Dagur - 27.06.1940, Blaðsíða 2
110
D A6UR
26. tbl.
Fyrir 50 árum.
Árið 1890 héldu Eyfirðingar há-
tíð til rainningar um 1000 ára
byggð í Eyjafirði og landnám
Helga magra, en talið er, að hann
hafi numið Eyjafjörð árið 890.
Hátíðahald þetta fór fram dag-
ana 20., 21. og 22. júní, eða fyrir
réttum 50 árum. Var því valinn
staður á Oddeyri, norðanvert við
prentsmiðju Björns Jónssonar.
Nóg var landrýmið á þeim stað,
því á allri Oddeyri munu þá að-
eins hafa verið 18 hús, en í Akur-
eyrarbæ öllum 600 íbúar. Þetta
þriggja daga hátíðarhald er talið
hafa farið mjög sæmilega fram og
mun hafa verið það mannflesta,
er nokkru sinni hefir háð verið
hér um slóðir. Fjölmenntu ekki
aðeins Eyfirðingar til Oddeyrar
þessa daga, heldur og Skagfirð-
ingar og Þingeyingar og talsvert
af fólki lengra að. Einnig var þar
nokkuð af útlendingum, og 9 eða
10 útlend skip voru inni á Akur-
eyrarhöfn þessa hátíðisdaga, þar
á meðal eitt franskt herskip, og
dundu frá því stórskotin til heið-
urs Eyfirðingum.
Þjóðskáldið Matthías Jochums-
son, hafði á hendi aðalforstöðu í
hátíðahaldinu. Ekki þótti honum
íslendingar fimir að fylkja sér
undir merki. Um það farast hon-
um svo orð:
„Próessían skyldi byrja kl. 11,
en nálægt klukkutíma töf varð, á
meðan menn voru að átta sig.
Hver hreppur hafði fána fyrir sig
á 5 álna stöng, og var enginn eins
og annar. Fylgdi sumum merkjun-
um óvígur her, en fyrst framan af
sást hjá sumum aðeins lítilfjörleg
þyrping, meðan hér og þar stóðu
einstakar hræður, ungir óvitar og
gamlir ofvitar og dalaskáld, sem
horfðu hissa á ósköpin og kunnu
ekki að „vera með“.
Gerð hafði verið áætlun um
kostnað þann, sem hátíð þessi
hefði í för með sér, og taldist svo
til, að hann mundi nema allt að
þúsund krónum. Hétu hinir ýmsu
hreppar í Eyjafjarðarsýslu fram-
lagi, til þess að standast þann
kostnað. Þá hafði amtsráðið lofað
100 kr. og Eyjafjarðarsýsla 50 kr.
í sambandi við hátíðina fór fram
sýning á sauðfé, en aðeins í smá-
um stíl.
Tjaldbúð allmikil var reist á há-
tíðarsvæðinu, var aðaltjaldið 30
áln. á lengd, en 10 á breidd.
Danspallur mikill var reistur
spölkorn frá aðaltjaldinu og
þar í nánd ræðustóll. Öll
tjöld, ræðustóll og danspallur var
skreytt uppdregnum flöggum og
skrautfánum, en limhríslur voru
settar niður allt umhverfis tjöld
og palla, og þótti það mjög prýða.
Á héraðshátíð þessari skemmtu
menn sér mjög við ræður og söng.
Helztu ræðumenn voru síra Matt-
hías, Davíð próf. Guðmundsson,
síra Jónas á Hrafnagili, Hjaltalín
skólastjóri, Skúli Thoroddsen, síra
Magnús í Laufási og Friðbjörn
Steinsson bóksali.
Fyrir söngnum stóðu þeir IVJagn-
ús Einarsson og Hallgrímur á Rif-
kelsstöðum.
Ýms fleiri skemmtiatriði fóru
fram, svo sem kappreiðir, glímur,
knattleikur og dans. Þá var og
sýndur á hverju kvöldi sjónleik-
urinn Helgi magri eftir síra Matt-
hías; fóru þær leiksýningar fram
niðri á Tanga, í stóru vöru-
geymsluhúsi, er Gránufélagið átti.
Tók húsið hátt á 4. hundrað áhorf-
endur.
Hér hefir nú örlítið verið dvalið
við endurminningar um héraðshá-
tíð Eyfirðinga fyrir nákvæmlega
50 árum, bæði vegna þess að þær
endurminningar munu þeim ljúf-
ar, er hátíðina muna, svo og til
þess að minna á, að á þessu ári er
1050 ára afmæli byggðar í Eyja-
firði.
í þessu sambandi er vert að
minna á eftirtektaverð orð, sem
þjóðskáldið góða, Matthías, mælti
á fyrgreindri héraðshátíð fyrir 50
árum, er hann í langri og snjallri
ræðu hafði rakið sögu Eyjafjarð-
ar. Skáldið mælti undir ræðu-
lokin:
„Hefðu Eyfirðingar stundað
samtök og félagsskap, þá væri hér
fullt af þjóðlegum stofnunum og
stórvirkjum, héraðið alskipað ak-
vegum, girtum og sléttum túnum,
fögrum engjum og fríðum bygg-
ingum — í stað allrar þeirrar
ómyndar og óræktar, sem vor arf-
ur var í, þegar oss var hann eftir-
l^tinn“.
Þannig vísar spádómsandi
skáldsins Eyfirðingum á mátt
félagssamtakanna sem undirstöðu
og driffjöður allra framfara. Og
Eyfirðingar hafa borið gæfu til að
snúa inn á þessa braut, leiddir af
anda félagshyggju undir forustu
ágætra leiðtoga. Og hver er árang-
urinn? Blasir hann ekki alstaðar
við? Draumsýn skáldsins hefir
orðið að virkileika. Héraðið er al-
skipað akvegum og ár brúaðar;
túnræktin margfölduð og túnin
sléttuð og girt. í byggingafram-
kvæmdum hefir orðið mikil breyt-
ing til bóta, þó langt sé þar eftir
af vegi. Því getur enginn neitað,
að Eyjafjarðarhérað hefir tekið
stórfelldum stakkaskiptum á síð-
astliðinni hálfri öld, bæði sveit-
irnar sjálfar og mannfólkið, sem
í þeim býr. En þá vaknar sú
spurning: Hvernig verður ástand-
ið að hálfri öld hér frá, á 1100 ára
afmæli landnáms Helga magra.
Um það skal engu spáð, en aðeins
á það bent, að það er, að svo
miklu leyti sem í mannlegu valdí
stendur, komið undir núverandi
og verðandi æskuJ.ýð þessa héraðs.
Það er hann, sem skapar sögu
Eyjafjarðar í framtíðinni. Það er
hann, sem á að finna hinn týnda
Vitazgjafa fornaldarinnar og leiða
hann fram í nýrri og fullkomnari
mynd þanpig, að allar sveitir
Eyjafjarðar verði einn samfelldur
gróðurakur, en þó umfram allt
annað með ræktun þegnlegra
dygða: göfugs .hugarfars og hreins
hjartalags.
Stúdents- 09 saoníræða-
próf voriö 1940.
Máladeild:
Axel Ólafsson (Vestm.) II. 5.50
Árni Árnason (V. ísaf) I. 6.63
Árni Finnbjarnarson (ís.) I. 6 46
Bjarni Rafnar (Ef.) I. 6.26
Björn Porbjörnsson (Rvíb) I. 6 78
Guðmundur Guðmundsson (Ef) I. 6.74
Haraldur Kröyer (Ak.) I. 7.33
Hákon Loftsson (Rvik) I. 6.47
Helga Jónsdóttir (Ef.) I, 6.18
Hjörtur Eldjárn (Ef.) I. 7.01
Hörður Ólafsson (ís.) I. 7.02
Iðunn Eiríksdóttir (ís.) I. 6.84
Jónas Rafnar (Ef) I. 6.91
Jón Árni Sigurðsson (Barð ) II. 5.68
Magnús Jónsson (Skag.) I. 7.12
Oddur I horarensen (Ak ) I. 6.16
Sigmar Torfas. (N.-Múl.) I. 7.02
Sigurður Áskelsson (Ak.) I. 7.01
Sigurður Guðmundsson (Ak) I. 6.03
Stefán Eggertsson (Ak ) II. 5,91
Örlygur Sigurðsson (Ak.) II 5,84
Utanskóla:
Kristm. Bjarnason (Skag.) II 5 34
Stœröfrœðideild:
Ásgeir Markússon (Dalas) II. 5.80
Björn Jónsson (Skag.) II. 5 89
Bragi Freymóðsson (Ak.) 1. 7.00
Erling Edwald (ís ) I. 6 82
Guðmundur Porsteinss (Ak.) I. 7.13
Haraldur Ásgeirss. (V, ísaf.) II, 5.93
Jakob Ffnnsson (V.-Isaf.) I. 6 80
Jón Skjöldur Eiríkss. (N.-Múl.) II. 4.65
Ólafur B. Guðnaundss. (Skag.) II. 4.95
Ragnar Thorarensen (Ak.) I. 7,15
Snorri Árnason iN.-Múl.) I. 6.46
Snorri Snorrason (V.-Skaft) I. 6.71
Trausti Pétursson (Ef) III. 4.33
Valgarður J. Ólafsson (Sigl) I. 6,62
Pórir Guömondsson (N-Múl.) I. 6.45
önundur Ásgeirsson (V.-ísaf.) I. 6,69
GAGNFRÆÐAPRÓF
vorið 1940.
1. Aðalsteinn Jónsson )Ak.) II. 5.72
2. Anna Friðriksdóttir )Ak.) II. 5.04
3. Arngrímur Jónsson (Ak.) I. 6.12
4. Ásgerður Karlsd. (Seyðisf.) I. 6.03
5. Áslaug Einarsdóttir (Ak.) II. 5.02
6. Ástríður Hallgrímsd. (Ak.) II. 5.65
7. Baldur Jónsson (Ak.) II. 5.6i
8. Baidur Magnússon (Hún.) I. 6.64
9. Barði Friðrikss. (N.-Þing.) II. 5.78
10. Bjöm Bjarman (Ak.) I. 6.01
11. Eðvarð Ingólfsson (Ef.) II. 5.59
.........................
Pakka hjartanlega
öllum, sem glöddu mig d 75
dra afmœli mínu.
Gudbjörg Guðmundsdóttir
Óddeyrargötu 3.
12. Einar Jónsson (S.-Þing.) II. 5.93
13. Elísabet Guðjónsd. (Ak.) II. 4.96
14. Eva Ragnarsdóttir (Árn.) 1. 6.86
15. Eysteinn Árnason (Ef.) II. 5.62
16. Friðjón Sigfússon (Norðf.) III. 4.46
17. Friðný Pétursd. (N.-Þing.) I. 6.16
18. Friðrik Þorvaldsson (Ef.) I. 6.76
19. Geir Kristjánss. (S.-Þing.) I. 6.87
20. Geir S. Björnsson (Ak.) II. 5.63
21. Gísli Pétursson (S.-Þing) I. 6.87
22. Guðmundur Skaftason (Ef.) I. 6.35
23. Guðrún Aspar (Ak.) I. 6.40
24. Gunnar Jörgensen (Sigluf.) I. 6.73
25. Gunnar Steindórsson (Ak.) II. 5.12
26. Halldór Helgason (Ef.) I. 6.09
27. Herm. Gunnarss. (N.-Múl.) I. 6.43
28. Hermann Pálsson (Hún.) I. 6.95
29. Hrólfur Sigurðss. (Skag.) II. 5.42
30. Hörður Helgason (Isaf.) I. 6.17
31. Jóhann Finnsson (V.-Isaf.) II. 5.73
32. Jóhann Jóhannsson (Isaf.) I. 6.22
33. Jóhanna Bjarnadóttir (Ak.) II. 5.14
34. Jóhanna Pálsdóttir (Ak.) II. 5.38
35. Jóhannes Tómass. (Vestm.) II. 4.96
36. Jóh. G. Þorsteinss. (Ak.) II. 4.53
37. Jón Einarsson (N.-Þing.) II. 5.20
38. Jón Ólafsson (S.-Múl.) I. 6.09
39. Jón Þorsteinsson (Ak.) I. 6.43
40. Jón Þorsteinsson (S.-Múl.) I. 6.89
41. Jónas Kristinsson (Rvík) II. 5.73
42. Karl Jóhannsson (Ak.) I. 6.78
43. Kristján Hallgrímsson (Ak.) II. 5.71
44. Margrét Gíslad. (Seyðisf.) II. 5.46
45. Margrét Indriðadóttir (Ak.) 1. 6.29
46. María Magnúsdóttir (Hún.) II. 5.91
47. Otto Ryel (Ak.) III. 4.05
48. Óttar Þorgilsson (Borg.) I. 6.06
49. Páll Árdal (Sigluf.) II. 5.74
50. Petrína Eldjárn (Ef.) II. 5.85
51. Pétur Þorsteinsson I. 6.29
52. Ragnar Halldórsson (Ak.) II. 4.68
53. Ragnar Karlsson (Ak.) I. 6.63
54. Sigurður Jónsson (Ef.) II. 5.59
55. Soffía Þorvaldsdóttir (Ak.) I. 6.54
5C. Sólveig Jónsdóttir (Skag.) I. 6.28
(Framhald á 4. síðu).
Ljósmyndastofan
í GRÁNUFÉLAGSGÖTU 21
er opin frá kl. 10—6.
HVERGI ÓDÝRAR.
GUÐR. FUNCH-RASMUSSEN.
1999919IVIVIVVVII
Dunhelt léreft
nýkomið.
Kaupfólag Eyfirðinga,
Vefnaðarvörudeild.
gniamimiMnm