Dagur - 26.08.1943, Síða 3
Fimmtudagur 26. ágúst 1943
DAGUR
3
Jfin Heigason í Eiirarlandi
áttræður 30. júlí 1943.
Með aöstoð Braga eitthvað vildi eg
um þig segja, góði Jón,
hann veit, þó að þel'vi eg rímið,
þá næ eg ei hóum tón.
Hugmyndir af skornum skammti
skenktar voru áður mér,
raunalega rýr því verður
réttur, sem ég færi þér.
Upphaf málsins er, að fæddur
ertu, Jón minn, þenna dag;
tvenna ferna tugi ára
tekið gazt þú undir lag.
Heiðurs varstu -kufli klæddur,
kraft til dáða áttir þú;
ellin þó að að þér sæki,
enn þú stundar rausnarbú.
Marga hildi háð og unnið
hefir þú á lífsins braut,
vinum þínum varstu styrkur,
vildir lina allra þraut.
Störfjn leystir létt af höndum,
leikur Vinna þér var öll;
fetaðir þú frjáls og glaður
fram um lífsins glímuvöll.
Drottinn blessi þig og þína,
það sem enn til baka er,
og þér veiti aðstoð sína
eins og bezt þér hentast sér.
Vanangurs að hlíðum háu
hann þig leiði, er æfin dvín,
þar sem eilíft yndi og gleði
er — svo hljómar kveðjan mín.
J. Ó.
HJARTAlgS þakkir til allra þeirra vina og kunningja, sem
glöddu mig á sjötíu ára afmæli rrunu þann 19. ágúst, bæði með
rausnarlegum gjöfum og heillaóskaskeytum. Guð blessi ykkur öll
og gefi gleðiríkt líf. Lifið heil.
Sílastöðum, 24. ágúst 1943.
ÁGÚST JÓNASSON.
IJHS<B><B><H><BS<H><B><B><H><H><H><H><H><H><H><H><H><B>ÍH><H><B><H><H><H><H><H>i
KAUPFELAG SKAGFIRÐINGA
SAUÐARKRÓKI
selur spaðsaltað kjöt af vænu fullorðnu fé, 115 k(ló í tunnu, á
aðeins 300 krónur tunnuna fob. Sauðárkrók. Kjötið er ágætlega
gott. — Þetta eru ódýrustu matarkaup, sem nú er hægt að fá,
V
KAUPFÉLAG SKAGFIRÐINGA
SAUÐÁRKRÓK!
vegna þess að ekki fáist meira heitt
vatn í sundlaugina en þegar er fengið.
Það fyrsta, sem gera þarf, er að fá
menn til þess að athuga leiðsluna úr
Glerárgili og gera við hana, ef með
þarf, svo og að grafa eða bora eftir
meira vatni uppi í gilinu. Ef þetta
bæri ekki tilætlaðan árangur, þarf að
reyna önnur ráð, og yrði þá helzt að
,hita með rafmagni, en það myndi
mega fá ódýrt á nóttunni. Utvega
þyrfti tæki til þess að hita vatnið
með, og mætti þó e. t. v. hafa eitt-
hvert gagn af tækjum þeim, er hita
vatnið í steypiböð gufubaðstofunnar.
Hvaða ráð, sem notuð yrðu, þá er
þetta mál, sem þolir enga bið, og er
þegar búið að bíða úrlausnar allt of
lengi. Nú líður að hausti, og skólar
taka brátt til starfa, en ein af skyldu-
námsgreinum þeirra er sund, en við
núverandi skilyrði er það augljóst
að ekki verður hægt að halda uppi
sundkennslu að neinu gagni í vetur.
Eg vil því fyrir hönd allra Akur-
eyringa, er unna sundíþróttinni, beina
þeim eindregnu tilmælum til sund-
nefndar og bæjarstjórnar, að hún láti
málið þegar til sín taka og geri nauð
synlegar ráðstafanir til úrbóta, því að
þetta er mál, sem varðar allra bæjar-
búa, unga sem gamla.
Baldur Ingólfsson.
Eins og myndin sýnir,
er vöxtur manna á-
kaflega breytilegur.
Það skiptir hins-
vegar engu máli fyrir
oss. Hvernig sem
menn eru byggðir,
fara þeir allir jafn
harðánægðir út af
Saumastofu vorri. —
\/É
Við látum fötin fara jafn vel á feitum sem
mögrum, háum sem lágum.
Saumastofa Gefjunar
húsi K.E.A., 3ju hæð
átvinna.
Stúlka getur fengið fasta atvinnu frá 15. sept. eða 1.
okt. næstk. í smjörlíkisgerð vorri. —4Upplýsingar í verk-
smiðjunni. — Ennfremur vantar unglingspilt til sendistarfa
o. fl. frá 15. september.
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
Milli fjalls og fjöru.
Akureyringar lAta stríðsgróðann ganga
þrjár merkilegar stórbyggingar, sem
lengi munu launa bæjarbúum framsýni
yfirstandandi tíma. Er þar fyrst að telja
íþróttahúsið rétt hjá hinni góðu sund-
laug. Eru þar tveir íþróttasalir og ætlað
rúm fyrir hinn þriðja, auk margs kónar
jæginda um fundaherbergi fyrir íþrótta-
félög bæjarins. Næst kemur Gagnfræða-
skólinn, sem verður fullgerður bið ytra
hattst, og nokkrar stofur fullbúnar.
Sennilega \erða þar innan skamms um
300 nemendur í gagnfræða- og iðnskól-
anum. í þriðja lagi er nú fullgengið frá
stað og tcikningum hins nýja húsmæðra-
skóla. Stjórnin befir, eftir fyrirlagi Al-
þingis, lagt fram 75 þús. kr. í bygginguna,
sem byrjttnarframlag. Guðjón Samúelsson
húsameistari, byggingarnefnd skólans og
vænlanleg forstöðukona, Ranmeig Krist-
jánsdóttir frá Dagverðareyri, hafa lokið
sameiginlegum undirbúningi. Húsmæðra-
skólinn á Akureyri verður stærslur af þess
háttar byggingum, sem enn hafa verið
reistar hér á landi. Þar verður engin
heimavist, cn skipulagi hans svo háttað,
að allar líktir benda til að allar ungar
stúlkur, sem fæðast upp í bænum, geti
fengið þar hagnýta hússtjórnarfræðslu.
Hvar sem fréttist til úr byggðum
kauptúnum og kaupstöðum, eru allir ein-
huga um að þjóðin eigi að ganga frá
lýðveldismynduninni eftir næstu áramót.
Svipað má segja um Reykjavík, að því
frátöldu, að þar er í myndun lítill og
vesall félagsskapur, sem hefir það að tak-
marki, að vinna móti frelsistöku þjóðar-
innar, nema áður sé fengið leyfi danskra
valdamanna. í Englandi voru hinir fáu
borgarar sem vildu taka upp þar í landi
stjórnarhætti Hitlers og Mussolinis i
stríðsbyrjun, settir í andlcga sóttkvi.
Innan skamtns verða þeir útskrifaðir, og
þá skoðaðir sem merkir forngripir, eins
og nál Kleópötru á Thamesbökkum.
Sorglegt rná það teljast, að lítt hefir
verið grynnt á ríkisskuldum íslands er-
Iendis, meðan hið óvenjulega peninga-
flóð er í landinu. Ef til vill er enn tími
til að bjarga nokkru í þessu efni. Þing
það, sem kemur saman í byrjun septem-
ber gæti tekið nýja stefnu í þessu máli;
reynt að einbeita orku þjóðarinnar að þvi
að gera hana skuldlausa gagnvart útlönd-
um,' um leið og hún slítur síðasta hlekk-
inn af pólilískum viðjurn frá 13. öld og
úr Kópavogi, sællar minningar.
/• /
2 ungar kýr
til sölu nú þegar eða í haust.
Önnur snemmbær. Afgr. v. á.
vinnuna og stríðsþörf Breta, er
veiðiskip þeirra voru tekin til
hernaðaraðgerða, þá eru allar
líkur til að forustulaus þjóð
myndi klippa af krónunni í hlut-
falli við innanlandsþörfina.
Verkamenn og launamenn ríkis
og bæja gætu þá fengið sömu
krónutölu á dag eða á mánuði,
æins og fyrr. En áður en langt
tum liði, hefði krónan minnkað,
eins og þýzka markið og franski
frankinn eftir fyrri heimsstyrj-
öldina, þar til hinn lögmæti
gjaldmiðill þjóðarinnar hefði
bókstaflega tekið á sig mynd og
líkingu fimmeyringsins. En um
leið og sneitt var utan af krón-
unni, til að lialda ytra fornri
„kjarabótanna“, hefði þjóðin
glatað gömlum og nýjum inn-
stæðum. íslenzka þjóðin stæði
þá eins og skáldið sagði, alein d
beru svœði. íslendingum hefði
J>á farnazt eins og Austurlanda-
manninum, sem var kalífi einn
dag.
Menn geta spurt, hvað ástæðu
leiðtogar kommúnista hafi til að
óska eftir eyðileggingu krónunn-
ar. Þeir hafa sitt ákveðna tak-
mark: Eyðileggingu þingstjórn-
arskipulagsins og vonina um ein-
ræði ábyrgðarlausrar klíku und-
ir rússneskri aðalumsjón. Sum-
arið 1942 studdu þeir „auðvalds-
stjórn", af því hún var að þeirra
dómi veik, og af J>ví að sú aðstaða
gaf Jreim aðstöðu til stórkostlegr-
ar aukningar á dýrtíð og fölskum
kjarabótum. í augum rétttrú-
aðra kommúnista er allt gott,
sem leiðir til erfiðleika og upp-
lausnar núverandi þjóðskipu-
lags. Nálega engin aðstaða er í
augum þeirra jafn fullkomin og
sú, sem Jreir hafa í sambandi við
dýrtíðina, þegar verðhrunið dyn-
ur á íslenzkum afurðum. Þeir
*r f
geta blekkt fákæna menn í
verkamanna- og launastéttum,
með því að heimta að hvergi sé
slakað til með launagreiðslur.
Þeir sjá ótakmarkaða möguleika
í verðfalli krónunnar. Stríðs-
gróðamenn tapa öllu sínu.
Bjargálnamenn komast á vonar-
völ. Gamalmenni, sem dregið
liafa saman forða til elliáranna,
liafa milli handa tóma spari-
sjóðsbók. Leiðtogar konimún-
ista, Brynjólfur og Einar, voru
peningalausir áhorfendur í Ber-
lín, þegar markið var að hrynja.
Þeir vita vel af reynslu Þýzka-
lands, að menn, sem hafa skyndi-
lega tapað peningaeign, sem
lengi var unnið til að safna, fyll-
ast örvæntingu og ábyrgðarleysi.
Hrun þýzka marksins skapaði
kommúnismann og nazismann í
Þýzkalandi, núverandi heims-
styrjöld og alla þá bölvun, sem
af henni leiðir.
En þróunin þarf ekki að verða
á þessa leið. Bændastétt landsins
getur tekið höndum saman um
stéttarmál sin, þó að menn
greini á um ýmsa aðra hluti.
Allir framleiðendur í landinu
geta átt samleið um að bjarga
sjálfum sér og þjóðinni úr vanda
komandi missira. Allir, sem eiga
sparisjóðsbók, innstæðu 1 banka,
tryggingarfé eða verðbréf, hafa
ástæðu til að snúa bökum sam-
an til að verja íslenzka krónu
móti eyðileggingu byltingarfor
kólfanna. Sem betur fer, er jafn-
vel Kommúnistafl. mjög skiptur
í Jressu máli. Leiðtogarnir vilja
hrunið af . heimspólitískum á-
stæðum. En mikill fjöldi af kjós
endum verkalýðsflokkanna eiga
nú innstæður í bönkum og spari-
sjóðum. Sumir þessir menn eiga
Eyfirzkar bergvatnsár og
bleikjurækt.
(Framhald af 1. síðu).
mikið fleiri. Þó sögðu bændurja-
ir, sem búa nálægt ánni, að fisk-
urinn væri allur að kalla geng-
inn upp og væri nú ekkert í
gljúfrunum, borið saman við
fyrri fiskigengd. Eg var hér við
ána urn 3ja vikna tíma í ágúst
1937 við að gera fiskveginn. All-
an þann tima sá eg ekki nerna •
fáeina silunga í gljúfrunum. —
Enski herrann, sem leigir ána
og hefir Jrekkt hana síðan 1912,
telur að fiskstofninn hafi 10—12
faldast á þessum 6 árum og með-
alþyngd fisksins aukizt til rnuna.
Þessi tilraun með Fnjóská
sýnir ákaflega ljóst vaxtarmátt
íslenzka bleikjustofnsins og
gróðrarmátt eða framfærslumátt
veiðivatna okkar, og að Eyja-
fjörður sjálfur er dásamleg afrétt
fyrir bleikjuna.
Það, sem gert hefir verið fyrir
Fnjóská er þetta:
1. Áin hefir verið opnuð til
gongu fram í dali, en bleikja,
sem hrygnir þar í þverám
Fnjóskár: Bakkaá, Timburvalla-
dalsá og Hjaltadalsá, hefir rnörg-
um sinnum meiri áhrif á fjölgun
stofnsins en sú bleikja, sem
hrygnir fyrir neðan fossa.
2. Friðað við sjóinn nokkra
km. báðum megin við ósa.
3. Alfriðun á ánni sjálfri ög
þá sér í lagi hrygningastöðv-
anna.
4. Tilraun með laxrækt er haf-
in í ánni og nokkur árangur
þegar sýnilegur.
Þessi tilraun við Fnjóská talar
ákaflega skýru máli, fyrst og
fremst til eyfirzkra bænda, sem
lönd eiga að áðurnefndum ám,
svo og til allra landsmanna, sem
lönd eiga að veiðiám.
Það sem gera þarf hér í Eyja-
firði, er að stofna fiskiræktar- og
veiðifélög við þær ár,þar sem eft-
ir er að koma þeim félagsskap á.
Þegar er búið að stofna félag við
Gljúfrá, Svarfaðardalsá og Ól-
afsfjarðará. Fiskveg þarf að gera
yfir fossana í Öxnadalsá og Þor-
valdsdalsá. Svo þurfa öll félögin
í sameiningu að nota sér heim-
ild lax- og silungsveiðilaganna
til að útrýrna allri sjóveiði á sil-
ungi í Eyjafirði. Með því að taka
nú fljótt og myndarlega á þessu
máli, verður Eyjafjörður innan
fárra ára heimsfrægt bleikju-
veiðihérað.
Til slíks manndóms treysti eg
eyfirzkum bændum ágætlega.
P.t. Laufási, 22. ágúst 1943.
Ólafur Sigurðsson
frá Hellulandi.
mjög rnikið geymslufé, og þykir gildi sfnu eftir stríðið, að spari-
jafn vænt um þessa sjóði, eins og
öðrum kapítalistum. Innan
skamms verða þessir menn að
velja. Annars vegar er vegur
byltingarforkólfanna, sem hafa
allt að vinna við eyðileggingu
allra lausra fjármuna í landinu.
Hins vegar er yfirgnæfandi meiri
hluti þjóðarinnar, börn og gam-
almenni, verkamenn og stríðs-
gróðamenn, bændur, sjómenn,
iðnaðarmenn og lausamenn. Allt
Jretta fólk á sitt jarðneska gengi
og velferð að langmestu leyti
undir því, að krónan haldi verð-
sjóðsinnstæður barna og gamal-
menna, tryggingarfé og stríðs-
gróði haldi sínu gildi. Þjóðin á
þá fjármagn til nauðsynlegra
þarfa. Stríðsgróðinn getur orðið
lyftistöng mikilla framfara, ef
skynsamlega er á þeim málum
tekið.
í næstu grein verður bent á
leiðina, sem þjóðin á að fara,
þegar verðhrunið kemur, ef hún
á að geta bjargað krónunni, at-
vinnufriðnum og sjálfstæði
landsins úr höndum óhlut-
vandra æfintýramanna.