Dagur - 23.09.1943, Page 2
2
DAGUR
Fimmtudagur 23. sept. 1943
„ÍSLENDINGUR" Á I STRÍDI VID
SlNA EIGIN FLOKKSBRÆÐUR
Sú leið hefir verið farin á landi
hér að jafna stríðsgróðanum til
launástéttanna með launahækk-
unum og dýrtíðaruppbótum.
Þessi aðferð hefir að sjálfsögðu
haft í för með sér hækkun á
framleiðslukostnaði landbúnað-
arins. Af því leiddi aftur, að
bændur urðu að fá sína dýrtíðar-
uppbót í hækkuðu afurðaverði.
Við gátum stjórnað verðlaginu á
innlenda markaðinum, en ekki
á útlendum markaði, og þar var
það mikið lægra, vegna þess að í
markaðslöndunum hafði dýrtíð-
inni verið haldið í skefjum. Það
ráð var þá upp tekið að greiða
uppbætur úr ríkissjóði á útflutt-
ar landbúnaðarafurðir. Þessar
uppbætur eru ekki styrkur til
bænda, heldur ráðstöfun ríkis-
valdsins til að lialda jafnvægi í
þjóðfélaginu.
Langvarandi deilur höfðu átt
sér stað um hlutfall milli af-
urðaverðs landbúnaðarins og
kaupgjalds vinnandi stétta bæj-
anna. Sú ákvörðun síðasta Al-
þingis að skipa nefnd til að
rannsaka þetta hlutfall og finna
vísitölu fyrir verðlag á fram-
leiðsluvörum bænda, byggða á
því að bændur fengju svipaðar
tekjur og aðrar vinnandi stéttir,
hlaut almennt góðar undirtektir.
Bændur hafa aldrei gert hærri
kröfur en að bera líkt úr býtum
og aðrar hliðstæðar. stéttir, en
aftur á móti hafa þeir einir allra
stétta boðizt til að lækka afurða-
verðið í hlutfalli við lækkað
kaupgjald, en því tilboði hefir
enn ekki verið sinnt, hvað sem
kann að gerast í nefnd þeirri.
sem ríkisstjórnin hefir nú ný
lega' stofnað til í því skyni að at-
huga möguleika til samkomu
lags í því efni. í þeirri nefnd eru
fulltrúar frá Búnaðarfélagi ís
lands og Alþýðusambandi ís
lands, þrír frá hvorum félags
skap.
Niðurstöður landbúnaðarvísi
tölu-nefndar, er birtar voru í
síðasta mánuði, hafa yfirleiti
mælst vel fyrir. Þó eru til und
antekningar í þessu falli. Þannig
ver blaðið íslendingur miklum
hluta af sínu dýrmæta rúmi í
harmagrát yfir því, að bændui
muni hafa það óþarflega gott, ei
fylgt verði verðlagi því, er sex
manna nefndin stingur upp á
Blaðið hefir allt á honum sér út
af starfi nefndarinnar, þykir húr
hafa byggt útreikninga sína á
ramskökkum grundvelli, og eftii
orðum ísl. að dæma, hafa nefnd
armenn mestmegnis vaðið tómz
vitleysu í störfum sínum, þeii
hafi t. d. gleymt að telja slátui
bændum til tekna. Þá segir blað
ið, að verkamenn,sjómennogiðn
aðarmenn hafi orðið að leggja
hart að sér til þess að fá sínar
tekjur, þeir hafi teflt á fremsta
hlunn vinnuþols síns, en minnist
ekki á að bændur og konur
þeirra verða oft að ofbjóða
vinnuþoli sínu. Það á ekki við
samkv. hugsunarhætti blaðsins
aðgeta um slíkt. Enn segirísl., að
„bændur komizt af með minni
£
tekjur sér t;il lifsframfærjs en
flestar aðrar stéttir þjóðfélags-
ins“, og þannig telur blaðið það
eigi að vera framvegis.
Sýnilega lítur ísl. svo á, að
hann eigi í miklu stríði við Dag
og Framsóknarflokkinn um
verðlag landbúnaðarafurða og
talar í því sambandi' um „lýð-
skrum og atkvæðaveiðar Fram-
sóknarpostulanna", sem muni
„leiða allsherjar hrun yfir þessa
þjóð“. Hruninu vill blaðið af-
stýra með því, að bændur búi
við skarðari hlut um tekjur en
verkamenn, sjómenn og iðnaðar-
menn. Dagur getur prýðilega
sætt sig við það, að honum og
Framsóknarflokknum séu sér-
staklega eignaðar þær kröfur, að
bændur búi ekki við lakari kjör
en aðrar stéttir. En benda má þó
Isl. á, að það eru fleiri en Dagur
og Framsóknarfl., sem unna
bændum þessa hlutskiptis. Um
það bil 2/3 af þingmönnum
Sjálfstæðisflokksins hafa nú
bundizt samtökum um að
tryggja bændastéttinni það verð-
lag á framleiðslu sinni, er sé í
samræmi við niðurstöður sex
manna nefndarinnar. Eru þessi
samtök Sjálfstæðisflokks-þing-
manna lýðskrum og atkvæða-
veiðar, íslendingur sæll?
Það er því ekki bara Dagur og
Framsóknarflokkurinn, sem ísl.
á í stríði við, heldur hefir hann
sagt sínum eigin flokksbræðrum
á Alþingi ógurlegt stríð á hend-
url
TIL LEIGU.
Ein stofa og aðgangur
að eldhúsi er til leigu
á fámennu heimili í
grennd við Akureyri.
Afgr. vísar á.
Kaup á eignum
setuliðsins hér
gAMKVÆMT fyrirspurn frá
alþm. Haraldi Guðmunds-
syni til utanrí.kismálaráðherra,
upplýsti ráðherrann á þingfundi
17. þ. m. eftirfarandi:
Ríkisstjórnin bar fyrir all-
löngu síðan þá*ósk fram við her-
stjórnina, að ef til þess kæmi að
hernaðaryfirvöldin selji eitt eða
annað af efnivörum, áhöldum
eða húsum, þá yrði slík sala gerð
eingöngu fyrir milligöngu ríkis-
stjórnarinnar eða umboðs, sem
hún tilnefndi. Var þessum til-
mælum vel tekið og var-form-
lega fallizt á þetta og staðfest
með bréfaskriftum um miðjan
ágúst s.l.
Ætti með þessu fyrirkomulagi
að verða komið í veg fyrir brask.
Ríkisstjórnin hefir skipað
þriggja manna nefnd, til þess að
hafa milligöngu þessara mála. í
nefndinni eru: Svanbjörn Frí-
mannsson (formaður), Hörður
Bjarnason og Pálmi Einarsson.
Nefndin á einnig að vera leið-
beinandi um aðgjörðir vegna
landspjalla, sem orðið hafa af
hernaðaraðgerðum.
/
Vatnsleiðslurör
Galv. i/2”, 3/4", I”.
Þeir, sem hafa pantað
rör hjá okkur, eru beðn-
ir að taka þau sem
allra fyrst.
Verzl. Eyjafjörður.
Sflúlkur
elna (il fvœr vanfar nti
þegur, cða 1. uklober.
HÚTEL mREYijl
JÚNAS JÓNSSON:
„SAMKVÆMT ÁÆTLUN”
EÐA TVENNIR FJÓRTÁN
Merkustu tíðindin, sem gerzt hafa á hinu nýbyrjaða Alþingi,
hafa ekki orðið í sambandi við útvarpsumræður eða þingdeilur,
heldur eru það friðsamleg og nálega vinsamleg átök meiri
hluta Alþingis í þá átt, að veita framleiðendum til lands og
sjávar og um leið allri þjóðinni, sem lifir af framleiðslunni,
nokkurn stuðning til bráðabirgða.
Um alllangt skeið í sumar hafa í Degi verið leidd rök að því,
að ofsi og ójöfnuður upplausnaraflanna í landinu væri háska-
legur og stefndi að stöðvun framleiðslunnar við stríðslokin,
verðfellingu krónunnar og þá um leið eyðingu hins samanspar-
aða veltufjár í landinu. Það hefir verið bent á eitt ráð til úrlausn-
ar í þessu efni, og það var, að framleiðendur landsins byrjuðu
sjálfbjargarstarfsemi yfir og utan við landsmálaflokkana. Þetta er
nú að verða að veruleika. Fjórtán Framsóknarmenn og fjórtán
Sjálfstæðismenn á þingi hafa lýst yfir við ríkisstjórnina, að þeir
ætli að standa með tillögum sex manna nefndarinnar, og tryggja
bændum landsins það verð fyrir afurðir sínar, að þeir séu ekki
verr settir um afkomu nú í ár, heldur en launastéttirnar. En um
leið og landbændur fá þessa tryggingu nú í ár, fá útvegsmenn
hliðstæðan stuðning. Vísitölunni verður haldið lítið breyttri
með framlagi úr ríkissjóði, en það veitir útvegsmönnum þá einu
vernd, sem þjóðfélagið getur veitt þeim. Ef landbændur neydd-
yst til að fá allar sínar þurftartekjur af innanlandssölu á afurðum
Blaðaumræður leysa nauðsynja-
mál.
pREGNIRNAR um, að samgöngu-
málastjórnin hafi nú í undirbún-
ingi áætlun um - vetrar-póstferðir
milli Reykjavíkur og Akureyrar, ættu
að stuðla að því, að menn Létu af
þeirri tizku, sem nú gerizt all út-
breidd í landi hér, að nefna ævinlega
allt sem blöðin flytja og ræða um
markleysu, óábyrgt tal o. s. frv. —
því að enginn efi er á því, að blaða-
umræðurnar um einangrun Norðlend-
inga og nauðsyn betra skipulags á
póstferðum, hafa hrundið þessum
framkvæmdum af stað. „Dagur“ hóf
máls um samgöngumálin fyrir
nokkru og benti á þá staðreynd, að
vegna þess að einn til tveir fjallvegir
lokuðu greiðu bifreiðasambandi suð-
ur yfir heiðar yfir vetrarménuðina,
byggi Akureyringar, Eyfirðingar og
Þingeyingar við samgöngur, sem líkt-
ust meira 19. en 20. öldinni. Þetta
væri sleifarlag, ekki samboðið fram-
sækinni þjóð og bæri að afnema það
með einföldu skipulagi. — A. m. k.
eitt sunnanblaðanna tók í sama
streng og birti 2 ritstjórnargreinar um
málið. Bæjarstjórn Akureyrar sam-
þykkti tillögu í málinu. Árangurinn af
þessu öllu er nú að verða sá, að yfir-
völdin hafa rumskað og allar líkur
eru til að málið verði leyst á viðun-
andi hátt þegar á þessum vetri.
Þannig geta blöðin unnið og þannig
vinna þau oft á tíðum, þótt ýmsum
verði starsýnna á stjórnmálaþrasið og
telji það til vansæmdar, og má
reyndar viðurkenna, að umræðurnar
um stjómmálin í íslenzkum blöðum
séu oft á tíðum ekki sérlega upp-
byggilegar.
Norðlendingar á verði.
jyjÖRG mál þessu lík bíða úrlausn-
ar _nú. — Sum þeirra mikl-
um mun stærri og nauðsynlegri. Blöð-
in hafa þegar hafið sókn í sumum
þeirra. Það má nú telja víst, að kraf-
an um fjórðungsspítala á Akureyri,
til jafns við Landsspítalann í Rvík,
verður ekki látin niður falla fyrr en
sigur er fenginn. Þetta er ekki aðeins
nauðsynjamál, heldur og prófsteinn
á það, hvort sömu lög gilda fyrir
borgarana í landinu, án tillits til þess
hvort þeir erö búsettir á bæjarlend-
um Reykjavíkur eða ekki. í þessu
efni heimta Norðlendingar sjólfsagð-
an rétt í sínar hendur.
Á næsta leiti eru fleiri mál af
slíku tagi, og gildir fyrir þá, sem úti
um land búa, að vera á verði og halda
sínu máli fram og á lofti, svo að al-
þjóð megi sjá og heyra. Til dæmis
eru væntanlegar framkvæmdir ríkis-
ins til atvinnu- og framleiðsluauka í
landinu, svo sem áburðarverksmiðja,
sementsverksmiðja og lýsisherzlu-
stöð. í fyrra taldi Morgunbl. sjálfsagt
mál, að þessi fyrirtæki „risu upp í ná-
grenni Reykjavíkur11. Hvað segja aðr-
ir landsmenn um það? Er það svo
sjálfsagt mál? Áreiðanlega ekki. En
ef aðrir landsmenn halda ekki sínum
kröfum á lofti og spyrna ekki gegn of-
urvaldi Reykjavikur, geta þeir verið
vissir um, að gjörsamlega verður fram
hjá þeim gengið án þess að leita álits
þeirra eða vilja í nokkru.
Svo mætti lengi telja.
gLÖÐIN hafa sínu hlutverki að
gegna, nauðsynlegu hlutverki,
hvað sem hver segir. Þeirra er að
halda hagsmunamálum byggða sinna
og þjóðar á lofti gegn deyfð, fram-
kvæmdaleysi og klíkuyfirráðum ein-
stakra hópa eða hverfa.
Þau eiga langa leið að fara til þess
að geta sinnt þeim málum óhindrað
og eins vel og frekast mætti kjósa, —
en vinna þó þegar, þarft og gott starf
með þjóðinni, t. d. á þann hátt, sem
hér að framan hefir verið rætt um.
Myrkvaður bær?
^^KUNNUGUM mundi þykja kveða
að því, að rafmagnið frá Laxá
væri lítið og ómerkilegt, ef hann liti
yfir bæinn eftir að myrkur er skollið
á og sæi ljósatýrurnar, sem rafveitan
hefir hengt upp í staura og nefnt götu-
ljós! Hefir bærinn ekki efni á að lýsa
göturnar betur? Er fátækt eða fram-
kvæmdaleysi um að kenna?
Samur við sig.
Fyrirspurn til Alþýðumannsins.
j SÍÐASTA Alþm. stendur þessi
klausa í langri þvælu um dýrtíðar-
málin:
„. .. . Nú þegar allt er komið í
ó^fni, fyrst og fremst fyrir aðgerðir
hins opinbera, þykjast þeir vilja fara
að taka málin þeim tökum, sem áður
var bent á. En nú er dýrtíðarófreskj-
búa sinna, þá yrðu þeir að hækka vörurnar stórlega.Æn við það
hækkaði vísitalan og innan skamms myndi meginhluti fiskiflot-
ans stöðvast vegna dýrtíðarinnar og kaupgjalds, sem ekki væri
hægt að rísa undir.
Það sem hefir gerzt í þessu máli er það, að fulltrúar framleið-
enda úr tveim flokkum, sem oft deila harkalega um margskonar
málefni, fundu, að þeir gátu ekki annað en staðið hlið við hlið
í þessu máli, móti kommúnistum og ýmsum Alþýðuflokksmönn-
um. Þeim, sem lesa í Tímanum og Morgunblaðinu hve rnikið
ýmsum málfærslumönnum Framsóknar- og Sjálfstæðismanna
ber á milli, furðar í fyrstu á því, að rödd kjósendanna hefir komið
mörgum af þessum mönnum til að festa með undirskriftum sín-
um heit að því, að vinna af alefli að því að tryggja afkomu ís-,
lenzkra framleiðenda nú í ár. Einn af duglegustu málsvörum
verkamanna, Finnur Jónsson, hallmælti þessum tuttugu og átta
varnarmönnum framleiðslunnar fyrir að hafa gengið frá málinu
utan þingfunda. Óánægja Finns Jónss. stafar ekki af því, að rneiri
hluti þings, tók höndum saman um verndun framleiðslunnar,
heldur af því, að hann sá, að framvegis myndu framleiðendur
landsins taka höndum saman um skynsamlegar sjálfbjargarað-
gerðir, og ekki láta öfgamenn upplausnarflokkanna ráða, nema
að því leyti sem málefni standa til.
Þann stutta tíma, sem liðinn er af starfstíma Alþingis, hefir
verið heppilegt samspil með ríkisstjórninni og hinum sundur-
lausu þingflokkum. Upp úr því samstarfi í vetur sem leið, kemur
dómur sex manna nefndarinnar, um hlutfallið milli afurðaverðs
á landbúnaðarvörum og kaupgjalds. Dómur þessarar nefndar var
þýðingarmikill af því, að hann færði kommúnistum, krötum og
óbilgjörnum Sjálfstæðismönnum með ótvíræðum rökum heim
sanninn um, að allt umtal undangenginna ára, um að sveitamenn
bæru meira úr þýtum, heldur en fólk í öðrum stéttum, var stór-
felld missögn, Nefndin, scm var m, a, skipwð fulltnja frá knmm,