Dagur - 16.09.1943, Blaðsíða 1
Vikublaðið DAGUR
Rilstjórar: INGIMAR EYUAL,
JÓHANN FRÍMANN.
Afgreiðsla, auglýsingar, innheiuua:
Sigurður Jóhannesson.
Skrifstofa við Kaupvangstorg.
Sími 96.
Argangurinn kostar kr. 8,00.
Prentverk Odds Björnssonar.
If*
mmm
XXVLárg,
Akureyri, fimmtudaginn 16. sept. 1943.
38. tbl.
Orðsending
til lesenda Dags
Akurcyri er höfuðstaður Norðurlands
og að mörgu leyti liöfuðstaður byggða-
valdsins, í mótsetningu við þéttbýlisvald
höfuðstaðarins. Milli þessara tveggja
stærstu bæja á íslandi er og vcrður jafn-
an góð santbúð. En milli þeirra á að vera
heilbrigð verkaskipting og drcngileg
keppni um þá hluti, sem tnega verða
þjóðinni allri tii gagns.
Það er gæfa liverrar þjóðar, þar sem
gott samræmi er um allan vöxt og þroska.
5ums staðar ber höfuðborgin ofttrliði alla
aðra bæi. Annars staðar er höfuðbærinn
að vísu áhrifamikili svo sem vera ber, cn
þó margar aðrar borgir, sem setja svip á
þjóðlífið. Hér á landi er Reykjavík orðin
of stór og of áhrifamikil. Hún er eins og
gífurlega stórt höfuð, sem ber líkamann
ofurliði. Allir vel viti bomir Reykvíking-
ar vita, að það cr ólán fyrir bæinn og
ólán fyrir landið, að þriðji hver íslend-
ingur skuli eiga þar heima. Ofvöxtur
Reykjavíkur verður á næstu árum mesta
hannabraut fyrir þá, scm þar búa.
Það er í frásögur fært í fornöld, að
mönnum norðanlands þótti sinn metnað-
ur cigi nægur með því að hafa biskup
sinn suður á landi. Þess vegna efndu þeir
til biskupsstóls á Hólum. Þeim þótti
ekki heldur viðhlítandi, að sækja allan
skólalærdóm suður um heiði. Þcss vegna
komu þeir upp menntaskóla á Hólum í
Hjaltadal. Þegar fslendingar byrjuðu að
rétta við, endumærðir af nýju frelsi,
fengu þeir aftur menntaskóla á Akureyri,
og hæli fyrir brjóstvcikt fólk í Kristnesi.
Fram undan cm vel undirbúin átök um
að rcisa fullkomna deild af landsspítalan-
um og geðveikrahælinu á Akureyri. Eng-
in af þessuni framkvæmdum er gerð fyrir
Akureyri sérstaklcga. Þetta eru allt jafn-
vægishræringar. Akureyri er í þessu efni
aðeins nokkurs konar brennipunktur fyrir
ákveðinn hluta af dreifbýli landsins.
Hið þunga höfuð, Rcykjavík, hcfir
lengi verið áberandi í skipulagi blaðanna.
f höfuðstaðnum hafa verið gefin út öll
stærstu blöð' landsins, sem jafnframt liafa
orðið hin álirifamcstu. Það má heita, að
í engum ræðustól á landinu heyrist til
allra landshluta, nema talað sé frá
Reykjavík.
Útgefendur „Dags“ hafa um nokkur
undanfarin ár stefnt að því að gcra í
þessu efni nokkra undantekningu. Þeir
hafa viljað gera blað sitt að landsblaði,
þó að Jiað ætti ekki heima í höfuðstaðn-
um. Það hefir verið unnið markvisst í
þessu efni. Starfsmönnum við blaðið hef-
ir verið fjölgað. Efni blaðsins hefir verið
gert mjög fjölbreytt. Þjóðin hefir viður-
kennt þetta í verki: Kaupendum Dags
hefir fjölgað á undangengnum missiium,
og það svo mjög, að í vor sem leið hafði
blaðið flciri kaupcndur heldur en nokk-
urt blað á íslandi, sem gefið licfir verið
út utan höfuðstaðarins hefir nokkutu
tíma haft. Jafnframt Jiessu var talið nauð-
synlegt, að Dagur liefði fast samband við
mann í höfuðstaðnum, sem sendi Jiaðan
nokkurt eftii, um bylgjugang hins póli-
tíska lífs i höfuðstaðnum. Síðast liðið vor
tók ég að mér að gera þetta verk um
sinn. Þegar mín nýtur ekki við, koma
(Framheld ó 4. síðu).
HIÐ RAUNVERULEGA SJÁLFSTÆDISMÁL NÓDARINNAR ER FÓL6IÐ I
FJÁRHAGSLEGU ÖRYGGIKOMANDITÍÐA OG UMBÓTUM A STJÓRNAR-
FARI RÍKISINS
Suðupvígstöðvap Evrópu.
íslenzku kaupfélögin safna fé til viðreisn-
ar samvinnufélögum á meginlandi Evrópu
S i S hefir gefið 26 þúsund krónur og K E A 10
þúsund kr. í sjóð Alþjóðasambands samvinnumanna
um. Það er því siðferðileg skylda
pYRIR skömmu var birt hér í
blaðinu ávarp frá stjórn Al-
þjóðasambands samvinnumanna
í London, þar sem skorað var á
samvinnumenn í frjálsum lönd-
um að leggja fram nokkum skerf
til viðreisnar kaujrfélögunum í
þeim löndum, sem hafa átt að
búa við kúgun og áþján undan-
gengin stríðsár. A síðasta aðal-
fundi Sís var mál þetta tekið til
meðferðar og var samþykkt í
einu hljóði tillaga frá stjórn
sambandsins þess efnis, að Sís
legði fram 1000 sterlingspund
(26000 kr) í sjóð þennan. Jafn-
framt var skorað á kaujifélögin
að bregðast >rel við og hefjast
handa um fjársöfnun til hjálpar
samvinnumönnum í hinum und-
irokuðu löndum.
Stjórn Kaupfélags Eyfirðinga
samþykkti á fundi sínum í s.l.
viku, að félagið skyldi leggja
fram 10.000 krónur í hjálparsjóð
Alþjóðasambandsins. Jafnframt
var ákveðið að fjársöfnunarlisti
skyldi liggja framrni á skrifstof-
um félagsins, svo að þeir' félags-
menn, er þess óska, gæti lagt
fram sinn skerf til þessarar starf-
semi.
Fidl ástæða er fyrir alla góða
samvinnumenn, að taka vel í
þetta mál. Þótt fregnir frá her-
numdu löndunum í Fvrópu séu
nokkuð óglöggar er víst, að sam-
vinnufélögin þar liafa goldið hið
mesta afhroð á undanförnum ár
góðra samvinnumanna í frjáls-
um löndum að rétta þeim hjálp-
arhönd, ef þeir eru þess megn-
ugir. Nú er það ekkert leyndar-
mál,. að íslendingar er ein af
þeirn fáu þjóðum í Evrópu, sem
efnast hefir á liðnum styrjaldar-
árum. Það mundi þykja undar-
legur hugsunarháttur meðal er-
lendia samvinnumanna, ef ís-
lenzkir skoðanabræður þeirra
vildu á slíkum tímum ekki sýna
neinn lit á að rétta þeim hjálp-
arhönd. Þar að auki er svo þess
að gæta, að á næstu áratugum
munu íslendingar þurfa að eiga
mikil og margvísleg viðskipti
við ýms þau lönd, sem nú búa
við hernám og kúgun. Skilning-
ur á þrengingum þessara þjóða
nú mundi ekki spilla fyrir þeirri
samvinnu, sem þá verður nauð-
synlegt að efna til.
Landabréfið sýnir Miðjarðarhafs-
svæðið, þar sem stórfelld átök eiga
sér stað í milli Bandamanna og Þjóð-
verja, eftir uppgjöf Itala. Akkeris-
merkin sýna flotastöðvar en punkta-
linurnar helztu sjófarendaleiðir um
Miðjarðarhaf og vegalengdir í milli
helztu stöðva. Bandamenn sækja nú
norður efitr Italíu frá Kalabríuskaga.
ítalski flotinn er nær allur á valdi
Bandamanna.
Tónlistarfélag Akureyrar
Samkv. ujrplýsingum, sem blað
inu hafa borizt frá stjórn Tón-
listarfélagsins, verða tveir fyrstu
hljómleikarnir á vegum þess
næstu viku. Fyrri hljómleikarn-
ir verða miðvikud. 22. sept. kl.
9 e. h. í Samkomuhúsinu. Verð-
ur það einleikur á flygil: Arni
Kristjánsson. Síðari hljómleik-
arnir verða á laugardaginn 25.
sejit: Björn Ólafsson fiðluleikari
með aðstoð Árna Kristjánssonar
jrianoleikara. — Hljómleikarnir
verða aðeins fyrir styrktarfélaga
og gesti þeirra. Þeir, sem enn
ekki hafa gerzt styrktarfélagar,
en kynnu að lrafa hug á að kom-
ast á þessa hljómleika, ættu ]rví
nú þegar að snúa sér tii Björns
Halidórssonar gjaldkera félags-
ins eða einhvers úr stjórn þess,
þar sem sætarúm Samkomuluiss-
ins er þá og þegar fullskijrað.
Annar ársfundur lærðra
og leikra norðanlands
ræðir vandamál yfir-
standandi tíma.
^AGANA 11. — 13. sept. s.l. var
haldinn á Akureyri 2. árs-
fundur jrresta, kennara og leik-
manna um kristna þjóðmenn-
ingu, en til samtaka áhuga-
manna um þessi mál hafði verið
stofnað á síðastliðnu ári, og var
þá fyrsti ársfundur þessara sam-
taka haldinn hér á Akureyri. Að
þessu sinni sóttu fundinn 53
áhugamenn af Norðurlandi og
2 úr höfuðstaðnum, eða 11
jirestar, 25 kennarar og 17 leik-
menn.
Séra Páll Þorleifsson á Skinna-
stað setti fundinn, fyrir hönd
undirbúningsnefndar, með
stuttri ræðu, og tilnefndi forseta
fundarins þá Snorra Sigfússon
skólastjóra og Friðrik A. Frið-
riksson jrrófast á Húsavík, en
fundarritara Hannes J. Magnús-
son.
Aðalumræðuefni fundarins var:
Kristileg menning og lýðfi'elsi
Framhnlri 4 4. aíBu.
Guðmundur Jónsson
bass-barytonsöngvari
liefir að undanförnu haldið
þrjár fjölsóttar söngskemmtanir
hér í bænum, og auk þess sungið
við góða aðsókn bæði á Húsavík
og Siglufirði. Einar Markússon
hefir annazt undirleikinn. —
Óhætt er að segja, að listamönn-
um þessum hefir verið óvenju-
lega vel fagnað, enda virðast
þeir báðir hinir efnilegustu hvpr
í sinni grein. Báðir eru þeir enn
kornungir menn, og er gott til
þess að vita, að þeim gefst nú
færi á framhaldsmenntun í Vest-
urheimi. Guðmundur Jónsson
hefir fágætlega fagra og þrótt-
mikla djúprödd af svo ungum
manni að vera og byrjanda að
kalla í sönglistinni. Er ekki ólík-
legt, ef allt fer áð réttum sköp-
um, að hann eigi mikla og
glæsilega framtíð fyrir sér í
heimi tónanna.
7. iðnþing íslendinga
hefst á morgun í Flensborgar-
skólanum í Hafnarfirði og
stendur fram í næstu viku. Mörg
mál, er snerta hagsmuni, réttindi
og félagssamtök iðnaðarmanna í
landinu liggja fyrir þinginu til
athugunar og afgreiðslu. Má þar
m. a. nefna: lög og reglugerðir
um iðnaðarnám og iðnfræðslu
(ekki sízt rekstur og tilhögun
iðnskólanna), útvegun efnis og
áhalda til iðnrekstrar, gjaldeyr-
is- og innflutningsmál, skipu-
lagsmál iðnaðarmanna o. m. fl.
Blaðinu er kunnugt um eftir-
talda fulltrúa á iðnþinginu frá
félögum og stofnunum hér í
bænum:
Frá Iðnaðarmannafélagi Akur-
eyrar: Indriði Helgason raf-
virkjameistari, Vigfús Friðriks-
son ljósmyndasmiður og Guð-
mundur Guðlaugsson forstjóri.
Frá Iðnráði Akureyrar: Gaston
\smundsson byggingameistari.
Frá Iðnskóla Akureyrar: Jó-
hann Frímann skólastjóri.
Hinir síðustu fulltrúanna
lögðu af stað héðan í morgun
áleiðis suðuy á þingið.