Dagur - 20.03.1940, Qupperneq 4
50
DAGUR
12: tbl.
Gðil viíina - lágt kaup.
Þjóðverji, sem vann á íslenzku sveita-
heimili síðasti. sumar, óskar eftir at-
vinnu í sveit frá 1. maí til 1. sept.
n.k. Kaup eftir samkomulagi. Utaná-
skrift: Berner Klirsch, Þing-
holtsstræti 22 A, Reykjavík.
Kornyrkja.
(Framh. af 3. síðu).
jarðvegurinn, þótt hvorttveggja
sé að sjálfsögðu til.
Eg veit dæmi um það, að kornið
hefir fengið alltof MIKINN köfn-
unarefnisáburð, svo mikinn að
grasið lagðist á miðju sumri, og
kornið þroskaðist aldrei. Ennfrem-
ur hættir mörgum við að sá
seinna en hægt er, en þá er hætt
við að sprettutíminn verði of
stuttur. Hitt getur verið, að þar
sem snjóþungt er og seint vorar,
sé kornræktin alveg útilokuð á
því stigi, sem við nú erum í korn-
ræktunarkunnáttu okkar; því
verður reynzlan að svara.
Þá hefir kornið oft viljað fjúka,
ef hvassveður koma um það bil,
sem það er að þroskast. Hefir
mörgum hætt til þess að slá of
seint, eða ekki fyrr en kornið var
fokið af að meira eða minna leyti.
Þar sem ræktunin er ekki stór, er
auðvelt að slá á réttum tíma, og
forðast að því leyti fokhættuna,
sem mörgum stafar stuggur af, að
svo miklu leyti sem það er hægt.
Áhættan við kornrækt er mjög
lítil. Ef kornið þroskast, er til-
ganginum náð. Vilji svo óheppi-
lega til, að kornið þroskist ekki,
þá er hálmurinn með óþreskjaða
korninu svo mikils virði sem fóð-
ur, að hann borgar að mestu rækt-
unarkostnaðinn.
Tilraunir Ólafs Jónssonar hafa
sýnt, að þar er byggræktin ekki
nærri því eins áhættusöm ræktun
og kartöfluræktin. Þetta er atriði,
sem vert er að athuga, og það því
fremur, að engin ástæða er til að
ætla, að Ólafur Jónsson hafi
reiknað kornræktinni í vil fram
yfir það, sem tilraunirnar hafa
gefið tilefni til. Tel eg víst, að
þessar merkilegu tilraunir verði á
sínum tíma birtar almenningi.
Hitt er líka athugandi í sam-
bandi við þessa tilraun, að hið
lögboðna verð á kartöflum, sem
reiknað er með í tilraunum, er
mun hærra en hægt hefir verið
að fá útlendar kartöflur fyrir
fram að „stríðinu“, en íslenzka
byggræktin hefir ekki notið
neinna þvílíkra hlunninda enn
sem komið er, en bar þó hærri
hlut í þessari samanburðartilraun.
Þess ætti því að mega vænta,
að kornyrkjan, eða byggræktin a.
m. k., breiðist örar út en kartöflu-
ræktin, sem við höfum verið hátt
á aðra öld að læra, og að bygg og
e. t. v. fleiri korntegundir, ásamt
kartöflum, verði áður en langt
líður tvær hliðstæðar ræktunar-
plöntur, sem sjálfsagðar þykja á
hverjum bóndabæ.
Hér við Eyjafjörð er að vakna
mjög almennur áhugi fyrir korn-
rækt. 60 bændur hafa nú þegar
pantað útsæðisbygg hjá Kaupfél.
Kaupam
notuð glðs, flðshur og dósir, undan
vöruni irá Terksmíðfunni, séu uinbúð-
irnar hreinar, óskemmdar, dósir ekki
ryðgaðar o. s. frv.
Verð sem hér segir:
Júgursmyrsladósir
stærri kr. 0,20 stk.
minni — 0,15 —
Gljávaxdósir — — 0,15 —
—»— stærri — 0,20 —
Shampoglös — — 0,25 —
—»— minni — 0,20 —
Heilflöskur — 0,20 —
A. V. Shampoglösin því aðeins keypt
að heffan fylgi ógöliuð.
Sápuverksmiðfan SJÖFN Akureyri.
Skíðafatnaður alls-
konar, s vo se m:
Skiðasfakkar
Skiðabuxnr
skioapeysur
Skíðahutur
o. »i. fl.
Koupiél. Eyfirðinga
Vefnaðarvöcadeildin.
höfum við itii á miklu úrvaii.
Eyfirðinga fyrir næsta sumar.
Enda má fullyrða það, að hafi
nokkurn tíma verið ástæða til að
rækta okkar fóðurkorn sjálfir, þá
er það nú. Og við getum líka
ræktað byggið til manneldis, bæði
í brauð og grauta, og verður síðar
vikið að því. — Við höfum enga
vissu fyrir því, að geta fengið er-
lent fóðurkorn í framtíðinni eins
og hingað til hefir verið hægt.
Hitt er alveg víst, að verð á því
verður mjög hátt hingað komnu.
Á tímum, eins og þeim, sem nú
virðast framundan, virðist það
hart og næstum óafsakanlegt, ef
við gerum ekki tilraun í ræktun
harðgerðustu korntegundanna, til
að forðast skort á þeim fóðurteg-
undum, sem við getum ræktað
heima, og jafnvel til öryggisráð-
stöfunar okkur sjálfum, ef hinir
hörmulegustu tímar bæru að
höndum. (Framhald).
Erlingur Daviðsson.
Ritstjóri: Ingimar Eydal.
Prentverk Odds Bjömssonar.
T I I
Vanilledropar,
Citrondropar,
Kardemommudropar,
Rommdropar,
Möndludropar,
Kokosmjöl,
Succat,
Sætar möndlur,
Eggjaduft,
Oer,
Kardemommur,
Þurkuð bláber,
Kanel, heiíl og steyttur,
Vanillesykur,
Súkkulaði, 3 tegundir,
Vanille-extrakt,
Citronur á 20 au. stk.
og fleira, og fleira.
Kaupfélag
Eyfirðinga.
Nýlenduvörudeild.
ÚTIBÚ:
Stiandgötu 25,