Dagur - 26.08.1943, Blaðsíða 2
DAGUR
Fimmtudagur 26. ágúst 1943
Réttarhótin mikla
og loforðaísvikln
miklu.
Hin tilvitnuðu orð notar
Morgunblaðið 17. þ. m. um
breytingu þá á kosningafyrir-
komulaginu, sem komið var á
síðastl. ár.
Grein „Mbl. um „réttarbótina
miklu" hefst á þessa leið:
„Aldrei hafa Sjálfstæðismenn
fundið það eins greinilega og
þetta síðasta ár, hve mikils virði
þeim er réttarbótin, sem-náðist í
fyrra, með breytingunni á kosn-
ingafyrirkomulaginu".
Öll Mbl.greinin er síðan lof-
söngur um „réttarbótina miklu“
og lýsing á þeirri sælu, er Sjálf-
stæðismenn hafi orðið aðnjót-
andi eftir afrekið í kjördæma-
málinu.
Eins og kunnugt er, var „rétt-
arbótin mikla" í því fólgin, að
Sjálfstæðisflokknum tókst að
afla sér fjögurra minnihluta-
þingmanna í stað sex eins og
upphaflega var ætlazt til.
í>að eru hinir fjórir minni-
hluta-þingmenn, sem skapa
þessa miklu sælutilfinningu inn-
an Sjálfstæðisflokksins, semMbl.
er að segja frá.
En Mbl. láist að geta um eitt
í þessu sambandi. Það minnist
ekki einu orði á það, að „réttar-
bótinni miklu“ var komið á í
skjóli hinna stórfelldustu lof-
orðasvika, er átt hafa sér stað í
þingsögunni.
Alþjóð veit nú orðið um
drengskaparheit það, er þeir Ól-
afur Thors og Jakob Möller
unnu aðfaranótt 17. jan. 1942.
Ólafur rétti upp 3 fingur til
vitnis um, að það loforð sitt
skyldi verða haldið, að ekki yrði
hreyft við kjördæmamálinu að
sinni. Möller lofaði hinu sama,
en rétti ekki upp 3 fingur.
.011 þjóðin veit, að þetta há-
tíðlega drengskaparheit var rof-
ið. Ólafur Thors, formaður
Sjálfstæðisflokksins, vann það til
að verða heitrofi, til þess að geta
orðið æðsti maður í stjórn lands-
ins með stuðningi kommúnista.
Ólafur Thors hefir hælt sér og
flokki sínum fyrir þá ,,fórn“ að
taka við stjórn landsins á erfið-
um tímum.
Vissulega mun sú fórn lengi í
minnum höfð. Sjö mánaða
stjórn Sjálfstæðisflokksins
gleymist ekki vegna afleiðinga,
er hún hafði í för með sér.
Seinni hluta ársins 1942 er
mesta óstjórnar- og niðurlæging-
artímabil í sögu þjóðarinnar,
síðan stjórnin fluttist inn í land-
ið. Á skömmum tíma tókst
stjórn Ólafs Thors að tvöfalda
dýrtíðina í landinu og gera hana
óviðráðanlega. Stjórn Ól. Th.
hefir játað, að hún hafi keypt
sér fylgi sósíalista gegn því lof-
orði að aðhafast ekki neitt, er
ágreiningi ylli í dýrtíðarmálun-
um. í því efni afsalaði hún sér
völdunum í hendur sósíalista.
Stjórn Sjálfstæðisflokksins bjóst
við að geta setið áfram, eftir að
hún baðst lausnar, hún treysti
því, að þingræðislegri stjóm yrði
ekki á komið, og þá væru ekki
önmir ráð fvrir hendi en að fela
fráfarandi stjórn að fara áfram
með völd. Á þessari skoðun ból-
aði í einni þingræðu Magnúsar
Jónssonar. Þetta hefði líka reynzt
svo, ef engin breyting hefði ver-
ið orðin á æðstu stjórn landsins.
En ríkisstjóri fór aðra leið.
Ilann myndaði nýja stjórn og
vék um leið óstjórn Ólafs Thors
frá völdum á kurteisan hátt. Þar
með var valdadraumur hennar
á enda kljáður.
Ólafur Thors lofaði að fram-
fylgja gerðardómslögunum.
Hann brást því loforði og tvö-
faldaði dýrtíðina.
Hann lofaði forustu Sjálfstæð-
isflokksins á Alþingi eftir „um-
bæturnar“ á kjöfdæmaskipun-
inni. Sú forusta fórst fyrir.
„Umbæturnar" á kjördæma-
skipuninni — „réttlætismálið
mikla“ — hefir leitt af sér óstarf-
hæft þing, annað ekki.
En eina stóra fórn hefir for
maður Sjálfstæðisflokksins* fært.
Með öllum sínum heitrofum hef-
ir hann fyrir sína hönd og flokks
síns fórnað drengskapnum.
Allt eru þetta förunautar
„réttarbótarinnar miklu". Ekki
er furða, þó að Sjálfstæðismenn
séu glaðirl
En mundi gleðin vera óbland-
in hjá þeim öllum?
Haldið Grundar-
kirkju betur.
Góðir Eyfirðingarl Eg var ný-
lega á ferðinni og kom þá að
hinu fræga höfuðbóli ykkar,
Grund. Eðlilega ætlaði eg að
skoða kirkjuna og gerði það líka.
Mér var góðfúslega leyft það. Eg
get ekki annað en dáðst að kirkj-
unni og þeim stórhug, sem hún
auglýsir. En — viðhaldið þykir
mér ekki sómasamlegt, svo að eg
segi eins og mér býr í brjósti.
Þegar eg kom að sáluhliðinu, þá
leit eg það, sem mér féll illa.
Fokið hefir, að líkindum, yfir-
bygging þess, eg veit ekki fyrir
hvað löngu, en hitt er v'íst, að
hún liggur þar í grasinu og
grotnar sundur að fullu í hirðu-
leysi. Inni í kirkjunni er líka
ýmislegt fært úr lagi. Einn ofn
sá eg í henni, en voru þeir ekki
upphaflega tveir? Eftir hurðum
og gluggum þyrfti að líta og svo
þarfnast kirkjan málningar.
Margt, sem mér virtist að gera
þyrfti fyrir kirkjuna, kostar í
sjálfu sér lítið — og þá er bara
að gera það. Sómi ykkar liggur
við, Eyfirðingar, að halda þetta
dýrlega musteri vel í alla staði.
Sé íjárþröng' orsök lélegs við-
valds, þá er s.á fyrir hendi að
reyna að afla henni fjár. Eg er
viss um, að ferðamenn, sem
koma og skoða kirkjuna, myndu
fúslega bregðast vel við, ef þeim
væri gerð þörfin ljós, sé hún fyr
ir hendi. Eg eggja ykkur lögeggj-
an, Eyfirðingar, að halda Grund-
arkirkju betur! Ferðalangur.
Verkafólk
það er vann á Sláturhúsi voru á Akureyri
síðastliðið haust, og ætlar að vinna þar
nœstkomandi haust er beðið að láta skrá
sig á skrifstofu vorri eigi síðar en 10. sept. n.k.
KAUPFÉLAG EYFIRDINGA
Er sundlaug Akureyringa að
kólna?
gLAÐINU hefir borizt eftirfarandi
pistill frá Baldii Ingólfssyni, for-
manni sundfélagsins Grettis. Er þar
bent á þá staðreynd, að aðsóknin að
hinni ágætu sundlaug Akureyringa
hefir farið þverrandi nú í seinni tíð,
helztu orsakir þess raktar nokkuð frá
sjónarhóli þessa áhugamanns um
sundíþróttina og loks hreyft nokkrum
athyglisverðum tillögum til úrbóta.
Segir þar á þessa leið:
J^YRIR nokkrum árum var sundlaug
Akureyrar sá staður, sem flestir
bæjarbúar vitjuðu í frístundum sín-
um. A hverju kvöldi eftir vinnutíma,
sem þá var mun lengri en nú, þyrpt-
ist fólkið upp í sundlaug, til að hressa
sig að loknu dagsverki og æfa sund,
og á sunnudagamorgnum var ætíð ys
og þys við laugina. íþróttafélög bæj-
arins héldu uppi sundæfingum, sem
voru vel sóttar, sundmót voru haldin,
og kepptu þar ýmsir ágætir sund-
menn og konur, og var síðasta mótið
sumarið 1940.
Nú er þetta nokkuð breytt,því aðnú
er oft og tíðum mannfátt við laugina
og eru það helzt krakkar, sem þangað
koma, svo og ferðafólk, sem langar
til að þvo af sér ferðarykið. Hvað
veldur þessari breytingu? munu menn
spyrja. Er það leti og áhugaleysi? Er
það hin óvenjumikla atvinna, eða
hvað er það yfirleitt?
p|G HYGG að þessi breyting stafi
af þrem ástæðum aðallega.
Sumarið 1940 kom hingað brezkt
setulið og fékk það þegar, er á leið
sumarið, að nota sundlaugina, en þó
varð það bæjarbúum ekki til mikils
óhagræðis þá, en næsta sumar hafði
það laugina til afnota frá síðari hluta
sunnudags og þar til um hádegi
þriðjudögum, er laugin var tæmd.
Með þessu móti misstu bæjarbúar
beztu tækifærin til sundiðkana, þar
sem þeir voru alveg útilokaðir frá
lauginni þá daga, sem hún var heit-
ust. Svo í fyrrasumar var laugin lok-
uð bæjarbúum alveg um helgar og
misstu þá margir einu tækifærin, sem
þeir höfðu til þess að synda.
Hin óvenjumikla vinna hefir valdið
því, að margir vinna meira en áður
og nenna svo ekki í sund, er þeir
koma þreyttir frá verki, og svo hafa
flestir meiri peningaráð en áður og
skemmta sér meira en áður fyrr og
fara þá gjarnan í bíó eða kaffihús, í
stað þess að nota kvöldið til íþrótta-
iðkana. Svo er það með stúlkumar,
að þær geta sumar hverjar ekki farið
í sund vegna þess, að það tekur þær
of langan tíma að koma hárinu í lag.
Kannske tekur „ástandið" líka tíma
frá sumum þeirra. Þá er og fjöldi af
unglingum og ungum mönnum í vinnu
utan bæjarins, bæði í síldarverk-
smiðjum og annars staðar.
^EIGAMESTA orsök þessarar aft-
urfarar mun vera sú, að laugin
er mun kaldari en hún hefir verið, en
nú í sumar er hún kaldari en nokkru
sinni fyrr, og er hún oft ekki nema
16—17 stig fyrstu dagana eftir að
runnið hefir í hana eftir tæmingu.
Svo þegar hún er orðin þolanlega
heit eftir helgar, er hún tæmd aftur.
Nú í sumar hefir setuliðið engin telj-
andi afnot haft af lauginni, svo að
ekki er hægt að kenna því um deyfð-
ina, sem nú er hér yfir sundinu í
sumar. Vatnið í steypiböðunum er
bæði lítið og kalt, og er fjarri því að
hægt sé að hlýja sér undir þeim, þeg-
ar kpmið er upp úr lauginni, og er
það hinn mesti ókostur.
Allir hljóta að sjá, að við svona
skilyrði er mjög erfitt að halda lífi
í sundíþróttinni í bænum, því að til
þess að gott sé að æfa sund, þarf
vatnið að vera a. m. k. 22—23 stig.
Sundhöllin í Reykjavík er venjulega
um 24—25 stig og jafnvel meira á
vetrum.
Heita vatnið í laugina er leitt ofan
úr Glerárgili um þriggja km. veg, og
er leiðslan úr trépípum, sem keyptar
voru frá Noregi á sínum tíma. Vatn-
inu er náð á þann hátt, að grafið var
eftir því með hökum og skóflum um
1—IV2 m., en vatnið seytlar þarna
undan þunnu jarðlagi. Orsökin til
þess hve laugin er köld hlýtur að
vera annaðhvort sú, að einangrun um
pípurnar hafi bilað og jafnvel að þær
leki, eða þá að sumar af uppsprett-
um þeim, sem vatnið er tekið úr, hafi
þorrið. Þá á og hin óvenju kalda tíð
í sumar sinn þátt í að gera laugina
kalda og óvistlega. Þetta mál hefir
of lítið verið rannsakað, og er afleitt
til þess að vita.
^^KUREYRARBÆR á eina beztu
útisundlaug á landinu, og hefir
rekið hana með myndarbrag, þannig
að hver, sem hefir viljað, hefir átt
þess kost að læra að synda og haft
aðgang að lauginni ókeypis. Það er
því hin mesta skömm, ef sundxþrótt-
in hér í bænum á að bíða hnekki
y.-TTi
íslendingar eiga nú meira í
íúfi með gjaldeyri sinn, heldur
m nokkurn tíma fyrr. Síðan
parisjóðir og bankar tóku að
itarfa hér á landi, hefir þjóðin
/erið að eignast síauknar inn-
stæður. Söfnunarsjóðurinn, líf-
eyrir embættis- og sýslumanna,
ellitryggingarsjóður og verð-
bréfaeign hefir aukizt á undan-
^engnum áratugum, svo að þar
er um mikið fé að ræða. Á allra
síðustu árum hefir hinn svokall-
aði stríðsgróði aukið innstæður
landsmanna meira en nokkurn
mann óraði fyrir. Að vísu
skiptar skoðanir um styrk og
haldgæði stríðsgróðans, en þar
til anníð kemur á daginn, verð-
ur að gera ráð fyrir, að stríðs-
gróðinn heyri til ríki veruleik-
ans.
Málum er nú þannig háttað,
að þjóðin hefir eignazt mjög
verulegar innstæður, sem geta
haft ómetanlega þýðingu, ef
þeim er ekki kastað í sjóinn með
gálauslegri framkomu lands-
Jónas Jón§son:
Hvernig má gerakrón-
una að fimmeyring?
manna sjálfra. Þetta geymda fé | sigurvegaranna í núverandi
að vera öryggi hinna aldur-
hnignu, og lyftistöng fyrir æsku
landsins.
Með skynsamlegri notkun
þessa hreyianlega fjármagns, á
að vera hægt að byggja landið,
ný heimili í þúsundatali, og nýja
eru atvinnuvegi til lands og sjávar.
Fátt væri hörmulegra fyrir þá
kynslóð, sem nú er að vaxa upp í
landinu, en að glata hinu saman-
safnaða fjármagni, og eiga síðan
eftir stríðið að senda menn til
þeirra landa, sem -hafa fórnað
öllu, lífi og heilsu miljóna
manna og ógurlegum auði til að
bjarga frelsinu í heiminum. Það
væri óskemmtilegt ferðalag, að
eiga að koma vegna íslenzku
þjöðarinnar 1 lánbeiðslnferð til
styrjöld. Það mætti búast við, að
þeir sendimenn fengju þau svör,
að íslendingar hafi fengið nokk-
uð einstakt tækifæri til að eign-
ast lausa aura. En ef þeir aurar
hafi glatazt í stríð.slokin, þá sé
vafasamt, hvort öðrum bæri að
bæta úr því böli, a. m. k. meðan
verið er að reisa úr rústum hin
eyðilögðu lönd þeirra þjóða, er
barizt hafa fyrir frelsinu.
Samt vofir mikil hætta yfir
íslenzkri krónu, að hún verði
gerð sama og verðlaus. Sú hætta
stafar nálega eingöngu frá að-
gerðum kommúnista. Ef leið-
togar þeirra halda fast við þá
marg-endurteknu yfirlýsingu
sína, að þeir ætli að halda
„kjarabótunum" óbreyttum eft*
ir stríðið, þá gera þeir sitt til að
eyðileggja allar innstæður í
bönkum, sparisjóðum, trygging-
arfé og verðbréf, sem til eru í
landinu.
Eftir stríðið hverfur setuliðið
úr landi. Bretar verða sér að
mjög verulegu leyti nógir um
skipakost til fiskiveiða. Siglinga-
floti Breta og Norðmanna byrjar
að flytja vörur milli landa fyrir
margfalt hærra gjald heldur en
kommúnistar heirnta á íslenzk-
um skipum. Þegar verðhrunið
fellur á erlendis, en dýrtíð hald-
ið lítið breyttri á íslandi, stöðv-
ast framleiðslan á útflutnings-
verðmætum að mestu. Ef fram-
leiðendur landsins eru þá sundr-
aðir í máttlausa smáhópa, og lítt
eða ekki færir til manndóms-
átaka, þá verður af vanmegnugu
þingi og landsstjórn tekin sú
leið, þar sem mejt hallar undan
fæti. Ef kommúnistar geta feng-
ið verkamenn til að heimta
sömu krónutölu í kaup, eins og
| tíðkaðist í -skjóli við setuliðs-