Dagur - 16.09.1943, Blaðsíða 4
DAGUR
Fimmtudaginn 16. september 1943.
DREKKIÐ APPELSIN AYAXTADRYKK
ÚR BÆ OG BYGGÐ
I.O.O.F. = 1259l78'/2 =
Kirkjan: Messað í Akureyrarkirkju
næstk .sunnudag kl. 2 e. h.
Gjöf til Akureyrarkirkju. Kr. 200
frá enska flugliðinu. Þakkir. — A. R.
Áheit á Akureyrarkirkju: Kr. 25.00
fré ónefndri. — Þakkir. — A. R.
Gjafir til Efilheimilisins í Skjald-
arvík: Frá Áma Árnasyni kr. 24. Frá
N. N. kr. 100. Fró Reyni Hörgdal kr.
100. Frá Rósu Þorsteinsdóttur kr. 50.
Frá N. N. kr. 300. — Hjartans þakkir.
Stefán Jónsson.
Elliheimilissjóði Akureyrar hafa
borizt að gjöf 200 kr. frá N. N. —
Beztu þakkir. — G. R.
Gullbrúðkaup eiga í dag hjónin
Guðbjörg Sigurðardóttir og Einar Ein-
arsson, fyrrv. útgerðarmaður, Strand-
götu 45, Akureyri.
Kaffisala verður í Zion föstud. 17.
þ. m. kl. 3—10 e. h. Ennfremur verð-
ur útsala á nokkrum heimaunnum
munum o. fl. vörum.
Dánardægur. Bógi Daníelsson,
fyrrv. veitingamaður, andaðist að
heimili sínu, Hafnarstræti 64 hér í
bæ, þann 10. þ. m.
Hjúskapur. Nýlega hafa verið gef-
in saman í hjónaband af sóknarprest-
inum, sr. Friðrik J. Rafnar, vígslu-
biskupi: Ungfrú Ólöf Sigurðardóttir
og Þorgeir Pálsson, verzlunarm. Ung-
frú Fanney Svanbergsdóttir og Arni
Indriðason, bifreiðastj. Ungfrú Sigur-
björg Jóhannesdóttir og Stefán ís-
aksson, iðnverkam. Ungfrú Guðrún
Ásgrímsdóttir, Efra-Ási, Hjaltadal og
Ferdinand Rósmundsson, Kjarvals-
stöðum, Hjaltadal.
Hlutaveltu heldur kvenfélagið
„Framtíðin“ næstkomandi sunnudag
kl. 4 e. h. í Samkomuhúsi bæjarins.
Allur ágóði rennur til sjúkrahússins.
Ferðatélaé Akureyrar fer næsta
sunnudag gönguferð é Staðarbyggða-
fjall. Ekið verður að Staðarhóli og
gengið þaðan á fjallið og svo niður
að Munkaþverá. Þaðan ekið að gróð-
urhúsunum við Brúnalaug og að korn-
ökrunum í Klauf. — Sunnudaginn
26. þ. m. er ráðgerð ferð suður á
Vatnahjalla.
Nýja-Bíó
sýnir í kvöld kl. 9:
MAJOR ROGERS
OG KAPPAR HANS
Föstudag kl. 9:
HETJUR
ERELSISSTRÍ ÐSIN S
Laugardag kl. 9: _
MAJOR ROGERS
OG KAPPAR HANS
Sunnudag kl. 2Vz og 9:
HETJUR
FRELSISSTRÍÐSINS
Sunnudag kl. 5:
MAJOR ROGERS
OG KAPPAR HANS
Til sölu
rafmagnseldavél, lítið notuð og
í góðu standi. Afgr. vísar á.
STÚLKUR eða ELDRI KON-
UR vantar á elliheimilið í
Skjaldarvík.
Stefán Jónsson,
klæðskeri. — Sími 163.
TAPAZT HEFIR
hjólkoppur af Studebaeker-
bíl. Vinsamlegast skilist í
, benzínafgreiðslu KEA.
Orðsending til lesenda Dags
(Framhald af 1. síðu).
líka í því efni nýir mciui, þegar þess þarf
með.
En meginstyrkur Dags er nú og vcrður
fólgiun í áhrifum dreifbýlisins. Dagur á
að geta orðið jafn nauðsynlegt menning-
arfyrirtæki á sínu sviði, eins og Menuta-
skólinn á Akureyri, Kristneshæli cða al-
mennt sjúkrahús, sem ríkið starfrækir.
Eftir því setn Dagur eflist um efni og al-
tnennan stuðning lcsenda og kaupcnda,
því áhrifanteiri verður hann scm mál-
svari hugsjóna og hagsmuna hinna
drcifðu byggða.
Útgefendur Dags hafa nú í vor hafið
mikla sókn um útbreiðslumálin. Blaðið
er nú sent og sclt víða um land. l‘að er
prentað í stærra upplagi Iieldur en mörg
blöð í höfuðstaðnum, sem láta talsvert
mikið til sín taka um vandamál lands-
manna.
Dagur hefir nú þegar fcngið stórauk-
inn fastan kaupcndafjölda síðan í vor.
En nú í haust eiga margir af lesendum
blaðsins að segja til, hvort þeir ætla að
gerast fastir kaupendur framvegis. I*að
bczta er, að slíkir mcnn skrifi afgreiðslu
úaðsins og segi til um vilja sinn. Líka
má ná takmarkinu með því að fela því
kaupfélagi, sem hlutaðeigandi maður
skiptir við, að greiða hið lága gjald fyrir
fyrsta hálfa árið. En þcir, sem ckki vilja
gcrast kaupendur blaðsins, eru beðnir að
cndurscnda það afgreiðslunni á Akureyri,
og er það glöggt og gilt svar á sinn hátt.
Ég hefi átt þátt í með niörgum öðrum
áhugamönnum, að skapa jafnvægi milli
höfuðstaðarins og dreifbýlisins með stofn-
un Kristneshælis og sjálfstæðs mennta-
ikóla á Norðurlandi. Ég niun sömuleiðis
beita mér eftir fönguni fyrir því að full-
kominn almennur landspítali verði reist-
ur á Akureyri. Ég lít sömu augum á efl-
ingu Dags til að vcrða landsblað. Það er
tð vísu rnikils virði fyrir þann flokk, sem
itcndur að blaðinu. En efling Dags á að
verða mcira. Hún á að verða þýðingar-
inikil fyrir heilbrigðan þroska þjóðarinn-
tr. Efling Dags á að vinna móti því að
kaupstaðir, kauptún og byggðir verði of
ihrifalítil í jafnvægistafli mannfélagsins.
Jónas Jónsson frá Hriflu.
Annar ársfundur lærðra og
leikra norðanlands ræðir vanda-
mál vfirstandandi tíma.
(Framh. af 1. síðu).
og voru eftirfarandi erindi flutt
i fundinum:
Séra Benjamín Kristjánsson:
Kristur og lýðræðið.
Jón Þ. BjÖrnsson skólastjóri:
Áhrif kristindóms á mótun skap-
gerðar.
Eiríkur Sigurðsson kennari:
Lífskjör og uppeldi.
Pétur Sigurðsson erindreki:
Þingræði og þjóðræði.
Séra Friðrik A. Friðriksson:
Andleg og stjórnarfarsleg við-
reisn.
Þrjú hin fyrri erindi voru flutt
á laugardag og urðu um þau
miklar og fjörugar umræður.
Snerust þær einkum um hið
kristilega og siðferðilega upp-
eldi æskunnar, og samvinnu
heimila, skóla og kirkju um þau
mál. Virtist það vera alrnenn
skoðun fundarins, að meiri og
dýpri kristin áhrif myndu í senn
skapa rneiri festu og heilindi í
líf einstaklinganna og tryggja og
treysta grundvöll hins sanna lýð-
frelsis, sem frá ö.ndverðu hefði
ætíð þróast bezt í skjóli kristin-
dómsins. Þá var einnig mikið
rætt um á lrvern hátt yrði bezt
náð til æskunnar með hin
kristnu áhrif og lífsskoðanir, og
var þá meðal annars bent á nteiri
samvinnu heimila, skóla og
kirkju um þau mál, aukna
kirkjurækni, skipulegri fræðslu
í barna- og framhaldsskólum og
síðast en ekki sízt efliing heirnil-
anna og heimilislífsins, þar sem
grundvöllurinn er lagður að
hinu kristilega og siðlega upp-
eldi barnsins. í sambandi við
framhaldsskólana var sérstaklega
bent á hið mikla hlutverk hús-
mæðraskólanna í þessum efnum,
að búa hinar verðandi mæður
undir það, áð geta veitt börnum
sínum heilbrigt, kristilegt upp-
eldi. Þá var einnig bent á æsku-
lýðshús, þar sent unga fólkið ætti
kost á að koma sarnan til kristi-
legrar starfsemi undir leiðsögn
presta og kennara.
Á laugardagskvöld komu
fundarmenn og gestir þeirra
saman til kaffidrykkju í sam-
komuhúsinu Skjaldborg og
skemmtu sér þar við ræður og
söng fram eftir kvöldinu.
Klukkan 1 á sunnndag
hlýddu fundarmenn messu hjá
j vígslubiskupi, séra Friðrik J.
| Rafnar, en klukkan 2 síðd. var
aftur settur fundur og fóru þá
fram umræður um tvö síðari er-
indin.
Um þessi erindi urðu einnig
miklar umræður, einkum erindi
Péturs Sigurðssonar: Þingræði
og þjóðræði. Þarna voru menn
af öllum stjórnmálaflokkum, en
allir virtust vera sammála um
það, að umbóta væri þörf á
stjórnarfyrirkomulaginu, hins
vegar voru dálítið skiptar skoð-
anir um leiðir þær, er leiddu út
úr ógöngunum.
Klukkan 9 um kvöldið flutti
séra Þorgrímur Sigurðsson á
Grenjaðarstað opinbert erindi á
vegum fundarins, er hann
nefndi: Vegur Krists til varan-
legs friðar.
Klukkan 1 á mánudag var aft-
ur settur fundur og voru þá
teknar til umræðju ályktanir,
sem fram voru bornar í byrjun
þessa fundar, en þær voru svo-
hljóðandi:
1. Annar ársfundur um kristna
þjóðmenningu, haldinn á Ak-
ureyri dagana II.—13. septem-
ber 1943, leggur áherzlu á það
sem staðreynd, að lýðfrjálst þjóð-
skipulag byggist bæði sögulega
og röklega á lífsskoðun kristin-
dómsins, og þessu samkvæmt
hljóti það að vera bæði stjórnar-
farslegt stefnumál og almennt
þegnskaparmál með þjóð, sem
vill viðhalda og efla þjóðfrelsi,
að varðveita og ávaxta arf krist-
indóms og kirkju.
Lltaður lopi.
Litaði lopinn er nýjasta nýjungin í íslenzkri lopagerð. —
Kvenpeysur, unnar úr litaða lopanum þykja hvort tveggja
í senn hlýjar og fallegar. Þegar veturinn nálgast fer konan
að hugsa um lopapeysuna, sem á að verja hana gegn
kulda vetrarins. —
Ullarverksmiðjan GEFJUN
Tveir ungir dráttarhestar
til sölu. Upplýsingar næstu daga í síma 302, eða hjá JÓNI
BALDVINSSYNI, sími 193, Akureyri.
BRÉFBERASTARFIÐ
við póststofuna á Akureyri er laust til umsóknar frá
1. október n. k.
Umsóknum ásamt launakröfu skal skilað fyrir þann
25. þessa mánaðar til póstmeistarans á Akureyri, sem
gefur nánari upplýsingar.
Póststofan, Akureyri.
Fundurinn álítur, að það sé
þjóð vorri brýn nauðsyn og bein
skylda að gerast athafnasamari
en verið hefir um kristilegt upp-
eldi, og þá sérstaklega að ráða
bót á þeiiTÍ háskalegu vöntun á
trúarlegri og siðferðislegri hand-
leiðslu æskulýðsins á aldrinum
frá fermingu til fullorðinsára..
2. Fundurinn lítur svo a, að
hið raunverulega sjálfstæðismál
vort nú sé það, að tryggt sé, svo
sem verða má, fjárhagslegt ör-
yggi ríkisins, að fast sé stutt að
bættu uppeldi og aukinni and-
legri og siðlegri menningu í
landinu, og að verulegar umbæt-
ur séu gerðar á stjórnarkerfi og
stjórnarháttum ríkisins, er feli í
sér fyllri rétt og meira öryggi
fyrir þjóðarheilidna en það, er
við nú búum við.
Báðar ályktanirnar voru sam-
þykktar með öllum greiddum
atkvæðum.
Loks kaus fundurinn þessa
menn til að undirbúa næsta árs-
fund, sem ákveðið vár að halda
á Akureyri:
Séra Friðrik A. Friðariksson
prófast á Húsavík .
Séra Friðrik J. Rafnar vígslu-
biskup.
Friðrik Hjartar skólastjóra í
Siglufirði.
Jón Þ. Björnsson skólastjóra
á Sauðárkróki.
Egil Þórláksson kennara á
Akureyri.
Á fundinum ríkti rnikill
samhugur og áhugi fyrir því, að
byggja upp eitthvað nýtt ög
betra, og öllum virtist vera það
ljóst ,að þar þyrfti að vinna eftir
tveimur meginlínum: Að byggja
menninguna upp innan frá á
grundvelli kristindóms og lýð-
frelsis, að byggja hana upp neð-
an frá með bættu og fullkomn-
ara uppeldi í heimilum, skólum
og kirkju. Og í ö.ðru lagi að
vinna að því, að hið ytra, stjórn-
arfarslega skipulag verði svo
BANN
Eg undirritaður banna hér
með, að tekið sé leyfislaust
möl, sandur eða annað
byggingarefni úr landar-
eign minni.
Ytrahóli 15. sept. 1943.
TRYGGVI SIGMUNDSSON.
T I L S Ö L U 40 ær, ungar og af
góðu kyni. — Árni Jóhannsson. K.
E. A. visar é.
ATVINNA
Þrifin og dugleg stúlka
getur fengið atvinnu frá
1. okt. næstk. Framtíðar-
atvinna getur komið til
greina.
Afgr. vísar á.
Fólk óskast
til að taka upp kartöflur. Tæki-
færi fyrir þá, sem þurfa að
tryggja sér kartöflur til vetrar-
ins. Bílferðir frá B. S. A. Talið
við mig á torginu laugard. kl.
10-11 e. h.
Kristinn Sigmundsson.
UNG SNEMMBÆR KÝR
óskast keypt. Afgr. v. á.
DANSLEIKUR
verður haldinn að Þverá í Öng
ulsstaðahreppi laugardaginn 18
þ. m. kl. 9.30 e. h.
Samkomunefndin.
mannbætandi og feli í sér svo
mikið menningarlegt og stjórn-
arfarslegt öryggi, að í skjóli þess
geti vaxið þróttmikil og heil-
brigð, andleg menning.
AVAXTADRYKKURINN BEZTI ER APPELSIN!
Öl- & GOSDRYKKJAGERÐ AKIRFYRAR