Dagur - 29.04.1943, Page 1

Dagur - 29.04.1943, Page 1
Vikublaðið DAGUR Rltstjórár: INGIMAR EYDAL, JÓHANN FRÍMANN. Afgreiðsla, auglýsingar, innlteimta: Sigurður Jóhaimcsson. Skrifstofa við Kaupvangstorg. Simi 96. Argangurinn kostar kr. 8,00. Prentverk Odds Bjömssonar. CtlR XXVI. árg. Akureyri, fimmtudaginn 29. apríl 1943 18. tbl. FJÁRLAGAÞINGI FRESTAÐ TIL HAUSTS Stóri bróðir hirtir litla bróður Ýfingar Rússa og Pólverja *jAU TÍÐINDI vekja nú gífurlega athygli um allan heim, að Rúss- ar hafa slitið stjórnmálasambandi við flóttamannastjórnina pólsku í Lund- únum. Ástæðan er sögð sú, að pólska stjórnin hafði mælzt til þess, að op- inber rannsókn yrði látin fram fara, undir eftirliti Alþjóða Rauða Kross- ins, á þeim sakargiftum, er Þjóðverj- ar bera nú á rússnesku stjórnina, að hún hafi látið myrða fjölda pólskra liðsforingja, meðan stóð á innrás Rússa í Pólland 1939. Telja Þjóð- verjar sig hafa fundið dyngjur af lík- um þeirra í hópgryfjum á Smólensk- svæðinu. Rússneska stjórnin virðist meta það meira að gera sig herralega yfir flóttamannastjórninni pólsku — og neita allri slíkri rannsókn, en að varðveita friðinn og eindrægnina í herbúðum bandamanna allra, meðan á styrjöldinni stendur. Svissneskar út- varpsstöðvar herma, að allir Pólverj- ar, sem staddir eru í Rússlandi — en þeir eru fjölmargir — hafi verið kyrr- settir í þessu tilefni. Minna þessar að- ferðir hinnar voldugu stórþjóðar ekki svo lítið á það, er hún Iét vísa norsku sendisveitinni úr landi og sleit stjórn- málasambandi við Norðmenn, fyrir engar sakir, strax og Þjóðverjar höfðu hertekið Noreg árið 1940, til þess að- eins — að því er virtist — að þókn- ast þáverandi vinum sínum og sam- herjum — Nazistunum þýzku. þÁ HEFIR það og vakið heimsat- hygli, að sendiherraskrifstofa Sovét-Rússlands í Bandaríkjunum hefir sent út tilkynningu þess efnis, að rússneska stjórnin hafi látið skjóta hina heimskunnu pólsku verkalýðs foringja Ehrlich og Alter, er dvöldu landflótta í Rússlandi, síðan hinni hetjulegu vörn þeirra gegn innrás þýzka nazistahersins í föðurlandi þeirra laúk. Engin opinber réttarhöld stóðu í máli þeirra. Þjóðviljinn reyn- ir auðvitað að afsaka þennan ofbeld- isverknað með því að staðhæfa, að þeir félagar hafi í tvö tiltekin skipti gerzt sekir um svik við Sovétstjórn- ina, er verið hafi hættuleg fyrir styrjaldarreksturinn, en svo óheppi lega tekst til fyrir blaðinu, að sann- anlegt er, að í bæði þessi skipti voru þeir Ehrlich og Alter forsvaranlega geymdir undir lás og loku í fangels- um leynilögreglunnar rússnesku, og gátu sig þaðan hvergi hrært! — Allt þetta — og raunar margt fleira — þykir spá litlu góðu um sambúðina og friðinn í Austur-Evrópu að heims- styrjöldinni lokinni. Samfylking verkalýðsflokkanna við íhaldið bjargar skattahlunnindum stórgróðafyrirtækja enn um stund. — Kommúnistar komu í veg fyrir myndun vinstri stjórnar og ala á aukinni sundrung og upp- lausn f þinginu Samtal við Bernharð Stefánsson alþingismann gERNHARÐ STEFÁNSSON alþm. kom heim af þingi rétt fyrir páskana, ásamt frú sinni og dóttur. Blaðið kom að máli við hann í fyrrakveld og spurði frétta af þingmálum. Sagðist Bernharð m. a. svo frá: Hátíðahöld verklýðsfélaganna 1 maí. Fulltrúaráð verklýðsfélaganna hér í bænum, f. h. Alþýðusambands ins, gengst fyrir hátíðahöldumáhátíð isdegi verkamanna 1. maí n. k. með útiskemmtun framan við Verklýðs- húsið kl. 1V2 e. h. og hópgöngu. Síð- degisskemmtun í Nýja Bíó kl. 3 e. h. Fara þar fram ræðuhöld, söngur og væntanlega kvikmyndasýning. Dans skemmtun verður í Skjaldborg og Verkalýðshúsinu um kvöldið. Full- trúaráðið væntir góðrar þátttöku verkafólks í hátíðahöldunum. — Það, senr einkum einkenndi síðasta þing var þetta: Þegar ringið kom samari í haust var rannig í pottinn búið, að bráða- úrgðastjórn Ólafs Thors hafði sagt af sér, eftir að hafa heykzt á öllum þeim vanda, sem hún hafði tekið að sér að leysa. Hins vegar var enginn þingflokkanna þess umkominn að mynda stjórn á eigin spýtur og ekkert sam- komulag náðist um þingmeiri- hluta, er staðið gæti saman um stjórnarmyndun, þrátt fyrir í- trekaðar tilraunir í þá átt. Þing- ið varð því — og verður enn — að sætta sig við utan flokka stjórn. Þinginu hefir mjög verið legið á hálsi fyrir þetta úrræða- leysi.æn í sjálfu sér er það þó að- eins rökrétt afleiðing af því, hvernig til þingsins var stofnað af kjósendum í síðustu kosning- um og með þýðingarlausu stjórnarskrárbrölti á síðasta ári, sem bezt vár til þess fallið að eyðileggja allan samstarfsgrund- völl milli flokkanna, meðan öld- urnar, sem tvennar kosningar á einu ári höfðu æst, væri að lægja nokkuð. Auk þess eru allir þing- menn allra flokka kosnir til þess að fylgja fram málstað síns flokks og sinna umbjóðenda, og ég geri ráð fyrir því, að það þyk- ist þeir allir hafa gert. — Þingið hefir dregizt á lang- inn, lengur en ætlað var? Já, það er satt. En þetta staf- aði mest af því, að dýrtíðarmál- in, — sem allir voru þó safnmála um að væri þýðingarmesta úr- lausnarefnið að þessu sinni, voru fyrst fyrir það lögð seint á þing- tímanum, eftir að fjárlög voru afgreidd. Hins vegar varð í með- förum þingsins harla lítið eftir af upphaflegum tillögum stjórn- arinnar, eða helzt þetta: 1. Stjórnin hefir heimild til þess að lækka verð landbúnaðar- afurða með framlögum úr ríkis- sjóði til bráðabirgða, ef Búnað- arfélag íslands fellst á þær ráð- stafanir. — Þetta síðasta atriði er svo til komið í lögunum, að verkalýðsflokkarnir vildu ekki einu sinni ganga að því til sam aðrar hliðstæðar ráðstafanir, að launþegum yrði greidd verðlags- uppbót á kaup í maí eftir vísi- tölu, eins og hún yrði 1. maí, nema verkalýðssamtökin féllust á það. Þetta ákvæði var sett inn í frumvarpið í bili, en þá þótti og rétt að hafa þar hliðstæð á- kvæði vegna landbúnaðarins. 2. Nefnd verður skipuð til þess að reikna út eða gera tillög ur um hlutfall það, er framvegis skal gilda milli afurðaverðs og kaupgjalds, og eiga í henni sæti fulltrúar frá báðum aðiljum: framleiðendum og neytendum. B. Verðlækkunarskattur, (upp haflega nefndist hann í frum varpi stjórnarinnar viðreisnar- skattur). Hins vegar breyttist á lagningargrundvöllur þessa nýja skatts þannig í meðförum þings ins, að hann nær nú aðeins ti 10 þús. kr. skattskyldra tekna og þar yfir, (umreiknað eftir fyrir stríðs-peningagildi), en í frum varpi stjórnarinnar var þetta lág mark kr. 6 þús. — Voru allir þingflokkar sæmilega samtaka um þá af greiðslu, sem þetta margumtal aða stjórnarfrumvarp hlaut þinginu — Því fer fjarri. Enda mun það mála sannast, sem forsætis ráðherra sagði í ræðu sinni, er stjórnin tók við lögunum til framkvæmda, að enginn flokk- ur — né heldur stjórnin sjálf —, er ánægður með afgreiðslu máls- ins. Þegar frumvarpið kom til efri deildar, voru enn í því ýmis ákvæði, er miklu máli skipta, svo sem um niðurfellingu á skatt- frelsi stórgróðafyrirtækja. En þá gerðust þau sviplegu tíðindi, sem almenningur mun að von- um átta sig illa á, að verkalýðs- flokkamir báðir hjálpuðu Sjálf- stæðisflokknum til þess í bróð- úrlegri einingu að nema þessi ákvæði burt úr lögunum, og hélzt þetta bandalag þessara flokka upp frá því við afgreiðslu málsins, þrátt fyrir það, að sósíal- istar höfðu sjálfir við fyrri af- greiðslu málsins í neðri deild borið fram tillögu þess efnis, að sú tillaga þá samþykkt þar. En sem sagt: Eftir að Jreir höfðu náð að blanda blóði við íhaldið, snerust þeir gegn sínu eigin af- tvæmi frá fyrri sokkabandstím- anum! — Hvað hefir þú að segja um átökin út af þingfrestuninni? — í sem skemmstu máli þetta: Þegar fjármálaráðherra lagði járlagafrumvarp ríkisstjórnar- innar fyrir þingið, tók hann það sjálfur fram — enda vissu það raunar allir fyrir —, að þetta væri aðeins formsatriði, til þess að fullnægja ákvæðum stjómar- skrárinnar: Fjárlög fyrir árið 1944 var ómögulegt að afgreiða nú, þótt þinginu væri haldið á- fram, en afgreiðsla fjárlaga hlaut hins vegar að vera — eins og æf- Framh. á 3. síðu. Þýzk sprengjuflug- vél skotin niður við Vesturland ^MERÍSKA herstjórnin hér á landi birti svohljóðandi til- kynningu s. 1. laugardag: — Þýzk sprengjuflugvél var á könnunarflugi yfir vesturströnd íslands í dag. Amerískar orustu- flugvélar skutu hana niður. — Þennan sama dag var gefið hættumerki í Reykjavík. Ekki er vitað að hin þýzka flugvél hafi varpað niður sprengjum eða or- sakað neitt tjón. Iðnskóla Akureyrar var slitið síðasta vetrardag. 101 nemandi var skráður í skólann á þessu skólaári, þar af 63 iðnnem- ar, en 83 nemendur þreyttu próf. 9 iðnnemar, allir úr 4. bekk skól- ans, luku burtfararprófi, og fara aðaleinkunnir Jreirra hér á eftir: Björgvin Júníusson, bakari I. 7,87 Friðrik Klausen, ljósm.sm. II. 6.54 Geir Austmann, rafvirki III. 5.32 Jóh. Guðmundsson, vélsm. III. 5.42 Kr. Júl. Guðm., skipasm. II. 6.22 Kjartan F. Sigurðss., vélsm. I. 8.72 Óli G. Laxdal, klæðskeri II. 6.85 Tryggvi Gunnarsson, skipasm. I. 8.50 Tryggvi Samúelsson, járnsm. I. 8.18 Silfurpening I. A., verðlaun fyrir beztu iðnteikningu í 4. bekk, hlaut að þessu sinni Tryggvi Gunnarsson, skipasm.. Verðlaun fyrir beztu fríhend- isteikningar fengu þessir: Friðrik Klausen, ljósm.sm. í 4 bekk Bragi Guðjónsson, klæðsk. í 3. bekk. Jón Karlsson, húsg.sm. í 2. bekk. fReynir Kristjánsson, húsg.sm. í 1. b. jg>' ■' j SKÓLASLITARÆÐU sinni ræddi Jóhann Frímann skóla- stjóri m. a. um „bókvitið og ask- ana“ í sambandi við dagleg störf iðnaðarmanna og annarra vinn- andi stétta, og um skyldur og réttindi þeirra æskumanna, er skólafræðslu njóta, í menningar- lífi þjóðarinnar. Sýning á teikningum nem- enda Iðnskólans var opin al- menningi í skólahúsinu á sum- ardaginn fyrsta. Var hún mjög fjölsótt, enda margt góðra teikn- inga, bæði úr hinum ýmsu sér- greinum iðnaðarins og almenn- ar fríhendisteikningar — þar að sjá. Auglýsingabannið heldur áfram! Hinu virðulega viðskiptaráði sýnist enn ekki ástæða til, að almenningur hér um slóðir fylgist með verð- lagsákvæðum þess J^JÝKOMIN sunnanblöð birta langar tilkynningar frá verð- lagsstjóra og viðskiptaráði um hin yfirgripsmiklu hámarks- ákvæði, sem sett voru í s.l. viku, um saumalaun o. fl. Akureyrar- blöðin hafa ekki fengið þessar tilkynningar til birtingar, þótt vissulega varði almenning hér jafnmikið um efni þeirra og Reykvíkinga. Viðskiptaráð hefir og alveg nýskeð ítrekað þau til- rriæli sín til almennings, í út- varpinu, að fylgjast vel með verðlagsákvæðum og gæta þess að þeim sé framfylgt. Á sama tíma er almenningi úti um land meinað að fylgjast með hinum flóknu ákvæðum, vegna auglýs- ingabannsins, sem þessi ríkis- stofnun hefir sett á blöð utan Reykjavíkur. Fyrir skemmstu komulags og samræmingar við afnema þetta skattfrelsi, og var fékk „Dagur" þau svör frá skrif- stofu verðlagsstjóra, er þess var óskað, að blaðið fengi tilkynn- ingar sem þessar til birtingar, að framvegis yrðu þær aðeins birt- ar í útvarpi og Lögbirtingablaði. Hin nýkomnu sunnanblöð sanna, að þetta hefir verið fyrir- sláttur einn, og er hart aðgöngu, að opinberar stofnanir skuli gera sig sekar um slíka málafærslu. Það verður því enn skýlaus krafa Akureyrarblaðanna og al- mennings hér, að viðskiþtaráð láti af hinu einstrengingslega Reykjavíkursjónarmiði og ann- að tveggja hætti með öllu að birta tilkynningar sínar í dag- og vikublöðum höfuðstaðarins, eða veiti landsmönnum öllum jöfn réttindi og birti þeim til- kynningar sínar á þann hátt, að líklegt megi teljast, að þær nái til sem flestra.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.