Dagur - 17.09.1942, Blaðsíða 1
Vikublaðið DAGUR
Ritstjórar: INGIMAR EYDAL,
JÓHANN FRÍMANN.
Afgreiðsla, auglýsingar, innheimta:
Jóhann Ó. Haraldsson.
Skrifstofa við Kaupvangstorg.
Sími 96.
Árgangurinn kostar kr. 8,00.
Prentverk Odds Björnssonat.
XXV. árg.
Akureyri, fimmtudaginn 17. september 1942
49. tbl.
Mót áhuga-
manna
um uppeidismði 09 anu-
leoa menningu.
TNNRÁS BANDAMANNAá meginlandið er talin .óhjákvænii-
-*■ lcg af hernaðarsérfræðingum. Hinumegin við Englandshafið,
sem er hulið þoku mestan júní og júlí, en bjartara næstu 2 mánuði,
eru nazistar að byggja virki sín bak við hina brimóttu strönd, sem
í sjálfu sér er virki frá náttúrunnar hcndi. Hér er mynd af innrás-
arströndinni og löndunum bak við hana.
Stórfelld hækkun á
mlólkurvörum.
Dagana 13.—15. sept var hald-
Íð á Akureyri mót áhugamanna
úr stétt presta, kennara og leik-
manna úr Skagafjarðar-, Eyja-
fjarðar- og Þingeyjarsýsluin. —
Sóttu mót þetta 11 prestar, 20
kennarar og 13 leikmenn.
J7UNDUR þessi hafði verið undir-
búinn af sérstakri nefnd. — Hófst
mótið með guðsþjónustu. Prédikun
flutti séra Páll Þorleifsson á Skinna-
stað, en vígslubiskup, séra Friðrik J.
Rafnar, þjónaði fyrir altari.
Kl. 5 síðdegis á sunnudag hófust
svo fundarhöld í kirkjukapellunni.
Formaður undirbúningsnefndar, séra
Páll Þorleifsson, Skinnastað, setti
fundinn, og tilnefndi sem fundar-
stjóra séra Friðrik A. Friðriksson,
prófast í Húsavík og Snorra Sigfús-
son skólastjóra, en fundarritara
Hannes J. Magnússon kennara.
Þessir menn fluttu framsöguerindi
á mótinu:
Séra Benjamín Kristjánsson.
Séra Friðrik A. Friðriksson pró-
fastur.
Pétur Sigurðsson erindreki.
Séra Friðrik J. Rafnar vígslubiskup
Snorri Sigfússon skólastjóri.
Öll þessi erindi fjölluðu um ein-
hver menningarleg vandamál á sviði
kirkju- og skólamála. — Sérstaklega
viku ræðumenn að þeirrn alvarlegu
upplausn, sem víða yrði nú vart í
menningarlífi þjóðarinnar, og hvernig
uppalendum þjóðarinnar bæri áð
snúast við henni.
Miklar og fjörugar umræður urðu
um öll þessi erindi, og var það sér-
itaklega tvennt, sem kom greinilega
fram í þeim umræðum: í fyrsta lagi,
að aldrei væri meiri þörf en nú á
samvinnu presta, kennara og foreldra
um uppeldi æskunnar, og að þjóðin
stæði öll saman um að varðveita hin
helgustu verðmæti, ísl .tungu, þjóð-
emi, heimili, skóla og kirkju. í öðru
lagi var það einróma álit fundarins,
að kristin lífsskoðun þyrfti að ríkja í
hverri uppeldisstofnun þjóðarinnar
allt frá heimilunum til hinna æðstu
skóla, og móta þá æsku, sem þar elst
upp. í umræðum þessum kom einnig
fram greinilegur vilji til samvinnu
um kristindóms- og uppeldismól.
Samþykkt var að efna til svipaðra
fundarhalda næsta sumar og var m.a.
bent á Hóla í Hjaltadal sem æskileg-
an fundarstað.
í undirbúningsnefnd voru kosnir:
Séra Páll Þorleifsson.
Séra Benjamín Kristjánsson.
Séra Friðrik A. Friðriksson.
Eiríkur Sigurðsson kennari.
Pétur Sigurðsson erindreki.
Þorgeir Sveinbjamarson kennari.
Jón Þ. Björnsson skólastjóri.
Þessi byrjunartilraun til aukinnar
samvinnu presta, kennara og leik-
manna um kristindóms- og uppeldis-
mál þótti vel takast, og munu margir,
er þama vom, vænta þess, að þetta
megi verða upphaf traustrar sam-
vinnu á kristilegum og þjóðlegum
gmndvelli.
Á mánudagskvöld flutti séra Sveinn
Víkingur erindi í kirkjunni, er hann
nefndi „Kirkjan og þjóðin“. Var það
hið prýðilegasta að efni og flutningi.
Mótinu lauk á hádegi á þriðjudag.
Messur í Möðruvallakl.prestakalli:
Sunnudaginn 27. sept, að Bakka og
sunnudaginn 4. okt. að Glæsibæ.
SENNILEGT er, að kjötsalan
innanlands dragist verulega sam-
an, vegna liins háa verðs, sem
kjötverðlagsnefnd hefir ákveðið
á þessari mikilsverðu neyzluvöru
almennings. Verður þá að selja
vaxandi kjötmagn á erlendum
markaði við mjög lágu verði, og
mun stjórnin ætla sér að bæta
bændum þann mismun af al-
mannafé. Olíkt skynsamlegra
virðist þó að selja kjötið innan-
lands með lióglegu verði, og
reyna að auka þá sölu sem mest,
en verja fé ríkissjóðs fremur til
að verðbæta innanlandsmarkað-
inn eftir þörfum, svo að bændur
fengju á þann hátt framleiðslu-
kostnað sinn að fullu gieiddan.
HIN sívaxandi verðbólga í
landinu er orðin öllum
almenningi áliyggjuefni hið
mesta. Er nú svo komið, að jafn-
vel stjórnarflokkarnir sjálfir, er
ötullegast hafa gengið að því
verki að rífa niður hverja hömlu
gegn dýrtíðinni, og gera allar
ráðstafanir, er Framsóknarflokk-
urinn beitti sér fyrir í þeim efn-
um, sem allra tortryggilegastar í
augum jijóðarinnar, treystast
ekki lengur til þess að halda
uppi vörnum fyrir ráðleysið. Við-
urkenna málgögn Jaeirra greið-
lega, að ástandið sé hið ískyggi-
legasta, og við borð liggi, að
fjárhagskerfi landsins hrynji i
rústir, og atvinnuleysi, kreppa
og öngþveiti taki við af „gullöld
hinni nýju“, fyrr en nokkurn
varir. — Eru þessir flokkar, sem
einir bera ábyrgð á þróuninni,
að því er til kasta ríkisvaldsins
kemur, nú teknir að hrópa há-
stöfum á róttækar hömlur gegn
dýrtíðinni, og telur hver þeirra
«m sig sér einum treystandi til
þess að ráða jreim málum far-
sællega til lykta! — En sá lodd-
araleikur mun ekki koma þeirn
að neinu haldi. Kjósendur munu
almennt ekki svo skyni skroppn-
ir, að þeir minnist þess ekki,
hvaða skerf Jressir ábyrgðar-
snauðu gasprarar hafa lagt til
málanna á þessum hættulegu
tímum, og hvern skilning þeir
hafa sýnt á hinni sameiginlegu
vörn landsmanna gegn vaxandi
verðbólgu og öngþveiti. Þeim
mun varlega treyst til góðra og
djarflegra ráða í þessum efnum,
enda var því aldrei um það
„Álftanes spáð, að ættjörðin
frelsaðist þar“.
NÝJASTA dæmið — og það
sem almenningi mun af
eðlilegum ástæðum hugstæðast
þessa dagana — um ráðslag stjórn
arinnar í þessum málum, er af-
staða sú, er hún hefir tekið til
verðlags á afurðum bænda, eink-
um þó sláturafurða. Það skal
sízt dregið í efa, að bændum sé
mikil Jrörf hækkaðs verðlags á
framleiðsluvörum sínum. Kaup-
gjakl hefir t. d. stórhækkað, svo
sem alkunnugt er, og svipað má
segja um næstum því allan ann-
(Framh. á 4. síðu).
Kosiilnsaruar 18. oKtfiber
Ákveðið hefir verið, að kosn-
ingar til Alþingis, samkvæmt hin-
um nýju kosningalögum, skuli
fara fram sunnudaginn 18. októ-
ber næstkomandi. í sveitum er
heimilt að hafa kjördagana tvo,
sunnudaginn 18. og mánudaginn
19. október. Var það fyrirkomu-
Iag samþykkt af Alþingi, fyrir for-
göngu Framsóknarflokksins.
Framboðsfrestur til kosning-
anna er útrunninn næstkomandi
laugardag, klukkan 12 á miðnætti.
Mjólkurverðlagsnefndin í Rvík
ákvað nýlega stórfellda hækkun
á mjólkurvörum þar og jafn-
framt að smjörverðið skyldi vera
kr. 18.70 kg. um land allt. Þegar
svo var komið var eigi gerlegt að
selja mjólkina hér fyrir sama
verð og áður, þar sem smjör-
framleiðsla og osta gaf bændum
betra verð en neyzlumjólkursal-
an. Mjólkurverðlagsnefnd hér
ákvað því -á fundi sínum s'íðastl.
Jiriðjudag að neyzlumjólk skyldi
hækka i verði frá 16. þ. m. að
telja. Kostar mjólk í flöskum nú
kr. 1.20 líterinn (0.93), en í lausu
máli kr. 1.12 (0.87). Skyr kostar
2.20 kílóið og rjómi 8.40 líter-
inn..
Allar þessar vömr, að smjöri
og ostum undanskildum, eru
r.eldar með mun lægra verði hér
en í Rvík. Eigi að síður er það
í'illum hugsandi mönnum hið
mesta áhyggjuefni hverja stefnu
Jiessi mál hafa tekið síðustu vik-
urnar. Er eigi ofsagt að fullkom
inn háski sé búinn þjóðinni, ef
cigi er gripið í taumana lil áð
stöðva dýrtíðarflóðið. En um
Jiað munu allir sammála, að
slíkra aðgerða sé eigi að vænta
frá þeirri ríkisstjórn er nú situr
við völd, illu heilli. Ber sú stjórn
og þeir flokkar er studdu hana
til valda fyrr í sumar ábyrgð á
því, hvernig komið er í þessum
efnum.