Dagur - 20.03.1940, Síða 1

Dagur - 20.03.1940, Síða 1
DAGUR kemur it á hverjum fimmtudegi Kostar kr. 6.00 úig. Gjaldk. Árni Jóhannsson < Kaupfél. Eyfirðinga. Gjaldd. fyrir 1. júlí. AFGREIÐSLAN er hjá Jóni Þ. Þór, Norðurgötu 3. Tal- simi 112. Uppsögn, bundin við áramót, sé komin til afgreiðslu- manns fyrir 1. des. XXIII • árg.j Akureyri 20. marz 1940 12. tbl. HuDdrað ára minning. Alþingi fékk löggjafar- og fjár- veitingavald með stjórnarskránni 1874. Fóru Norðlendingar þá þeg- ar fram á það, að skóli yrði settur á stofn á Möðruvöllum í Hörgár- dal, sem verið hafði amtmannsset- ur frá því á ofanverðri 18. öld. En 1874 brann amtmannsstofan öðru sinni, og flutti þá amtmaður á Akureyri. Fyrsta löggjafarþingið 1875 veitti fé nokkurt til þess að undirbúa stofnun slíks skóla, og á næsta þingi, 1877, var samþykkt frumvarp um skólastofnun þessa, og náði það staðfestingu konungs sama ár. En á næsta þingi, 1879, var samþykkt nýtt frumvarp til laga um Möðruvallaskólann, nokk- uð breytt frá hinu fyrra, og var staðfest af konungi hið sama ár. Þingmenn úr Norðlendingafjórð- ungi höfðu barizt mest fyrir skóla- stofnun þessari. Voru margir þingmenn henni andstæðir, m. a. af því, að stofnunin yrði allt of dýr fyrir landssjóð. Árið 1879 var skólahúsið reist á fyrgreindum stað, og hafði Tryggvi Gunnarsson kaupstjóri Gránufélagsins tekið að sér að koma því upp fyrir ákveðið verð, en Jón Stefánsson timburmeistari á Akureyri stóð fyrir að reisa það. Árin fyrir og um 1880 eru merkileg tímamót í sögu alþýðu- menntunarinnar á íslandi. Árið 1874 er Kvennaskólinn í Reykjavík stofnaður, 1877 hefsl alþýðuskólinn í Flensborg í Hafn- arfirði, 1879 hefst kvennaskóli á Blönduósi, árið 1880 byrjar Möðruvallaskólinn starf sitt, sama ár stofnar Torfi Bjarnason bænda- skóla í Ólafsdal og út eru gefin lög um fræðslu barna í skrift og reikningi, tveimur árum síðar tekur bændaskólinn á Hólum í Hjaltadal til starfa og 1883 er bændaskólinn á Eiðum stofnaður. Möðruvallaskólinn var settur í fyrsta sinn 1. október 1880 af Ste- fáni sýslumanni Thorarensen fyr- ir hönd Kristjáns amtmanns Krist- jánssonar. Skólastjóri var Jón Andrésson Hjáltalín. Hann var fæddur á Stað í Súgandafirði 21. marz 1840. For- eldrar hans voru Andrés Hjalta- son, síðast prestur í Flatey á Breiðafirði, og kona hans, Mar- grét Ásgeirsdóttir. Jón Hjaltalín útskrifaðist úr lærða skólanum í Reykjavík 1861 með I. einkunn. Þann 23. maí 1863 kvæntist hann og gekk að eiga Margréti Guð- rúnu, dóttur Jóns landlæknis Thorstensens. Árið 1864 útskrifað- ist Hjaltalín úr prestaskólanum með I. einkunn. Dvaldi hann svo tvö ár í Reykjavík og stundaði kennslustörf. Árið 1866 fóru þau bæði hjón til Englands og dvöldu í Lundúnum næstu ár, nema vet- urinn 1868—69 voru þau í Kaup- mannahöfn. Fékkst hann þessi ár við kennslustörf og ritstörf, er einkum snertu íslenzka tungu, og hélt fyrirlestra í ýmsum borgum á Englandi og Skotlandi um ís- land og íslenzkar bókmenntir. Þann 5. desember 1871 varð hann undirbókavörður við Advocates Library í Edinborg, en 19. nóvem- ber 1879 gerðist hann undirbóka- vörður við University Library í sömu borg. Þánn 30. júní 1880 var hann af konungi skipaður for- stöðumaður Möðruvallaskólans og kom heim til íslands í ágústmán- uði sama ár, eftir 14 ára dvöl er- lendis, þá fertugur að aldri. Möðruvallaskóla veitti hann for- stöðu, þar til skólahúsið brann 1902, en síðan fluttist hann með skólanum til Akureyrar og hafði forstöðu hans þar á hendi til haustsins 1908, er hann andaðist í októbermánuði. Hjaltalín kenndi jafnan ís- lenzku, ensku og sögu íslands og átti ætíð vinsældum og virðingu að fagna, bæði sem kennari og skólastjóri. Það var mikið happ fyrir Möðruvallaskóla að fá jafn víð- sýnan menntamann, til þess að veita honum forstöðu, sem Hjalta- lín var. í öllu skólastarfi hans héldust í hendur hæfilegur strang- leiki og frjálslyndi gagnvart nem- endum. Starf hans við skólann var brautryðjandastarf, og hann leysti það þann veg af hendi, að nú, á 100 ára afmæli hans, minn- ist þjóðin hans með þakklátum hug og djúpri virðingu. Honum tókst að gera skóla sinn að þýð- ingarmikilli menntastofnun, sem borið hefir margvíslega ávexti í þjóðlífi voru. Þó að Hjaltalín hefði dvalið langvistum með er- lendri stórþjóð, var hann ósvik- inn íslendingur, ramíslenzkur í anda og háttum. Einn af læri- sveinum Hjaltalíns, Páll J. Árdal skáld, minntist hans í kvæði, er hann flutti á minningarhátíð Möðruvallaskólans árið 1900, m. a. á þessa leið: „Þó byggir fjarri fósturgrund við fé og stöðu valda, þín ástin lifði alla stund til ættarlandsins kalda; þú vildir okkar allra heill og okkar gömlu móður, og aldrei hálfur vannst né veill, en vannst sem drengur góður“. Þenna fagra vitnisburð á Hjalta- lín skilið. Slíkra manna er ætíð gott að minnast. Hljómleikar. Samkór R. Abrahams efnir til hljómleika í Nýja Bíó á Páska- dagskvöld. Meðal verkefna má nefna: „Keisari nokkur mætur mann“, eftir S. Einarsson, „Tinda- fjöll skjálfa‘“ eftir Weber, „Svark- urinn“, nýtt lag fyrir bassasóló með kór, eftir söngstjórann, Gon- dolasöngur úr óperunni „Æfintýri Hoffmanns“, eftir Offenbach. Enn- fremur andleg tónverk eftir Brahms og Hándel og þættir úr sálumessu eftir Mozart. Einsöngvarar verða: Sigríður Guðmundsdóttir, Gunnar Magnús- son og Guðmundur Gunnarsson. Frú Jórunn Geirsson verður við hljóðfærið, og hafa þau, frúin og söngstjórinn, samleik á mörsum eftir Schubert. Vænta má ánægjulegra hljóm- leika eftir undanfarandi reynslu að dæma. Gjöf til Akureyrarkirkju: Frá ónefndum kr. 300.00. Þakkir. Á. R. Landsmót skíðamanna hefst hér á Akureyri á morgun (skírdag) og lýkur því 2. dag páska. Fer þar fram brekkuskrið, ganga, svig og stökk. í landsmóti þessu taka þátt keppendur frá níu félögum. Hin árlega skemmtun barna- skólans fór fram fyrir og um síð- ustu helgi. Voru skemmtiatriðin fjölbreytt að venju, söngur, upp- lestur, smáleikir o. m. fl., og skemmtu áhorfendur sér ágæt- lega. Ágóðinn rennur í ferðasjóð barnanna. Bríet Bjarn- héðinsdóttir Bríet Bjarnhéðinsdóttir andaðist í Reykjavík aðfaranótt síðasta laugardags, 84 ára gömul. Hún varð snemma þjóðkunn fyrir bar- áttu sína í kvenfrelsismálum o. fl. Hún var gift hinum kunna fræði- manni Valdimar Ásmundssyni rit- stjóra, er andaðist árið 1902. Börn þeirra eru Héðinn alþingismaður og Laufey Valdimarsdóttir. Látinn öldungur. Þann 17. þ. m. andaðist að Ási á Þelamörk öldungurinn Sigfús Jónsson 98 ára gamall, fæddur 10. des. 1841. Hafði hann fótavist allt fram til hins síðasta. Sigfús bjó fyrr á árum frammi í Saurbæjar- hreppi og síðar á Rangárvöllum í Glæsibæjarhreppi. Hann var tví- kvæntur, fyrri kona hans var Sig- urbjörg Jóhannesdóttir, en sú síð- ari Sigríður Þorkelsdóttir. Meðal barna hans og fyrri konunnar er Sigríður, ekkja Þorvalds Árnason- ar frá Villingadal, búsett hér í bæ, og Benedikt, bóndi á Hofi í Hörg- árdal. SeEma Lagerlöl, hin heimsfræga, sænska skáld- kona, er nýlega látin, 81 árs að aldri. Heimsfrægð sína hlaut hún fyrir skáldsögur sínar, svo sem „Gösta Berlings Saga“ og margar fleiri. Hún hlaut Nobelsverðlaun 1909. Nokkrar sögur hennar hafa ver- ið þýddar á íslenzku. □ Rún 59403276 == II MESSUR UM PÁSKANA: Skírdag kl. 5 e. h. Akureyri (altarisganga). Föstud. langa kl. 2 e. h. Akureyri Páskadag kl. 11 f. h. Akureyri Páskadag kl. 2 e. h. Lögmannshlíð 2. Páskadag kl. 11 f. h. Glerárþorpi (barnaguðsþjónusta). Dánardœgur. Oddur Sigurðsson, stöðvarstjóri og fyrrv. skipstjóri í Hrísey, andaðist 15. þ. m. 65 ára gamall.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.