-
ákveðið verð, og ættu þeir eins og
áður að fela K. E. A. þær til sölu-
meðferðar, þar sem vissa er fyrir,
að þar verða þær greiddar með
sannvirði.
Aðeins ÍOO hreindýr eru
ttl á íslandi.
Seinni hluta ágústmánaðar í
sumar fór Helgi Valtýsson rithöf-
undur að tilhlutun ríkisstjórnar-
innar suðaustur á öræfi til at-
hugunar á hinum íslenzka hrein-
dýrastofni. í rannsóknarleiðangri
þessum tóku þátt, auk Helga, þeir
Eðvarð Sigurgeirsson ljósmyndari
og Friðrik bóndi Stefánsson á
i rlóli í Fljótsdal, sem var fylgdar-
maður og þaulkunnugur á þessum
slóðum.
í sumar, er rannsóknin fór
fram, voru hreindýrin. öll í svo-
nefndum Kringilsárrana suður
undir Vatnajökli. Töldu þeir fé-
agar þar um 40 tarfa, 40 kýr og
20 kálfa. Öll voru dýrin mjög
óroskavænleg og báru vott um
kynfestu og engin hnignunar-
merki á þeim að sjá. Hefir þessi
rannsókn Helga Valtýssonar leitt
Dann leiða sannleika í ljós, að
hreindýrastofninn hér á landi er
orðinn mjög fáliðaður og hríð-
fækkar ár frá ári, þrátt fyrir
sæmilega viðkomu. Mun þessi
fækkun stafa af hreindýradrápt
um það leyti árs, sem dýrin halda
sig í grennd við byggð, því að
vetur hafa verið svo mildir að
undanförnu, að óhugsandi er að
þau hafi fallið fyrir harðræði frá
náttúrunnar hendi.
Endar í svívirðingu.
Innrás Rússa í Pólland mælist
hvarvetna hið versta fyrir sem
von er til og er talið eitt versta
níðingsbragð, sem mannkynssag-
an hefir að geyma. Jafnvel aðal-
málgagn kommúnista hér á landi,
Þjóðviljinn, hikar við að verja
hana. „Verkamaðurinn“ reynir
aftur á móti með botnlausu mál-
æði að halda því að lesendum sín-
um, að innrásin hafi einhvern
æðri tilgang, sem enginn skilji,
því vegir Stalins séu óskiljanlegir!
Blað eitt í New York fer svo-
felldum orðum um kommúnism-
ann í heild: „Kommúnisminn f
heiminum hefir endað í svívirð-
ingu. í Rússlandi hefir hann snú-
izt upp í nazisma. í Frakklandi
þar sem kommúnisminn var mjög
sterkur, er hann að deyja í hinum
andstyggilegu faðmlögum Hitlers
og Stalins",
Verður að gera gangskör að því,
að sá hreindýrastofn, sem enn er
til, sé varðveittur fyrir eyðilegg-
ingu af manna völdum.
Erlendar liegiiif.
Samkvæmt Þýzkum fréttum á
Varsjá að hafa gefizt upp eftir
látlausa fallbyssuskothríð á borg-
ina dag eftir dag. Þessu er þó
neitað í Varsjá og sagt að borgar-
júar verjist, meðan nokkur þeirra
er uppistandandi.
Eins og nærri má geta, er á-
standið í borginni hið hræðileg-
asta. Stórir hlutar hennar eru
lagðir í rústir og stórbrunar geisa
á mörgum stöðum. Manntjónið í
aorginni er gífurlegt og margs-
konar hörmungar þjá þá, sem eft-
ir lifa.
Eirm af kunnustu herforingjum
Þjóðverja, von Fritsch, er fallinn
við Varsjá.
Frá Moskva er tilkynnt, að full-
komið samkomulag hafi náðst um
skiptingu á Póllandi milli Rússa
og Þjóðverja.
- Forsætisráðherra Rúmeníu,
Calinescu, var myrtur í Bukarest
sl. fimmtudag af fasistum þar í
landi. Morðingjarnir voru teknir
höndum og drepnir miskunnar-
laust.
Brezk
lierna ðar f lug vél
með 9 manna áhöfn nauðlenti á
Raufarhöfn í fyrradag, vegna villu
í þoku.
Að tilhlutun dómsmálaráðu-
neytisins hefir flugvélin og áhöfn
hennar verið kyrrsett hér.
Flugmennirnir segjast hafa ver-
ið 5 klukkustundir í lofti, frá því
þeir yfirgáfu England.
KIRKJAN: Messað í Akureyrar-
kirkju n. k. sunnudag kl. 2 e. h.
Ferming.
Sundkeppni fer fram í sundlaug
bæjarins n. k. sunnudag, kl. 1.30
e. h. Ágóðanum verður varið til
styrktar þátttakendum frá Akur-
eyri á sundmeistaramótið í Rvík,
er hefst 9. okt. n. k.
Skákfélag Akureyrar heldur
fundi sína framvegis á mánudög-
um og föstudögum kl. 8V2 síðd.