Dagur - 08.07.1943, Blaðsíða 4
D AGUR
ÚRBÆOGBYGGÐ
Messað Á Lögmannshlíð næstk.
sunnudag kl. 12 á hádegi, í Akureyr-
arkirkju kl. 2 e. h.
Z íon. Samkomur föstudags- og
sunnudagskvöld kl. 8V2. Olafur Ólafs-
son o. fl. tala. Allir velkomnir.
Hjúskapur. Nýlega voru gefin
saman í hjónaband af sóknarprestin-
um: Ungfrú Jóhanna Bergmann frá
Fuglavík, Gullbr.sýslu og Njáll Frið-
bjamarson, Jódísarstöðum. Ungfrú
Ólöf Baldvinsdóttir frá Grenjum,
Mýras. og Valgarður Kristinnsson,
verkamaður, Akureyri.
Frá héraðslækni: Ólafur Sigurðs-
son gegnir læknisstörfum fyrir hér-
aðslækninn til 15. ágúst næstk. Til
viðtals á lækningastofu hans á venju-
legum viðtalstíma. Heima í Mennta-
skólanum.
Sumarhátíð í Vaélaskóéi. Eips og
greint var frá í síðasta tbl. hafði
Skógræktarfél. Eyfirðinga auglýst
sumarhátíð í Vaglaskógi s.l. laugar-
dag og sunnudag. Þrátt fyrir rign-
ingu og dumbungsveður sótti fjöldi
manns hátíðina, alls nær 3000manns.
Skemmtunin var myndarlega undir-
búin af félaginu. Þrjár stórar tjald-
búðir voru reistar í skóginum, ræðu-
palli og danspalli fyrir komið o. s.
frv. — Ræðumenn voru: Sig. Nordal
prófessor, Hermann Jónasson, fyrrv.
forsætisráðh. og Ágúst H. Bjarnason
prófessor. Karlakórinn „Geysir" og
„Fóstbræður“ sungu og Páll ísólfsson
stjómaði „Þjóðkórnum". — Kvik-
myndir voru sýndar í tjaldi og dans
stiginn í öðru tjaldi. Skemmtunin fór
vel fram.
Fjöldi íþróttamanna úr Reykjavík
er hér á ferð þessa dagana.
Fimleikaflokkar „Ármanns“ höfðu
sýningu hér s.l. mánudagskvöld og
fór héðan austur á land.
íþróttafélaé Reykjavíkur kom hér
nú í vikunni og fór austur í Þingeyj-
arsýslu.
Knattspyrnufél. „Fram“ kemur til
bæjarins á morgun í boði I. R. A. og
keppir við félögin hér og sameinað
úrvalslið þeirra. Fyrsti leikurinn
verður á laugardagskvöldið og keppir
úrvalslið Akureyrar þá við gestina.
Knattspyrnufél. Reykjavíkur mun
verða hér um aðra helgi og mun þá
keppa í knattspyrnu og handknatt-
leik við félögin hér.
Knattspyrnufél. „Vikinéur“ fer hér
um, áleiðis til Húsavíkur um miðjan
þennan mánuð og keppir e .t. v. við
félögin hér á heimleið.
St. Brynja nr. 99 heldur fund í
Skjaldborg kl. 8,30 í kvöld. Dagskrá:
Inntaka, fréttir af Stórstúkuþinginu.
Fjölmennið á fundinn.
Hjónaefni. Nýlega hafa opinberað
trúlofun sína ungfrú Guðrún Sigurð-
ardóttir frá Valþjófsstað í Norður-
Þingeyjarsýslu og Jón Ragnar Helga-
son, Þórustöðum, Kaupangssveit.
Fjármark mitt er:
gat hægra, heilrifað og biti framan
vinstra. Brennimark: J. Steins.
JÓHANN STEINSSON,
Grundaigötu 3. — Akureyri.
ÍSLENZK FLÖG6
Vöruhús Akureyrar
TAPAST HEFIR
jarpur hestur, 5 vetra, óafrakaður,
mark: sneitt aftan fjöður framan h.,
sýlt fjöður framan vinstra, lítt eða
ekki járnaður.
Björn Halldórsson lögfræðingur.
KARTÖFLUR.
Til sölu næstu daéa hjá Birni Sié-
mundssyni smáar kartöflur, 2 Vá—3
cm. stærð, á 10 kr. 25 kg. pokar,
Kristirm Siémundsson,
INNILEGASTA HJARTANS ÞAKKLÆTI
færum við öllum þeim er glöddu okkur á gullbrúðkaups-
daginn okkar, 28. júní s.l., með heimsókn, gjöfum og heilla-
skeytum. — Guð blessi ykkur öll.
Hóli, 2. júlí 1943.
Ólöf Kristín Elíasdóttir. Jón Benjamínsson.
„SnæfeII“ reynist ágætlega.
(Framh. af 1. síðu).
með tilliti til þess að stunda tog-
veiðar og í sambandi við það
flutning á ísfiski til útlanda, auk
síldveiða.
Skipið er 166 smálestir brúttó
og aðalmál þess eru 33 metrar á
lengd, 6,6 rnetrar á breidd og
3,45 rnetrar á dýpt. — Aðalvél
skipsins er 480 hestafla Ruston
& Hornsby Dieselvél, en vinnu-
hestöfl eru 432. — Snúnings-
lnaði vélar með fullu álagi er
430 á mínútu, en gert er ráð fyr-
ir að vélin sé að jafnaði keyrð
375 snúninga á mínútu og fram-
leiði þá ca. 375 vinnuhestöfl.
Niðurfærsla á skrúfu er 1 : 3 og
snýst þá skrúfan 125 snúninga á
mínútu. — Vél þessi er sérstak-
lega miðuð við botnvörpuveiði
og er sams konar og látin hefir
verið í nýtízku brezk botnvörpu-
skip. — Fyrir skipið hefir verið
keypt rafmagnstogvinda af nýj-
ustu gerð, sem þó er ekki enn
komin, og hefir verið, til bráða-
birgða, látin „Boston“-vinda í
skipið. — Rafmagn fyrir hina
fyrirhuguðu rafmagnsvindu
framleiðir 75 kw. rafall með
ábyggðri 100 hestafla vél (einnig
af Ruston & Hornsby gerð). —
Rafmagnsvindan verður aftan
við formastur og notast einnig
sem akkerisvinda með sérstök-
um keðjuhjólum (kabelar). Auk
þessarar samstæðu er í skipinu
sambyggð „hjálparvél", þ. e. 10
hestafla vél er drífur, auk 6 kw.
rafals, miðflóttaaflsdælu og loft-
þjöppu. Þar er fyrirhugað að
setja í skipið kælivél til kæling-
ar á lestarúmi skipsins, sem um-
rædd 100 hestafla vél'mun einn-
ig drífa. — Innrétting skipsins er
í aðalatriðum þessi: —
Mannaíbúð framnii í (lúgar)
með 11 rúmum. — 3 herbergi
undir þiljum aftur í með 8 rúm-
um. — Skipstjóraklefi í jrilfars-
iiúsi fremst, og að aftan í þilfars-
húsi matsalur. í brúarhúsi er,
auk skipstjóraklefa, leiðarreikn-
ingsklefi (Bestik), og aftast auka-
klefi með 1 rúmi. — Skipið er
útbúið með sjálfritandi berg-
málsdýptarmæli af nýjustu gerð.
Yfirsmiður er Gunnar Jóns-
son, og hefir hann annast allar
teikningar. — Við vélaniðursetn-
ingu hefir verið C. S. Dorr, vél-
fræðingur frá Ruston & Horns-
by, en vélaverkstæðið „Marz“,
Jón Jósefsson og Óskar Ósberg,
hafa séð um alla vinnu vélasetn-
ingu viðkomandi. — Raflagnir
annast Samúel Kristbjarnarson,
jársmíði Steindór Jóhannsson og
Steindór Steindórsson. — Mið-
stöðvarlögn miðstöðvardeild
Kaupfélags Eyfirðinga. .
Skipstjóri verður Egill jó-
hannsson, áður skipstjóri á e.s.
„Hvassafell".
Skipið verður gert út á vegum
Otgerðarfélags K. E, A. h,f.
Karlakórinn „Fóstbræður.
(Framhald af 1. síðu).
öðru, tilþrifamikið og stórbrot-
ið. — Sérstaka athygli vöktu
norsku lögin „Ólafur Tryggva-
son“ og „Slaa ring um Norig“.
Mun glæsilegri karlakórssöngur
vart hafa heyrzt hér. Fer þar
saman ágæti raddanna, góð
þjálfun og samstilling, smekk-
vísi og nákvæmni söngstjórans,
Jóns Halldórssonar. — Kórinn
söng 20 lög og ætlaði fagnaðar-
látunum aldrei að linna. Fagrir
blómvendir bárust söngstjóran-
um. — í samsöngsbyrjun heils-
aði karlakórinn „Geysir,, söng-
mönnunum með „Sangerhilsen"
eftir Grieg, en Davíð Stefánsson
frá Fagraskógi hafði ort ljóð
undir laginu. — Síðan ávarpaði
Þorst. Þorsteinsson frá Lóni,
form. „Geysis“, „Fóstbræður“ og
bauð þá velkomna, en Sig.
Waage þakkaði fyrir hönd sunn-
anmanna.
Á laugardagskvöldið sátu
„Fóstbræður" boð hjá Karlakór
Akureyrar, en fóru að Laugum
og í Vaglaskóg í boði „Geysis" á
sunnudag. Heimleiðis héldu
gestirnir á mánudagsmorgun.
sýnir í kvöld kl. 9:
SLÆÐINGUR
Föstudag kl. 9:
Klaufskir kúrekar
Laugardag kl. 9:
SLÆÐINGUR
Sunnudag kl. 3:
Klaufskir kúrekar
Kl. 5 og 9:
SLÆÐÍNGUR
Fjármörk
Benedikts Guðmundssonar,
Vatnsenda, Eyjafirði er:
Lögg framan hægra, biti
framan vinstra.
Sigmundar Benediktssonar
s.st.: Lögg frarnan hægra,
biti aftan vinstra.
Rafsuðuplata
óskast keypt. — Upplýsingar í síma 446.
VAXDÚKUR
VÖRUHÚS AKUREYRAR
Fimmtudagur 8. júlí 1943
TILKYNNING
Viðskiptaráðið hefir ákveðið eftirfarandi hámarksverð á am-
boðum úr tré:
Kven-hrifusköft Heildsala. kr. 4,70 Smásala kr. 5,65
Karlmanna-hrífusköft — 5,35 — 6,40
Söxunar-hrífusköft — 6,30 — 7,55
Hrífuhausar ótindaðir — 3,00 — 3,60
do. tindaðir — 3,90 — 4,70
Kvenhrífur — 10,25 — 12,30
Karlmannahrífur — 10,90 —• 13,10
Söxunarhrífur __ 11,85 — 14,20
Orf — 19,50 — 23,40
Við ofangreint smásöluverð má bæta áföllnum flutningskostn-
aði frá framleiðslustað til útsölustaðar.
Akvæði tilkynningar þessarar ganga í gildi frá og með 1.
júlí 1943.
Reykjavík, 30. júní 1943.
Verðlagsstjórinn.
TILKYNNING
Viðskiptaráðið hefir ákveðið eftirfarandi hámarksverð á þjón-
ustu hárskera og rakara:
1. Klipping ................................ kr. 4,10
2. Höfuðbað ................................. - 3,30
3. Rakstur ................................... — 1,50
Þar, sem verðið hefir verið lægra en að ofan greinir, er bannað
að hækka það, nema með leyfi Viðskiptaráðsins.
A rakarastofum skal jafnan hanga verðskrá, þar sem getið sé
verðs sérhverrar þjónustu, sem innt er af hendi, og sé önnur þjón-
usta en nefnd er að ofan verðlögð í samræmi við fyrrgreint há-
marksveið. Aðilar á eftirlitssvæði Reykjavíkur skulu nú þegar fá
verðskrá sína staðfesta af verðlagsstjóra, en aðilar utan þess hjá
trúnaðarmönnum hans.
Akvæði tilkynningar þessarar ganga í gildi frá og með 5. júli
1943.
Reykjavík, 30. júní 1943.
Verðlagsstjórinn.
- NOTIÐ SJAFNAR-VÖRUR