Dagur - 20.08.1942, Side 4
4
Fimmtudaginn 20. ágúst 1942
ÚB BÆ OG BYGGÐ
Kirkjan. Messað í Akureyrarkirkju
kl. 5 næstk. sunnudag.
Dánardæ&ut. Eggert Einarsson
kaupmaður hér í bæ andaðist snögg-
lega að Laugaskóla s.l. föstudag.
Eggert var fæddur 5. jan. 1876 og
var því 66 ára. Hann útskrifaðist úr
Mööruvallaskóla 1897. Fór síðan ut-
an og lærði gosdrykkjagerð á
Mineralvandfabrik í Stavanger.
Stundaði hann síðan þá iðn hér í bæ
um 40 ára skeið.
Hann var glaðlyndur röskleika-
maður og tryggur vinum sínum.
Eggert var kvæntur Guðlaugu Sig-
fúsdóttur, er lifir mann sinn ásamt 6
uppkomnum börnum þeirra.
Leiöróttmgar. í nokkrum hluta
upplags síðasta tölubl. var byrjun
greinarinnar „Vísitala og verðlag" á
þessa leið: Siðan gengishækkunin var
staðfest, en átti að vera: Síðan geng-
islækkunin o. s. frv.
I sömu grein var verðhækkun rúg-
mjöls og hveitis í hundraöshlutum
ekki nákvæmlega rétt. Rugmjöls-
hækkunin átti að vera 106%, en
hveitishækkunin 58%.
Þá er enn í sömu grein töluvilla í
2. 1. aö neðan á 3. d. 1. s. Rétt er tal-
an 127,65 aurar, sbr. niðurstöðutölu
á 3. síðu.
Andlátsíregn. S.l. laugardag lézt
eftir stutta en þunga legu á sjúkra-
húsi Siglufjaröar Eugenius Porsteins-
son, Þorkelssonar hreppstj. í Olafs-
firði. — Eugenius heitinn var aðeins
35 ára gamall, hinn mesti myndar- og
dugnaöarmaður, vel látinn og virtur
af öllum, sem kynntust honum.
Fimmtugur varð Steingrímur Hans-
son, verkstjóri hjá Skinnaverksmiðj-
unni „Iðunn“ hér i bænum, þann 17.
þ. m. — Steingrímur er ættaður úr
Köldukinn, en hefir dvalið larigvist-
um hér í bænum. Hann stundaði nám
við gagnfræðaskólann hér en gerðist
síðar brautryðjandi í jarðabótafram-
förum hér um slóðir. Varð hann fyrst-
ur manna hér til þess að nota sláttu-
véi. Þótti Steingrímur hverjum manni
röskari og forsjálli við hvers konar
jarðabótavinnu.
Árið 1933 réðist hann til dr. Lauge
Koch, hins danska heimskautakönn-
uðar, og fór með leiðangri hans til
Grænlands og öðru sinni órið eftir.
Dr. Koch rómaði mjög karlmennsku
og dug Steingríms, er heim kom. .
Steingrímur hefir gegnt verkstjóra-
störfum hjá Skinnaverksmiðjunni
„Iðunni“ síðan 1935 og nýtur trausts
og vinsælda í því starfi, sem öðrum
er hann hefir tekið sér fyrir hendur.
Aðalíundur félagsins „Berklavörn“
verður haldinn næstk. mónudagskvöld
kl. 8.30 í Verzlunarmannafélagshús-
inu. Formaður „Berklavarnar" hefir
beðið blaðið að vekja athygli á því,
að æskilegt er, að sem flestir, sem
áhuga hafa fyrir starfsemi SIBS, sér-
staklega þeir, serii einhverntíma hafa
notið hælisvistar vegna berkla, gangi
í félagið og gerist þannig virkir þátt-
takendur í baráttu Sambandsins fyrir
málefnum berklasjúklinga.
íkviknun. S.l. sunnudagskvöld
kviknaði í kjallara hússins nr. 105 við
Hafnarstræti hér í bænum út frá flot-
potti á eldavél. Slökkviliðið kom á
vettvang og tókst því fljótlega að
slökkva eldinn, en töluverðar
skemmdir urðu á innanstokksmunum.
Eigendur hússins eru Jakob S. Kvar-
an og Gísli Eylert.
Hjúskapur. Nýlega voru gefin
saraan í hjónaband af séra Þormóði
Sigurðssyni á, Vatnsenda ungfrú
María Brynjólfsdóttir símamær og
Skúli Bjarkan cand. phil. Ennfremur
voru nýlega gefin saman af séra
Friðrik Rafnar vígslubiskup hér ung-
Alþingi§>
Ríkisstjórnin lofaði því, að
þingið skyldi verða ósköp stutt;
aðalverkefni þess væri ekki
annað en endursamþykkja
„réttlætismálið“ og fitja síðan
upp á lýðveldisstjórnarskrá..—
Þingið hefir nú staðið í hálfan
mánuð, og stöðugt rignir mál-
unum yfir það, flestum í þings-
ályktunarformi. Skulu hér
nefndar nokkrar slíkar tillögur
auk áður um getinna:
Till. til þingsál. um ríkis-
ábyrgð á láni til aukningar raf-
veitu Akureyrarkaupstaðar, —
um drykkjumannahæli, — um
rannsókn á lendingarbótum í
Oræfum, — um vegagerð inn
með Patreksfirði, — um brúar-
gerðir á Barðaströnd, — um
samgöngur milli hafna á Breiða-
firði, Rvíkur og kauptúna V.-
Barðastrandars., — um ríkis-
ábyrgð á láni til aukningar raf-
veitu Isaf jarðar og Eyrarhrepps,
— um styrki til byggingar
fiskiskipa, — um kaup á sér-
stakri gerð bifreiða til fólks-
flutninga undir Ólafsvíkur-
Enni, — um brúargerðir á vötn
í A.-Skaftafellssýslu, -— um til-
högun flutninga á langleiðum,
um brúargerðir á vötn í V,-
Skaftafellssýslu, — um ráð-
stafanir til þess að tryggja ísl.
bjargræðisv. vinnuafl, — um
innfl. véla í fiskibáta, — um
vélar og efni í fiskibáta, — um
rannsókn á lendingarbótum í
Vík í Mýrdal, — um brúargerð
á Djúpá í Fljótshverfi, — um
raforkumál, — um undanþágu
frá greiðslu á benzínskatti, —
um rannsókn á því, á hvern hátt
bæta megi úr neyzluvatnsskorti
í ýmsum kauptúnum landsins,
— um brúargerð á Svelgsá, —
um vegagerð á Snæfellsnesi, —
um að leita samninga við verk-
lýðssamtökin um kaup og kjör
í opinberri vinnu og allsherjar
vinnumiðlun og um undirbún-
ing löggjafar um átta stunda
vinnudag og vinnuvernd, —
um vöru- og farþegaflutninga
með ströndum fram, — um
samninga við verklýðssamtök-
in til að tryggja nauðsynleg-
ustu framleiðslu þjóðarinnar, —
um flutningastyrk til hafnleys-
ishéraða landsins.
Þá skulu nefnd nokkur frum-
vörp auk þeirra, er áður hefir
verið skýrt frá:
Frv. til 1. um kosningar til Al-
þingis, — um lendingarbætur á
Skálum, — um raforkusjóð, —
um br. á 1. um hvíldartíma há-
seta á ísl. botnvörpuskipum, —
um lögreglumenn, — um br. á
framfærslulögum, — um br. á
1. um alþýðutryggingar, — frv.
til hafnarl. fyrir Grundarf jörð.
Öll þessi máladrífa á örstuttu
þingi bendir frekar á uppboðs-
þing en Alþingi.
frú Guðrún Hermannsdóttir og Char-
les Gaunt setuliðsmaður. Þá gaf ka-
þólskur herprestur hér á staðnum ný-
lega saman ungfrú Laufeyju Her-
mannsdóttur og William Reeve setu-
liðsmann.
DAGUR
30-40 liestar
af góðu útheyi til sölu. Upp-
lýsingar hjá
Tryggva Stefánssyni, skósmið.
Nýlegt peysupils (klæði) ósk-
ast. Fornsalan.
SÁ,
sem getur útvegað íbúð, 1—2
herbergi og eldhús, getur feng-
ið nýja rafmagnseldavél keypta.
Snorri Pálsson múrarameist-
ari, Holtagötu 5, vísar á.
Héraðssamband eyfirzkra
kvenna vantar tvær stúlk-
ur næstkomandi vetur til
hjálpar á heimilum. Gott
kaup. Allar nánari upp-
lýsingar gefur
GUÐRÚN JÓNASDÓTTIR,
Möðruvöllum.
Amerískar
vekjara-
og
eldhús-
ktukkur
margar tegundir.
Kaupfél. Eyfirðinga
Járn- og glervörudeild.
SILFURKROSS tapaðist á leið út
Brekkugötu í gær. — Finnandi beðinn
skila á B. S. O. gegn fundarlaunum.
Þýzkap
flugvélar
gerast nú tíðir gestir hér við
land. í tilkynningu frá amerísku
herstjórninni í gær, er sagt frá
því, að þýzk flugvél hafi gert 5
árásir á brezkan togara hér fyrir
Norðurlandi s.l. þriðjudags-
morgun. Togarinn slapp lítt
skaddaður. Síðar sama dag gerði
þýzk flugvél árás á vita á Norð-
urlandi, segir í tilkynningunni,
og urðu lítilsháttar skemmdir á
honum. Litlu síðar var gerð
árás á annan vita, en tjón varð
ekkert. Mönnum er enn í fersku
minni árás Þjóðverja á vitann
á Grímsey á Steingrímsfirði fyr-
ir nokkru síðan. Lítur helzt út
fyrir að hafin sé skipuleg eyð-
ingarstarfsemi á leiðarmerkjum
sjómanna hér við land. Þýzk
flugvél flaug yfir Reykjavík á
þriðjudaginn og var gefið
hættumerki þar.
Þökkum auðsýnda samúð og hluttekningu við andlát og jarð-
arför Baldvins Sigurðssonar frá Höfða.
Aðstandendur.
Kauptaxti
Undirritaðir múrarar lrafa ákveðið að grunnkaup múrara verði
frá 15. þ. m. kr. 2,30 um klst., að viðbættri fullri dýrtíðaruppbót.
Akureyri, 12. ágúst 1942.
Jakob Snorrason. Guðm. Magnússon. Stefán Aðalsteinsson.
Fggert Ólafjir Eiríksson. Stefán Halldórsson. Óskar Gíslason.
Einar Sveinsson. Pétur Gunnlaugsson. Kristján Mikaelsson.
Snorri Pálsson. Þórður Aðalsteinsson. Bjarni Rósantsson.
Asgeir Austfjörð. Jón B. Jónsson.
KAUPTAXTI
Við undirritaðir pípulagningamenn höfum ákveðið að frá 15.
ágúst verði grunnkaup okkar kr. 2,25.
Akureyri, 18. ágúst -1942.
Gestur Pálsson. Ólafur Magnússon. Sveinbjörn Lárusson.
Björn Júlíusson. Sveinn Tómasson.
Jörðln Kálfagerði
í Saurbæjarhreppi fæst til kaups. Verðtilboð sendist fyrir 15. sept-
ember n. k. til undirritaðs, sem gefur allar nánari upplýsingar.
Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er, eða hafna öllum.
Akureyri, 18. ágúst 1942.
Hólmgeir Pálmason, Munkaþverárstræti 3.
Frá landssímanum
Tvær stúlkur verða teknar til náms við stöðina
hér frá 1. sept. n. k.
Eiginhandar umsóknir, með upplýsingum um
aldur og menntun sendist undirrituðum fyrir 25.
þessa mánaðar.
Símastjórinn á Akureyri, 18. ágúst 1942.
GUNNAR SCHRAM.
Kápuefnt
i nýkomið, í miklu úrvali.
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
V ef naðarvörudeild.
TíIIboH óskast
fyrir 22. þ. m., í að gera hreinan barna-
skólann fyrir 5. september n. k. Upplýs-
ingar hjá dyraverðinum.
SKÓL AST J ÓRINN.
Frá barnaskólanum
%
Kennsla hefst í skólanum 8. sept. n. k.
kl. 10 f. h. Mæti þá öll 7, 8 og 9 ára börn,
sem sækja eiga skólann í vetur.
19. ágúst 1942.
SNORRI SIGFÚSSON.