Dagur - 02.10.1942, Blaðsíða 4
4
Föstudagur 2. október 1942
(JR BÆ OG BYGGÐ
Til athugunar. Síðasta tbl. Dags var nr.
51, en ekki 50, eins og á blaðinu stóð fyrir
vangá.
Leiðrétting. í grein Jónasar Jónssonar
alþm., er birtist í síðasta tbl. Dags, höfðu
slæðzt nokkrar bagalegar prentvillur.
Skulu þær þeirra, er mestu máli skipta,
lciðréttar hér: í öðrum dálki greinarinn-
ar, 8. línu að ofan og áfram, stendur: „Á
ferð minni um Norðurland hefi ég orðið
var við litla óánægju yfir kjötverðinu." Á
auðvitað að vera litla ánægju, eins og vel
má sjá á sambandinu. í siðasta dálki
greinarinnar, neðarlega, stendur: „Akur-
eyri á kost þess að senda á þing sem aðal-
fulltrúa sinn annan af þeirn tveim mönn-
um í landinu, sem bezta aðstöðu hafa til
þess að vera í fararbroddi um bjargráð
þjóðarinnar út úr loddarabæli verðbólg-
unnar." Auðkennda málsgreinin átti auð-
vitað að vera: „einn af þeim mönnum í
landinu, er bezta aðstöðu" o. s. frv.
St. Ísafold-Fjallkonan nr. 1 heldur fund
í Skjaldborg laugardag 3. okt., kl. 8Vi> e.h.
Fyrir liggur kosning á æðsta templar, gef-
ið inngangsorð o. fl. Fréttir. Fjölmennið!
Hjónaband. S.l. þriðjudag voru gefin
saman af sóknarprestinum í Húsavik, sr.
I'riðrik A. Friðrikssyni, ungfrú Bryndís
Bjarnadóttir Benediktssonar kaupmanns
og Sigtryggur Þórhallsson, Sigtryggssonar,
l;aupfélagsstjóra i Húsavík.
Fyrst um sinn gegnir séra Friðrik J.
Rafnar á Akureyri prestsstörfum í Grund-
arþingaprestakalli i fjarveru séra Benja-
míns Kristjánssonar. Verður það senni-
lega um tveggja mánaða skeið.
Haustþing Umdæmisstúkunnar nr. 5
verður haldið á Akureyri sunnudaginn 4.
okt. n. k. Það hefst í Skjaldborg kl. 10 f.h.
Hækhun srmgiaidanna
(Framhald af 1. síðu).
gömul og léleg tæki, svo að a£-
greiðsla á innanbæjarkerfinu er
oft í megnasta ólagi, þrátt fyrir
það, að Landsíminn hafi nú eins
og áður prýðilegu fólki á að
skipa til afgreislunnar. Gagn-
vart Akureyringum er hækkun
sú, sem nú er boðuð, vægast sagt
ósvífin, þar sem Landsíminn hef-
ir ekki ennþá komið í fram-
kvæmd neinum endurbótum á
þeim tækjum, sem hér eru notuð
eða aðbúð við símaafgreiðsluna.
Innanbæjarkerfið réttlætir
ekki hækkunina meðan svo er að
málum búið. Reykjavík er fyrir
löngu síðan búin að fá fullkom-
ið innanbæjarkerfi. Ef eins vel
hefði verið búið að Akureyri
hefði málið litið öðru vísi út.
Hækkunin á talsímagjöldum er
og vart réttlætanleg, eins og áð-
ur er á bennt, þar sem Landsím-
inn fær þegar þrefalt gjald fyrir
flest þau símtöl ,sem afgreidd
eru héðan úr bænum til Reykja-
víkur a. m. k. í mörgum tilfell-
um til annarra staða líka.
Opinber stofnun eins og Land-
síminn hefir mikiliar skyldu að
gæta, ekki aðeins gagnvart ein-
um landshluta heldur öllum.
Hækkun sú, sem nú á að koma
til framkvæmda, er óréttlát
gagnvart talsímanotendum í
þessum bæ, nema því aðeins að
skjótar umbætur verði á innan-
bæjarkerfi símans, og símtöl fá-
ist afgreidd án þess að þau séu
greidd með hraðsamtalsgjaldi.
Þetta tvennt hlýtur að vera lág-
markskrafa Akureyringa til sím-
ans, ef að þeir eiga að sætta sig
við hækkunina, sem Landsíma-
stjórnin hefir boðað.
DAGUR
Fóiks og’
vörubifreiffai*
flil SÖltl
Bifreiðastöð Akureyrar
llppiausnin ð (kiiðskeii-
llinu
(Framhald af 1. síðu).
sérhagsmunaklíku örfárra stór-
gróðamanna, sem hafa það eitt
markmið að vemda „rétt“ sinn
til stórfelldrar auðsöfnunar á
kostnað alls þorra manna“.
Svo mörg eru þau orð. Hér er
ekki rúm til að birta fleiri til-
vitnanir í vitnisburði Árna frá
Múla, eða taka ummæli hans til
nánari athugunar eða skýringa.
Þess gerist heldur engin þörf:
Maðurinn er hvergi myrkiir í
máli, síðan hann losnaði úr vist-
inni og undan húsbóndavaldi
Thorsaranna.
Nýja Bíó
Föstudaginn kl. 6 og 9:
Úlfurinn kemur til hjálþar.
Laugardaginn kl. 6 og 9:
Á suðrænum slóðum.
Sunnudaginn kl. 3:
Á suðrænum slóðum.
Rl. 5:
f víking.
Kl. 9:
Úlfurinn kemur til hjálpar.
Stúlka
óskast í vist til Reykjavíkur.
Upplýsingar gefur
LÍNA GÍSLADÓTTIR,
Rókaverzl. Gunnl. Tr. Jónss.
SfiBdísveina
vantar á landssímastöðina
nú þegar. HÁTT KAUP.
Slúika
óskast í vist hálfan eða allan
daginn.
LILJA SIGURÐARDÓTTIR,
Holtagötu 9.
Skpifborð
til sölu. Afgr. vísar á.
Eina eða tvær
stúlkur vantar nú þegar. —
Sömuleiðis konu til morg-
unverka. — Hátt kaup.
HÓTEL GULLFOSS.
Stúlku
vantar á
HÓTEL AKUREYRI.
2eða3
sendisveina vantar okkur
nú þegar.
Kaupfél. Eyfirðinga
Tifikyimfng.
Samkvæmt fyrirmælum sauðfjársjúkdómanefndar ber hér eftir
að slátra, þar til öðru vísi kann að verða ákveðið, öllu sauðfé, er
kemur fyrir þeim megin varnargirðingarinnar í Eyjafjarðarsýslu,
sem það ekki á lieima.
Einnig skal slátra öllum ómerkingum, er ær ekki helga sér, og
öllu óskilafé, hvar sem það kemur fyrir í Eyjarfjarðarsýslu. —
Ennfremur eru stranglega bannaðir flutningar sauðfjár til lífs yfir
ofangreindar línur, svo sem búferlaflutningar eða flutningar sauð-
fjár til fóðrunar eða hagagöngu.
Ákvæði þessi gildi jafnt um geitfé og sauðfé.
Hreppstjórum í viðkdmandi hreppum ber að sjá um, að reglum
þessum verði hlýtt.
Sýslumaður Eyjafjarðarsýslu, 30. september 1942.
Sig. Eggerz.
JörÖin Einarsstaðir
í Glæsibæjarhreppi er til sölu og laus til ábúðar í fardögum 1943.
Semja ber við undirritaðan, eiganda jarðarinnar, fyrir n.k. áramót.
Einarsstöðum, 30. setember 1942.
SIGURÐUR SIGURÐSSON.
boðar Framsóknarfélag Eyjafjarðarsýslu í þing-
húsi Öngulsstaðahrepps miðvikudaginn 7. þ. m.,
kl. 2 e. m.
Frambjóðendur Framsóknarflokksins í Eyja-
fjarðarsýslu verða málshefjendur. Frjálsar umræð-
ur á eftir framsöguræðum.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélag Eyjafjarðarsýslu.
Framboðsfunilir
í Eyjafjarðarsýslu verða haldnir sem hér segir:
í Ólafsfirði fimmtudag 8. okt. n. k.
í Hrísey föstudag 9. okt. n. k.
Á Dalvík laugardag 10. okt. n. k.
í þinghúsi Glæsibæjarhrepps sunnudag 11. okt.
í Saurbæ þriðjudag 13. okt. n. k.
Fundirnir hefjast kl. 2 e. m., nema í Hrísey kl.
8 V2 e. m.
FRAMBJÓÐEND UR
«g
^lóra' smjörlíki
má ekki vanta á foorðid.
Þad vita allar hyggnar
húsmæður.