Dagur - 02.10.1942, Side 1
Vikublaðið DAGUR
Ritstjórar: INGIMAR EYDAL,
JÓHANN FRÍMANN.
Afgreiðsla, auglýsingar, innheimta:
Jóhann Ó. Haraldsson.
Skrifstofa við Kaupvangstorg.
Sími 96.
Árgangurinn kostar kr. 8,00.
Prentverk Odds Bjömssonar.
Úr Húnaþingi
Að sláttarlokum.
Tún spruttu hér vel í sumar, svo að
töðufall var mikið yfir meðallag og nýtt-
ist ágætlega, þvi að tíð var mjög hagstæð
frarn um miðjan ágústmánuð. A flæði-
engjum og mýrlendi var spretta léleg, en
á harðvelli allgóð. Er útheysfengurinn af
þeim sökum mjög misjafn í héraðinu.
Eftir miðjan ágúst brá til mikillar úr-
komu og hefir óstöðugt veðurfar haldizt
síðan. Þó hafa hey náðzt lítið hrakin víð-
ast, því að þurrkdagar hafa komið við og
við, en hin óstöðuga veðrátta hefir mjög
tafið alla heyvinnu. Víðast er enn úti
nokkurt hey, en mest komið í sæti, svo
allt mun nást inn. Almennt er útheys-
fengur með minna móti, og veldur þvi
fyrst og fremst léleg grasspretta og frá-
tafir vegna óþurrka, eins og fyrr segir, en
einnig fólksekla. Margir bændur hafa
ekki getað fengið það kaupafólk, er þeir
þurftu. Fækkar þeim óðum, körlum sem
konum, sem landbúnað vilja stunda. Er
sama hvaða kaup er boðið. Er það því
sjáanlega ekki kauphæðin ein, sem lokk-
ar fólkið frá landbúnaðarstörfum til bæj-
anna nú. Setuliðsvinnan og önnur at-
vinna allskonar í bæjunum, krefst minni
afkasta og jafnvel engra, eftir því sem
margir hafa reynslu af, og auk þess hefir
bæjarlífið svo margt að bjóða, sem unga
fólkinu gezt betur að en sveitalífinu. —
Hvert hérað landsins hefir á þessum ár-
um misst stóra hópa karla og kvenna frá
framleiðslustörfunum. Og sennilegast er,
að þetta fólk hverfi aldrei heim aftur. —
„Erfum við landið eða töpum við því?"
spyr Sigurður Einarsson. Hvernig hann
svarar þessari spurningu veit ég ekki, þvi
að þann fræga fyrirlestur hefi ég ekki
heyrt. En víst er, að haldi slik upplausn
áfram lengi enn, sem nú er i atvinnulífi,
fjármálum, menningu og stjórnarfari
þjóðarinnar, þá týnir þjóðin bæði sjálfri
sér og landi sínu.
Kartöfluuppskera er í betra lagi. Hefir
kartöflurækt stóraukizt hér í sýslu undan-
farin ár, svo að Húnvetningar geta nú
orðið selt út úr héraðinu árlega allmikið
af uppskerunni.
Aflabrögð.
Frá s.l. áramótum hefir þorskafli verið
góður hér í flóanum og stundum upp-
grip. Nokkrir smábátar eru gerðir út frá
Skagaströnd og leggja afla sinn í frystihús
þar. í sumar var útgerð með minnsta
móti á Skagaströnd, þvi að menn skorti
til þeirra framleiðslustarfa sem annarra.
Þykir nú fyrirhafnarminna að sækja
rauða seðla til setuliðsins, en gull í greip-
ar Ægis. Enda er hann misgjöfull, og
krefst mikils áhuga og erfiðis af þeirn, er
við hann skipta. Fá dugandi menn þar og
oftlega margföld laun.
Opinberar framkvæmdir.
Unnið hefir verið í sumar að hafnar-
gerð á Skagaströnd. Var ætlunin að full-
gera smábátalægi á nokkrum hluta hafn-
svæðisins, en til þess þarf að leggja langa
garða og dýpka leguna. Mun þessu verki
ekki nálægt þvi lokið i haust, því vinnu-
kraftur hefir ekki fengizt svo sem til
þurfti. Allmikið hefir verið unnið að
vegagerð í héraðinu í sumar — bæði ný-
lagningu og viðhaldi vega. Verða þó ýms-
ar endurbætur veganna að bíða betri
tima, því að nægur mannafli til þeirra
framkvæmda var ekki fáanlegur.
20. sept. 1942.
S. D.
i -—.......—-.....
Norskur konsúll. J. J. Indbjör forstjóri
hefir verið skipaður norskur konsúll hér,
i stað Axels heitins Kristjánssonar.
Dagur kemur næst út á þriðjudag. Aug-
lýsingar séu komnar til afgreiðslunnar
eða i prentsmiðjuna í siðasta lagi á há-
tiegi á mánudag.
XXV. árg. Akureyri, föstudaginn 2. október 1942 52. tbl.
Slálfstœðisflokkurinn að ganga af límlngunni*
Amerískar
blómarósir
vinna að Iier-
gagnafram-
leiðsln
Almenningi er nokkur vorkunn, þótt hann hafi varlega tekið
mark á lýsingu andstöðuflokka íhaldsins á heimilisástæðum þar á
bæ. Menn eru orðnir svo vanir ýktum ásökunum, og ómildum
dómum allra flokka í garð andstæðinganna, að þeir eru hættir að
taka slíkt skraf allt of hátíðlega. Á hinu verður að sjálfsögðu meira
mark tekið, þegar menn, sem verið hafa svo að segja innstu koppar
í búri á Sjálfstæðisslotinu, taka að vitna um ástandið og heimilis-
hagina þar. Þjóðin hefir því að vonum lagt við hlustirnar, þegar
ÁRNA FRÁ MÚLA, sem verið hefir ÞINGMAÐUR SJÁLF-
STÆÐISFLOKKSINS UM LANGT SKEIÐ, KOSINN í
BÆJARSTJÓRN REYKJAVÍKUR S.L. VOR og JAFNAN TAL-
INN TIL ODDVITALIÐS FLOKKSINS OG ÆÐSTUPRESTA,
hefir upp raust sína í „Þjóðólfi“ nú á dögunum og heldur eldhúss-
dag yfir sínum fyrri samherjum og flokksbræðrum.
Fjöldi amerískra kvenna vinnur nú í hergaénaverksmiðjum víðsveéar
um Bandaríkin. Myndin er úr íluévélaverksmiðju i hinni miklu iðn-
aðarboré Detroit. Þar vinna stúlkur að fluévélaframleiðslu til jafns
við karlmenn.
Hækkun síingjaltl-
anna.
Landsíminn verður að sjá fyrir forsvaranlegri afgreiðslu á langlínu-
samtölum gegn einföldu gjaldi og endurbótum og viðaukum á
innanbæjarkerfinu, ef hækkun þessi á að geta talizt réttlætanleg.
jgROTTFÖR Árna frá Múla og
ýmissa annarra áhrifamanna
úr Sjálfstæðisflokknum hefir að
vonum vakið allmikla athygli,
þótt nokkur tvístringur á þeirri
hjörð, er fylgt hefir flokknum að
málum fram að þessu, þurfi
raunar engum að koma á óvart.
Hinn fjölmenni hópur smákaup-
manna, verzlunarfólks og smá-
framleiðenda til sjávar og sveita,
er tekið fiefir mark á lýðskrumi
flokksins frá upphafi og því veitt
honum kjörfylgi sitt, gengur
þess ekki lengur dulinn, að hann
ræður þar engu, og' finnur
glöggt, að hagsmunir hans eru
algerlega fyrir borð bornir. Enda
er hver höndin upp á móti ann-
arri innan vébanda Sjálfstæðis-
ins og hjörðin öll slegin felmtri
miklum yfir hinni háskalegu
fjármálaóreiðu, ráðleysi og
sukki, er einkennt hefir hinn
stutta en harla óglæsilega valda
feril Ólafs Thors og samstarfs-
manna hans í ríkisstjórninni.
J^ÝSING Árna frá Múla á
ástandinu er ófögi^r en sjálf
sagt rétt í öllum höfuðatriðum
enda heldur nákunnugur maður
og þaulvígður klerkur úr innstu
launhelgum Sjálfstæðisflokksinf
þar á pennanum. Þar sem fæstir
lesendur ,,Dags‘‘ munu eiga þess
kost að lesa „Þjóðólf“, — enda
venjulega ekki eftir miklu að
slægjast, — þykir rétt að birta
hér nokkra kafla — valda af
handahófi — úr skýrslum Árna
frá Múla um þetta efni, éftir að
hann tók við ritstjórn blaðsins
nú á dögunum.
í grein einni á fremstu síðu
blaðsins 21. sept. s.l. segir svo
m. a.:
„Það hefir ekki verið neitt
leyndarmál, að forustulið Sjálf-
stæðisflokksins hefir skipzt í tvo
andstæða hópa nú um alllangt
skeið. Annars vegar hefir verið
Kveldúlfsvaldið og taglhnýting-
ar þcss, cr skoða flokkinn aðeins
sem tæki í þágu ákveðinna sér-
hagsmuna. Hinsvegar hafa verið
allir hinir frjálslyndari menn, er
haldið hafa tryggð við yfirlýst
stefnumál flokksins“.
Síðan er því lýst allítarlega, að
þessir „frjálslyndari menn“ hafi
jafnan orðið að láta í minni pok-
ann fyrir hinum:
„Þeim hefir verið byggt út úr
þingflokki Sjálfstæðismanna í
því skyni að fá þangað í staðinn
ýmissa lítilláta skósveina Kveld-
úlfs. Hinni hóflausu sérhags-
munastreitu Sjálfstæðisflokksins
í þágu þröngrar stórgróðaklíku
hefir vaxið fiskur um hrygg að
sama skapi“.
Árni frá Múla virðist ekki álíta
þessa stefnu flokksbræðra sinna
í Sjálfstæðisflokknum sérlega
vinsæla hjá landslýðnum, eða
líklega til kjörfylgis. Um það
farast honum svo orð í nefndri
grein:
„Afleiðingarnar hafa sagt til
sín á ótvíræðan hátt í kjörfylgis-
tapi flokksins. Hinir óbreyttu
kjósendur flokksins, er ekki vilja
láta skoða sig sem séreign
Kveldúlfs, hafa yfirgefið flokk-
inn þúsundum saman. Flóttinn
undan merkjum Kveldúlfs-
manna mun verða hið mest
áberandi einkenni næstu kosn-
inga, ekki síður en kosninganna
í vor“.
Og svo klykkir þessi gamli
íhaldspreláti, er reyndist einhver
fyrsta rottan, er yfirgaf hið
sökkvandi skip, út með þessum
spámannlegu orðum:
„Örlög Sjálfstæðisflokksins eru
ráðin; skapadómur hans augljós
hverjum þeim, er nokkrar gætur
gefur að ótvíræðri þróun. Verka-
menn og sjómenn yfirgefa flokk-
inn allir sem einn. Frjálslynt
miðstéttarfólk mun ekki heldur
hugsa til langrar viðstöðu í Sjálf-
stæðisflokknum úr þessu. Flokk-
urinn verður eftir það aðeins
tæki í höndum harðvítugustu
Framhald á 4. síöu.
Landsímastjórnin hefir til-
kynnt að símagjöld öll verði tvö-
földuð frá deginum í gær að
telja. Kostar þá 200 krónur á ári
að hafa talsíma og viðtalsgjald til
Reykjavíkur verður 4 krónur og
4.40 með kvaðningu í stað 2
króna og 2.20. í greinargerð sem
Landsímastjórnin lét fylgja
þessari frétt í Ríkisútvarpinu
fyrir skemmstu, var sú ástæðan
færð fram fyrir hækkuninni að
Kennara-
námskeið
hefst hér í bænum í dag að til-
hlutun fræðslumálastjórnarinn-
ar. Viðfangsefni námsskeiðsins
eru einkum móðurmálskennsla
og skólaíþróttir.
Þátttakendur eru yfir 40 kenn-
arar.
Aðalkennarar eru Björn Guð-
finnsson málfræðingur og Þor-
steinn Einarsson íþróttafulltrúi.
viðgerðarkostnaður allur, svo og
laun hafi stórhækkað síðan í
stríðsbyrjun, en þetta væri fyrsta
hækkunin á símagjöldum sem
átt hefði sér stað.
Þessi greinargerð Landsíma-
stjórnarinnar er vafalaust rétt,
en hún er lítil rétdæting á hinni
stórfelldu hækkun, vegna þess
að TALSÍMAGJÖLDIN ERU
ÞEGAR FYRIR LÖNGU
STÓRHÆKKUÐ, þar sem það
má heita undantekning, a. m. k.
hér á Akureyri, að samtöl við
Reykjavík o. fl. staði fáist af-
greidd, nema ef óskað er eftir
hraðsímtali, fyrir ÞREFALT
GJALD.
Það væri ekkert við því að
segja, þótt landsímagjöld hækk-
uðu, vegna aukins kostnaðar, ef
Landsímastjórnin sæi símanot-
endum fyrir viðunanlegri af-
greiðslu símtala. Nú er málum
þannig háttað hér á Akureyri.
að hér búa símanotendur við
FramhaH á 4. aiSu.