Dagur - 16.11.1939, Page 1
DAGUR
kemur 'rt á hverjum
fimmtudsg: Kostar
kr. 6.00 áig. Qjaldk.
Árni Jóhannsson *
Kaupfél. Eyfirðinga.
Qjaldd. fyrir I. júlí.
Aí’GREIÐSLAN
er hjá Jóni Þ. Þór,
Norðurgötu 3. Tal-
sími 112. Uppsögn,
bundin við áramót, sé
komin til afgreiðslu-
manns fyrir 1. des.
9b ♦ ■# -♦ ■O’ -W'-w w~m-~
XXII. árg. J
Akureyri 16. nóvember 1939.
46. tbS.
Gfaldskrá
íyrir Rafveitu Akureyrar var til
síðari umræðu á fundi bæjar-
stjórnar 14. þ. m. og var þar
gengið frá henni. Fara hér á eftir
helztu atriði hinnar nýju gjald-
skrár, er almenning í bænum
einkum varðar:
Rafveita Akureyrar skal selja
raforku á þann hátt og við því
verði, sem hér segir:
A. LÝSING.
í>ar sem orkan er aðallega not-
uð til lýsingar skal hún seld:
1. Á heimilum má selja um
kílowattstundamæli samkvæmt
gjaldskrárlið B 2, þótt orkan sé
eingöngu notuð til ljósa.
2. Um kwst.-mæli á 60 aura hver
kflowattstund.
B. RAFMAGN TIL ALMENNRAR
HEIMILISNOTKUNAR.
Þar sem orkan er aðallega not-
uð til suðu eða hitunar í heimil-
um má selja hana:
1. Um tvenna mæla, annan til
Ijósa, hinn til suðu og hitunar. Á
ljósamælinn reiknast ljósagjald
samkv. A 2, en á hinn mælinn á
10 aura.
Suðu- og hitunartæki skulu
vera fasttengd. Þó má tengja
eldavél um sérstakan 25 amp.
eldavélartengil og hafa einn
tengil að auki í eldhúsinu fyrir
suðutæki, strokjárn og þ. h.
2. Um einn kílowattstimdamæli
fyrir alla notkun á heimilinu á
60 aura hverja kwst. fyrstu 2.5
kwst. á ári á hvern m" gólfflatar
íbúðarherbergja, en á 10 aura
hver kwst. fyrir næstu notkun,
þannig reiknað: 30 kwst. m2 á ári
á fyrstu 50 m2.
10 kwst. m2 á ári næstu 50 m2.
Notkun umfram þetta greiðist
með 6 aurum hver kwst.
Rafveitustjórn er heimilt að tak-
marka ákvæði gjaldliðs þessa
þannig, að gólfflötur heimilis
reiknist eigi yfir 20 m2 á hvern
mann á heimilinu. Þó skal til
þessa koma leyfi rafveitustjórnar
í hvert sinn. Við útreikning gólf-
flatar skal tekið tillit til ef um
súðarherbergi eða því líkt er að
ræða. Til íbúðarherbergja teljast
elclhús, en eigi gangar, baðher-
bergi eða geymslur.
3. Um einn kílowattstundamæli
fyrir alla notkun á heimilinu á 10
aura hver kwst. fyrir fyrstu notk-
un þannig reiknað:
2.75 kwst. á fermetra á mánuði
á fyrstu 50 fermetra.
Ein kwst. á fermetra á mánuði
á næstu 50 fermetra.
Notkun umfram þetta greiðist
með 6 aurum fyrir kwst. Auk
þes skal greiða fastagjald kr. 0.10
á ferm. á mánuði. Um ákvörðvm
gólfflatar gilda sömu ákvæði sem
í B 2.
í gjaldskránni eru ennfremur
margvísleg ákvæði um sölu raf-
orku til vélareksturs, hitunar o. fl.
Gjaldskráin gengur í gfldi 1.
janúar 1940.
Þó geta þeir, sem þess óska,
fengið heimilisnotkunartaxta frá
síðustu mánaðamótum.
Kolaverðið.
„íslendingur“, er út kom 10. þ.
m., skýrði svo frá:
„.... Verð á kolum hjá K. E.
A. hefir verðlagsnefnd ákveðið frá
og með deginum í dag 81 krónu
tonnið. Verðið helst hinsvegar
óbreytt hjá hinum kolaverzlimum
þangað til næsti farmur kemur“.
Næsta dag, 11. nóv., gaf „ísl.“
út svohljóðandi fregnmiða:
„í frásögn um kolaverðið hér í
bænum, er birtist í blaðinu í gær,
var rangt skýrt frá einu þýðing-
armiklu atriði.
Verölagsnejnd hejir samþykkt,
að kol hjá K. E. A. og Kolaverzl-
un Rœgnars Ólajssonar hœkkuöu
upp í 81 krónu hver smálest jrá
og með deginum í gær.
Þetta leiðréttist hér með“.
Banatilræði
var Hitler ríkiskanslara sýnt að
kvöldi 8. þ. m. í borginni Miin-
chen. Hafði hann verið staddur í
bjórstofu einni í borginni og flutt
þar ræðu. En er hann var nývik-
inn á brott þaðan ásamt ýmsum
nazistaforingjum, varð ógurleg
sprenging í húsinu og hrundi það
í rústir; fórust þar 7 menn en 6(
særðust og margir hættulega.
Hafði vítisvél verið komið fyrir
yfir kjallaranum og olli hún
sprengingunni.
Enginn vafi er á því talinn, að
sprengingunni hafi verið stefnt
að Hitler.
Háum verðlaunum hefir verið
heitið fyrir að koma upp um til-
ræðismennina og fjöldi manns
verið handsamaður. Hefir atburð-
iu' þessi vakið mikið umtal víða
um lönd og þykir sýnt, að ekki sé
aflt tryggt í Þýzkalandi.
Dimmur baer.
Seint á laugardagskvöldið
slokknuðu öll rafljós í Akureyrar-
oæ. Varð þá heldur skuggalegt
umhorfs á götum úti, en innan-
lúsa leitaðist hver við að bjarga
sér eins og bezt hann gat og var
oá einkum gripið til kertastubba,
er fyrir hendi voru. Ástæðan til
pessa myrkurs var krapastífla í
Laxá á virkjunarstaðnum. Var þá
Glerárstöðin fljótlega tekin í
notkun, en dauf þóttu ljósin, er
hún gaf. Rafveitustjóri fór með
hóp manna austur að Laxárvirkj-
uninni á sunnudaginn, til þess að
vinna að framræslu árinnar, og
miðaði því verki það áfram, að
seinni hluta mánudags tóku vél-
arnar til starfa. Birti þá yfir
bænum.
Vonandi er hér aðeins um
barnasjúkdóm að ræða.
Mjólkursölunefnd hefir á fundi
sínum í fyrradag ákveðið, að út-
söluverð á smjöri skuli vera 5 kr.
hvert kg„ en 4.60 kr. í heildsölu.
Þá hefir smjörlíki einnig stigið
mikið í verði og eru nú birgðii
þeirrar vöru mjög á þrotum vegna
hráefnaskorts; en hráefni í smjör-
líki er væntanlegt innan skamms
frá Ameriku, og eru þau dýrari en
áður hefir tíðkazt.
KIRKJAN: Messað í Akureyrar-
kirkju næstk. sunnudag kl. 2 e. h.
Barnastúkan Samúð heldru fund
næstk. sunnudag kl. 1.30 e. h. á
venjulegum stað. — A-flokkur
skemmtir og fræðir, — Félagar!
Fjölmennið!
Ungmennastúkan Akurlilje nr.
2 heldur fund í Skjaldborg næstk.
sunnudag kl. 8.30 síðd. Inntaka
nýrra félaga. Erindi. Útvarp frá
nýrri útvarpsstöð: tvísöngur, leik-
ur o. fl,
Dómur hefir verið uppkveðinn í
Bæjarþingi Reykjavíkur í málum
þeim, er þrír ráðherramir höfð-
uðu gegn ritstjórum Þjóðviljans
og áður hefir verið frá skýrt í
Degi. Var hvor ritstjóranna
dæmdur í 1050 kr. sekt í öllum
málunum og greiðslu málskostn-
aðar, en til vara í fangelsisvist, ef
sektirnar yrðu ekki greiddar. Um-
stefnd mnmæli dæmd dauð og
ómerk.
E.s. Snœjell slitnaði frá bryggju
á Siglufirði í ofviðri á þriðjudags-
morgun og rak inn á leiru, þar
sem það sat fast. Skipið losnaði af
sjálfsdáðum af grunni í gær, og
varð ekki vart við leka í því. Kaf-
ari fer héðan og athugar botn
skipsins.
Prentvillur hafa slæðst inn í
haustvísur í síðasta tbl.: í fyrstu
og næst síðustu vísu: Stofnamir
blikna, átti að vera Stofnamir
kikna, á báðrnn stöðiun. Ennfrem-
ur í 2. vísu: af lýðnum var sortans
gyðju bylt, átti að vera, af lýðn-
um var sortans gyðja hyllt.
Málverkasýningu opnar Frey-
móður Jóhannsson í K. E. A.-
salnum (uppi) næstk. laugardag.
Þarf ekki að efa að þar verður
margt fallegt að sjá.
Hlutavelta Gagnfræðaskóla Ak-
ureyrar og Iðnskólans verður
næstkomandi sunnudag í Sam-
komuhúsinu. Ágóðinn rennur í
kólabyggingarsjóð.
Veturinn er loks genginn í garð.
Vikutíma að undanförnu hefir
verið norðan og norðaustanátt
með nokkurri snjókomu og dálitlu
frosti og er nú jörð orðin alhvít.
Sjóorusta er talið að hafi átt sér
stað um síðustu helgi úti fyrir
Vestfjörðum. Sá fólk á Patreks-
firði og víðar þar um slóðir Ijós-
glampa af hafi og heyrði jafn-
framt hvelli, er líktust skothvefl-
um. Eftir fregmun að dæma lítur
út fyrir að þýzku skipi muni hafa
verið sökkt í þessari viðureign.
Riíssar em stöðugt eins og gap-
andi úlfar yfir Finnlandi og
heimta af þeim land undir flota-
stöð. Samningaumleitanir milli
þessara þjóða hafa engan árangur
borið og er þeim nú slitið í bili
að minnsta kosti. Moskvaútvarpið
og rússnesk blöð hella úr skálum
reiði srnnar yfir Fixma,