Dagur - 05.06.1941, Page 3

Dagur - 05.06.1941, Page 3
22. tbl. DAGUH 93 Ummæli Norðurlandablaða um ákvörðun Alþingis 17. maí Pjiegur flokkur. Fyrir nokkrum árum lét Stalin ófrið- lega og skók hnefana framan í Hitler. Þá máttu kommúnistar hér ekki sjá hakakross án þess að íroðufella. Rúss- nesk blöð skrifuðu þá illyrði ein unt naz- ismann. Þá birtust í hverjum »Verka- manni« svívirðingagreinar um nazistana, óvini verkalýðsins nr. 1. Rússar töldu sig þá vera verndara lýðræðisins og smáríkjanna. Þá ritaði Steingrhnur margar hjartnæmar greinar um frelsi. og lýðræði. Rússar töldu sig vilja frið á jörðu. Steingrímur og Jakob spenntu friðarbogann og skutu heiptarörfum að ófriðarseggjunum í Japan. Stalin gerði hlutleysissamning við Hitler. »Verkamaðurinn« hætti að skrifa svívirðingar um Þýzkaland. Rússar réðust aftan að Pólverjum með her manns. »Verkantaðurinn« skrifaði hólgreinar um þetta sniðuga dirfsku- bragð. Stalin fór ineð styrjöld á hendur Finnum. Friðarvinirnir i »Verkamannin- um« fundu sárt til þess, að Rússar skyldu hafa þurft að verja sig. Rússar gera hlutleysissamning við Japani. »Verkamaðurinn« birtir fregnir af þvi, Hreinlætið í bænum. Fyrir Hvítasunnu lét lögreglu- stjóri festa upp áskoranir til hús- eigenda í bænum um það að þrífa til kringum hús sín, og var þess ekki vanþörf. Heilbrigðisnefndin fór síðan eft- irlitsferð um bæinn og segir að víðast hafi menn tekið vel undir þessa áskorun lögreglustjóra og sá nefndin ekki ástæðu til athuga- semda nema á 2 stöðum í bænum. Lögreglustjórinn fyrirskipaði að tafarlaust yrði bætt úr vanræksl- unni á þessum 2 stöðum. Væntanlega hefir það verið gert. Sfómannadagurlnxi. Sjómannafélögin hér í bænum gangast fyrir hátíðahöldum í til- efni sjómannadagsins n.k. sunnu- dag. Hefst hátíðin með guðsþjón- ustu í kirkjunni klukkan 10 f. h., en eftir hádegi fer fram kappróð- ur og stakkasund hjá Torfunefs- bryggju og reiptog, knattspyrna o. fl. á íþróttavelli „Þórs“. Merki verða seld á götunum allan dag- inn. Lystigarðurinn er nú opinn fyrir almenning daglega. Er garðurinn skínandi fagur, tré laufguð og blóm að springa út. Vert er ennþá einu sinni að brýna fyrir fólki að góð umgengni í garðinum er nauðsyn- leg, ef hann á að geta orðið til þeirrar gleði, sem til er ætlazt.. Börn mega ekki ganga um garð- inn eins og hann sé leikvöllur, því það er hann ekki, og sinnuleysi og ónærgætni í þeim efnum getur eyðilagt mikið starf við hirðingu garðsins og ánægju þeirra, sem æskja þess að eiga þar friðland í umhverfi hins fegursta gróðurs. Akureyrarrrevyan verður leikin í síðasta sinn um næstkomandi helgi; aðsókn hefir verið mjög mikil, en sumir leikendur eru á förum úr bænum, og er þess vegna ekki hsegt að leika oftar hversu vel riki verkalýðsins reynist Kína. Stalin tekst að gera vináttusamning við Jugo-Slava, rétt áður en Hitler vin- ur hans sigar á þá herjum sínum. Stein- grímur og Jakob verða glaðir við, er þeir sjá hversu vel Rússum fórst þar við lítilmagnann. Stalin rekur burt frá Moskva sendiherra Jugo-Slava. Stein- grími og Jakob finnst rétt af honum, og þó fyrr hefði verið. Rússar selja Þjóðverjum olíu og stríðsnauðsynjar, og Stalin og Hitler skiptast á nefndum og blíðubrosum. Steingrínuir ritar svívirðingar um helztu óvini Hitlers. Stalin styður helzta óvin verkalýðsins til valda í heiminum. Ritstjórar »Verkamannsins« reyna hvað þeir geta til þess að veikja máttarstoðir síns eigin þjóðfélags og búa jarðveginn undir þá nýskipan, sem konia skal. Því hefir verið haldið fram i »Þjóð- viljanum«vsálaða og »Verkamanninum«, að Sameiningarflokkur alþýðu, sósíal- istaflokkurinn, væri stjórnmálaflokkur, sem berðist fyrir þjóðlegri menningu, réttlæti, lýðræði og kjarabótum fyrir verkalýðinn og þjóðina alla. Stefnumál hans væru af innlendum toga spunnin; það væri aukaatriði hvað gerðist úti í heiminum. Þetta er líklega alveg rétt. 71. ÓDÝRASTAR eru kartoflurnar hjá • Eggert Einarssvni. Armbandsúr hefir tapast á leiðinni frá Menntaskól- anutn að Eyrarlandsvegi 12. Finnandi er vinsamlega beðinn að skila því á afgreiðslu b'aðsins. Kartðflnr komu með Esju. — Kaupfél. Verkamanna Stóðhestur. Hrossaræktarfélagið »Fákur« í Arnarneshreppi hefir til afnota þriggja vetra graðhest, sem er undan fyrstu verðlauna hesti, frá þessum tíma til júníloka. — Hesturinn verður á Björgum fyrst um sinn. Afnotagjald er kr. 8.00, sem greiðist um leið. 20. maí 1941. S t j ó r n i n. lapast hefir af vörubfl lítil handtaska, frá benzínafgreiðslu K.E.A. inn í bæ. Finnandi skili á benzín- afgreiðslu K.E.A. Rauð hryssa, afrökuð og klippt í nárum, 2ja vetra, var bjargað frá drukknun á Hörgárgrunni. Geymd á Gæsum. Sendisveitarí'ulltrúi Islands í Stokkhólnii, Vilhjálmur Finsen, hefir sent utanríkisráðuneytinu ít- arlega greinargerð um þær undir- tektir, sem samþykktir Alþingis í sjálfstæðismálinu hafa fengið. Hefir ráðuneytið birt greinagerð þessa og fer *hér á eftir kafli úr henni: „BERLINGSKE TIDENDE“ segja í ritstjórnargrein, að í raun og veru hafi ekki verið hreyft við status quo, því að ís- land lýsi því yfir, að það telji ekki enn tímabært að slíta sambandinu formlega. Skipun ríkisstjóra er ekki annað en praktisk ráðstöfun. Blaðið lítur svo á, að stefna Jón- asar Jónssonar, sem miði að alger- um sambandsslitum, hafi nú þegar beðið ósigur við samþykktir Al- þingis. En tíðindi þessi séu hins- vegar dönskum íslandsvinum ekk- ert gleðiefni. Blaðið segist þó vona, að þau bönd, sem tengja bæði löndin saman, verði ekki að fullu sundur slitin. Sambandið milli íslands og Danmerkur sé báðum til gagns og dýrmætur þáttur í hinni norrænu samvinnu, en mikilvægi þessarar samvinnu hafi ekki minnkað á þessum al- varlegu tímum, sem nú ganga yfir. BÖRSEN skrifar þannig: „Það sþor, sem Alþingi hefir stigið, vekur mikinn sársauka. Við höfðum ekki getað hugsað okkur þann möguleika, að ísland notaði sér erfiðleika Danmerkur til þess að segja skilið við hana með skír- skotun til vanefndaásambandslaga- sáttmálanum af hálfu Danmei’kur, þegar litið er á það nauðungar- ástand, sem Danmörk á nú við að búa. Með tilliti til þess verður ekki annað en viðurkennt, að danska stjórnin sé saklaus. ísland er sjálft hernumið land. Þess vegna hefði átt að mega vænta þess, að það tæki meira tillit til Ðanmerkur, . án þess þó að það fyrirgerði á nokkurn hátt sjálfsá- kvörðunarrétti sínum“. „NATIONALTIDENDE" segir: „Það, sem ísland hefir ákvarð- að, er í raun og veru ekki annað en það, að áskilja sér öll réttindi, en halda hinsvegar sambandinu til ófriðarloka eða segja því upp með fyrirvara. Engu að síður vekur það form, sem ákvörðuninni hefir verið valið, nokkra undrun í Dan- mörku, Danmörk vill ekki hindra ísland í því, að ráða sér sjálft. En við skiljum ekki, hvers vegna ís- land lýsir nú þegar yfir þeim vilja sínum að verða lýðveldi, þar eð svo virðist, sem uppsögn sam- bandslagasáttmálans samkvæmt þeim ákvæðum sambandslaganna, i sem þar um fjalla, ætti að fara á undan slíkri yfirlýsingu“. SÆNSK BLÖÐ. Sænsku blöðin hafa yfirleitt far- ið mjög vinsamlegum orðum um samþykktir Alþingis. „STOCKHOLMS- TIDNINGEN“ skrifar: „Síðustu tengslin, sem hingað til hafa bundið saman tvö af hinum norrænu löndum, hafa verið rof- in. Eftir það standa Norð- urlöndin fimm hlið við hlið, án nokkurra annara tengsla en þeirra, sem við köllum norrænt bræðralag. Vissulega mun ísland ekki hugsa til þess að bindast brezka ríkinu neinum nánari böndum. Vissulega mun það ekki hafa í hyggju að skiljast við Norð- urlönd. Og vissulega munu sam- bandsslitin ekki vekja neina beiskju né óvináttu í garð íslend- inga hjá Dönum, sem alltaf taka svo mikið tillit til réttinda annara þjóða“. „SVENSKA DAGBLADET" segir í ritstjórnargrein, að óþarft hafi verið af Alþingi að gera slíkar samþykktir nú. Blaðið spyr hvers vegna þær hafi verið gerðar að næturlagi; hvort hinir háfleygu íslendingar hafi hugsað sér að gefa þessum ákvörðunum sínum eitthvert dramatiskt form. Sam- þykktirnar hafi þó ekki getað ver- ið neitt undrunarefni fyrir menn á íslandi, en fyrir Danmörku séu þær hinsvegar hálfgerður sorgar- leikur. Blaðið lætur þá von í ljós, að ísland haldi eftir sem áður á- fram að skoða sig í hóp með öðr- um Norðurlöndum, því að þau séu öll grein af sama stofni, hvort heldur á sögu þeirra, tungu eða menningu sé litið. „AFTONBLADET" telur samþykktir Alþingis ekki í samræmi við norrænt stolt o, s. frv. Tíminn væri svo óheppilegur, sem hugsazt gæti, til innbyrðis á- taka á Norðurlöndum. Blaðið læt- ur þá skoðun í ljós, að samþykktir Alþingis muni standa í einhverju sambandi við það, að Bretar hafa hernumið ísland og segir síðan: „Ef einmitt undir slíkum kring- umstæðum er sagt skilið við Dan- mörku, er ástæða til að óttast, að það geti leitt til þess, að landið verði í framtíðinni lagt í fjötra, sem eru allt annars eðlis en nokkrir þeir, sem þekkzt hafa undir norrænum himni“. Blaðið segir ennfremur, að „Reykjavík- urpólitíkin“, eins og það kemst að orði, muni með þessu frumkvæði ‘sínu ekki verða til annars en að særa gamla, sögulega hefð, og lík- ur grein sinni með þeim ummæl- (Framhald á 4. síðu).

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.