Dagur - 08.07.1943, Blaðsíða 1
Vikublaðið DAGUR
Ritstjórar: INGIMAR EYDAL,
JÓHANN FRÍMANN.
Afgreiðsla, auglýsingar, innheirata:
Sigurður Jóhannesson.
Skrifstofa við Kaupvangstorg.
Sími 96.
Argangurinn kostar kr. 8,00.
Prentverk Odds Björnssonar.
XXVI. árg.
Akureyri, fimmtudaginn 8. júlí 1943
28. tbl.
ISLENZKIR SKIPASMIÐIR ÞURFA AÐ KYNNA SER NYUNGAR IIÆKNI
OG VINNUADFERDUM VID SKIPASMÍÐAR I BANDARlKJUNUM
Allur kostnaður við skipasmíðar liér á landi hefir aukizt stór-
kostlega síðustu árin, en tæknin og vinnuhraðinn stendur í stað.
Bylting í skipasmíðatækni á sér nú stað vestan hafs. Það er lífsnauð-
syn fyrir íslendinga, að fylgjast með í þeim málurn, og búa svo í
liaginn, að hér geti risið upp nýtízku skipasmíðastöðvar að stríðinu
loknu.
Samtál við GUNNAR JÓNSSON, skipasmíðameistara.
„DRA UGSHEND UR“
ÍHA&DSBLAÐANNA
Ljót er saga þín, Jón!
gÍÐASTI „íslendingur“ birtir skor-
inorða hugleiðingu um „einhverja
þávóheyrilegustu spillingu, sem þekk-
ist meðal lýðfrjálsra þjóða“, en slik
spilling nær, að dómi blaðsins, há-
marki sínu í starfsháttum Framsókn-
arflokksins hér á voru landi, Islandi!
Skýrir „Isl.“ fyrst frá því með næsta
ófögrum orðum, að Framsóknarmenn
grípi jafnan til skoðana- og atvinnu-
kúgunar, hvar sem þeir fái því við
komið, en einkum og sér í lagi sé
þeim þó tamt að beita slikum vinnu-
brögðum í kaupfélögunum, enda er
helzt að skilja á frásögn blaðsins, að
nú sé víðast svo komið, að kaupfélög-
in séu aðeins orðin pólitísk veiðistöð
og spillingarbæli þessara dæmalausu
þjóðníðinga! — Eftir að blaðið hefir
gefið lesöndum sínum þessa einkar
hógværu og sanngjörnu æfiferils-
skýrslu Framsóknarmanna í landinu,
kemur auðvitað að því atriðinu, er
sízt mátti vanta í greinargerð þessa
blaðs, sem svo gjarnan vill láta líta á
sig sem hógvært og óskeikult sann-
leiksvitni, þ. e. a. s. rökunum fyrir
þessum þungu og ófögru aðdróttun-
um. Og forsendur blaðsins fyrir þess-
um algilda áfellisdómi i garð Fram-
sóknarmanna og kaupfélaganna eru
ósköp einfaldar og taka vafalaust af
öll tvímæli um rétttmæti dómsins í
augum hinna harðsoðnustu Sjálfstæð-
ismanna hér í bæ, sem hafa „Islend-
ing“ fyrir pólitíska biblíu eða goða-
fræði, (því að annars staðar getur
naumast heitið að blaðið sé keypt
eða lesið af nokkrum manni).
„Nærtækt dæmi“.
FTIR að hafa lýst dómsniðurstöð-
um sínum á þá leið, sem áður var
sagt, farast blaðinu þannig orð:
„Ef einhver kynni að vera í vafa
um þetta, er auðvelt að benda á nær-
tækt dæmi.
Framkvæmdastjóra Kaupfélags
Austur-Húnvetninga, Pétri Theódórs,
hefir verið sagt upp starfi frá næstu
áramótum. Hann hefir starfað við
félagið í þriðjung aldar og verið
framkvæmdastjóri þess í 28 ár“. —
Lýsir blaðið því síðan fagurlega,
hversu ágætur starfsmaður Pétur hafi
jafnan verið, enda eigi hann að fá
laun áfram frá félaginu, þrátt fyrir
brottvikninguna, „í viðurkenningar-
skyni fyrir vel unnin störf“. Síðan er
þess getið, að tillagan um að segja
kaupfélagsstjóranum upp starfi frá
næstu áramótum hafi komið frá
Hannesi Pálssyni, frambjóðanda
Framsóknarflokksins í Austur-Húna-
vatnssýslu, og sjáist bezt á því, að
það séu Framsóknarmenn, sem að
þessu gjörræði standi. Síðan heldur
blaðið ræðu sinni áfram á þessa leið:
^STÆÐURNAR fyrir brottvikn-
" ingu Péturs Theodórs eru ekki
þær, að hann sé lélegur starfsmaður
eða hafi gerzt sekur um afglöp. Held-
ur ekki þær, að hann hafi beitt sér
gegn kosningu Hannesar Pálssonar í
héraðinu. Það er jafnvel álitið, að
kaupfélagsstjórinn hafi fylgt Fram-
sókn við kosningar. En hann hefir
bara aldrei tekið opinbera afstöðu til
stjórnmálarma né gerzt áróðursmað-
ur íyrir Framsóknarflokkinn, sem
Framsóknarmenn telja meðal helztu
höfuðdyggða, er einn kaupfélags-
stjóra megi prýða. Brottvikning hans
er því aðeins einn liður í því starfi
Framsóknarsamvinnumannanna að
losa kaupfélögin við þá starfs-
menn, sem ekki er hægt að nota
Framsóknarflokknum til gagns og efl-
ingar.
Þessir starfshættir bera vott um
(Framhald á 3. j(8u.)
gTÆ'RSTA skipi, sem smíðað
hefir verið hér á landi til
Dessa, var fyrir skemmstu hleypt
af stokkunum á Skipasmíðastöð
K. E. A. hér í bænum, og fór
reynsluferðina s.l. fimmtudag,
eins og greint er frá annars stað-
ar í blaðinu í dag. í tilefni þess-
ara tímamóta hefir „Dagur“
snúið sér til yfirsmiðsins á skipa-
smíðastöðinni, Gunnars Jóns-
sonar, og rætt við hann um
ástand og horfur í skipasmíða-
málunr íslendinga.
Fórust Gunnari þannig orð,
meðal annars:
— Fyrir styrjöldina átti hin fá-
menna stétt manna, , sem þá
stundaði skipasmíði, við mjög
erfiða samkeppni að etja, af
hálfu skipasmíðastöðva á Norð-
urlöndum. Þar var æfðara og
ódýrara vinnuafl en hér, efnivið-
urinn var framleiddur þar og
vélar og annar útbúnaður, var
framleitt svo að segja á smíða-
staðnum. Þar við bættist svo
það, að hið íslenzka ríki hélt
uppi hreinum verndartolli fyrir
skip, sem smíðuð voru erlendis,
allt fram á síðustu ár: þau skip
voru tollfrjáls, — en íslenzkir
skipasmiðir þurftu að greiða toll
af efni og áhöldum í þau skip,
sem hér voru smíðuð. Þetta
breyttist þó þannig skömmu fyr-
ir ófriðarbyrjun, að tollur var
lagður á innf’lutt smá-vélskip.
Það má vera hverjum manni
ljóst, að með þessari stefnu
stöndum við höllum fæti í sam-
keppninni við erlendar skipa-
smíðastöðvar, einnig að styrjöld-
inni lokinni, ef ekkert verður að
gert.
— Urn þessar rnundir fer franr
algjör bylting á sviði skipa-
smíðaiðnaðarins í löndum
Bandamanna. Styrjöldin hefir
knúð þá til þess að einbeita
kröftum sínum að aukinni
skipasmíði. Arangurinn er nú
orðinn sá, að í Anreríku eru
byggð 10.000 smál. skip á jafn
skömmum tima og það tók okk-
ur að búa „Snæfellið" á síldveið-
ar nú fyrir skemmstu. Þótt telja
megi, að þau skip eigi e. t. v.
ekki mikla framtíð fyrir sér, þá
er hitt víst, að tæknin í skipa-
smíði hefir tekið risa-stökk fram
á við. Ffér heima situr hins veg-
ar allt í sama farinu, nema hvað
idýrtíðin hefir vaxið hamslaust,
en tæknin og vinnuhraðinn
standa í stað, svo að segja.
Útlitið er því ekki glæsilegt
fyrir þennan iðnað, nema hvað
segja má, að skilningur og
áhugi sé vaxandi fyrir því, að Is-
Framhald á 3. síðu.
Norðlenzkir námsmenn
við Kaliforníuháskóla
TÓHANN HANNESSON og
* HARALDUR KRÖYER
hafa báðir verið lreiðraðir á
þann lrátt, að þeir hafa verið
kjörnir meðlimir alþjóðar fé-
lagsskapar háskólamanna, sem
er heiðursfélag (Honor Society)
og kallast Phi Beta Kappa, og
hefir deildir í flestum stærri há-
skólum Ameríku. Hver háskóli
kýs á ári hverju aðeins fáa félaga
í samband þetta frá hverjum
skóla. Tillit er fyrst og fremst
tekið til námshæfileika, til for-
ystuhæfileika í félagsskap og-til
rersónuleika og skapgerðar
námsmanna.
Inntaka í „Phi Beta Kappa“
er því mesti heiður, sem náms-
manni við ameríska háskóla
getur veitzt. — Haraldur Kröyer
lauk prófi í ensku (Bachelor of
Arts) 5. febr. s.l., nteð heiðri
(Honor). Hóf hann þá að lesa
alþjóða stjórnmálavísindi (In-
ternational Relations) og hyggst
að ljúka meistaraprófi (Master
of Arts) í Jreim fræðum á tveiin
árum. — Jóhann Hannesson
mun í þann veginn að ljúka
prófi (Bachelor of Arts) í ensku.
Mun hann svo halda áfram og
ljúka meistaraprófi í þeirri
grein.
JSLENZKIR stúdentar viðKali-
forníuháskóla hafa með sér
félagsskap, og er Haraldur
Kröyer formaður hans. Nýlega
efndu þeir til kynningarkvölds
í háskólanum. Fengu þeir til
sýningar íslandskvikmynd frá
sendiráðinu í Washington. Auk
þess sýndu Jreir íslenzkar bækur,
hannyrðir, íslenzka skartgripi
og „keramik", er þeir gátu tint
saman. Vakti þetta allt mikla
athygli og áhuga áhorfenda á
íslandi. Að lokinni kvikmynda-
sýningunni svaraði svo Harald-
ur Kröyer fyrirspurnum um ís-
land og íslenzk efni.
GENGUR TIL
KOSNINGA
Ástralska þingið hefir verið rofið
og verður kosið um miðjan næsta
mánuð. CURTIN leiðtogi Verka-
mannaflokksins og núverandi forsæt-
isráðherra hafði ekki nema eins at-
kvæðis meirihluta í þinginu. Búizt er
við harðvítugri kosningabaráttu. Lík-
ur eru taldar til, að CURTIN og
flokkur hans sigri að þessu sirmi.
JJIÐ NÝJA SKIP Kaupfélags
Eyfirðinga, ,,Snæfell“, fór
reyhsluför um Eyjafjörð s.l.
fimmtudag. Hafði félagið boðið
bæjarstjóra, bæjarfógeta, út-
gerðarmönnum, blaðamönnum
o. fl. borgurum til fararinnar, og
voru um 80 manns með í för-
inni.
Lagt var af stað frá Torfunefi
kl. 5,30 síðdegis og siglt til Hrís-
eyjar. Var þar stutt viðdvöl, en
síðan siglt til Dalvíkur og þaðan
heimleiðis. Veður var hið feg-
ursta alla leiðina og mun gestun-
um minnisstæð innsiglingin í
skini kvöldsólarinnar.
Skömrnu eftir að lagt var frá
Dalvík, var slegið upp borðum
á þiljum og gestum veitt þar af
hinni mestu rausn. Undir borð-
um voru margar ræður fluttar.
Egill Jóhannsson, skipstjóri,
bauð gesti velkomna, en Gunnar
Jónsson, skipasmíðameistari,
lýsti skipinu og ræddi um ástand
og horfur í skipasmíðamálum ís-
lendinga. Aðrir ræðumenn
voru: Steinn Steinsen, bæjarstj.,
Jakob Frímannsson, forstjóri,
Gunnar Larsen, framkvæmdastj.,
Einar Arnason, fyrrv. alþm.,
form. K. E. A.,Bernharð Stefáns-
son, alþm., Jónas Þór, verk-
smiðjustj., Guðmundur Péturs-
son, útgerðarmaður, Jentoft
Indbjör, framkvæmdastjóri o. fl.
Leikfélag Reykjavíkur
sýndi „Orðið“ eftir Kaj
Munk í leikhúsinu hér
í gærkvöldi
pRUMSÝNINGIN á „OrðiniU
eftir Kaj Munk var prýðilega
vel sótt og leikurunum ágætlega
fagnað. Verður sýning Jressa leik-
rits að teljast með merkustu
leiklistarviðburðum hér unr
langt skeið. Leikstjóri var Lárus
Pálsson og lék hann hlutverk
kraftaverkamannsins, J óhannes-
ar. Landskunnir leikarar úr
Reykjavík fóru og með önnur
aðalhlutverk sjónleiks þessa.
Leikurinn verður sýndur í kvöld
og annað kvöld, en að svo búnu
mun leikflokkurinn halda heim-
leiðis til Reykjavíkur. — Nánari
umsögn um leiksýningar þessar
verður að bíða næsta blaðs.
Komið var til Akureyrar laust
fyrir miðnætti.
Skipið reynist í alla staði
ágætlega. Reyndist hraði þess
um 11 mílur. Hér á eftir fer lýs-
ing á skipinu:
Skipið er sérstaklega smíðað
(Framhald á 4. síðu).
Iíarlakórinn
„Fóstbræður64
Glæsilegir samsöngvar í
síðast liðinni viku
plNS og getið var um í síðasta
tbl. kom Karlakórinn „Fóst-
bræður“ frá Reykjavík hingað
til bæjarins s.l. fimmtudags-
kvöld og hafði samsöngva hér á
föstudagskvöld og laugardag.
Það vakti einkum athygli þeg-
ar í upphafi samsöngsins á föstu-
dagskvöldið, hversu íslenzk og
norræn söngskráin var. Hófst
söngurinn með þjóðlagasyrpu
er Emil Thoroddsen hafði búið
undir söng. Voru 8 lög í syrp-
unni, flest öllum kunn, svo sem
Dalavísur, Eg veit eina bauga-
línu, Bára blá, Hrafninn flýgur
o .s. frv. „Fóstbræðralag“ Jó-
hanns O. Haraldssonar var flutt
næst og síðan hvert lagið af
(Framh. á 4. síðu).
„SNÆFELL" REYNIST ÁGÆTLEGA
Um 80 manns í reynsluförinni síðastliðinn fimmtudag