Dagur - 31.10.1940, Blaðsíða 2
186
D A G U R
44 tbL
taf Ibocði
Peðin á
Stalins.
Nokkrum mánuðum áður en
stríðið brauzt út, vitnaðist það, að
Þjóðverjar ætluðu að senda hing-
að til lands skólaskip í kurteisis-
heimsókn. Við þessa fregn urðu
íoringjar kommúnista svo skelk-
aðir, að þeir grátbáðu íslenzku
ríkisstjórnina að gangast fyrir því
við stjórnir Breta og Bandaríkja-
manna, að þær tækju að sér að
vernda ísland fyrir þeirri voða-
legu hættu, sem koma þýzka
skipsins, Emden, hefði í för með
sér.
Þessi ótti hinna prúðu hetja
kommúnistaflokksins var að vísu
ástæðulaus, en hann sýndi þó, að
þá óskuðu kommúnistar eftir
hjálp frá lýðræðisþjóðum gegn
nazistisku ofbeldi.
Þetta hugarfar leiðtoga komrn-
únistanna stjórnaðist vitanlega af
því einu, að þeir töldu Stalin vera
á bandi Breta, en svarinn óvin
Hitlers og nazismans.
Ef vilji og óskir kommúnista
hefðu komizt í framkvæmd, hefðu
Bretar orðið að hertaka ísland,
með öðru móti gátu þeir ekki
veitt vernd þá, er kommúnistar
báðu um.
Svo liðu tímar fram, stríðið
skall á, og Bretar tóku að sér mál-
stað þeirra þjóða, er nazisminn
svipti frelsi sínu. Loks fram-
kvæmdu þeir í verki þá beiðni
kommúnista að vernda ísland fyr-
ir væntanlegum yfirgangi og kúg-
un þýzka nazismans, ekki fyrir
bænastað þeirra, heldur af hern-
aðarlegri nauðsyn, er Bretar töldu
á vera í þessu efni.
Kommúnistar báðu um vernd
á friðartímum. Því var ekki sinnt.
Nokkru síðar veita Bretar þessa
vernd óumbeðið á ófriðartímum.
Mátti nú ætla, að kommúnistar
létu sér vel lynda, en reyndin
hefir orðið nokkuð önnur. Síðan
Bretar veittu þá vernd, er komm-
únistaforingjarnir höfðu beðið
um, hefir naumast komið svo út
blað frá þeirra hendi, að það hafi
ekki flutt níð, róg og ósannindi
um brezka setuliðið hér á landi,
jafnframt skömmum um íslenzku
ríkisstjórnina fyrir, að hún skuli
ekki reka Breta burt af íslandi!
Er nú á nokkurn hátt hægt að
skýra þenna snarsnúning komm-
únistaforingjanna í afstöðu þeirra
til lýðræðisþjóðanna?
Skýringin er auðveld.
Leiðtogar kommúnista eru ekk-
ert annað en viljalaus peð á tafl-
borði Stalins. Rússneski einræðis-
herrann teflir þeim fram og aftur
eftir vild sinni. Margt hafði fyrir
komið, síðan kommúnistar báðu
um vernd Breta. Stalin sveik lýð-
ræðisþjóðirnar og batzt „órjúfandi
vináttu- og tryggðaböndum“ við
„blóðhundana“ þýzku, eins og
kommúnistar kölluðu foringja
nazista jafnan áður. Sem þæg
verkfæri Stalins eru þeir nú hætt-
ir öllu slíku tali um valdamenn
Þýzkalands, en snúa hrakyrðum
sínum að þeirri lýðræðisþjóð, er
þeir fyrir nokkru töldu ákjósan-
lega verndara sína.
í skjóli ófriðarins, sem Stalin
sleppti lausum með vináttusamn-
ingi sínum við Hitler, hafa Rússar
gripið tækifærið og lagt undir sín
yfirráð þrjú smáríki og rænt lönd-
um frá þremur öðrum ríkjum. Á
þann hátt hefir Stalin sýnt í verki
verndarhug sinn til smáríkjanna,
sem kommúnistar gumuðu mest
af. Þrátt fyrir þetta hafa komm-
únistar brjóstheilindi til þess að
benda á Stalin sem ákjósanlegast-
an verndara frelsis og sjálfstæðis
okkar íslendinga.
Með allt þetta fyrir augum er
það ekki undrunarefni, þó að
kommúnistar, þessi vesölu peð á
taflborði Stalins, hafi einangrazt
meir og meir í íslenzku þjóðlífi,
enda er nú svo komið, að enginn
utan þeirra flokks vill eiga tal við
þá lengur, en hjá hinu verður ekki
komizt með öllu, að tala um þa
einstöku sinnum og þann ógeðs-
lega málstað og málsmeðferð, er
þeir hafa valið sér.
Séra Magnús Helgason,
(Framhald af 1. síðu).
anda, skuli ekki hafa skrifað
meira fyrir alþjóð. En auk þess-
arar bókar hafa tvær aðrar kom-
ið út á prenti eftir séra Magnús:
Uppeldismál og Skólaræður, báð-
ar hin ágætustu rit.
Þegar séra Magnús flutti ræðu
var ekki hægt annað en hlusta,
og þáð sem meira var um vert;
það Var ekki hægt annað en
hugsa líka. Það var einhver ilmur
úr málí hans, einhver silfurtær
hljómur, einhver hlýja, sem við
bjugguni lengi að, og það fóru
allir ríkari út heldur en þeir
komu inn.
Freysteinn Gunnarsson, núver-
andi skólastjóri Kennaraskólans,
hefir sagt, að það hafi aðallega
verið þreiint, sem ráðið hafi lífs-
stefnu sérs Magnúsar og öllu han„
starfi, en 'pað var: Ástin á ætt-
jörðinni, iraustið á þjóðinni og
trúin á gvð. Úr þessum þáttum
voru allar ræður hans stungnar.
Á þessum þremur meginstoðum
var allt hans skóla- og uppeldis-
starf byggt.
ísland var alltaf fegursta landið
sem hanrt hafði séð, þjóðina gal
hann ekki hugsað sér öðru vísi en
hrausta, dáðríka drengskaparþjóð,
en yfir öllu þessu vakti svo guð
kærleikans, fyrir honum gat þetta
andlega karlmenni kropið í dýpstu
lotningu. Trúin á guð var dýrasta
perlan sem hann hefði kosið að
mega gefa hverjum einasta nem-
anda sínum að skilnaði.
Eg veit ekki hvernig hinn ytri
viðbúnaður verður, þegar séra
Magnús Helgason verður kvaddur
hér í síðasta sinn, en hitt veit ég,
að óteljandi hljóðar kveðjur þakk-
lætis og virðingar munu fylgja
honum, frá okkur nemendum hans
eldri og yngri. Þannig er gott að
mega kveðja, og þannig er gott að
koma heim.
Það sem ég svo að lokum vildi
segja er það, að ég get ekki óskað
íslenzkum skólum, íslenzkri kirkju
og hinu íslenzka þjóðfélagi neins
betra en þess, að andi og lífsskoð-
un séra Magnúsar Helgasonar
mættu marka þar sem dýpst spor.
Hannes J. Magnússon.
Minningarorð.
Með öldum útvarpsins barst sú
fregn, að séra Magnús Helgason
væri látinn.
Fyrir 28 árum hófust kynm
okkar. Hann var þá skólastjóri
Kennaraskólans, og eg þar læri-
sveinn. Þeir tímar fyrnast seint.
Við skólann störfuðu þá ýmsir
afburða kennarar. En hver þeirra
fór sínar leiðir og setti sinn svip
á kennslustundirnar, og verkaði
það á hugina líkt og tilbreytni
veðurfars og útsýnis, þegar horft
er yfir umhverfið af sínum sjón-
arhólnum hvert sinn.
Veðri var svo háttað í kennslu-
stundum séra Magnúsar, sem þíð-
ur andvari liði yfir sóluvermda
sveit. Staðið væri hátt í hlíð og
horft um dalinn endilangan. —
Gleymdist þá ekki að festa sjónir
á því, sem fagurt er. En ef að
auganu mætti eitthvað úfið og
grátt, var það ósjaldan að hann
tæki til að vinda af því viðjunum,
og brást þá aldrei, að á gullkorn
glitraði.
Yfir kennslustundum hans
hvíldi tign, festa og ró. Þar voru
myndir skýrðar, og mál rakin, af
þeirri frásagnarsnilld, sem fágæt
mun. Og eg hefi engan fundið,
hvorki fyrr né síðar, er svo hefir
leikið íslenzkt mál í munni, sem
honum. Það streymdi af vörum
hans, hreint og fágað, eins og tær
fjallalind.
Ef að útaf bar um háttprýðina
hjá okkur, og einhverjum fannsc
hann eiga vantalað við sessunaut,
þá stóð hann við, leit yfir hópinn
mildum augum, og varð þá sam-
stundis hljótt. Þar þurfti engra
orða. Engan refsivönd.
Eg kom heim til hans veturinn
1935. Þá voru liðin nálega 22 ár
í'rá því, að fundum okkar hafði
borið saman. Hann fylgdi mér til
dyra, og er við kvöddumst, sagði
hann:
„Nú sjáumst við ekki oftar“.
Þetta varð sannmæli.
En þeir munu margir vera, sem
ekki gleyma séra Magnúsi, þótt
hann sé horfinn sjónum.
Yfir minningu hans hvílir virð-
ing, ástúð og þökk.
Kristján Eggertsson.
í viðbót við það er kom hingað
í s.l. maí af norsku flóttafólki, er
nýlega komið til viðbótar rúmlega
20 konur og börn. Flest af þessu
fólki hefir fengið húsnæði; m. a.
eru 4 húsfreyjurnar með 12 börn
sín á Svalbarði. Hér í bænum hafa
2 fengið húsnæði, en vegna hús-
næðiseklunnar í bænum hefir
ekki tekist að útvega sérstakar
íbúðir fyrir tvær konur með tvö
börn og eina einhleypa eldri konu.
Norska konsúlatið hefir óskað
þess, að það yrði látið vita um, ef
mögulegt væri að fá leigt, þó ekki
væri nema eitt herbergi í stað
með aðgangi að eldhúsi, handa
fólki þessu.
Um helgina kemur út 25 ára af-
mælisrit íþróttafélagsins Þór hér
á Akureyri, og verður það til sýn-
is, ásamt verðlaunagripum félags-
ins, í glugga Polyfoto, Strandg. 1.
Rit þetta er 64 blaðsíður í stóru
broti með fjölda mynda, og er
pappír og allur frágangur þess
mjög vandaður. í það skrifa marg-
ir menn um íþróttamál og er það
því gott heimildarrit um þróun
íþróttahreyfingarinnar hér á Ak-
ureyri síðastliðin 25 ár.
Á sunnudaginn verður gengið
með ritið um bæinn, en þar sem
upplag þess er mjög takmarkað,
er mönnum ráðlagt að tryggja sér
það í tíma.
Á Ijósmyndastofunni í
GRÁNUFÉLAGSGÖTU 21
getið þér fengið nýmóðins
Kombinaíionsmyndir
og margar fleiri gerðir, sem hvergi
fást annars staðar
Guðr. Funch-Rasmussen.
■wiwwnnmwmM
Karlmannanærföt
aí öllum stærðum, nykomin.
Kaupfálag Eyfirðinga.
Vefnaðarvörudeildin.
25 áfa aliiiælisfit
íþróttafélagsins Pór.