Dagur - 01.02.1940, Side 2
20
D A G U R
5. tbl.
Fjártiagsaætlyn
Akureyrarkaupstaðar fyrir yfir-
standandi ár var afgreidd á fundi
bæjarstjórnar 23. þ. m. — Tekj-
ur eru áætlaðar sem hér segir:
Eftirstöðvar frá f. ári 200000.00
Dráttar- og verðbréfa-
vextir 2750.00
Skattar af fasteignum 98500.00
Tekjur af fasteignum 54150.00
Endurgr. fátækrastyrkir 15000.00
Ýmsar tekjur 70250.00
Tekjur af vatnsveitunni 32000.00
Frá hafnarsjóði 55000.00
Framlag frá Trygginga-
stofnun ríkisins til elli-
launa og örorkubóta og
frá Jöfnunarsjóði 34000.00
Niðurjafnað eftir efn-
um og ástæðum 473550.00
Hluti bæjarsj.'af tekjusk. 12000.00
Samtals kr. 1047200.00
Gjöldin eru áætluð:
Vextir og afborganir lána 123450.00
Stjórn kaupstaðarins 44110.00
Löggæzla 16000.00
Heilbrigðisráðstafanir 6500.00
Þrifnaður 22000.00
Vegir og byggingarmál 21800.00
Til verklegra framkv.:
(Atvinnubætur) 75000.00
Fasteignir 21800.00
Eldvarnir 13440.00
Framfærslumál 181000.00
Lýðtrygging og lýðhjálp 136200.00
Menntamál 109600.00
Ýms útgjöld 51300.00
Rekustursútgjöl Vatns-
veitu Akureyrar 15000.00
Til hitaveiturannsókna 10000.00
Eftirstöðvar við árslok 200000.00
Samtals kr. 1047200.00
Bókavinir
Þjóðvinafélagið og Menning-
arsjóður hafa ákveðið að
gefa út í sameiningu þess-
ar bækur:
1. Aimanak pjóðvinafélagsins.
2. Antívari.
3. Barði Guðm.: Leitin að höf. Njálu
4. Huxiey fl.; Takmðrk og leiðir
5. Jðh. Sæm.: Aipýðieg heilsufræði
6. Hamsun. Sultur
7. L. Strachey: Vfktoria Englands-
drotning.
Verð allra þessara 7 bóka
er a ð e i n s kr. 10 oo
Bókasöfn og bókavinirt
Petta er einstakt bókatilboð.
Geristáskrifendur hið fyrsta.
Áskriftalisti liggur frammi í
Bókaversl.
Þ. Tborlacius
S-pilakeppni sú í Spilaklúbb Ak-
ureyrar, er hefjast átti mánudag-
inn 5. febrúar, hefir verið frestað
til mánudagskvöldsins 12. febr. —
Þátttökubeiðnum sé skilað til
keppnisnefndar eigi síðar en 7.
febrúar.
af ýmsum litum
Kaupfétag Eyfirðinga.
Vefnaðarvörudeild.
Vil kaupa gott _
Útvarpstæki.
Upplýsingar í síma 421.
Óskilahross.
Ung hryssa, grá að lit. Mark: Heil-
rifað hægra, fjöður fr. vaglskorið fr.
vinstra, er í óskilum í Saurbæjarhreppi.
Gefi réttur eigandi sig ekki fram inn-
an 4 vikna frá dagsetningu auglýsing-
ar þessarar, verður hún seld sem ann-
að óskilafé. Allar nánari upplýsingar
gefur undirritaður.
Melgerði 29. janúar 1940.
Ólafur Jóhannesson.
Guðsþjónustwr í Grundarþinga-
prestakalli. Saurbæ, sunnud. 11.
febrúar kl. 12 á hád., Grund,
sunnud. 18. febrúar kl. 12 á hád.,
Kaupangi, sunnud. 25. febr. kl. 12.
á hád.
Kreppuláoasióðsliréf
Óskast í skiptum fyrir Veðdeildarbréf.
Upplýsingar gefur
Bernb. Stefánsson
Strandgötu 5.
¥asabék,
með litprentuðum
landabréfum af öll-
um heiminum; nauð-
synleg öllum sem
fylgjast vilja með 1
ófriðarfréttunum
fæst i
Bókaversl.
Þ. Thorlacius
Haukur Snorrason:
Syningar Norðurlanda
í New York.
(Framh.).
I s 1 a n d.
Leiíur Eiríksson og Þorfinnur
Karlsefni stóðu vörð sinn hvoru
megin íslandsskálans. Það var
glæsilegur vörður og sæmandi
minningu þessara fræknu land-
könnuða í fyrsta sinn er íslend-
ingar komu fram sem sjálfstæð
þjóð í Vínlandi hinu góða.
Við fordyrnar er hið risavaxna
líkneski Stirling Calders af Leifi,
eftirlíking minnismerkisins sem
Bandaríkjastjórn færði íslenzku
þjóðinni að gjöf 1930 og nú stend-
ur á Skólavörðuholti í Reykjavík.
Við bakdyr var hin glæsilega
mynd Einars frá Galtafelli af Þor-
finni.
í skálaveggnum að baki Leifs er
greyptur heljarstór skjöldur sem
sýnir hnattstöðu íslands, Græn-
lands og Ameríku og leið Leifs,
en neðst á skildinum er upp-
hleypt mynd af víkingaskipi. Á
turninum vinstra megin skála-
dyra er skjaldarmerki íslands.
Þessi skreyting skálans, er snýr
að Friðartorgi, er í senn fögur og
sérkennileg. Eirliturinn á líkneski
Leifs, fótstalli og skildi naut sín
skemmtilega við hvítan vegginn
og allt hið ljósa umhverfi.
Mynd Leifs, höfðingleg og stór-
brotin. sást hvaðanæfa að af
Friðartorgi og dró athygli fólks
að sér.
Þegar inn úr dyrum er komið,
blasir við heljarstór salur, en á
hægri hönd liggja svalir stafna í
milli og eru breiðir stigauppgang-
ar við báða enda. Veggurinn á
vinstri hönd er sem næst óbrot-
inn, en hægra megin, undir svöl-
unum, ganga fram þrír bogar, sem
skipta hliðinni í þrjár nokkurn-
veginn jafnstórar deildir. Er sú
fremsta helguð fiskiveiðum ís-
lendinga, sú önnur landbúnaðin-
um og hin þriðja náttúru landsins.
Loft og veggir eru málaðir blá-
um lit, sem stingur mjög í stúf við
allt hið ljósa umhverfi utan dyra,
sem þreytt hefir augað, sérstak-
lega ef að sólin hefir hellt geislum
sínum miskunnarlaust yfir torgið,
snjóhvítar hallirnar og sundur-
leitan gestafjöldann,
Vinstri skálahliðin dregur fyrst
að sér athyglina. Gestirnir verða
varir við sífelldar ljósabreytingar
á veggnum og eitthvað, sem þar
er á hreyfingu, og staðnæmast því
á miðju gólfi og virða fyrir sér
þetta undur. Á miðjan vegginn er
þanið heljarstórt silkitjald, sem
tekur því sem næst frá gólfi til
lofts og langt til beggja handa.
Með sterkum og fögrum litum er
hnattstaða meginlands Evrópu,
íslands, Grænlands og Ameríku
máluð á tjaldið. í hornið vinstra
megin, efst, er stór hringur sem
sýnir norðurhvel jarðar, eins og
jarðkúlan væri flött út eins og
pönnukaka, og sjáum við síðar til
hvers þetta er gert. Neðst í hornið
hægra megin er komið fyrir les-
máli og skjaldarmerki íslands. Og
nú hefst æfintýrið á þessu
skemmtilega landabréfi. Ljósgeisli
í lögun eins og víkingaskip kvikn-
ar í rótum Breiðafjarðar og færist
hægt í áttina til Grænlands og
um leið segja ljósstafir neðar á
kortinu: „Eiríkur hinn rauði
finnur Grænland 982“. Gestirnir
fylgja nú ferð Leifs að suðurodda
Grænlands og norður með land-
inu vestanverðu. Þegar Eiríksfirði
er náð, hverfur ljósskipið eitt
andartak en birtist síðan aftur og
sígur nú út frá Grænlandi í áttina
til meginlands Ameríku og um
leið skýrir ljósaletur frá því að
þetta sé ferð Leifs til Vínlands
árið 1000. Skip Leifs nær landi og
siglir síðan suður með ströndinni
allt til mynnis St. Lawrence-
fljóts. Þá hverfur sýnin, en
skyndilega birtir yfir heljarstórri
upphleyptri mynd (diorama) við
vinstri enda tjaldsins. Hún sýnir
víkingaskip í góðum byr. í stafni
stendur Leifur Eiríksson og renn-
ir augum yfir hið nýja land fyrir
stafni, en að baki hans miðskips
sézt flokkur norrænna manna og
blikar á skildina. Þessi mynd er
öll hin fegursta og njóta menn
hennar stundarkorn. En skyndi-
lega dimmir yfir henni og nýtt
æfintýri hefst á tjaldinu stóra.
Ljósgeisli í lögun eins og flugvél
leggur upp frá New York, þræðir
norður ströndina, yfir Newfound-
land og á haf út, — yfir Grænland
sunnanvert og tekur stefnu á ís-
land. Ljósaletur segir þetta vera
flugleið Lindberghs 1933, Um leið