Dagur - 22.07.1943, Blaðsíða 1
Vikublaðið DAGUR
Ritstjórar: INGIMAR EYDAL;
JÓHANN FRÍMANN.
Afgreiðsla, auglýsingar, innheimta:
Sigurður Jóhannesson.
Skrifstofa við Kaupvangstorg.
Sími 96.
Argangurinn kostar kr. 8,00.
Prentverk Odds Björnssonar.
XXVI, árg.
AÐALFUNDUR S. I. S.
20 ÞUSUND LANDSMENN INNAN KAUPFELAGANNA
Kaupfélögin leggja 25 þúsund kr. í sjóð Noregssöfnunarinnar og
liefja söfnun til hjálpar samvinnumönnum á meginlandi Evrópu
með 1000 sterlingspunda framlagi í hjálparsjóð Alþjóðasambands
GEORG VI Bretakonungur HELSINGJA RW
samvinnumanna.
Vörusala S. í. S. nam 69,5 millj. króna á síðastl. ári
Háif miljón króna í skipakaupasjóði
er nýkominn heim úr ferS um hern-
aðarsvæði Miðjarðarhaisins. Konung-
skoðaði hersveitir og hernaðar-
mannvirki. Skömmu síðar háfst irm-
innrásin á Sikiley.
nefnist lítið ársrit, sem gefið er
tit til ágóða fyrir bóka.vafn
sjúklinga í Rristneshæli.
Rit þetta mun verða selt hér í bæn-
um í næstu viku. Er það fyrsta ár
þess og hefir félag berklasjúklinga í
Kristneshæli, „Sjálfsvörn“, ráðizt í
þessa útgáfu til að reyna að afla
bókasafni hælisins tekna, sem því er
mikil þörf. Safnið hefir til þessa ein-
göngu lifað á gjöfum og góðvild ein-
stakra manna. Og með núverandi
verðlagi á bókum og bókbandi hefir
það átt mjög örðugt aðdrátta síðustu
árin. Þess er að vænta að Akureyr-
ingar bregðist vel og drengilega við
í þessu máli og kaupi þetta litla rit,
sem flestir. Drengir eða unglingar,
sem vildu taka að sér að selja ritið í
húsum óg á götum, geta snúið sér til
fornbókaverzlunar Pálma H. Jónsson-
ar, Hafnarstræti 105, í byrjun næstu
viku.
. Ritið hefir inni að halda stuttar
greinar, ljóð, ýmislegt til skemmtijust-
urs o. fl.
NÝTT 125 SMAL. SKIP
bætist veiðiflotanum
Síðastliðinn laugardag hljóp nýtt
125 smálesta fiskiskip af stokkunum
á skipasmíðastöð Nóa Kristjánssonar
á Oddeyrartanga. Skipið er eign h.f.
Fiskakletts í Hafnarfirði. Hlaut það
nafnið „Fagriklettur". — „Fagriklett-
ur“ er talinn hið ágætasta smíði og er
vel búinn að öllu leyti.
Bæjarstjórn Seyðisfjarð-
ar og sjálfstæðismálið
Á fundi sínum 5. júlí 1943
samþykkti bæjarstjórn Seyðis-
fjarðarkaupstaðar eftirfarandi á-
lyktun einróma:
„Bæjarstjórn Seyðisfjarðar-
kaupstaðar lýsir sig eindregið
fylgjandi því, að lýðveldi verði
'Stofnað hér á landi, og skorar á
Alþingi, þegar það kemur $am-
an í sumar eða haust, að sam-
(Framhald á 4. síðu).
Kappreiðar á Þveráreyrum s. 1. sunnudag
Eyfirzkir hestar skara fram úr
RITFREGNIR
GRÍMA, tímarit fyrir ís-
lenzk þjóðleg fræði, 18.
árg.
n LLIR ÞEIR mörgu íslendingar,
“ sem þjóðlegum fræðum unna og
safna bókum um slík efni, taka
hverju nýju hefti af Grímu, tímariti
þeirra Jónasar Rafnar og Þorsteins
M. Jónssonar, fegins hendi, þegar út
kemur. Gríma er þegar orðið heljar-
mikið safn að vöxtum — fjögur
þykk bindi bráðum, — fjölbreytt,
fróðlegt og einkar skemmtilegt safn
alls konar sagna og þjóðlífslýsinga. I
þessu nýja hefti bætast þar i hópinn:
Sagnir um séra Magnús á Tjörn, skrá-
settar af Jónasi Benjamínssyni, en
prestur þessi „var álitinn á sinni tíð
gáfumaður mikill, andríkur mjög og
skáld gott og kallaður af mörgum
kraftaskáld“ og eru af honum marg-
ar skemmtilegar sagnir. Jón Jóhann-
esson fiskimatsmaður á Siglufirði
skrifar alllangan og ýtarlegan þátt
um snjóflóðin í Hvanneyrarhreppi í
aprilmánuði 1919. Eru mörgum enn
í fersku minni þau stórfelldu og
hörmulegu slys, er af þeim stöfuðu á
Siglufirði, Siglunesi, Héðinsfirði og
víðar. 18 manns fórust alls í flóðum
þessum, en margir björguðust nauð-
uglega og sumir meiddir og þjakaðir.
Auk þess varð mikill skaði á skipum,
húsum, jarðeignum og öðru fémætu,
svo að tjónið var talið ekki ofreiknað
á aðra miljón króna á Siglufirði ein-
um. — Þá birtast og í heftinu nokkr-
ar saénir Gísla Olafssonar, skálds frá
Eiríksstöðum, en Jón Jóhannesson
hefir skrásett þær eftir frásögn Gisla
sjálfs. Eru þær læsilegar í bezta lagi,
en flestar þannig vaxnar, svo sem
raunar er tíðast um sagnir af dulræn-
um fyrirburðum, að ekki eru aðrir til
frásagnar um það, hvað fyrir sögu-
mann hefir raunverulega borið, en
hann sjálfur, og veltur það því á
kynnum þeim og afspurn, sem menn
kunna að hafa af honum, hversu mik-
ill trúnaður verður á þær lagður.
Stutt þjóðsaga, er nefnist: Leirulækj-
ar-Fúsi læknar mann, rekur lestina.
Margit Ravn: DRAXJM-
URINN FAGRI. Skáld-
saga. Helgi Valtýsson ís-
lenzkaði. — Bókaforlag
Þorst. M. Jónsson. Akur-
eyri 1943.
TpKKI þarf raunar annarra vitna
við um vinsældir þær, sem skáld-
sögur frú Ravn njóta hjá isl. lesend-
um en að minna á þá staðreynd, að
saga þessi er ellefta bók frúarinnar,
sem þýdd hefir verið og útgefin á ís-
lenzku. Allar eru sögur þessar raunar
hver annari likar nokkuð: fjörlega
sagðar og yfir þeim léttviðrislegur
blær saklausra aeskuásta og æfin-
týra. Þær munu fyrst og fremst ætl-
aðar unglingum til lestrar og hafa
vafalaust mun hollari áhrif á ungt og
ómótað fólk en margar aðrar „skáld-
menntir", sem nú eru helzt á boðstól-
um, svo að ekki séu áhrif annarra
„dægradvala" nefnd í því sambandi.
J. Fr.
Ferðafélaé Akureyrar fer til Nátt-
faravíkur næsta laugardag. Ekið
verður um Aðaldal að Sandi og gist
þar. Ferjað þaðan yfir Skjálfanda-
fljót og gengið um fjörur til Náttfara-
víkur. En til baka um Kotadal. Frá
Sandi verður ekið til baka um Skriðu-
hverfi og Köldukinn. Um fyrstu helg-
ina I ágúrt verður farið ? Fljótin.
Aðalfundur Sanibands ísl.
saravinnufélaga var settur að
Hólum í Hjaltadal sl. fimmtu-
dag. Fundinn sátu 77 fulltrúar
frá 50 félögum.
Einar Árnason, form. Sam-
bandsstjórnar, flutti skýrslu um
gerðir stjórnarinnar, en forstjór-
inrt, Sig. Kristinsson um starf-
semi S. í. S. og fjárhag. Fram-
kvæmdastjórar útflutnings- og
innflutningsdeilda, Jón Árnason
og Aðalsteinn Kristinsson, fluttu
einnig ýtarlegar skýrslur.
Fundurinn- samþykkti ýmsar
tillögur og ályktanir. Ákveðið
var að Sambandið legði 25 þús.
kr. til Noregssöfnunarinnar, og
1000 sterlingspund (26 þús. kr.)
í söfnun Alþjóðasambands sam-
vinnumanna til lijálpar sam-
vinnumönnum á meginlandinu.
(Dagur hefir áður birt grein um
þá söfnun.) Þá var stjórninni
falið að athuga ýmsar nýungar
svo sem möguleik;?’ fyrir því, að
koma upp gistihúsi fyrir sam-
vinnumenn í Rvík, og koma á
fót ódýru og hentugu húsgagna-
smíðaverkstæði o. fl.
Skipakaupamálið var ofarlega
á dagskrá. Jón Árnason framkv.-
stjóri upplýsti, að þegar hefði
safnazt 500 þús. kr. í skipa-
koupasjóð. Söfnunin heldur ' á-
fram.
Hér fara á eftir helztu atriði
úr skýrslu forstjórans, Sigurðar
Kristinssonar:
í ársbyrjun 1942 voru 48 sam-
vinnufélög í Sambandinu, en 2
bættust við -á árinu, Kaupfélag
Arnfirðinga og Katijtfélag Súg-
firðinga. Voru félögin því 50 í
árslok.
Tala fékgsmanna í Sanrbands-
félögunum var 20189 í árslok og
hafði fjölgað um 1595 eða 8,6%
á árinu.
Vörusala Sambandsins nam
um 69.5 miljónum kr. og hafði
aukizt um 14.5 miljónir frá
næsta ári á undan, mest vegna
verðhækkunar. Sala innlendra
vara innan og utan lands nam
tæpurn 23.8 miljónum og var
2.9 milj. lægri en árið áður.
Samvi?muskólinn starfaði 7
mánuði eins og venjulega. í
fyrravor útskriluðust 25 nem-
endur úr skólanum.
Verksmiðjur Sambandsins og
önnur fyrirtæki þess. Sambandið
rak eftirgreind fyrirtaski árið
sem leið: Á Akureyri: Ullarverk-
smiðjUna Qeljuni, Skinnaverk-
smiðjuna Iðunni og saumastofu.
í Reykjavík: Frystihús, garna-
hreinsunarstöð, sokkaprjónastofu
og saumastofu, ásamt útsölu á
f ram leiðslu vörum verksm iðj -
anna. í Vestmannaeyjum: Frysti-
hús og útsölu á verksmiðjuvör-
um S. í. S. og innlendum afurð-
um.
Framleiðsla Gefjunar og Ið-
unnar var nokkru minni en árið
áður. Stafaði það aðallega af
vöntun á verkafólki og að taka
þurfti allmargt af óvönu starfs-
fólki, en einnig að nokkru leyti
af því, að seint gekk að fá er-
lendar efnivörur til framleiðsl-
unnar. Þó að magn framleiðsl-
nnnar hafi minnkað verulegaj
varð þó vörusalan vegna hækk-
ðs verðlags svipuð að krónutölu.
Vörusala verksmiðjanna og ann-
arra fyrirtækja S. I. S. varð sem
hér segir:
Gefjun .......... 1.937.141.20
Skinnav.sm. Iðunn 1.742.106.56
Saumast., Akureyri 456.961.01
Garnastöðin .... 554.771.13
Sokkaprjónastofan 112.736.10
Verksm.útsalan og
saumast. í Rvík 821.460.42
Vöruútsalan í Vest-
mannaeyjum . . 473.690.23
Samtals kr. 6.298.866.65
Efnahagur Sambandvins og
sambandsfélaganna.
í árslok var Sambandssjóður
kr. 2.743.000.00 en sameignar-
sjóðir námu 3.185.000.00.
Sambandsfélögin hafa rhjög
bætt bag sinn gagnvart Sam-
bandinu árið sem leið. í árslok
1942 voru innieignir þeirrá hjá
Sambandinu um 17.8 miljónir
og ‘skuldir 1.6 miljónir, svo að
innieignir umfram skuldir námu
um 16.2 miljónum króna. í árs-
lok 1941 voru tilsvarandi inni-
eignir tæpar 9 miljónir króna,
og hafa sambandsfélögin því
bætt hag sinn í reikningum hjá
S. í. S. um fullar 7.2 miljónir.
Sjóðeignir félaganna 'jukust
allmikið á árinu. Sameignarsjóð-
ir námu í árslok rúmum 10 mil-
jónum og höfðu hækkað um
nærri 2.6 milljónir á árinu.
Stofnsjóðir námu 5.8 miljónum
og höfðu hækkað um rúmlega
(Framhalú á 4, síðti).
pjESTAMANNAEÉLAGIÐ
Léttir efndi til kappreiða síð-
astliðiiin sunnudag á Þveráreyr-
um. Keppt var á stökki í 300
og 250 nretra sprettfæri. Kepp-
endur voru 12 í 300 metra — og
6 í 250 metra hlaupinu. Hest/írn-
ir voru ættaðir úr Eyjafjarðar-,
Skagafjarðar-, Húnavatns-, Borg-
arfjarðar- og Þ/ngeyjarsýslum,
allt liinir glæsilegustu gæðingar.
Sérstaka athygli vakti það, að
af 18 hestum, sent tóku þátt í
kappreiðunum, voru 7 eyfirzkr-
ar ættar og af þeim fengu 5
verðlaun. Er þetta hinn ánægju-
legasti árangur fyrir eyfirzka
hestamenn.
Úrslit í 300 metra hlaupinu
tirðu þessi:
I. verðlaun hlaut Gráskjóni,
hvítur, 12 vetra, úr Eyjafjarðar-
sýslu, eigandi Magnús Aðal-
steinsson, Grund, knapi Bjarni
' Kristinsson. II. verðlaun Fálkk |
brúnn, 7 vetra, úr Eyjafjarðar-
sýslu, eigandi Jón H. Kr/'stins-
soí;, Möðrufelli, knapi eigand-
inn. III. verðlaun hlaut Hrentsa,
rauðstjörnótt, 8 vetra, úr Eyja-
fjarðarsýslu, eigandi Bjarni
Kristinsson, knapi Hallur jó-
bannesson. — Gráskjón; hljóp
skeiðið á 24,4 sek. Fálki náði
sama tíma, en var þó sjónarmun
á eftir. Hremsa, 24,5 sek. Næstir
urðu Rauður, eigandi frú María
Ragnars, 24,6 sek. og Gráblesi,
eigandi Björn Björnsson, Skóg-
um, Axarfirði, 24,6 sek., og fékk
hann flokksverðlaun.
250 metra sprettínn vann
Haukur, 6 vetra, úr Skagafjarð-
arsýslu, eigandi Gunnbjörn Arn-
ljótsson, knapi Jón Þorsteinssoú,
rann skeiðið á 21,2 sek. og blaut
I. verðlaun. II. verðlaun hlaut
Draumur, 6 vetra, úr Eyjafjarð-
arsýslu, eigandi Heiðbjört Krist-
(Framhald á 4. síðu).